Fréttablaðið - 23.08.2004, Page 49
Veiðiskapurinn gengur ágætlega
þessa dagana, margir veiðimenn
eru að fá fína veiði og maðkurinn
hefur verið leyfður í nokkrum
veiðiám aftur eftir að fluguveiði-
tímabilið er úti í bili. Þrátt fyrir það
veiða margir veiðimenn áfram bara
á fluguna en snerta ekki maðkinn.
Enda hefur lítið verið til af maðki og
hann rándýr, erlendir veiðimenn
sem komu hérna til veiða fyrir
skömmu pöntuðu fjögur þúsund
maðka, þeir fengu 40.
Maðkur, spúnn og flugan eru
núna leyfð í Ytri-Rangá og á einum
og hálfum degi sem maðkurinn var
leyfður aftur veiddust 180 laxar á
svæðum árinnar. Þetta þýðir um 8
laxar á stöng.
Við skulum aðeins kíkja á hvaða
laxveiðiár hafa gefið flesta laxana
en miðað við stangafjölda er Leir-
vogsá með bestu útkomuna. Hún
hefur gefið 621 laxa á tvær stangir
en Laxá á Ásum, sem er líka með
tvær stangir, hefur gefið yfir 400
laxa. Fyrir nokkrum dögum veiddu
veiðimenn 10 laxa á þurrflugur í Ás-
unum á stuttum tíma, en veiðimenn
segja að töluvert sé af fiski í henni.
Eystri-Rangá hefur gefið flesta
laxana eða um 1.770, síðan kemur
Blanda á yfirfallinu og hefur veiðin
stöðvast í henni eftir góðan gang, en
áin hefur gefið 1.450 laxa, Ytri-
Rangá hefur gefið um 1.500 laxa.
Síðan eru Norðurá og Þverá á svip-
uðu róli en Norðurá hefur gefið
1.255 laxa en Þverá 1.340 laxa.
Stjórn Stangaveiðifélags
Reykjavíkur var fyrir fáum dögum
í Norðurá og veiddi hollið 12 laxa.
Langá á Mýrum hefur gefið 1.200
laxa, Laxá í Kjós hefur gefið 1.170,
Miðfjarðará gefið 1.160 laxa og þar
hafa veiðimenn verið að missa þann
stóra síðustu daga. Ólafur Vigfús-
son missti bolta í Vesturánni fyrir
fáum dögum, en ekki hefur spurst
mikið til þeirra stóru sem hafa
sloppið í sumar enda minna um
stórlaxa en oft áður í veiðiánum og
þeim fer fækkandi með hverju
árinu.
Haffjarðará hefur verið meiri-
háttar góð en áin hefur gefið 920
laxa og mikið er af fiski í henni.
Mikið af laxi í Búðardalsá
Margar veiðiár hafa gefið vel í
sumar og aðrar hafa verið slappari
eins og Laxá í Aðaldal, sem aðeins
hefur gefið 570 laxa og þarf ennþá
að gefa töluvert til að ná tölunni í
fyrra, sem var sú slappasta í fjölda
ára.
Elliðaárnar eru að komast í 600
laxa, sem er gott, en hún hefur átt
erfitt uppdráttar síðustu árin og
veiðin er vonandi að koma til í
henni.
„Við fengum 10 laxa, mest 4 til 6
punda og ég náði þremur löxum á
fluguna, það er mikið af laxi í ánni á
nokkrum stöðum,“ sagði Þórarinn
Jóhannesson. Hann var að hætta
veiðum í Brúðardalsá, en áin hefur
gefið 180 laxa og það er hellingur af
fiski í henni. Í einum hyl hennar eru
líklega um 200 laxar en erfitt er að
fá þá til að taka. ■
25MÁNUDAGUR 23. ágúst 2004
Hafnarstræti 5 sími 551 6760
Síðumúli 8 sími 568 8410
www.veidihornid.is
Stoeger eru hálfsjálfvirkar haglabyssur framleiddar í Tyrklandi af fyrirtæki í eigu
Beretta. Dreifingaraðili í Bandaríkjunum er Benelli USA. Byssurnar eru
bakslagsskiftar, með snúningsbolta líkt og í Benelli og fleiri ítölskum byssum.
Hnotuskefti eða svört plastskefti.
26” hlaup. Ólarfestingar og 5 þrengingar fylgja. Frábært verð.
Aðeins 59.900.- staðgreitt.
Veiðihornið býður Stoeger á
frábæru kynningarverði
Fullt verð kr. 36,600
Tilboðsverð kr. 29,900
Vöðlur, skór, sandhlíf og belti.
Simms Freestone
öndunarvöðlu sett
Mörkinni 6, s. 568 7090
CAPAROL einangrunarmúrkerfi.
Einangrun að utan, heil hús eða að hluta.
40-60 % ódýrara en önnur einangrunarklæðning.
Auðveldara í viðhaldi. Gæðavottað af RB og
Brunamálastofnun
CAPAROL í stað málningar.
Fyrir viðhald á gamalli skeljasandsklæðningu og þar
sem hús eru mikið sprungin eða illa farin.
Fyllir í smáar sprungur og gefur húsinu jafna áferð.
Yfirmúr í öllum litum NCS litakerfisins.
Smiðjuvegi 44 200 Kóp. s: 5346160
flotefni@flotefni.is www.flotefni.is
CAPAROL
FYRIR ALLAR AÐSTÆÐUR
VEIÐI
GUNNAR BENDER
■ skrifar um veiði.
Þurrflugan sterk
í Ásunum
HVOLSÁ Í DÖLUM
Júlía Hrönn, Róbert Nökkvi, Diljá Heba, Daníel Vilberg og Anna María með afrakstur
bleikjuveiði eftir skemmtilega vakt.
M
YN
D
/E
G
IL
L
Ö
R
N