Fréttablaðið - 23.08.2004, Síða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík — sími 550 5000
MÁNUDAGUR
KVENNA- OG KYNJAFRÆÐI Malin
Rönnblom, fræðimaður við Centre for
Women’s Studies í Umeå, flytur í dag fyrir-
lesturinn: “Hvað er málið?“ Samþætting
kynjasjónarmiða í Svíþjóð og Evrópusam-
bandinu. Fyrirlesturinn fer fram á ensku,
klukkan þrjú síðdegis í Háskóla Íslands í
stofu 101 í Lögbergi og er öllum opinn.
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
VÍÐAST BJARTVIÐRI Síst þó á
Vestfjörðum og norðvestan til. Stöku
síðdegisskúrir. Hiti 10 til 17 stig að
deginum. Sjá síðu 6.
23. ágúst 2004 – 228. tölublað – 4. árgangur
FYRSTU RÉTTARHÖLDIN Fjórir fang-
ar Bandaríkjahers á Kúbu verða dregnir fyrir
herdómstól í vikunni. Réttarhöldin verða
þau fyrstu yfir föngum í Guantanamo þar
sem nærri 600 manns hafa setið í fanga-
búðunum í meira en tvö ár. Sjá bls. 2
VEL HEPPNUÐ HÁTÍÐ Verkefnisstjóri
Menningarnætur er himinlifandi yfir því
hversu vel tókst til með hátíðina en sjaldan
eða aldrei hafa jafn margir Íslendingar komið
saman í miðbænum. Mikil veðurblíða hafði
tvímælalaust sitt að segja. Sjá bls. 4
NAUÐGUN SKYGGÐI Á Eftir flugelda-
sýninguna á Menningarnótt kærði sautján
ára stúlka nauðgun sem framin var í útjaðri
miðborgarinnar. Talsverð ölvun var í mið-
bænum í fyrrinótt og einhverjir pústrar
manna á milli. Sjá bls. 6
ÓPINU RÆNT Frægu málverki Edvards
Munch, Ópinu, var stolið frá Munch-safninu í
Ósló í gær ásamt fleiri málverkum. Meðal
þeirra var annað frægt verk eftir málarann
sem heitir Madonna. Sjá bls. 8
36%50%
Kvikmyndir 26
Tónlist 26
Leikhús 26
Myndlist 26
Íþróttir 18
Sjónvarp 28
LONDON Breska lögreglan telur ýmis-
legt benda til þess að Amelie Dela-
grange, sem var myrt í London á
fimmtudaginn, hafi verið fórnarlamb
raðmorðingja.
Enn fremur segir lögreglan margt
benda til þess að morðinginn sé stað-
kunnugur í Twickenham-hverfi, þar
sem morðið átti sér stað. Hann gæti
jafnvel verið búsettur þar.
Verið er að kanna hugsanleg
tengsl við þrjár aðrar líkamsárásir í
hverfinu á síðustu misserum, þar á
meðal morð á 19 ára stúlku í fyrra.
Delagrange, sem var 22 ára, varð
fyrir heiftarlegri árás á fimmtudags-
kvöld eftir að hún fór úr strætó á
rangri biðstöð og ákvað að ganga
heim.
Hún fannst seint á fimmtudags-
kvöld með alvarleg meiðsl á höfði og
lést skömmu síðar á sjúkrahúsi. Lög-
reglan er enn að leita að farsíma
hennar og handtösku.
Delagrange er frönsk, en kom til
London fyrir tveimur mánuðum til
þess að ná betri tökum á enskri tungu.
Foreldrar hennar komu til London
í gær til þess að leggja blómsveig á
staðinn þar sem hún fannst. ■
STJÓRNMÁL „Ég get ekki séð hvernig
því verður haldið fram að Framsókn-
arflokkurinn hafi staðið sig illa hvað
þetta varðar,“ segir Halldór Ás-
grímsson, utanríkisráðherra og for-
maður Framsóknarflokksins, vegna
þeirrar ólgu sem verið hefur í
flokknum vegna þeirrar ákvörðunar
að víkja Siv Friðleifsdóttur úr ráð-
herraembætti þann 15. september.
Hann segist enga vitneskju hafa um
óánægju innan flokks síns þrátt fyrir
fréttir þess efnis undanfarna daga.
Fjölmargir innan flokksins hafa
opinberlega lýst yfir óánægju sinni.
Jafnréttisfulltrúi flokksins hefur
lýst því yfir að klofningsframboð
komi til greina og formaður Sam-
bands ungra framsóknarmanna seg-
ir formanninn hafa kastað stríðs-
hanskanum með ákvörðun sinni.
