Fréttablaðið - 23.08.2004, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 23.08.2004, Blaðsíða 16
Magnús Leopoldsson, löggildur fasteignasali, er 58 ára í dag. „Ótrúlegt alveg hreint en svona er nú gangur lífsins,“ segir af- mælisbarnið, sem á von á að vera við vinnu mestan hluta dags. „Ég var úti á landi að skoða jarðir um helgina svo ég býst við að ég þurfi að vera á skrifstofunni í dag. Ég á nú ekki þannig afmæli að ég geri sér- stök plön en mig grunar að eitt- hvað verði gert fyrir mig í mat og drykk. Ekki hefur mikið far- ið fyrir afmælum mínum hing- að til en ekki er öll von úti enn. Ég gæti tekið upp á því í fram- tíðinni að fara að halda upp á þessa daga.“ Magnús hefur mikla ástríðu á starfi sínu en hann er fast- eignasali og í þeim geira er nóg að gera þessa dagana. „Einmitt núna er háannatími hjá okkur á Fasteignamiðstöðinni en við höfum meðal annars sérhæft okkur í sölu á jörðum víðs veg- ar um landið. Ég hef því eytt talsverðum tíma á flakki, enda finnst mér afskaplega skemmti- legt að skoða Ísland. Ég hef nú komið víða og heim á ansi marga bæi en eftir því sem ég skoða landið betur eignast ég fleiri uppáhaldsstaði. Í gegnum starf mitt fæ ég að sjá fjöl- marga fallega staði, fólkið á bæjunum bendir mér oft á það sem ekki er auðséð frá þjóðveg- inum.“ Á sumrin er vinnan mikil hjá Magnúsi og fáir dagar fara til spillis. „Við erum átta sem störfum hjá Fasteignamiðstöð- inni og á þessum tíma eru marg- ir í fríi þannig að það er eins gott að vera á svæðinu. Maður telur sig vera svo ómissandi en ég ætti nú eitthvað að fara bæta úr þessu. Ég hef ekki farið mikið í frí í sumar. Skrapp þó í nokkra daga í sumarbústað í Biskupstungum fyrir skömmu og fékk alveg svakalega fínt veður. Mig langar þó að skoða vestfirðina betur og vonast til að geta gert það bráðlega. Ég hugsa nú ekki einu sinni um útlönd þegar veðrið er svona fallegt.“ ■ 16 23. ágúst 2004 MÁNUDAGUR Leikkonan SHELLEY LONG, sem meðal annars gat sér gott orð í Staupasteini, er 55 ára í dag. AFMÆLI Stefán Jónsson leikari er 40 ára. ANDLÁT Jóhanna Ásdís Sophusdóttir, Vallarbraut 15, lést 19. ágúst. JARÐARFARIR 13.30 Magnús Eydór Snæfells Þorsteins- son, frá Meltungu, verður jarð- sunginn frá Kópavogskirkju. 13.30 Lýður Þrastarson, Skeljatanga 35, verður jarðsunginn frá Bústaða- kirkju. Rudolph Valentino, stjarna þöglu kvikmyndanna, lést á þessum degi árið 1926, einungis 31 árs. Fregnir af andláti hans komu af stað fjöldasorg aðdáenda hans. Á hans stutta ferli á hvíta tjaldinu vann Valentino sér inn það orðspor að vera fyrirmynd elskhuga kvik- myndanna. Eftir andlát hans, sem var af völdum opins magasárs, var tilkynnt um tugi sjálfsvígstilrauna og leikkonan Pola Negri, ástkona Valentinos, var sögð óhuggandi. Tugþúsundir aðdáenda vottuðu honum virðingu sína við kistu- lagninguna í New York og um 100.000 söfnuðust saman fyrir utan kirkjuna þaðan sem jarðar- förin fór fram. Eftir það var lík hans flutt til Hollywood þar sem önnur athöfn fór fram áður en hann var jarðsunginn. Valentino, sem var skírður Rodolfo Guglielmi, fæddist í Castellaneta á Ítalíu árið 1895. Hann flutti til Bandaríkjanna árið 1913 og vann ýmis störf þar til hann flutti til Hollywood árið 1917. Eftir nokkur smáhlutverk í kvikmyndum fékk hann aðalhlut- verkið í myndinni The Four Horsemen of the Apocalypse árið 1921 og hjólin fóru að snúast. Hann var fyrsta karlkyns kyntákn Hollywood og dáður af milljónum kvenna. Einkalíf hans var storma- samt og eftir tvö misheppnuð hjónabönd fór hann að sjást með pólsku leikkonunni Pola Negri árið sem hann lést. ■ ÞETTA GERÐIST RUDOLPH VALENTINO DEYR 23. ágúst 1926 „Ef þú hættir ekki, svindlar ekki og hleypur ekki í skjól þegar þú lendir í vandræðum er bara hægt að sigra.