Fréttablaðið - 23.08.2004, Qupperneq 42
18 23. ágúst 2004 MÁNUDAGUR
Við hrósum ...
... Rúnari Alexanderssyni og Þóreyju Eddu Elísdóttur fyrir frábæran árang-
ur á Ólympíuleikunum um helgina. Rúnar lenti í 7. sæti á bogahesti í gær
og Þórey Edda tryggði sig inn í úrslitin í stangarstökki kvenna í gær og sló
þar Ólympíumeistaranum við.
„Við erum enn að bæta okkur
sem lið og það verður erfitt
fyrir hin liðin að vinna okkur.“
Richard Jefferson eftir annað tap draumaliðsins.sport@frettabladid.is
FÓTBOLTI Arsenal mætti Middles-
brough á Highbury í gær í bráð-
fjörugum leik. Arsenal-menn
byrjuðu leikinn vel og komust
yfir um miðjan fyrri hálfleik með
marki frá Thierry Henry. Boro-
menn voru þó ekki skammt
undan og jafnaði Joseph-Desire
Job metin rétt fyrir hlé.
Í byrjun seinni hálfleiks hófst
mikið markaregn þar sem lið
Middlesbrough fór hamförum.
Með mörkum frá Jimmy Floyd
Hasselbaink og Frank Queudrue
komust gestirnir í þægilega 3-1
forystu þegar aðeins 8 mínútur
voru liðnar. Stuðningsmenn
Arsenal þurftu aðeins að bíða í
rúma mínútu eftir að Dennis
Bergkamp minnkaði muninn með
lúmsku skoti.
Við þetta tvíefldust leikmenn
Arsenal og þeir Jose Antonio
Reyes og Robert Pires skoruðu
nánast á sömu mínútunni og
Arsenal því komið með foryst-
una.
Henry kórónaði svo frábær-
an leik sinn með öðru marki sínu
og með sigrinum jafnaði
Arsenal gamalt met Nottingham
Forest með því að spila fjörutíu
og tvo deildarleiki í röð án taps.
Arsene Wenger, knattspyrnu-
stjóri Arsenal, var skýjum ofar
með úrslitin og metið. „Maður fór
í gegnum allan tilfinningaskal-
ann,“ sagði Wenger. „Við misstum
ekki móðinn þrátt fyrir að lenda
3-1 undir. Það virtist efla okkur, ef
eitthvað var.“
Steve McClaren, knattspyrnu-
stjóri Middlesbrough, var
svekktur með að ná ekki að halda
fengnum hlut. „Það á eftir að
taka mig nokkra daga að jafna
mig á þessu,“ sagði McClaren
svekktur. ■
Flugeldasýning í seinni hálfleik í ensku úrvalsdeildinni í gær:
Arsenal jafnaði met Forest
Okkur finnst...
... að Matthew Emmons megi geyma
bronsverðlaun Christians Planer í einn
mánuð á ári eftir að hafa skotið í vit-
laust skotmark og tryggt Planer
bronsverðlaun á leikunum í Aþenu.
ÚR ÍÞRÓTTAHEIMINUM
Bandaríkjamaður-inn Matthew
Emmons lét gull-
verðlaun sér úr
greipum ganga í
skotfimi á Ólympíu-
leikunum. Emmons,
sem var með pál-
mann í höndunum fyrir síðasta skot
sitt, skaut á vitlaust skotmark og fékk
því ekkert stig í umferðinni. Skotið
hitti beint í mark hjá Austurríkis-
manninum Christian Planer, sem
skreið upp í þriðja sætið og náði þar
með í bronsið. Planer hlýtur að vera
Emmons mjög þakklátur fyrir uppá-
tækið.
KnattspyrnustjóriChelsea, Jose
Mourinho, vill að
Robbie Savage hjá
Birmingham verði
sektaður fyrir atvik
sem átti sér stað í
leik liðanna á dög-
unum. Savage gaf
Mateja Kezman
olnbogaskot í andlitið í baráttunni
um boltann. Steve Bruce, knatt-
spyrnustjóri Birmingham, þvertók
fyrir að Savage myndi gera slíkt vís-
vitandi. „Hann kallar ekki allt ömmu
sína þegar kemur að fótboltanum en
hafi þetta gerst hefur það ekki verið
viljaverk,“ fullyrti Bruce. Chelsea
vann leikinn 1-0 með marki frá Joe
Cole.
