Fréttablaðið - 23.08.2004, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 23.08.2004, Blaðsíða 2
2 23. ágúst 2004 MÁNUDAGUR Menningarnótt: Álag á farsímakerfum FJARSKIPTI Nokkuð var um að við- skiptavinir símafyrirtækjanna, sem staddir voru í miðbæ Reykja- víkur þegar dagskrá Menningar- nætur stóð sem hæst, næðu ekki sambandi með farsíma. „Það var talsverður undir- búningur fyrir þetta kvöld og við stækkuðum kerfið vel um annað hundrað rásir. Stöðvum var hagrætt þannig að hægt væri að afgreiða sem mest og álag á stöðvunum var jafnað. Einnig var sett upp aukastöð á hjólum á Arnarhóli,“ segir Eva Magnúsdóttir, upplýsingafull- trúi Símans, um álagið á Menn- ingarnótt. Eva segir álagið hafa verið svipað og um áramót en nú hafi munurinn verið að öll um- ferðin fór í gegnum þrjár stöðv- ar. Um eitt hundrað þúsund manns voru í miðbænum og voru flestar hringingar um ell- efuleytið þegar fólk byrjaði að hringja sig saman. Pétur Pétursson, upplýsinga- fulltrúi Og Vodafone, segir nokkr- ar nýjar stöðvar hafa verið settar upp í miðbænum fyrir Menning- arnótt. Að auki hafi afkastageta stöðvanna sem fyrir voru verið aukin til muna. Hann segir Og Vodafone hafa búið að bættu kerfi í miðbænum frá sautjánda júní og Gay pride. „Álagið var mikið og á hápunktum þurfti fólk að reyna nokkrum sinnum áður en það náði sambandi en kerfið fór ekki á hlið- ina,“ segir Pétur. ■ Fyrstu réttarhöldin í Guantanamo Fjórir fangar Bandaríkjahers á Kúbu verða dregnir fyrir herdómstól í vikunni. Réttarhöldin verða þau fyrstu yfir föngum í Guantanamo. BANDARÍKIN Fjórir af föngum Bandaríkjahers í Guantanamo á Kúbu koma fyrir herdómstól í vikunni. Þetta verða fyrstu réttar- höldin yfir föngum í Guantanamo. Nærri 600 fangar eru í haldi Bandaríkjahers á Kúbu. Þeir hafa flestir setið í fangabúðum þar í meira en tvö ár. Lögfræðingar, mannréttinda- samtök og stjórnvöld margra ríkja hafa harðlega gagnrýnt Bandaríkjastjórn fyrir málsmeð- ferðina, sem á sér engin fordæmi. Einn fjórmenninganna, sem koma fyrir dóm í vikunni, var bíl- stjóri Osama bin Laden. Annar er sakaður um að hafa verið með áróður fyrir hryðjuverkum. Sá þriðji er talinn hafa verið bókhald- ari al-Kaída og sá fjórði barðist með talibanasveitum í Afganistan. Verjandi eins þeirra hefur ekki séð skjólstæðing sinn í fjóra mán- uði vegna stjórnsýslutafa við að veita túlki heimild til að vera með verjandanum. Verjandi annars þeirra hefur óskað eftir því að hætta að verja skjólstæðing sinn, sem þýðir að hann situr eftir án verjanda. Aðrir verjendur segja að strangar reglur, sem meðal annars veita hernum heimild til þess að fylgjast með viðræðum sakborn- inga við verjendur sína, geri þeim nánast ókleift að fá sýknudóm. Stór hluti fanganna á Kúbu kom þangað í janúar árið 2002. Bandaríkjastjórn var snögg að lýsa yfir sekt þeirra fyrirfram: „Þetta eru drápsmenn,“ sagði George W. Bush Bandaríkjafor- seti. John Ashcroft, dómsmála- ráðherra Bandaríkjanna, sagði þá „einstaklega hættulega“. Allir eiga sakborningarnir fjórir yfir höfði sér lífstíðarfang- elsi. Margir aðrir fangar sem sitja í fangabúðunum eiga þó yfir höfði sér líflátsdóm. ■ Reykjavík: Fullar fanga- geymslur LÖGREGLA Alls komu 29 manns við í fangageymslum lögreglunnar í tengslum við skemmtanahald eft- ir Menningarnótt. Hluti þeirra stoppaði við í skemmri tíma á meðan þeir voru að ná áttum en aðrir dvöldu lengur. Að sögn varðstjóra hjá lögregl- unni í Reykjavík voru fimmtán inni þegar ný vakt tók við klukkan sjö í gærmorgun og voru þar með öll pláss í fangageymslunum full- nýtt. Maður kom í manns stað þegar einstaklingar losnuðu út til klukkan níu um morguninn. Til klukkan ellefu var mikill erill hjá lögreglunni og voru allir bílar úti við störf fram undir hádegi. ■ „Nei, ég fór niður eftir á sunnudags- morgun og sá að það var mjög lítið rusl miðað við allan þennan mann- fjölda og var harla ánægður með hvað það gekk vel að hreinsa.