Tíminn - 13.06.1973, Side 10

Tíminn - 13.06.1973, Side 10
10 TÍMINN Miövikudagur 13. júni 1973. Kaupfélagið reisir fokheld hús og selur á kostnaðarverði ■ / * * til að leysa húsnæðismdl og vinnuaflsþörfina, segir Olafur Olafsson, kaupfélsstjóri á Hvolsvelli Ólafur ólafsson, kaupfélagsstjóri á Hvolsvelli hefur verið þar kaupfélagsstjóri sið- an áírið 1965. Var áður kaupfélagsstjóri á Ólafsfirði, á árunum 1959-1965. Ólafi sagðist svo frá i stuttu samtali við blaðið á aðaifundi Sambandsins: — Frá Kaupfélagi Kangæinga sitja tveir fulltrúar þennan aöal- fund, þaö er ég sjálfur og Eiríkur tsaksson, útibússtjóri á Rauða- læk. Félagssvæði Kaupfélags Rangæinga er frá Þjórsá að Jökulsá á Sólheimasandi og þar búa um 3200 manns. 1 Kaupfélagi Rangæinga eru 550 félagar. Verzlanir og þjónusta Kaupfélagið rekur tvær verzlanir, á Hvolsvelli og á Rauöalæk, en auk þess rekur það margs konar þjónustufyrirtæki fyrir Rangæinga. t>ar á meðal trésmíðaverkstæði, bifreiðaverk- stæði, vélsmiðju og rafmagns- verkstæði, og auk þess hefur það með höndum umfangsmikla flutninga um héraðið og til Reykjavikur. Rekur kaupfélagið 10 stórar vöruflutningabifreiöir og ekur vörum til viðskipta- manna sinna einu sinni til tvisvar i hverri viku. Kaupfélagiö rekur ekki mjólkurbú. Mjólkin af félagssvæðinu fer i Mjólkurbú Flóamanna á Selfossi og fé er slátrað í Djúpadal hjá Slátur- félagi Suðurlands. Ilvolsvöllur eitt hús 1950 Byggðakjarninn á Hvólsvelli á sér ekki langa sögu. Upphaflega var þarna aðeins eitt hús, sem reist var til að hýsa útibú frá Kaupfélaginu i Hallgeirsey i Landeyjum, en það var reist áriö 1930. Vöxtur þorpsins var samt hægur fyrsta áratuginn, en upp úr 1940 fór : skriður að komast á uppbygginguna og hefur hún ver- ið mjög hröð siðustu árin og nú munu um 300 manns eiga fastan bústað á Hvolsvelli. Það sem einkum hefur staðið i vegi fyrir uppbyggingu staðarins er húsnæðisskortur. Á Hvolsvelli er rik vinnuaflsþörf og fólk myndi setjast hér að, ef þaö hefði hentugt húsnæði. Viö höfum þvi hjá kaupfélaginu gripið til þess ráðs að reisa fokheld hús og selja „innflytjendum” á kostnaðar- verði, til þess að greiða fyrir að- komufólki. Viö höfum þegar reist 11 hús meö þessum hætti og höf- um gert samninga um smiði 9 húsa til viöbótar. Framkvæmdir 1973 Arið 1948 voru kaupfélögin i Hallgeirsey og á Rauðalæk sam- einuð i eitt félag, en Kaupfélagið i Hallgeirsey flutti á Hvolsvöll 1930. Heildarvelta félagsins varð á siðasta ári 307 milljónir króna og hafði vaxið um 25% á árinu. Helztu verkefni um þetta leyti er að reisa nýja vörugeymlsu á Rauðalæk. Það verður 500 fer- Ólafur ólafsson,kaupfélagsstjóri á Hvolsvelli metra hús og svo ráðgerum viö að byggja olhnalarplan umhverfis verzlunarhúsin hér á Hvolsvelli. Hér er gifurleg umferð á sumrin og frá heilbrigöis- og feguröar- sjónarmiði er þetta mjög brýnt verkefni. Formaður kaupfélags- stjo'rnarinnar er Björn Fr. Björnsson, alþingismaður á Hvolsvelli. JG Aðalfundurinn er okkar aðal tengiliður við félagsmenn Samvinnuhreyfingarinnar framkvæmdastjóri Véladeildar SÍS Jón Þór Jóhansson Jón Þór Jóhannsson hefur verið lram- kvæmdastjóri véladeild- ar SIS siðan árið 1968, eftir að hafa gegnt ýms- um öðrum trúnaðar- störfum hjá Samvinnu- hreylingunni siðan árið 1952. Honum sagðist svo frá, er við hittum hann að máli á fundinum i hléi: — Ég heli sem framkvæmda- stjóri sótt fimm aðalfundi, en hefi þó lengi verið viðloðandi þessa fundi, ýmist sem starfsmaður, deildarstjóri og sem aðstoðar framkvæmdastjóri innflutnings- deildar á sinum tima. Ég legg mikið upp úr þessum fundum. Aðalfundurinn er oft eini tengi- liður okkar við stjórnarmenn kaupfélaganna, þvi að i starfinu hefur maður að heita má einvörð ungu samband viö kaupfélags- stjórana og innkaupafólk. Á aðal fundinum hins vegar fær maður tækifæri lil að hitta ýmsa leiðandi menn f Samvinnu- hreyfingunni og heyra álit þeirra á starfi Sambandsins á hverjum tima, og á þvi hvernig okkur ferst við hin ýmsu verkefni. Nú á hinn bóginn hefur svo aðalfundurinn ákveðnu verkefni að gegna. Þar eru lagðir fram reikningar Sambandsins og kosið i æðstu trúnaðarstöður. Vaxandi sala hjá véla- deild Arsskýrsla veladeildar var lögð fram á fundinum og gerði Erlendur Einarsson, forstjóri grein fyrir starfi deildarinnar