Fréttablaðið - 23.08.2004, Page 4
4 23. ágúst 2004 MÁNUDAGUR
Óþarfi að eitra hús:
Kóngulær berast með
grænmeti og ávöxtum
SKORDÝR Erling Ólafsson, skor-
dýrafræðingur á Náttúrufræði-
stofnun Íslands, kannast ekki
við að nýjar tegundir kóngulóa
séu að nema hér land, en nýver-
ið greindi DV frá því að fólk í
Grafarvogi hefði rýmt hjá sér
hús og látið eitra vegna ókenni-
legrar svartrar kóngulóar.
„Svona er alltaf að berast frá út-
löndum með grænmeti og ávöxt-
um. Það er mjög eðlilegt,“ segir
hann og telur það yfirdrifin við-
brögð að láta eitra vegna svona
atburðar. „Sennilega var þetta
bara þessi eina kónguló sem
borist hefur með vínberjaklasa
og málið leyst með því að góma
hana.“
Erling segir að hér á landi
séu líka til tegundir svartra
kóngulóa og fólk þurfi ekki að
láta sér bregða við návist þeir-
ra. „Þarna virtist fólk óttast að
um svörtu ekkjuna hafi verið að
ræða, en hún er auðþekkt á því
að vera svartgljáandi eins og
hrafntinna og yfirleitt með mjög
áberandi skærrauðan blett á
kviðnum.“ ■
MENNINGARNÓTT „Það sem hjálpaði
mest við að gera Menningarnótt
eins vel heppnaða og raun bar vitni
var þetta dásamlega veður sem var
allan daginn,“ segir Sif Gunnars-
dóttir, verkefnastjóri Menningar-
nætur í Reykjavík. Hátíðinni lauk í
fyrrakvöld með einni mestu flug-
eldasýningu sem sést hefur í borg-
inni fyrir utan gamlárskvöld og
gerðu gestir góðan róm að þeim við-
burðum sem í boði voru hvarvetna í
miðbænum allan daginn.
Sif telur að veðurblíðan hafi gert
það að verkum að þeir sem venju-
lega sitja heima á kvöldum sem
þessum hafi í þetta sinn látið sig
hafa það að mæta. „Það skiptir afar
miklu máli og gerir það að verkum
að fólk er miklu tillitssamara en ella
væri. Það aftur þýðir að fleiri njóta
dagsins betur og láta ekki smáatriði
fara eins mikið í taugarnar á sér.
Það þarf þolinmæði þegar mann-
fjöldinn verður slíkur og tiltölulega
auðvelt fyrir hlutina að fara úr-
skeiðis.“
Að sögn Sifjar voru um 230 mis-
munandi atburðir skipulagðir á
Menningarnótt en á óvart kom sá
fjöldi listamanna og verslana sem
buðu upp á gjörning af ýmsu tagi
sem ekki var hluti af auglýstri dag-
skrá. „Það kom mér þægilega á
óvart hversu víða slíkar sýningar
voru í gangi og ég hafði enga hug-
mynd um.“
Mest reyndist um tónlistar-
atriði á þessari Menningarnótt en
þó var talsverð breidd í þeim at-
burðum sem í boði voru. Dans- og
myndlistarsýningar voru víða.
Gjörningar voru framreiddir á
fjölmörgum stöðum og tónleikar
Rásar 2 á hafnarbakkanum þóttu
takast afar vel.
Sif segir að hátíðin hafi gengið
það vel að hún hafi strax í gær-
morgun farið að hafa áhyggjur af
næsta ári. „Það var næstum því mín
fyrsta hugsun hvernig í ósköpunum
væri hægt að gera betur á næsta ári
því það verður afskaplega erfitt.“
albert@frettabladid.is
Stjórnvöld í
Norður-Kóreu:
Ósátt við
fjöldaflótta
SEÚL, AP Stjórnvöld í Norður-Kóreu
gripu til stóryrða í gær vegna
fjöldaflótta eigin ríkisborgara til
Suður-Kóreu í síðasta mánuði. Þau
sökuðu stjórnvöld í Suður-Kóreu
um „ófyrirgefanlegn fjandsam-
legan verknað“ fyrir að hafa að-
stoðað fólkið við að flýja.
