Fréttablaðið - 23.08.2004, Page 33
17MÁNUDAGUR 23. ágúst 2004
NÝBYGGINGAR
ENNISHVARF
Stórglæsilegt einbýlishús sem býður
upp a mikla möguleika, Húsið afhendist
fullbúið aðutan en fokhelt að inn-
an.Upplýsingar á skrifstofu Húseignar.
Verð 29.9 millj.
EINBÝLISHÚS
HAUKANES.
Eitt af glæsilegri húsum á höfuðborgar-
svæðinu. Frábært útsýni. Eign fyrir vand-
láta. Verð Tilboð.
JÓRSALIR.
Til sölu verulega vandað einbýlishús
með auka íbúð,Verulega vandað hús,
hér hefur ekki verið kastað til hendinni.
Verð 45 millj.
SÉRHÆÐ
SOGAVEGUR
Glæsileg neðri sérhæð við Sogaveg. Stór
bílskúr, möguleiki á 40 fm verönd. Góð
herbergi. Stórar stofur.Suður svalir.
Ákveðin sala Verð 20.9 millj.
4 HERB.
ENGIHJALLI
Mjög góð 4ra herbergja íbúð til sölu í
Engihjalla.Mjög gott skipulag, góðar inn-
réttingar,ákveðinn sala. Góð kaup.Ý
Verð 11.9 millj
3JA HERB.
VEGGHAMRAR
Falleg 3ja herb íbúð í grónu hverfi. Stutt
í alla þjónustu. Mjög gott skipulag er á
íbúðinni. Verulega stórt barnaherbergi.
Gott eldhús með stórum borðkrók, góð
stofa með sér sólstofu Ákveðin sala
Laus fljótlega Verð 14.7 millj.
LAUFENGI
Verulega falleg 3ja herb.íbúð í rólegu
hverfi. Stutt í alla þjónustu. Íbúð sem
vert er að skoða. Verð 12.9 millj.
Vegna mikillar sölu bráðvantar allar gerðir eigna á söluskrá.
Hafið samband, verðmetum samdægurs. Ekkert skoðunargjald. Opnunartími mánudag-fimmtudag
10-18 og föstudag 10-17
GLÆSILEG NÝBBYGGING
Til leigu skrifstofurými í þessu
húsi. Frábær staðsetning. Allar
innréttingar að bestu gerð.
Stúkað niður í skrifstofur og al-
rými.
Stærðir rýma ..302fm, 220fm.165
fm og 82 fm.
Upplýsingar á skrifstofu Húseign-
ar.
Til leigu verslunarrými í þessu frá-
bæra húsi. Afhendist fullinnréttað
að þörfum leiganda
Uppl á skrifstofu Húseignar.
Til leigu skrifstofurými í þessu
glæsilega húsi . Frábær staðsetn-
ing
Uppl á skrifstofu Húseignar
MÖRKIN
HLÍÐASMÁRI 11
HLÍÐASMÁRI KÓPAVOGI
Stórglæsilegar 4ra herbergja
íbúðir í þessu verðlauna húsi.
Frábær hönnun, sér inngangur.
Aðeins tvær íbúðir eftir á 2 og 3
hæð. Til afhendingar strax
Verð 17,5 millj
GVENDARGEISLI 4
TIL LEIGU
Fálkagata 22:
Íbúð á
besta stað
Nýkomin er í sölu á Fálkagötu 22,
fimm herbergja sérhæð með sér-
inngangi í þríbýlishúsi. Húsið er
steinhús og byggt árið 1935. Íbúð-
in er 94,6 fermetrar, með 10 fer-
metra geymslu og 13 fermetra
hluta í sameign. Komið er inn í
rúmgóða forstofu en þaðan er
gengið inn í baðherbergi með
baðkari og glugga. Frá baðher-
berginu er stigi niður í kjallara
þar sem er stórt þvottahús. Þar
innaf er geymslan. Eldhúsið er
með hvítum innréttingum, flísum
milli skápa, borðkrók og korkflís-
um á gólfi. Stofan er parketlögð
en annars eru dúkar á gólfum.
Innaf eldhúsi er gengið inn í tvö
svefnherbergi og er innangengt
úr barnaherbergi yfir í hjónaher-
bergi þar sem er mikið skápa-
pláss. Húsið var klætt að utan að
hluta fyrir nokkrum árum. Að-
gangur er að stórum, sameigin-
legum garði með rólum fyrir börn
og palli. Hiti og þvottahús eru
sameiginleg með íbúð í kjallara.
Íbúðin er laus strax og ásett verð
er 15,3 milljónir. Það er fasteigna-
salan 101 Reykjavík sem sér um
söluna. ■
Íbúðin er laus strax og stutt í háskólann.
