Tíminn - 13.06.1973, Side 5
Miðvikudagur 13. júni 1973.
TÍMINN
5
Aðalfund
SIS sóttu
95 full-
trúar
sagði Gunnar Grímsson starfsmannastjóri
Sambandsins er var með að undirbúa
fundinn
Gunnar Grimsson, er
starfsmannastjóri SÍS
og eitt af verkefnum
hans er að undirbúa
aðalfund Sambandsins.
Þetta mun vera 36. aðal-
fundurinn, sem Gunnar
situr, ýmist sem fulltrúi,
starfsmaður, eða gest-
ur, en Gunnar var kaup-
félagsstjóri á Skaga-
strönd áður en hann
gerðist starfsmaður
Sambandsinsfc í samtali
við Timann, sagðist hon-
um frá á þessa leið um
aðalfundinn:
Á þessum aðalfundi áttu 106
fulltrúar rétt til fundarsetu, en 95
fulltrúar sátu fundinn. Vantaði
þvi óvenju marga að þessu sinni
og er það einkum annriki, er
þessu veldur.
Rétt til fundarsetu hafa kjörnir
fulltrúar úr öllum kaupfélögum
innan Sambandsins, en auk þess
sitja fundinn stjórn StS og fram-
kvæmdastjórn og ýmsir þeir er
skipa trúnaðarstöður i Samvinnu-
hreyfingunni. Að þessu sinni voru
engir erlendir gestir við setningu
fundarins, en fundinum bárust
ýmsar kveðjur.
Verkefni aðalfundar StS eru
einkum skýrslur og ársreikningur
Sambandsins. Þar var fjallað um
reksturinn á árinu 1972 og greint
frá helztu framkvæmdum og við-
burðum í hinum einstöku deildum
og fyrirtækjum Sambandsins.
Ennfremur voru ýmis önnur
mikilvæg mál á dagskrá. Auk
þessa hafa aðalfundirnir lika al-
mennt gildi fyrir Samvinnu-
hreyfinguna, því að þarna hittast
ýmsir menn, sem ella hefðu fá
Krá aðalfundi Sambands isl. Samvinnufclaga i Kifriist i Korgarfirði. Jakob Krímannsson, stjórnarfor-
maður Sambandsins i ræðustóli.
tækifæri til að kynnast, eða
endurnýja kunningsskap sinn.
Ég vil svo að lokum nota tæki-
færið og þakka starfsfólkinu i Bif-
röst fyrir ágætt samstarf og góða
þjónustu, sem og öðrum, sem að
framkvæmd aðalfundarins hafa
unnið.
Klestir fulltrúarnir bjuggu i
Bifröst, en auk þess urðu nokkrir
að gista i Borgarnesi, þar eð fjöl-
menni var mikið. Var fólki ekið
milli staðanna i langferðabilum.
JG
Um ársskýrslu Sambandsins :
56,8 MILLJÓN KRÓNA
REKSTRI SÍS
TAP A
Aðalfuhdi Sambands
isl. samvinnufélaga,
lauk i Bifröst siðastlið-
inn fimmtudag. Blaðið
átti stutt samtal við
Jakob Frimannsson,
stjórnarformann
Sambandsins og Erlend
Einasson, forstjóra i
fundarlok. Töldu þeir,
að aðalfundurinn hefði
einkennzt af miklum
áhuga á fjörugum
umræðum og undir það
tóku fleiri er fundinn
sátu.
Ennfremur skýrðu formaður-
inn og forstjórinn frá þvi, að á
dagskrá fundarins hafi nú verið
sérstakt mál: fjárhagsuppbygg-
ing samvinnuhreyfingarinnar.
Hefði á siðasta aöalfundi verið
ákveðið að taka ávallt fyrir eitt
mál, sem ofarlega væri á baugi og
ræða á Sambandsfundum og hefði
þetta mál orðið fyrir valinu núna,
enda þýðingarmikið, hvernig
hægt sé að byggja upp fjármagn
fyrir kaupfélögin og Sambandið
með skipulögðum hætti.