Nærri 500 Norður-Kóreumenn
komu til Suður-Kóreu í síðasta
mánuði með tveimur flugvélum.
Mikil leynd hvíldi yfir aðgerðinni.
Talið er að Norður-Kóreumennirn-
ir hafi flúið yfir landamærin til
Kína áður en þeir komust um borð
í flugvélarnar til Suður-Kóreu. ■
Laugardagslottóið:
Einn með
vinninginn
LOTTÓ Einn var með allar tölur
réttar í Lottóinu á laugardaginn
var og fær í vinning rétt rúmar
sex milljónir króna.
Tveir voru svo með fjórar töl-
ur réttar auk bónustölu og fá fyrir
vikið um 145 þúsund krónur hvor.
2.322 lottóspilarar voru með þrjár
tölur réttar og fá þeir 470 krónur í
vinning hver.
Heildarupphæð vinninga í Lottó-
inu á laugardaginn hljóðaði upp á
rúmar 8,5 milljónir króna. Enginn
var með allar tölur í réttri röð í
Jókernum. ■
■ AFRÍKA
Tókst þú þátt í Menningarnótt í
Reykjavík ?
Spurning dagsins í dag:
Spurning dagsins í dag: Hefur þú kom-
ið að Kárahnjúkum?
Niðurstöður gærdagsins
á visir.is
33%
67%
Nei
Já
KJÖRKASSINN
Farðu inn á visir.is og segðu þína skoðun
visir.is
Reykjavík:
Þrettán lík-
amsárásir
LÖGREGLA Þrettán líkamsárásir
komu til kasta lögreglunnar í
Reykjavík aðfaranótt sunnudags.
Enginn slasaðist alvarlega vegna
árásanna og voru engin vopn notuð í
þeim málum sem lögreglu var
kunnugt um í gærmorgun. Mikill
erill var hjá lögreglunni fram undir
hádegi. Alls voru 98 útköll hjá lög-
reglu og voru mörg þeirra vegna
ölvunar. Þurfti meðal annars að
hjálpa fólki sem ekki rataði heim
sökum ölvunar og þeim sem höfðu
fundið sér svefnstaði á götum úti. ■
PÁFI FORDÆMIR Jóhannes Páll II
páfi hefur sent frá sér yfirlýs-
ingu þar sem hann varar við því
að framfarir í vísindum og tækni
bjóði heim hættunni á því að
mannlegt siðferði láti undan síga.
Sérstaklega varaði hann við til-
raunum með einræktun.
KVEIKT Í FÉLAGSHEIMILI Kveikt
var í félagsheimili gyðinga í París í
gær. Brennuvargarnir höfðu skrif-
að ókvæðisorð í garð gyðinga á
veggi félagsheimilisins, sem er á
jarðhæð í sex hæða húsi. Enginn
meiðsl urðu á fólki en félagsmið-
stöðin, sem var ætluð eldra fólki og
öryrkjum, var gjöreyðilögð.
ENGISPRETTUFARALDUR Engi-
sprettur herja á uppskeru bænda
í Shinkafi í norðurnígeríska rík-
inu Zamfara. Engisprettufarald-
urinn hefur borist í akra í norð-
anverðri Nígeríu eftir að hafa
valdið miklum skemmdum í
Máritaníu, Malí, Níger og Tsjad.
Ríkisstjóri hneykslar:
Situr áfram
um sinn
TRENTON, AP James E. McGreevey,
ríkisstjóri í New Jersey, ver í
blaðagrein ákvörðun sína um að
sitja áfram í embætti sínu fram í
miðjan nóvember þrátt fyrir að
hafa boðað afsögn sína vegna
hneykslismáls.
McGreevey játaði nýverið að
hafa haldið framhjá eiginkonu
sinni með karlmanni. Margir hafa
látið í ljós óánægju sína með að
hann láti ekki nú þegar af emb-
ætti vegna þessa, heldur ætli að
sitja áfram í nokkrar vikur.
