Tíminn - 13.06.1973, Blaðsíða 1

Tíminn - 13.06.1973, Blaðsíða 1
IGNIS FRYSTIKISTUR í.2^ i "'"V RAFTORG SÍMI: 26660 RAFIOJAN SÍMI: 19294 Hálfnað erverk þá hafið er s. I I sparnaður skapar verðmæti Samvinnubankinn 1GÆR fóru þrjátiu og fimm Vestmannaeyjabörn af Keflavikurflugvelli til Oslóar með flugvél frá Flugfélagi íslands. Daginn áður hafði hópur eldri barna lagt af stað til Bodö. Þá fór þangað einnig hópur aldraðsfólks.N.k. sunnudag fara siðan 114 börn og unglingar til Tromsö. Magnús Magnússon bæjarstjóri varð samferða hópnum til Oslóar i gær. Þar mun hann ávarpa Stórþingið og ganga á fund konungs. — Endurskoðun samningsins Vígð kirkja á Húsafelii 161 ári eftir niðurrif síðustu kirkju þar EINAR Agústsson, utanrikisráö- herra, kallaði Irving, ambassa- dor Bandarikjanna I Reykjavik, á sinn fund i gær og afhenti honum SKIPVERJI á Laxá hvarf fyrir 18dögum er skipiö var i höfninni I Goole, sem er viö Humberfljót I Englandi. Var hans leitað i marga daga og fyrir helgina fannst lík hans i höfninni ó Goole. Maöurinn hét Agúst Fjeldsted og var 19 ára að aldri. Aðrir skipverjar á Laxá uröu ekki varir við.er Agúst hvarf og var ekkert um piltinn vitað þegar skipiö varð að láta úr höfn. Viðkomandi lögregluyfirvöld tóku málið aö sér og það var ekki fyrr en nú s.l. föstudag að lik fannst i höfninni sem grunur Iék á að væri af Agústi. Við nánari eftirgrennslan kom i ljós að svo var. Viðræður við Vestur-Þjóðverja hefjast 29. júní AKVEÐIÐ er að viðræður íslend- inga og Vestur-Þjóöverja um undanþágur fyrir vestur-þýzka togara til að veiöa innan 50 milna markanna hefjist i Reykjavik 29. júni. Eins og sagt hefur verið frá i Timanum gerir islenzka tilboðið ráð fyrir, að vestur-þýzkir togarar fái að veiða allt innan að 30 milna mörkum i umsamdan tima, en stærð skipa og heildarafli verður takmarkaðuf. Vestur- Þjóðverjar hafa enn ekki tilkynnt hverjir verða i viðræðunefnd þeirra. OÖ orðsendingu til Bandarikja- stjórnar, sem segir að innan skamms muni islenzka rikis- stjórnin tilkynna Natóráðinu, að Ekki er vitað meö hvaða hætti dauða Agústs bar aö. Jón Olgeirs- son, vararæöismaöur tslands i Grimsby, sagði Timanum i gær, aö einhverjir áverkar væru á likinu en hverng á þeim stendur er ekki upplýst, og vinnur iögreglan að rannsókn málsins. varnar- hefst innan skamms muni endurskoðun varnarsamningsins hefjast. Utanrikisráðherra fór i morgun til Kaupmannahafnar, þar sem hann mun sitja utanrikisráðherra fund Natórikjanna, sem þar verður haldinn á fimmtudag og föstudag. Einar Agústsson mun flytja ræðu á fundinum á morgun, fimmtudag. Hann er væntanlegur til Islands aftur á sunnudaginn. Enn hefur ekkert heyrzt opin- berlega frá Natóráðinu um þá kröfu Islendinga, að Bretar verði á brott með herskip sin úr fisk- veiðilögsögunni, en óstaðfestar fregnir herma að lagt hafi verið fast að þeim að verða við kröfum íslendinga en þeir þrjóskast við og halda áfram að leika 19. aldar heimsveldi. I ATTA hundruö ár var kirkja á Húsafelli. Siðasta kirkjan þar var rifin árið 1812. Nú um allmargra ára skeið hefur aftur verið kirkja I smiðum á Húsafelli, og á annan dag hvítasunnu vlgði biskup landsins þá kirkju að viðstöddum um 130 manns, þar af fjórum prestum úr héraði — séra Einari Guðnasyni, fyrrverandi sóknar- presti, séra Jóhannesi Pálma- syni, núverandi Reykholtspresti, séra Jóni Guðjónssyni á Akranesi og séra Jóni Einarssyni I Saurbæ á Hvalfjarðarströnd. Að lokinni vigslu voru fermd þrjú börn — tviburarnir Bergþór og Þorsteinn, synir Sigrúnar Bergþórsd. frá Fljótstungu og Kristleifs Þorsteinssonar á Húsa- felli, og Jónina Marta, frænká þeirra, dóttir Ingibjargar Bergþórsdóttur og Árna Þor- steinssonar i Fljótstungu. Laugardaginn fyrir hvitasunnu höföu brúðhjón, sem dvöldust i Húsafellsskógi, Kristin Þórðar- dóttirog Sævar örn Kristjánsson, verið gefin saman I kirkjunni með sérstöku leyfi. A byggingu þessarar kirkju var byrjað kringum 1950, og átti UNGUR maður sannaði það um helgina