Miklar umræður urðu um þetta
á fundinum, en áður höfðu kaup-
félögunum verið sendar greinar-
gerðirog ýmsar upplýsingar. Var
kosin 13 manna nefnd á fundinum
til að vinna með stjórninni að
þessum málum, og til að kanna*
hvaða ráðstafanir væri hægt að
gera til þess að auka fjárhagslegt
sjálfstæði Sambandsins og Kaup-
féíaganna og var forstjóri Sam-
bandsins kosinn formaður nefnd-
arinnar og mun kalla hana saman
ásamt stjórninni, sögðu þeir
Jakob Frimannsson og Erlendur
Einarsson að lokum.
Úr skýrslu
forstjóra SiS
1 ársskýrslu fyrir 71 starfsár
Sambandsins er að finna marg-
háttaðan fróðleik um hag Sam-
bandsins og þjóðarbúið. 1 yfirliti
Erlendar Einarssonar, forstjóra
SIS, segir á þessa leið m^i.:
,,A árinu 1972 dró verulega úr
vexti þjóðartekna lslendinga
miðað við næstu tvö ár á undan.
Samkvæmt útreikningum Seðla-
bankans jókst raunvirði þjóðar-
tekna á árinu um 5% á móti 12.5%
aukningu árið 1971 og 10.3% 1970.
Á árinu 1972 jókst sjávarafli um
8% að magni til frá árinu 1971 en
aukningin varö öll i miklum
loðnuafla, sem jókst um 52% frá
árinu áður. borskaflinn minnkaði
hins vegar um 5% og árið áöur
varð minnkunin 12%. Minnkun
þorskaflans er alvarleg stað-
reynd fyrir þjóðarbú tslendinga
og hlýtur að renna enn sterkari
stoðum undir aðgerðir Islendinga
i landhelgismálinu. Meðalverð
sjávarafurða hækkaði um 10% á
s.l. ári, en vegna óhagstæðrar
skiptingar aflans á fisktegundir
(mikil aukning loönuafla, en
minnkandi þorskafli):. varð
hækkun á heildarverðmæti aflans
aðeins tæp 3%.
Talið er að iðnframleiðslan hafi
á árinu I972aukizt um 8%, sem er
mun minna en árið á undan.
Vegna mikillar hækkunar á fram-
leiðslukostnaði vernsaði afkoma
iðnaðarins verulega frá fyrra ári.
Árið 1972 varð landbúnaðinum
sérstaklega hagstætt. Arferði var
gott og rauntekjur bænda hækk-
uðu verulega. Hagstætt árferði
varð til þess, að bændur juku bú-
stofn sinn fyrst og fremst með
Samvinnufélögin
gegna stóru
hlutverki í upp
byggingu
atvinnulífsins,
segir Erlendur
Einarsson
forstjóri
Sambandsins
auknum ásetningi sauðfjár. Að
landbúnaðarframleiðslan jókst
ekki nema um 4-5% á árinu, staf-
ar m.a. af auknum ásetningi bú-
fjár.
Þróun eínahagsmála hefur að
sjálfsögðu viðtæk áhrif á rekstrar
afkomu Sambandsins. Hinar
miklu kostnaðarhækkanir innan-
lands, samfara beinni og óbeinni
verðstöðvun, höfðu mjög neikvæð
áhrif á reksturinn. Tekjuaukning
varð stórum minni en aukning
kostnaðar, eins og fram kemur i
þeim tölum, sem hér á eftir
fylgja.”
Það er athyglisvert, að þratt
fyrir öll skrif stjórnarandstöðunn
ar um hækkandi verð á sjávaraf-
urðum og þá sér i lagi á fiskblokk
i Bandrikjunum og loðnu, kemur i
ljós, að heildarverðmæti sjávar
aflans eykst aðeins um 3% á árinu
1972.
Jakob Krimannsson og Erlendur Einarsson ræðast við í fundarhléi.
Sambandið greiðir 57
milljónir króna
í opinber gjöld