Fréttablaðið - 23.08.2004, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 23.08.2004, Blaðsíða 8
8 23. ágúst 2004 MÁNUDAGUR Sveiflur í náttúrufari: Hrun í stofni holugeitunga NÁTTÚRUFAR Eitthvað varð til þess í náttúrufari landsins að mun minna er af holugeitungi nú síð- sumars en útlit var fyrir í vor. „Það hefur eitthvað gerst, en ég hef ekki hugmynd um hvað,“ segir Erling Ólafsson, skordýra- fræðingur á Náttúrufræðistofnun Íslands. Í vor sagði hann meira um drottningar holugeitunga en nokkru sinni fyrr, en þeir eru við- skotaillir og af þeirri tegund sem fólki er hvað verst við. „Það er eins og allt hafi hrunið seint í júlí, nú sér maður varla holugeitung á flugi í görðum.“ Er- ling bendir þó á að sérstakar að- stæður hafi verið uppi nú síða- sumars. „Saman fóru mikill hiti og raki. Það er aldrei að vita hvaða áhrif það hefur haft á sveppi og bakteríur. Auðvitað gæti hafa komið upp sýking, en það er bara skot út í bláinn,“ sagði Erling og bætti við að hann sam- gleddist fólki að vera laust við geitungana. ■ Stálu Ópinu og Madonnu ÓSLÓ, AP Hinu fræga málverki Ed- vards Munch, Ópinu, var stolið frá Munch-safninu í Ósló í gær ásamt fleiri málverkum. Meðal þeirra var annað frægt verk eftir Munch, og heitir það Madonna. Tveir eða þrír vopnaðir menn gengu inn í safnið, hótuðu starfs- fólki með byssum og fóru með mál- verkin út í bifreið sem beið fyrir utan safnið. Margir safngestir fylltust skelf- ingu og óttuðust jafnvel að þarna væru hryðjuverkamenn á ferðinni. Flóttabíllinn fannst fljótlega. Í honum voru sundurteknir rammar utan af málverkunum. Franskur útvarpsmaður, Francois Castang, sagðist hafa ver- ið að skoða safnið þegar þjófarnir ruddust inn og komust á brott með málverkin. „Það sem er einkennilegt er að í þessu safni var enginn útbúnaður til að verja málverkin, engin viðvörun- arbjalla,“ sagði Castang. „Málverkin voru einfaldlega hengd upp á veggina,“ sagði hann. „Það þurfti ekki annað en að toga í málverkin nógu fast til þess að bandið slitnaði – ég sá einn þjófanna gera það.“ Lögreglan kom á vettvang fimmtán mínútum síðar. Safngest- um var smalað inn á kaffistofu safnsins. Til eru fjórar útgáfur af Ópinu. Tvær þeirra voru í Munch-safninu í Ósló, einkasafnari á þriðja eintakið og það fjórða er til sýnis í þjóðlista- safninu í Ósló. Síðastnefnda eintakinu var stolið árið 1994, en það fannst þremur mánuðum síðar. „Munch málaði þau öll, og þau eru öll jafn verðmæt,“ sagði Jorunn Christoffersen, talsmaður Munch- safnsins. „En það er samt ekki nokkur leið að selja þessi málverk, né heldur að verðleggja þau.“ Þrír Norðmenn voru handteknir eftir að stolna málverkið fannst árið 1994. Þjófarnir reyndu þá að fá pen- inga frá norska ríkinu í skiptum fyrir stolna málverkið, en að þeim kröfum var aldrei gengið. ■ SVONA ERUM VIÐ EINKANEYSLA 1999-2003 LYF OG LÆKNISHJÁLP 1999 6.615 2000 7.010 2001 7.570 2002 7.642 2003* 7.601 Milljónir króna á föstu verðlagi. Heimild Hagstofa Íslands. * Áætlun. Söluhæsta fartölvan í Evrópu ACER tækni SÍÐUMÚLA 37 - SÍMI 510 6000 WWW.SVAR.IS tækni FARTÖLVUR – hefur þú séð DV í dag? Börnin í Kjarrhólma 24 þora ekki út að leika sér Guðbjörg vill hjálp vegna geðsjúks nágranna Sambíó Álfabakka: Bilun í rafveitu BÍÓSÝNING Bilun í rafmagnsveitu raskaði fyrirhugaðri sýningu á kvikmyndinni Catwoman fyrir svokallaðan Samklúbb sem fyrir- huguð var klukkan átta síðdegis síðastliðinn fimmtudag. Í bréfi sem sent var út á með- limi klúbbsins kemur fram að sýningin hafi verið færð yfir í Há- skólabíó í staðinn. Þá kemur fram að félagar í klúbbinum hafi átt þess kost að sjá myndina á sama tilboði og stóð til boða á fimmtu- daginn, núna um helgina, ef ske kynni að einhver hefði farið í fýlu- ferð upp í Álfabakka. ■ HILLARY OG JOHN Hillary Rodham Clinton og John McCain héldu blaðamannafund í Tallinn í Eistlandi um helgina. Þau eru í sendinefnd sem kemur við hér í vikunni. Öldungadeild Bandaríkjaþings: Á ferð um Evrópu STJÓRNMÁLAMENN Hillary Rodham Clinton, öldungardeildarþingmað- ur demókrata í Bandaríkjunum, og öldungadeildarþingmaðurinn John McCain funduðu með fjöl- miðlum í Tallinn í Eistlandi á laug- ardag. Hillary bættist í hóp sendi- nefndar öldungadeildar Banda- ríkjaþings í Eistlandi, en þaðan er förinni heitið til Noregs og Ís- lands áður en hópurinn heldur aft- ur heim til Bandaríkjanna. Von er á Hillary ásamt eigin- manni hennar Bill Clinton, fyrr- verandi Bandaríkjaforseta, og restinni af sendinefndinni hingað til lands á þriðjudag. ■ Fartölvur frá Apple: Gallaðar rafhlöður TÖLVUR OG TÆKNI Vegna ofhitnun- ar rafhlaðna hefur Apple inn- kallað hleðslurafhlöður í 15 tommu PowerBook-fartölvur sem seldar voru víðs vegar um heiminn frá því í janúar og fram í ágúst á þessu ári. Á vef Apple á Íslandi segir að þekkja megi varhugaverðar rafhlöður á raðnúmeri þeirra, en til að sjá það þarf að taka rafhlöðuna úr tölvunni. Hefjist vörunúmerið á A1045 og rað- númerið á HQ404, HQ405, HQ406, HQ407 eða HQ408 þarf að skipta um rafhlöðu. Ekki er talið að gallaðar rafhlöður hafi verið seldar hér, en fólk hvatt til að gá engu að síður. ■ FANGAÐUR GEITUNGUR Holugeitungar eru herskárri og viðskotaillri en trjágeitungar. ERLING ÓLAFSSON Erling Ólafsson, skordýrafræðingur hjá Nátt- úrufræðistofnun, samgleðst fólki að vera laust við viðskotailla holugeitunga sem stefndi í að yrðu margir núna síðsumars. ÓPIÐ Einu fjögurra eintaka af málverkinu Ópinu eftir Edvard Munch var stolið í gær ásamt fleiri verkum norska málarans. MADONNA Þetta fræga verk Munchs var einnig meðal hinna stolnu. M YN D /A P
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.