Í dagblaðinu New York Times
birtist í gær grein eftir
McGreevey þar sem hann segist
líta á það sem skyldu sína að klára
mikilvæg verkefni og tryggja að
stjórnarskipti í New Jersey gangi
snurðulaust fyrir sig. ■
SVARTA EKKJAN
Svarta ekkjan er eitruð kónguló sem
margir óttast. Hún er auðþekkt á stunda-
glaslaga rauðum bletti á kvið hennar auk
hrafntinnuáferðar.
■ EVRÓPA
Erfitt að gera
betur en þetta
Verkefnisstjóri Menningarnætur er himinlifandi yfir því hversu vel tókst
til með hátíðina en sjaldan eða aldrei hafa jafn margir Íslendingar komið
saman í miðbænum. Mikil veðurblíða hafði tvímælalaust sitt að segja.
SKEMMTANAHALDIÐ VAKTI LUKKU
Yfir hundrað þúsund manns fylgdust með flugeldasýningunni sem markaði að venju
endalok Menningarnætur. Góður rómur var einnig gerður að öðru skemmtanahaldi.
Á HÁDEGI DAGINN EFTIR
Þrátt fyrir að starfsmenn Reykjavíkurborgar
hafi verið að hreinsa miðbæinn síðan í fyrri-
nótt var mikið af rusli á götum. Allmargir
ferðamenn sem á ferð voru í miðbænum í
gær komust ekki hjá því að veita því athygli.
SVEINN TIL VÍNAR Sveinn Björns-
son sendiherra afhenti á föstudag
Mohamed ElBaradei, fram-
kvæmdastjóra Alþjóðakjarnorku-
málastofnunarinnar í Vínarborg,
trúnaðarbréf sitt sem fastafulltrúi
Íslands hjá Alþjóðakjarnorkumála-
stofnuninni. Starfsemin þar er sögð
miða að því að auka öryggi og eft-
irlit með nýtingu kjarnorku og
geislavirkra efna í friðsamlegum
tilgangi í aðildarríkjunum, sem eru
137 talsins.
■ UTANRÍKISÞJÓNUSTAN
Hagkvæmni menntunar:
Ísland í lægri kantinum
MENNTUN Konur hafa meiri arð-
semi en karlar af háskólanámi
meðan karlar hafa meiri arðsemi
en konur af framhaldsskólanámi.
Þetta er meðal þess sem kemur
fram í skýrslu um arðsemi mennt-
unar á Íslandi sem Hagfræði-
stofnun Íslands hefur gefið út.
Að sögn Jóns Bjarka Bentsson-
ar, annars höfunda skýrslunnar,
skýrist arðsemismunur karla og
kvenna af framhaldsskólanámi af
því að margir karla sem hafa
framhaldsskólamenntun eru iðn-
aðarmenn sem hafa góðar tekjur.
Ísland er í lægri kantinum miðað
við nágrannalönd en Jón Bjarki
bendir þó á að það fari eftir því
hvað sé lagt til grundvallar. Til
dæmis dragi í raun lítið atvinnu-
leysi á Íslandi úr arðsemi menntun-
ar, meðan í löndum þar sem at-
vinnuleysi er mikið auki nám arð-
semi námsins þar sem líkur eru á að
fólk með háskólapróf eigi betra með
að fá vinnu. „Í landi eins og Frakk-
landi, þar sem er mikið atvinnu-
leysi, hagnast fólk svo mikið af því
að fara í skóla og fá háskólanám.
Hérna er atvinnuleysi svo lítið yfir
línuna að það vegur ekki jafn mikið.
Skattkerfið hérna refsar fólki dálít-
ið fyrir að hækka tekjurnar og það
dregur dálítið úr arðseminni á Ís-
landi,“ segir Jón Bjarki. ■
IÐNAÐARMENN AÐ STÖRFUM
Í skýrslu Hagfræðistofnunar um arðsemi menntunar hér á landi kemur fram að hátt
atvinnustig hér leiði til óhagkvæmari samanburðar við önnur lönd þegar kemur að því að
meta arðsemi menntunar.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T