Framsóknarmaðurinn Elsa Björk
Friðfinnsdóttir, aðstoðarmaður heil-
brigðisráðherra, segir ljóst að séu
viðbrögð formannsins á þennan veg
sé það enn frekar staðfesting á því
að eitthvað sé að innan flokksins.
„Ef Halldór viðurkennir ekki vand-
ann er lítil von til að sættir verði eða
breytingar gerðar. Mín tilfinning er
þó sú að hljóðið í mörgum fram-
sóknarmönnum sé það þungt að
þetta hverfi ekkert, ef það er það
sem formaðurinn vonar. Ég trúi ein-
faldlega ekki öðru en hann viti af
ástandinu í flokknum enda hafa
fregnir af því verið í fjölmiðlum og
víðar að undanförnu.“
Halldór fullyrðir þó að engrar
óánægju gæti sér vitandi og undrast
fregnir af slíku. „Framsóknarflokk-
urinn hefur alla tíð borið hag kvenna
fyrir brjósti og lagt mikið upp úr öfl-
ugu starfi þeirra. Konur úr flokkn-
um hafa gegnt embætti ráðherra í 16
ár meðan konur samanlagt í öllum
öðrum flokkum hafa gegnt þeim
starfa í 17 ár. Staðreyndin er líka sú
að fjölgun hefur orðið í flokknum
undanfarna mánuði og ég get ekki
séð hvernig því verður haldið fram
að Framsóknarflokkurinn hafi stað-
ið sig illa hvað þetta varðar.“
albert@frettabladid.is
Foreldrar franskrar stúlku leggja blómsveig á morðstaðinn í London:
Grunur um raðmorð
Björgunarsveit til bjargar:
Ferðamaður
ökklabrotnaði
SLYS Björgunarsveitin Ósk frá
Búðardal var kölluð út í gær eftir
að ferðamaður ökklabrotnaði inni
við fossinn í Skorravíkurá á Fells-
strönd.
Sveitin var kölluð út um hálf-
þrjúleytið í gær og tók björgunar-
aðgerðin um einn og hálfan tíma.
Maðurinn var á ferð ásamt
hópi fólks þegar hann missti fót-
anna í klettum sem liggja við hlið
fossins og hrapaði nokkra metra.
Fimm björgunarmenn ásamt
sjúkraliði þurftu að bera mann-
inn í sjúkrabörum upp 700 metra
snarbratta hlíð þangað sem jeppi
sveitarinnar beið hans. Þaðan var
keyrt upp á þjóðveg þar sem
maðurinn var færður yfir í
sjúkrabíl. ■
● vann vikuferð til Aþenu á Ólympíuleikum ímyndunaraflsins
Kennir fólki að lifa
í sátt og vináttu
Esther Viktoría Ragnarsdóttir:
▲
SÍÐA 30
● 58 ára í dag
Ekki öll nótt
úti enn
Magnús Leopoldsson:
▲
SÍÐA 16
RÚNAR ALEXANDERSSON Í SJÖUNDA SÆTI Rúnar Alexandersson fimleikamaður keppti í gærkvöld í úrslitum á bogahesti á Ólympíu-
leikunum í Aþenu. Rúnar hlaut einkunnina 9.725 og varð í sjöunda sæti af þeim átta sem komust í úrslit. Rúnar hafði ekki gert ráð fyrir því
fyrir fram að komast í úrslit á bogahesti þar sem aðeins átta bestu komust áfram þar en hann komst inn með einkunnina 9.737.
Bruni á Ólafsfirði:
Skaði mikill
á efri hæð
BRUNI Hús á Ólafsfirði er mikið
skemmt eftir bruna aðfaranótt
sunnudags. Lögreglu var gert við-
vart skömmu eftir miðnætti
þegar bæjarbúar sáu reyk yfir
bænum. Lögregla girti húsið af á
meðan slökkvilið bæjarins sá um
að kæfa eldinn. Slökkvistarfið
gekk nokkuð hratt fyrir sig en þá
hafði eldurinn gert töluverðan
skaða á efri hæð hússins.
Húsið sem brann hefur verið
mannlaust um nokkurt skeið og
verið er að rannsaka eldsupptök.
Ekki er talið að um íkveikju hafi
verið að ræða, heldur leikur grun-
ur á að kviknað hafi í út frá raf-
magni. ■
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/T
EI
TU
R
Eina númerið
sem þú þarft
að muna.
SORGBITNIR FORELDRAR Foreldrar og
fjölskylduvinir Emilie Delagrange leggja
blómsveig á staðinn þar sem hún var myrt
í London.
Halldór kannast
ekki við óánægju
Formaður Framsóknarflokksins kannast ekki við óánægju innan flokks
síns með þá ákvörðun að víkja Siv Friðleifsdóttur úr ráðherraembætti,
þrátt fyrir fréttir þess efnis undanfarna daga.