Fréttablaðið - 02.09.2004, Síða 38
FÓTBOLTI Það er ekki á neinn hallað
þótt sagt sé að ÍBV hafi rúllað yfir
Stjörnustelpur í undanúrslitaleik
VISA-bikarsins á Hásteinsvelli í
gær. Lokatölur leiksins urðu 8-0
og eins og Eyjamenn eru orðnir
vanir bar mikið á hinni ungu Mar-
gréti Láru Viðarsdóttur sem skor-
aði þrennu og lagði upp önnur
þrjú mörk í leiknum.
Auðveldur leikur
Þjálfarar liðana voru sammála
um að leikurinn hafi verið lítið
spennandi og aldrei spurning
hvort liðið færi með sigur af
hólmi en átti Heimir von á meiri
mótspyrnu frá Stjörnunni? „Nei,
ég vissi alveg að ef við myndum
leggja okkur fram myndum við
vinna þennan leik nokkuð auð-
veldlega. Við erum með mun
betra lið, það verður bara að við-
urkennast,“ sagði Heimir, sem
segir lið sitt á góðri siglingu og er
bjartsýnn fyrir tvo síðustu leiki
sumarsins hjá ÍBV, sem eru báðir
gegn nýkrýndum Íslandsmeistur-
um Vals.
Ekki tapað á heimavelli
„Við ætlum að vinna
deildarleikinn hérna
heima um næstu helgi
gegn Val og svo tökum
við bikarinn. Við höf-
um ekki tapað leik á
heimavelli og ætlum
ekki að fara að byrja á því. Við
erum á mjög góðri siglingu og það
er gaman að skoða markatöluna
hjá okkur í seinni umferðinni. Það
eru komin hátt í sextíu mörk skor-
uð en við höfum aðeins fengið á
okkur tvö. Við höfum ekki fengið
á okkur mark í langan tíma og
ætlum ekki að fara að byrja á
því,“ sagði Heimir.
Hlægileg dómgæsla
Jóhannes Karl Sigursteinsson,
þjálfari Stjörnunnar, sagði lið sitt
hafa átt litla möguleika gegn
sterku liði ÍBV. „Við höfum bara
ekki trú á því sem við erum að
gera og þá endar þetta svona,“
sagði Jóhannes, sem var ósáttur
við dómgæsluna og lét vel í sér
heyra á hliðarlínunni. „Mér finnst
bara sárt þegar línuvörð-
urinn þarf að vera aðal-
maðurinn á vellinum.
Hann er að dæma
eitthvað sem enginn í
stúkunni skilur. Þetta
var bara hlægilegt
og mjög sorgleg
dómgæsla,“ sagði
Jóhannes, sem
taldi að
j a f n v e l
t v ö
m ö r k
Í B V
l i ð s -
i n s
væru til komin vegna frammi-
stöðu aðstoðardómarans. „Fyrsta
markið var vafasamt og hugsan-
lega rangstaða þó ég hafi kannski
ekki verið í bestu aðstöðu til að
meta það. Þriðja mark ÍBV kemur
svo eftir aukaspyrnu sem línu-
vörðurinn gaf ÍBV. Þetta er sorg-
legt. Ekki það að úrslit leiksins
hefðu breyst við þetta en maður
er ósáttur við svona vinnubrögð.“
26 2. september 2004 FIMMTUDAGUR
Vissir þú...
...að Valsstúlkur hafa leikið til úrslita í bikarkeppninni fjögur ár í röð? Þær
unnu bikarinn 2001 og 2003 en töpuðu úrslitaleiknum fyrir tveimur
árum. Með leiknum í gær komust Valsstelpur í fimmtánda sinn í úrslit
sem er það mesta sem eitt félag hefur náð í kvennaboltanum.
„Hann er besti ungi leikmaður landsins sem ég
hef séð í þrjátíu ár.“
Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Manchester United ,
um nýja leikmanninn Wayne Rooney. sport@frettabladid.is
FÓTBOLTI Valur tryggði sér farseðil-
inn í úrslitaleik Visa-bikars
kvenna þegar liðið sigraði KR 3-0
á Hlíðarenda í gær. Úrslitin voru
að vísu fyrir fram ráðin þar sem
KR-stúlkur hafa þurft að horfa á
eftir meginþorra leikmanna
sinna í nám erlendis og því kom
það í hlut yngri leikmanna fé-
lagsins að mæta nýkrýndum Ís-
landsmeisturum. Því var í raun
aðeins spurningin hve stór sigur
Hlíðarendastúlkna yrði og strax í
upphafi gáfu þær tóninn fyrir því
sem koma skyldi.