Bretinn BradleyWiggins varð í
gær Ólympíumeist-
ari í hjólreiðum.
Wiggins kom á und-
an Ástralanum Brad
McGee en hann er
eitt af átrúnaðar-
goðum Bretans.
„Það var góð tilfinn-
ing að koma á und-
an honum í mark-
ið,“ sagði Wiggins. „Hann er ein af
stærstu ástæðum þess að ég fór að
æfa hjólreiðar. Ég fylgdist líka fullur
aðdáunar með Chris Boardman í
Barcelona fyrir 12 árum síðan og hef
haft þetta í huganum síðan, að vinna
einhvern tímann gullið á Ólympíu-
leikunum. Nú er það orðið að veru-
leika,“ sagði Wiggins. Boardman var
ánægður með strákinn og sagði það
einstaka tilfinningu að sjá fólk vinna
til verðlauna eftir mikla elju. „Ég sá
það strax eftir fyrstu 10 metrana að
hann myndi fara með sigur af
hólmi,“ sagði Boardman.
Ákveðið hefur ver-ið að svipta lið
Þjóðverja gullverð-
launum sínum í
hestaíþróttum eftir
mistök dómara í
keppninni, en þeim
láðist að gefa Bett-
ina Hoy tímarefs-
ingu. Hoy var skilj-
anlega svekkt með
ákvörðunina og þurfti að horfa á eft-
ir gullverðlaununum til breska liðs-
ins. „Þetta er sorgardagur fyrir íþrótt-
ir almennt,“ sagði Andrew Hoy, þre-
faldur gullverðlaunahafi Ástrala og
eiginmaður Bettinu. „Mér finnst
skömm að því að aðrar þjóðir skuli
hafa kært.“
Allt gekk upp hjá mér
Rúnar Alexandersson varð í sjöunda sæti í úrslitum á bogahesti. Hann
sýndi frábæra takta en ósanngjarn úkraínskur dómari dró hann niður.
ÓLYMPÍULEIKAR Rúnar Alexandersson
sýndi frábæra takta á bogahestin-
um í Aþenu í gær er hann tók þátt
í úrslitum á áhaldinu. Rúnar var
ákaflega yfirvegaður og öruggur
og skilaði æfingunni sinni nánast
fullkomlega frá sér. Kom því á
óvart hversu lága einkunn hann
fékk – 9,725 – en þessa einkunn
getur hann þakkað úkraínska
dómaranum sem var ekki beint
sanngjarn við Rúnar og gaf hon-
um 9,65 í einkunn. Lokaeinkunnin
fleytti Rúnari í sjöunda sætið –
átta voru í úrslitum – sem er stór-
kostlegur árangur enda langur
vegur frá því að það sé sjálfgefið
að komast í úrslit. Rúnar var him-
inlifandi með sjálfan sig eftir að
keppni lauk en ekki sáttur við
sætið.
„Mér líður mjög vel. Ég er ekki
ánægður með sætið en ég var
verulega ánægður með æfingarn-
ar mínar enda gengu þær mjög
vel og ekkert vandamál,“ sagði
Rúnar skælbrosandi en æfingarn-
ar hjá honum í úrslitunum gengu
mun betur en í undankeppninni.
Þrátt fyrir það fékk hann lægri
einkunn í úrslitunum, sem er afar
furðulegt. Rúnar telur að það að
vera frá Íslandi hafi talsverð
áhrif á dómarana.
Besta sería á ævinni
„Dómarinn vildi ekki gefa mér
neitt. Þeir gefa bara stóru löndun-
um góðar einkunnir. Það er eins
og það sé ekki neitt að vera frá Ís-
landi. Þeir spyrja bara hvort það
séu stundaðir fimleikar á Íslandi
og vita vart hvar þetta land er.
