Fréttablaðið - 23.08.2004, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 23.08.2004, Blaðsíða 18
„Það er hægt að gera nánast hvað sem er og um að gera að gefa sér bara góðan tíma til að skoða möguleikana vel,“ segja þær Hulda I. Skúladóttir og Helga Nína Aas tækniteiknarar innrétt- ingadeildar BYKO í Breiddinni þegar kemur að því að breyta eða bæta baðherberginu. „Til þess að fá það sem maður vill getur for- sjárhyggja skipt máli og mælum við með því að ákvarðanir séu teknar um útlit og hönnun baðher- bergisins áður en allt er rifið út,“ segja þær því það tekur tíma að velja úr því mikla úrvali sem býðst auk þess sem sumt þarf að sérpanta og því ekki ráðlegt að klára málin á einum degi. „Ef um umfangsmiklar breyt- ingar er að ræða ráðleggjum við fólki að verða sér út um grunn- mynd af baðherberginu þar sem kemur fram meðal annars stað- setning hurðar og glugga sem er ansi mikilvægt fyrir skipulagið,“ segja þær Helga Nína og Hulda sem aðstoða viðskiptavini sína við alla hugmyndavinnu og val. „Það sem skiptir miklu máli er að fólk velji vel svo allt falli að sama stílnum, bæði inn á baðher- berginu og útfrá öðru í húsinu. Samspil margra hluta er um að ræða og skiptir máli að allt fari vel saman,“ segja þær. „Hérna áður fyrr var úrvalið ekki mikið en nú er það endalaust og í raun hrein unun að koma og skoða allt það sem er til því hönn- un á þessum hlutum hefur fleygt svo mikið fram. Efnin sem vör- urnar eru unnar úr er orðið víð- tækara og eru flest baðkör í mörg- um stærðum sem auðvelt er að þrífa og þægilegt að liggja í,“ segja Helga Nína og Hulda sem benda á að hjá BYKO sér fagfólk um allt vöruval og vöruþróun og þar á meðal innanhússarkitekt, enda gerir fólk í dag miklar kröf- ur til baðherbergisins. „Við sjáum það í nýjum húsum að fólk er farið að hafa baðher- bergið stórt og vill hafa þar meiri lúxus. Mikið hefur aukist að heitir pottar séu í görðum fólks og þá jafnvel gengið út að pottinum úr baðherberginum og þannig stækkar hlutverk þess,“ segja þær og telja baðherbergið stað þar sem fólk vill láta sér líða vel. Hinsvegar býður ekki allt húsnæði upp á mikið rými og að jafnaði er fólk með baðherbergi sem er svona 4 til 6 fermbetrar. „Fólk getur auðvitað látið sér detta hvað sem er í hug en það verður að sjálfsögðu að vera með raunhæfar hugmyndir og það verður að vinna innan þess ramma sem rýmið býður upp á. En góður undirbúningur er allt sem þarf og með réttri skipu- lagsvinnu er hægt að gera ótrú- legustu hluti,“ segja Helga Nína og Hulda. kristineva@frettabladid.is Þegar þú ert að selja húsið þitt eða íbúð hækkaðu þá verðið sem þú vilt fá um fimm til tíu prósent. Þannig er líklegra að þú fáir verðið sem þú vildir þegar boðið er í húsið. Skipholt 35 Sími 588 1955 www.rekkjan.is NEVER TURN YOUR MATTRESS AGAIN Technology so advanced, it´s TURN-FREE Sumartilboð Amerískar lúxux heilsudýnur – Betra verð, betri gæði – Baðherberginu breytt: Góður undirbúningur er allt sem þarf Helga Nína Aas og Hulda I. Skúladóttir hjá BYKO aðstoða fólk við alla hugmyndavinnu varðandi baðhergið. Þúsundir fermetra af flísum á lækkuðu verði Gegnheilar útiflísar frá kr. 1.250.- m Smellt plastparket 7 mm frá kr.890.- m Veggflísar 20 x 25 kr. 890.-m Öll Nords jö útimál ning með30% afslætti! Pallaolía 3 L. kr. 7 90.- Verðdæmi: 2 2 ÚTSALA 2
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.