“ Stefán Jón Hafstein er borgarfulltrúi R-listans í Reykjavík. Talsvert rusl vill verða eftir á götum þar sem fjölmenni kemur saman. Starfsmenn Reykja- víkurborgar höfðu í nógu að snúast í gær og í fyrrinótt við að hreinsa rusl eftir Menningarnótt. SPURNING DAGSINS Stefán Jón, varstu í rusli? STÓRIR OG MYNDARLEGIR Fátt er betra en ferskir íslenskir sveppir, en Siv tíndi þá sjálf ásamt sonum sínum. Siv Friðleifsdóttir: Undi sér við sveppatínslu SVEPPIR Siv Friðleifsdóttir, fráfar- andi umhverfisráðherra, notaði sunnudaginn ásamt sonum sínum til að tína sveppi í landi Hafnar- fjarðar en vildi ekki gefa upp hvar enda um væna og fallega sveppi að ræða. Þetta hefur ráð- herrann gert annað slagið en þeim fer fjölgandi hérlendis sem dunda sér í tómstundum við að safna sveppum þar sem þá er að finna. ■ MADRID, AP Harðir bardagar geisa nú á sólarströndum sunn- antil á Spáni. Barist er um sól- hlífar. Íbúar í Almunecar voru orðn- ir langþreyttir á ferðamönnum sem strá sólhlífum sínum um ströndina snemma að morgni, en mæta svo ekki sjálfir til að nota þær fyrr en síðar um dag- inn. Málið var tekið fyrir í bæjar- stjórn, sem samsinnti því að þetta framferði ferðamanna væri óviðunandi. Lagt var bann við því að fólk merkti sér svæði á ströndinni með sólhlíf. Lögreglunni var gert að fylgj- ast grannt með ströndum bæjar- ins og gera upptækar allar sólhlíf- ar sem enginn virtist hirða um. Eigendur gætu nálgast hlífarnar gegn greiðslu sektar, sem nemur rúmlega 3.000 krónum. En nú á laugardaginn sauð endanlega upp úr og ferðamenn- irnir gerðu uppreisn. Hópur þeirra umkringdi lögreglubif- reið og lokaði umferð klukku- tímum saman. ■ ERFITT AÐ NÁ SÍMASAMBANDI Mikill fjöldi var saman kominn í miðbænum á Menningarnótt og kom það fyrir á hápunkt- um að viðskiptavinir símafyrirtækjanna næðu ekki sambandi fyrr en eftir nokkrar tilraunir. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /R Ó B ER T FR ÉT TA B LA Ð IÐ /G VA Átök á sólarströndum Spánar: Barist um sólhlífar Í SÓLINNI Á sólarströnd í Portúgal, en þaðan fer eng- um sögum af því hvort slegist er um sól- hlífar líkt og á Spáni. Umferðaróhapp: Bílvelta við Steina LÖGREGLA Bílvelta varð á þjóðveg- inum við bæinn Steina, skammt frá Hvolsvelli, um klukkann hálf sjö í gær. Fjórir voru í bílnum, sem var á leiðinni til Reykjavíkur. Tvennt slasaðist og var flutt til Reykjavíkur með þyrlu. Fólkið er ekki talið lífshættulega slasað. Lögreglan þakkar því að allir í bílnum voru í beltum að ekki fór verr. Bílinn er mikið skemmdur. Í kjölfar slyssins varð aftaná- keyrsla á sama stað þegar öku- maður gætti ekki að sér og horfði um of á björgunaraðgerðina í stað þess að fylgjast með veginum fyrir framan sig. Enginn slasaðist en bílinn sem keyrt var aftan á er óökufær. ■ Suðurlandsvegur: Ökumaður brenndist LÖGREGLA Ökumaður bíls sem kviknaði í á Suðurlandsvegi um hádegisbil í gær fékk af nokkur brunasár. Að sögn lögreglunnar á Selfossi var ökumaðurinn fluttur á slysadeild Landspítala - háskóla- sjúkrahúss í Fossvogi þar sem hlúð var að sárum hans. Lögreglunni barst tilkynning um brunann í bílnum um hádegis- bil. Bíllinn var á ferð á Suður- landsvegi við Hveradali, skammt frá skíðaskálanum, þegar kvikn- aði í honum. Lögregla segir eldinn hafa verið kæfðan á tiltölulega skömmum tíma, en ekki er vitað hver upptök hans voru. Bíllinn er sagður vera töluvert skemmdur. ■ Kárahnjúkar: Blót við Lindur TRÚARBRÖGÐ Hilmar Örn Hilmars- son allsherjargoði helgaði í gær land við Lindur fyrir ofan fyrir- hugaða Kárahnjúkastíflu. Við athöfnina var ásatrúarfólk og gönguhópur frá Landvernd. „Við erum að uppfylla loforð sem við gáfum síðast þegar við vorum á þessum slóðum,“ sagði Hilmar Örn Hilmarsson og taldi ekki vanþörf á uppákomunni. „Þarna látum við allar góðar vættir vita af því að þær eru ekki gleymdar og hver veit nema þetta verði árlegur atburður hjá okkur,“ sagði hann. ■ SUÐURLANDSVEGUR Skammt frá slysstað við Þrengslavegamót. M YN D IR /A P DÓMSALURINN Í GUANTANAMO Þarna verða réttarhöldin yfir föngunum í Guantanamo haldin. STRÖNG ÖRYGGISGÆSLA Fangarnir í Guantanamo hafa dvalist þar án þess að koma fyrir dómara í hátt á þriðja ár.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.