Tíminn - 13.06.1973, Blaðsíða 9
Miövikudagur 13. júni 1973.
9
Ásgrímur Haildórsson, kaupfélagsstjóri á Hornafirði:
Byggjo hraðfrystihús fyrir 200 millj.
Fagna hringvegi, en 50 mílna landhelgi
breytir öllu fyrir Austur-Skaftfellinga
Kaupfélag Austur-Skaftfellinga
á Hornafiröi hefur á stundum
vakiö nokkra athygli i fjölmiölum
fyrir rekstur hraðfrystihússins,
en þar hefur afkoman oft verið
betri en annars staöar, svo eitt-
hvað sé nefnt, og kaupfélagiö er
rekiö af miklum dugnaöi og
myndarskap.
Meöal fulltrúa á aðalfundi
Sambandsins var Asgrimur
Halldórsson,.kaupfélagsstjóri og
sagðist honum frá á þessa leið um
aðalfundinn og kaupfélagiö:
— Frá kaupfélaginu sitja aðal-
fundinn tveir fulltrúar, ég og
Oddur Jónsson, verzlunarstjóri á
Fagurhólsmýri. Ég hefi setið
aðalfundi sambandsins annað
slagið i tvo áratugi.
Þessi aðalfundur hefur veriö
fremur viðburðalitill, en allmikl-
ar umræður hafa þó verið um
félagsmálin.
Nýtt mjólkurbú
á Hornafirði
A Hornafiröi standa nú yfir
miklar framkvæmdir hjá kaup-
félaginu. I febrúar siðastliðnum
tókum við i notkun nýja mjólkur-
stöð, sem afkastað getur um 2.5
milljón kg af nýmjólk á ári og
stækkunarmöguleikar eru fyrir
hendi. Þar pökkum við m.a.
neyzlumjólk i eins litra umbúðir
og i 10 litra kassa, sem einkum er
ætlað bátum, skipum og stærri
heimilum. Annars höfum við selt
gerilsneydda nýmjólk siðan árið
1956, en þá var mjólkurbúið
stofnað.
Nýja m jólkurbúið kostaöi um 30
milljónir króna.
Félagssvæði okkar er Austur-
Skaftafellssýsla, eða frá Skeiðará
að Lónsheiði, en þar er mikið
landbúnaðarhérað. Auk mjólkur-
afurða eru sauðfjárafurðir mikl-
ar og var slátrað um 25.000 fjár á
siðasta ári.
Nýtt hraðfrystihús
fyrir 200 millj. króna.
Vinnsla sjávarafla er sem fyrr
mikil hjá kaupfélaginu. Við erum
með nýtt frystihús i smiðum, sem
áætlað er að muni kosta um 200
milljónir króna fullbúið. Húsið er
reist i áföngum og var hluti þess
tekinn i notkun á siðasta ári, i
september 1972, en það er frysti-
geymsla. Við gerum ráð fyrir að
hefja þar loðnufrystingu á næstu
vertið. Viö gerum ráð fyrir að
nýja frystihúsið verði fullgert ár-
ið 1975. Þetta nýja hús mun geta
aukið afköstin hjá okkur um
helming, en framleiðslan hefur
verið 60-80.000 kassar á ári. Það
eru nýmæli, að þegar ný löndun-
arbryggja hefur verið gerð
þarna, fyrir framan frystihúsið
og fiskimjölsverksmiðjuna, verð-
ur fiskinum landað i kössum og á
færiböndum, en það mun spara
húsinu stórfé.
Hjá kaupfélaginu leggja upp
um 15 Hornafjarðarbátar. Kaup-
félagið gerir ekki út báta, heldur
eru bátarnir flestir i eigu skip-
stjórnarmannanna, sem á þeim
eru og er náin og góð samvinna
milli þeirra og kaupfélagsins.
Hringvegurinn
Landhelgin
Hringvegurinn nýi, sem koma
mun á næsta ári, kemur auðvitað
til með að gjörbreyta samgöngu-
málum okkar við höfuðborgar-
svæðið. Að visu er erfitt að meta
almenn áhrif, sem vegurinn kann
að hafa i héraðinu og annars stað-
ar á Austurlandi, en við vonum að
hann verði til verulegra hagsbóta
fyrir Austur-Skaftafellssýslu.
Annars hefur landhelgismálið
ltklega meiri áhrif á lif manna i
sýslunni, sem og annarsstaðar
hér á landi. Við vonumst eftir að
það gjörbreyti aðstööu okkar hér.
Viö fögnum þeim ákvörðunum,
sem teknar hafa verið i land-
helgismálinu og hvetjum þjóðina
Asgrim u r Ilalldórsson,
kaiipi'élagsstjóri á Ilornafiröi.
til samheldni, segir Asgrimur
Halldórsson, kaupfélagsstjóri að
lokum.
JG
Kaupfélagsstjóraskipti í
Króksfjarðarnesi
Ólafur E. Ólafsson, lætur af starfi kaupfélagsstjóra eftir
35 óra starf fyrir kaupfélagið
AÐALFUNDUR Kaup-
félags Króksfjarðar
fyrir árið 11972 var
haldinn s.l. laugardag i
félagsheimilinu Voga-
landi Króksfjarðarnesi.