Mig grunar að það hafi haft áhrif
því ég átti pottþétt að fá hærri
einkunn þar sem ég var miklu
betri núna en síðast,“ sagði Rúnar
svolítið sár en var þó feginn að
enda ekki neðstur í úrslitunum.
„Þetta var besta sería sem ég
hef gert á bogahesti á ævinni. Mér
leið rosalega vel og var sama sem
ekkert stressaður. Bara örlítið
stressaður eins og gengur og
gerist. Ég fann fyrir pínu stressi
áður en ég fór af stað en um leið
og ég var kominn upp á hestinn
hugsaði ég bara um að klára
æfinguna með stæl. Ég er veru-
lega ánægður með þessa ólympíu-
leika og hvernig mér gekk. Það
gekk allt upp hjá mér og því get
ég ekki kvartað,“ sagði Rúnar Al-
exandersson en það var Kínverj-
inn Haibin Teng sem hreppti
gullið með 9,837 í einkunn.
henry@frettabladid.is
GOTT HJÁ ÞÉR Guðmundur Brynjólfsson,
þjálfari Rúnars, óskar honum til hamingju
með árangurinn.
Þjálfari Rúnars:
Átti að fá
bronsið
ÓLYMPÍULEIKAR Guðmundur Þór
Brynjólfsson, þjálfari Rúnars, var
brosmildur með afbrigðum eftir
að strákurinn hans hafði lokið
keppni á Ólympíuleikunum. Hann
átti líka vel inni fyrir því þar sem
Rúnar fór á kostum og komst
lengra en þeir höfðu leyft sér að
dreyma um fyrir fram.
„Við gerum bara það sem við
getum. Þetta var stórglæsilegt og
ég gat ekki beðið um neitt meira.
Hann gerði æfingu sem var örlítið
betri en í undankeppninni en
úkraínski dómarinn gaf honum
frekar lága einkunn og því fékk
hann lægri einkunn núna. Þetta er
stórkostlegur árangur hjá strákn-
um og ég er ákaflega stoltur af
honum,“ sagði Guðmundur sæll
og glaður. En vinnur það gegn
Rúnari að hann sé Íslendingur?
„Maður hugsar það oft. Við
sáum það að hann er betri en Paul
Hamm (sem vann fjölþrautina og
endaði í sætinu fyrir ofan Rúnar í
gær, innsk. blm.), það er pottþétt
mál. Ég tel að hann hefði átt að
vera mjög nálægt 9,8 með þessar
æfingar og þá hefði hann fengið
bronsið. Það er vart hægt að
draga meira frá þessari æfingu
hans því hún var ákaflega vel
heppnuð.“
Það vakti eflaust athygli mar-
gra að æfingar Rúnars voru eilítið
öðruvísi en hjá öllum hinum. Var
Rúnar ekki að gera nógu erfiðar
æfingar?
„Æfingar Rúnars eru mjög vel
samansettar og ákaflega stuttar.
Þessar sveiflur með fótunum eru
enginn vandi og eiginlega bara
sirkus fyrir áhorfendur og gefur
ekkert mikið. Hann var með þetta
í sínum æfingum en við ákváðum
frekar að einbeita okkur að því að
gera hitt almennilega. Ég gat ekki
ætlast til meira af honum og ég
held að enginn geti það. Hann er
einn af bestu átta í heiminum og
verður það vonandi áfram,“ sagði
Guðmundur Þór Brynjúlfsson.
henry@frettabladid.is
TRÚIÐ ÞIÐ ÞESSU? Arsenal lenti
1–3 undir á heimavelli en vann
samt 5–3. Thierry Henry var líka
hissa á þessum ótrúlega leik.
ÁNÆGÐUR MEÐ ÆFINGARNAR Rúnar Alexandersson var sáttur með frammistöðuna
en ekki með einkunn dómaranna sem dugði bara í 7. sætið.
Fr
ét
ta
bl
að
ið
/T
ei
tu
r
Fr
ét
ta
bl
að
ið
/T
ei
tu
r