“ Það er möguleiki á að keppnisskapið hlaupi með mann í gönur ef leiðbeiningum Shelley Long er fylgt eftir. Þögul stjarna fellur frá AFMÆLISBARN DAGSINS: Magnús Leopoldsson 58 ára Æfingar standa nú yfir í Þjóðleik- húsinu á nýju íslensku leikriti sem nefnist Böndin á milli okkar. Verkið er eftir Kristján Þórð Hrafnsson en þetta er í annað sinn sem verk eftir hann er á fjölum Þjóðleikhússins. Fyrra verkið var Já, hamingjan sem var frumsýnt árið 2001 en Böndin á milli okkar er dramatískt leikrit sem veltir upp spurningum um tengsl á milli einstaklinga, vald og valdleysi. Hilmir Snær Guðnason leik- stýrir verkinu og aðstoðarleik- stjóri er Ingibjörg Þórisdóttir. Í leikhópnum eru Sólveig Arnars- dóttir, Rúnar Freyr Gíslason, Nanna Kristín Magnúsdóttir og Friðrik Friðriksson. Lýsing er í höndum Ásmundar Karlssonar, Margrét Sigurðardóttir sér um búninga og höfundur leikmyndar er Jón Axel Björnsson. Áætlað er að frumsýna Böndin á milli okkar í október. ■ Hilmir Snær leikstýrir nýju verki RIVER PHOENIX Þessi bráðefnilegi ungi leikari hefði orðið 34 ára í dag en hann lést af völdum ofneyslu eiturlyfja fyrir utan næturklúbbinn The Viper Room þann 31. október árið 1993. SÓLEY ÓSK EYJÓLFSDÓTTIR Er blað- beri vikunnar hjá Fréttablaðinu. Hún hefur borið út í eitt og hálft ár, er ekki með neitt í vösunum og leggur mikið upp úr því að lifa lífinu. Hvað heitir blaðberinn? Sóley Ósk Eyjólfsdóttir. Hvað hefurðu borið út lengi? Í eitt og hálft ár. Hvað ertu með í vasanum? Ekki neitt. Hvað finnst þér skemmti- legast að gera? Að vera með vinum mínum. Hvert er þitt mottó? Að lifa lífinu. BLAÐBERI VIKUNNAR MERKISATBURÐIR 23. ágúst 1839 Hong Kong fellur í hendur Bretum í stríði þeirra við Kína. 1939 Þýskaland og Sovétríkin skrifa undir sáttmála um að ráðast ekki á hvort annað. 1944 Bandamenn frelsa Marseille í síð- ari heimsstyrjöldinni. 1962 Fyrsta beina útsendingin sem sjónvarpað er bæði í Bandaríkjun- um og Evrópu fer fram. 1982 Líbanska þingið kýs Bashir Gema- yel sem forseta. Hann er myrtur þrem vikum síðar. 1984 Southfork-búgarðurinn, heimili Ewing-fjölskyldunnar í Dallas, er seldur. 1990 Saddam Hussein birtist í írösku sjónvarpi með hópi vestrænna fanga sem hann vísaði til sem „gesta“. Hann sagði mönnunum að þeir væru í haldi til að koma í veg fyrir stríð. 1993 Lögreglan í Los Angeles staðfestir að Michael Jackson liggi undir grun í glæparannsókn. 2000 Upplýst er að Richard Hatch sé sigurvegari Survivor. Hann vann eina milljón dala fyrir dvöl sína á eyjunni Pulau Tida. AÐSTANDENDUR SÝNINGARINNAR Æfingar eru hafnar á nýju verki eftir Kristján Þórð Hrafnsson í leikstjórn Hilmis Snæs. MAGNÚS LEOPOLDS- SON Fasteignasalinn er 58 ára í dag en býst við að vera í vinnunni. Ekki öll von úti enn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.