Formaður félagsins
setti fundinn og stýrði
honum. Samkv. efna-
hagsreikn. hafði stofn-
sjóður félagsmanna
hækkað um 292 þús. og
var i árslok 2.225.000.00-
bókfært verð fasteigna
að frádreginni fyrningu
var 4.7 mill. en félagið á
þrjú ibúðarhús, nýlegt
verzl.hús ásamt vöru-
geymslum auk slátur-
húss. Innstæður
viðskiptamanna höfðu
vaxið um tæpar 4 millj.
en skuldir hækkað um 1
millj. Varasjóður
hækkaði um 232 þús. og
var i árslok 2.2 millj.
A miðju ári 1972 opnaöi Sam-
vinnubanki Islands umboðsskrif-
stofu frá útibúi sinu á Patreks-
firði en Innlánsdeild kaupfélags-
ins um 11 millj. var afhent
bankanum, var þeirri ráðstöfun
vel tekið og hefur rekstur skrif-
stofunnar gengið mjög vel það ár
sem hún hefur starfað, veitt
mikla þjónustu til hagræðis
héraðsbúum og aukið innstæður
verulega.. Forstöðumaður skrif-
stofunnar er Halldór D. Gunnars-
son.
Umsetning og
ráðstöfun arðs
A árinu var keypt ný bifreið til
vöruflutninga en eldri bifreiðir
seldar, rekstur bifreiðarinnar
gekk vel og skilaði nokkrum
hagnaði.
Umsetning hafði aukizt veru-
lega frá árinu áður og gaf
reksturinn möguleika til greiðslu
tekjuafgangs, er aðalfundurinn
ákvað að skyldu verða 7% af
ágóðaskyldri úttekt félagsmanna-
af þeirri upphæð skyldu 3% gr. i
stofnsjóð félagsmanna en 4% i
viðskiptareikninga. Afskriftir af
eignum voru eins og skattalög-
gjöfin heimilar.
Alls varð vörusalan rúml. 31
millj. króna en fyrir land-
búnaðarafurðir teknar i umboðs-
sölu voru gr. 29 millj.
Agnar Tryggvason
flutti erindi
A fundinum mætti Agnar
Tryggvason, framkvæmdastjóri
Búvörudeildar Sis, hann flutti er-
indi um afurðasölumál
landbúnaðarins og svaraði fjölda
fyrirspurna bænda. Var komu
hans fagnað og hún þökkuð.
I stjórn voru endurkosnir Jens
Guðmundsson, Reykhólum og
Július Björnsson, Garpsdal en
auk þeirra skipa stjórnina
Grimur Arnórsson, Tindum form.
Karl Arnason, Kambi og
Haraldur Sæmundsson, Kletti.
t april sl. urðu kaupfélagsstjóra
skipti, Ólafur E. Ólafsson hætti
störfum en hafði þá alls starfað
fyrir kaupfélagið i 35 ár en
Eirikur Asmundsson kaupfélags-
stjóri frá Haganesvik tók við
starfinu. I fundarlok þakkaði
Julius Björnsson og fleiri frá-
farandi kaupfélagsstjórar störf
hans i þágu félagsins og buðu hinn
nýja kaupfélagsstjóra velkominn
til starfa.
—JG
Höfum fyrirliggjandi 22ja hestafla
vatnstúrbínur
við staðhætti: Fallhæð 4 m, vatnsmagn 500
sek /1, sjálfvirkum gangráð og til-
heyrandi.
Túrbinur fyrir mismunandi staðhætti, þ.e.
2-5 m fallhæð og 150-300 sek/1 með hand-
stýringu og tilheyrandi.
Jafnstraumsrafal 220 volt, 11 kw, 400
snúningar /min —
Hentugar fyrir minni gerð fiskibáta.
Greiðsluskilmálar.
BRÆÐURNIR ORMSSON H.F.
Lágmúla — Reykjavik
Ljósmynda-
SÝNING
frá Selskabet for Dansk
Fotografi hefst i
sýningarsal Casa Nova t
fimmtudaginn 14. júni n.k.
og stendur til 22. þ.m.
Sýningin verður opin alla
daga frá kl. 16-22, nema
laugardag og sunnudag frá
kl. 14-22.
Verið velkomin.
Dansk-íslenzka
félagið
NORRÆNA
HÚSIÐ
Tn’nmnmHinm»nm»uumr
Sérleyfis- og Reykjavik — l.augarvatn — Geysir — Gullfoss
um Grimsnes, Biskupstungur, Laugardal
SKemmnteroir ana ^aga — engin fri viö akstur
BSI — Simi 22-300 — Ólafur Ketilsson
tiltllltlilllllttiÍiiHltllllitltittlAH
Afgreiðslustarf
Viljum ráða nú þegar afgreiðslumann i
verzlun okkar i Þorlákshöfn.
Fjögurra herbergja ibúð getur fylgt starf-
inu.
Kaupfélag Árnesinga.
Orkustofnun óskar að ráða til sin vanan vélritara Skrifstofur okkar
hálfan daginn — fyrri hluta dags. verða lokaðar frá hádegi fimmtudaginn
Enskukunnátta nauðsynleg. 14. þ.m. vegna jarðarfarar Ólafs Sigur-
Umsóknir sendist Orkustofnun, Lauga- þórssonar, gjaldkera.
vegi 116, Reykjavik, eigi siðar en 20. júni n.k. AAjólkursamsalan
Orkustofnun.