Arkitektúrsíðan á vefsíðunni about.com
gerði könnun á dögunum þar sem les-
endur voru spurðir hvaða tíu byggingar
væru þær bestu á tuttugustu öldinni.
Auðvitað voru valdar þær byggingar sem
hafa oft verið í sviðsljósinu vegna góðrar
hönnunar og hafa verið ljósmyndaðar
margoft.
1. Casa Mila íbúðarhúsnæðið í Barcelona
(Í byggingu frá árinu 1905 til 1910). Antoni
Gaudi, einn athyglisverðasti arkitekt heims,
bauð geometrískum formum byrginn með
byggingu þessa húss. Bylgjóttir veggir og
dansandi reykháfar vekja upp ævintýratil-
finningu og er ekki ólíkt því að húsið tilheyri
einhverju skrýtnu, súrrealísku málverki.
„Beina línan tilheyrir mönnunum, bogalín-
an tilheyrir Guði,“ sagði Gaudi sjálfur eftir
byggingu hússins.
2. Grand Central járnbrautarstöðin í New
York (Í byggingu árið 1913). Þessi bygging
kostaði um 43 milljón dollara í byggingu og
var hönnuð af arkitektunum Reed, Stern,
Warren og Wetmore. Þar er marmara beitt á
besta mögulega hátt og 2.500 blikandi
stjörnur prýða loftið.
3. Chrysler byggingin í New York (Í bygg-
ingu árið 1930). Chrysler byggingin er sjötíu
hæðir og 319 metra
há, og var á sínum
tíma stærsta bygging
heims. Arkitektinn
William Van Alen
byggði bygginguna í
art deco stíl og prýðir
toppinn afskaplega fal-
legar skreytingar. Á
byggingunni má til
dæmis finna abstrakt
myndir af bílum.
4. Empire State byggingin í
New York (Í byggingu árið
1931). Byggingin er á lista yfir
topp tíu hæstu byggingar í
heimi og var á sínum sú
hæsta. Hún er 381 metra há
og var hönnuð af Shreve,
Lamb og Harmon. Byggingar-
stíll byggingarinnar er undir
áhrifum frá píramídum í Eg-
yptalandi og Suður-Ameríku.
5. Fallingwater húsið í Pennsylvaniu í
Bandaríkjunum (Í byggingu árið 1935).
Frank Lloyd Wright lék aldeilis á aðdráttar-
aflið þegar hann hannaði Fallingwater. Hús-
ið sýnist vera hrúga af lausri steypu sem er
alveg að detta ofan af brún – en í raun og
veru er húsið mjög öruggt.
6. Johnson Wax byggingin í Wisconsin í
Bandaríkjunum (Í byggingu frá árinu 1936
til 1939). Hér er Frank Lloyd Wright aftur á
ferð og platar augað með glerhólkum og
öðruvísi lýsingu. Wright hannaði einnig
mest öll húsgögnin í byggingunni og sumir
stólar stóðu aðeins á þrem fótum. Þannig
gátu þeir dottið ef fólk sat ekki rétt í þeim.
7. Farnsworth húsið í Illinois í Bandaríkj-
unum (Í byggingu frá árinu 1946 til 1950).
Þetta hús er oft talið besta túlkun arkitekts-
ins Ludwig Mies van der Rohe á sínum al-
þjóðlega stíl. Allir veggir hússins eru úr gleri
og innrýmið er allt mjög opið.
8. Óperuhúsið í Sidney í Ástralíu (Í bygg-
ingu frá árinu 1957 til 1973). Arkitektinn
Jorn Utzon braut allar reglur með þessu nú-
tímahúsi í anda expressjónisma. Óperuhús-
ið er höggmynd í sjálfu sér með bogadregn-
ar línur. Óperuhúsið er eitt frægasta listvið-
burðahús í heimi og eru þar haldnar yfir
þrjú þúsund sýningar á hverju ári.
9. Seagram byggingin í New York (Í bygg-
ingu árið 1958). Töfrandi og bronsaður turn
úr gleri sem arkitektarnir Ludwig Mies van
der Rohe og Philip Johnson hönnuðu.
Byggingin er bæði klassísk og nútímaleg og
er 38 hæða.
10. World Trade Center í New York (Í
byggingu frá árinu 1970 til 1977 en var síð-
an eyðilögð af hryðjuverkamönnum 11.
september árið 2001). Byggingin saman-
stóð af tveim, 110 hæða háum byggingum
sem voru kallaðar Tvíburaturnarnir. Arki-
tektinn Minoru Yamasaki hannaði þar eina
af hæstu byggingum heims sem kaldhæðn-
islega var hönnuð til að vera sem sterkust
og þola allt.
Tuttugasta öldin:
Tíu bestu byggingarnar