sem og öðrum þáttum i starfsemi SIS. Þar kom fram, að mikil aukning hefur orðið hjá deildinni, sem nú seldi fyrir um það bil 700 milljónir króna, eða heildarvöru- salan hefði aukizt um 114 milljónir króna. Þessi aukning er i sölu búvéla, raftækja, þunga vinnuvéla og bila. Við erum stærsti búvélasalinn á landinu og má segja, að tæki frá okkur séu á hverju einasta sveitaheimili i landinu, eða hverju einasta búi. Nýtt bilaverkstæði í Reykjavik Helzta verkefnið hjá okkur er núaðkomaáfót þjónustumiðstöð fyrir bifreiðar á höfuðborgar- svæðinu. Aukning i bifreiðasölu kallar á aukna þjónustu. Við munum koma Upp almennu bif- reiðaverkstæði og varahluta- verzlun i húsnæði, sem við höfum tekiö á leigu. Véladeildin hefur undanfarin ár aðeins rekið þjónustuverkstæði fyrir nýja bila, ei> leyst verkstæðismálin með viðtækúm samningum við al- menn bílaverkstæöi, sem rekin eru af sjálfstæðum aðilum. Viðskipti hafa farið vaxandi á fyrstu mánuðum þessa árs, bæði i bifreiðasölu og allri vélasölu. Okkar aðalvandamál verður þvi aðútvega fjármagn til að standa undir þeim viðskiptum, sem unnið hefur verið að hjá deild- >nni. Véladeildin fer með mörg heimsþekkt umboð, sem kunnugt er, og getur þvl boðið hér á landi, margvisleg tæki og vélar og víðtæka þjónustUí segir Jón Þór Jóhannsson að lokum. JG. Jóhannsson, framkvæmdastj. Véladeildar StS. f»SPgOS4I KNATT- spyrnu SKÓR MALARSKÓR: Trúlofunar- HRUSGIR Fljót afgreiösla Sent i póstkröfu GUDMUNDUR ÞORSTEINSSON gullsmiður Bankastræti 12 Heilsustjóri Norðmanna í heimsókn — flytur fyrirlestur í Norræna húsinu um „EITT stærsta vandamál okkar Norðmanna er hversu mikið við höfum af ódýrri orku og mér sýnist að þið tslendingar séuð byrjaðir að kynnast þvi vanda- máli”, sagði Dr. Karl Evang fyrrverandi „helsedirektör” i Noregi á blaðamannafundi i gær. Orð dr. Karls eru ekki sögð út i bláinn, þvi á löngum starfsferli sinum hefur hann kynnzt af eigin raun hvernig þau erlendu og inn- lendu stórfyrirtæki, sem sækja i hina ódýru orku, hafa stórspillt umhverfi sinu, með gáleysislegri umgengni sinni við móður náttúru. Dr. Karl Evang er nú staddur hér á tslandi i boði heilbrigðis- ráðuneytisins og mun hann eiga viðræður við stjórnendur þeirra mála hér á landi og miðla þeim af þekkingu sinni. Hann var, sem fyrr segir, helsedirektör i Noregi og gegndi þvi embætti i 33 ár, eða þar til á siðasta ári er hann lét af störfum. Embætti helsedirektörs er geypiviðamikið og má segja að það spanni bæði það svið, sem landlæknir og ráðuneytisstjórinn I heilbrigðisráðuneytinu fara með hér á landi. Hefur dr. Evang þvi öðlazt reynslu á sviði stjórnunar heilbrigðismála, sem varla á sér margar hliðstæður i heiminum. A styrjaldarárunum var dr. Evang með norsku útlagastjórn- inni og starfaði ýmist i Englandi eða Bandarikjunum. Á þessum árum komst hann i kynni við forystumenn heilbrigðismála þeirra rikja og undirbjó ásamt þeim stofnun Alþjóðaheilbrigðis- málastofnunarinnar (WHO). Hann sat m.a. i nefnd þeirri er samdi drög að stofnskrá WHO og sat þing stofnunarinnar frá byrjun, m.a. var hann forseti eiturlyf javandamál annars þings WHO árið 1949 og formaður framkvæmdanefndar stofnunarinnar 1966-67. Meðan á dvöl dr. Evangs hér á landi stendur, mun hann flytja tvö erindi. Hið fyrra verður flutt miðvikudaginn 13. júni kl. 10,30 i kennslustofu Landspitalans um stöðu lækna i stjórn heilbrigðis- mála „Den medisinskfag- kyndiges plass i helseadmini- strationen” og hið siðara i Norræna húsinu fimmtudaginn 14. júni kl. 17.00 og mun Karl Evang þar fjalla um nútima eiturlyfjavandamál á Norður- löndum, „De nya narkotikapro- blemer særlig med henblikk pá de nordiske land”. Fyrri fyrirlestur- inn er aðallega ætlaður læknum, en hinn siðari er opinn öllum, sem áhuga hafa á málefninu. —gj Punia-Pioner Puma-Berti Vogts AII Round Puina— Pele Kio Grande GRASSKÓR: Puma-King Pele Pmna-Net/.er A/.ur Sportvöruverzlun Ingólfs Ú8kar88onar Klapparetlg 44 — Slml 11783 — Rcykjavlk ATHUGIÐ. Aður litil l'erðainannaverzlun, nú »\r og rúmgóður veitingaskáli. Fjiilþættar veitingar og margs- konar vörur. Gas og gasáfylling- ar. Benzin og oliur. — Þvottaplan — Velkomin i vistleg húsakynnt. Veitingaskálinn Hrútafirði. Brú , FEIUU imenu I I % I

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.