að með dugnaði og ein- beitni er hægt að eyða yfir 100 þúsund krónum á tveim sólar- hringum án þess að nota neitt af þeirri upphæð til kaupa á varan- legum hlutum. Sl. föstudag brauzt pilturinn inn i ibúð i Reykjavik og stal þaðan 10 þús. kr. Skömmu siðar fór hann aftur inn og stal bankabók og tók út úr henni 100 þús. kr. Hann bauð félaga sinum með sér i leigubil noröur i land. Fóru þeir allt Asgrimur Jónsson , listmálari hugmyndina að útliti hennar, en teikninguna sjálfa gerði Haildór Jónsson. Margir hafa átt hlut að þvi, að kirkjan kæmist upp. Sig- mundur Sveinsson frá Brúsa- stöðum safnaði viða fé i kirkju- sjóðinn, Jakob Guðmundsson á Húsafelli gaf kirkjunni aleigu sina, og séra Magnús Þorsteins- son frá Húsafelli, Þóröur Kristleifsson og Halldór Þor- steinsson i Vörum i Garði hafa allir gefiö henni stórgjafir. Helga Larsen á Engi i Mosfellssveit hefur einnig lagt henni til góða gripi, og þannig mætti lengi telja. Sjálfur kirkjugarðurinn var notaður alllengi eftir aö kirkjan var rifin, og siðast var þar grafin árið 1852 Guðný i Ambáttarhóli, dóttir hins fræga klerks Snorra Björnssonar, er þjónaði Húsafelli næstsiöastur. Kirkjugarðurinn var endurreistur árið 1930. Hafði Jakob Guðmundsson á Húsafelli dreymt, aö séra Snorri kæmi til hans og léti i ljós, að hann kynni þvi ekki vel, að gripir gengju að beit á beinum sinum. Lét Jakob þá giröa garöinn á sinn kostnað. — J.H. norður i Mývatnssveit og eyddu fé eins og þeir mögulega gátu á ferðalaginu. A Akureyri voru þeir handteknir aðfaranótt mánudags og sendir suður. Voru þá aðeins örfá þúsund eftir af þýfinu. Aðfaranótt sunnudags var brotizt inn i aðra mannlausa ibúð i Reykjavik og stolið bankabók sem i eru 247 þús. kr., ávisun að upphæð 30 þús. kr. og 16 þúsund kr. i peningum. Bankabókin og ávisunin hafa ekki komið fram. —OÓ AAannfraeðirannsóknir í Þing eyjarsýslu að byrja NÚ eftir fáa daga munu á ný hefjast viötækar mannfræði- rannsóknir i Þingeyjarsýslu i framhaldi af rannsóknum þeim, sem þar voru gerðar i fyrra á vegum Mannfræöi- stofnunar tslands með styrk frá norræna menningar- málasjóðnum og i samvinnu við erlenda visindamenn. Mun dr. Jens Pálsson stjórna þessum rannsóknum, og hafa þær verði skipulagöar af Mannfræðistofnuninni i góðri samvinnu við rannsóknarstofu háskólans i lifeðlisfræði. Að þessu sinni verða allir þeir, sem að rannsóknunum vinna, verða islenzkir, nema einn mannfræðingur, bandarisk kona, sem dr. Jens hefur ráðið til starfa meö sér. Af hálfu lifeðlisfræðideildar háskólans munu þeir Jóhann Axelsson prófessor og Stefán Jónsson læknir verða til for- svars við þessar rannsóknir og tveir augnlæknar Kristján Sveinsson i Reykjavik og Loftur Magnússon á Akureyri munu'endurgjaldslaust rann- saka augu fólks, einkanlega þess, sem roskið er orðið. I fyrra var einkum rann- sakað fólk, búsett á Húsavik og i nætu byggðalögum, en nú verður leitazt við að ljúka mannfræðirannsóknum i suðursýslunni og Kelduhverfi, auk þess sem visindamennirn- ir kunna að fara allt til Raufarhafnar og Þórshafnar, ef timi vinnst. Dr. Jens Pálsson gerir ráð fyrir aö halda norður fyrir næstu helgi, en aðrir munu koma upp úr helginni. Indriði Indriðason rithöfundur hefur veitt ættfræðilegar leið- beiningar, og Hálfdán Hjalta- son og Erna Sigurleifsdóttir, kona Arna læknis Arsælssonar hafa unnið að undirbúningi nyrðra, dreift eyðublöðum og á ný þess háttar. Bækistöðin verður i barnaskólanum i Húsavik eins og i fyrra, og meðal þeirra, sem veita að- stoö, verður Erla Þorsteins- dóttir hjúkrunarkona. Markmiö Mannfræði- stofnunarinnar er meöal annars að gera mannfræöi- rannsóknir af þessu tagi i öll- um héruðum landsins. Aður en dr. Jens Pálsson heldur norður verður aöal- fundur Mannfræðifélagsins haldinn. Hann á að verða i kvöld i 1. kennslustofu háskól- ans og hefjast klukkan hálf- niu. LÍK ÍSLENDINGS í HUMBERFLJÓTI Eyddi 100 þúsundum á tveim sólarhringum

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.