Góður leikur Petru
Þær stöllur í framlínunni, Kristín
Ýr Bjarnadóttir og Nína Ósk
Kristinsdóttir, fengu hvert færið
á fætur öðru en stórgóður mark-
vörður KR-inga, Petra Fanney
Bragadóttir, sá við þeim. Hún
kom samt ekki vörnum við undir
lok hálfleiksins þegar Laufey
Ólafsdóttir skallaði boltann í net-
ið af stuttu færi. Strax í upphafi
síðari gerðu Valsstúlkur út um
vonir KR-inga þegar Kristín Ýr
skallaði boltann af stuttu færi í
slá og inn og úrslitin ráðin. Lauf-
ey Jóhannsdóttir innsiglaði síðan
sigur Valsstúlkna á 63. mínútu úr
vítaspyrnu eftir að brotið hafði
verið á Nínu Ósk.
Ekki með liðið sem þurfti
„Við komum með baráttu í
leikinn og spiluðum ágætlega í
fyrri hálfleik en við vorum ekki
með liðið sem þurfti í þennan
leik,“ sagði Edda Garðarsdóttir,
fyrirliði Vals að leik loknum.
„Leikmenn liðsins voru aftur á
móti að standa sig vel, við erum
með þrjár stelpur sem eru á
fimmtánda ári og þær stóðu sig
vel eins og lá okkur í síðari hálf-
leik, eins var Petra Fanney mark-
vörður okkar að eiga sinn besta
leik sinn í sumar og reddaði okk-
ur trekk í trekk,“ sagði Edda
Kýlingar og hnoð
„Við þurftum heldur betur að
hafa fyrir sigrinum í dag, mörkin
létu á sér standa og við vorum
lengi að koma því fyrsta inn. Aft-
ur á móti vorum við ekki að
hleypa þeim inn í leikinn, þetta
voru kýlingar og hnoð með bolt-
ann og þetta var ekki áferðar-
fallegur bolti í dag,“ sagði Íris
Andrésdóttir, fyrirliði Vals.
„Annars tek ég ofan fyrir þessum
ungu stelpum sem voru að spila
fyrir KR í dag, þær stóðu sig al-
veg eins og hetjur. Þær báru enga
virðingu fyrir okkur, skiluðu sínu
hlutverki vel og framtíðin er
björt hjá þeim. Okkar markmið
fyrir sumarið var að vinna Ís-
landsmeistaratitilinnn og þegar
hann er kominn í hús getum við
einbeitt okkur að bikarnum. Nú
erum við komnar á Laugardals-
völlinn og við eigum þannig tvo
leiki eftir á sumrinu, báða gegn
ÍBV, og við ætlum að taka þá
báða.“
Valsstelpur komust þar með í
bikarúrslit fjórða árið í röð og í
fimmtánda sinn í sögu bikar-
keppni kvenna.
Úrslitaleikurinn milli Vals og
ÍBV fer fram 11. september.
Valur vann vængbrotið lið KR
Valur komst í úrslit Visa-bikarkeppninnar í gær með 3-0 sigri á KR. KR-stelpurnar áttu erfitt
uppdráttar enda með vængbrotið lið. Valur gæti unnið tvöfalt í ár en liðið mætir ÍBV í úrslitum.
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
30 31 1 2 3 4 5
Fimmtudagur
SEPTEMBER
■ ■ SJÓNVARP
16.45 Bikarkvöld á RÚV. Endur-
sýndur þáttur frá miðvikudags-
kvöldi.
17.25 Olíssport á Sýn. Fjallað er
um helstu íþróttaviðburði
heima og erlendis.
18.40 Inside the US PGA Tour
á Sýn. Vikulegur fréttaþáttur þar
sem fjallað er um bandarísku
mótaröðina í golfi á nýstárleg-
an hátt. Hér sjáum við nær-
mynd af fremstu kylfingum
heims.
19.05 European PGA Tour
2003 á Sýn. Sýnt frá Opna
BMW International.
20.00 Kraftasport á Sýn. (Suð-
urnesjatröllið)
20.30 Þrauta-fitness á Sýn. Ís-
lenskar fitness-konur kepptu á
alþjóðlegu móti á Aruba í Karí-
bahafi síðasta sumar og stóðu
sig frábærlega. Sif Garðarsdóttir,
Heiðrún Sigurðardóttir, Freyja
Sigurðardóttir og Lilja Þórðar-
dóttir skipuðu okkar lið en á
meðal þrauta var að klifra upp
kaðla og net og draga báta.
22.00 Olíssport á Sýn. Fjallað er
um helstu íþróttaviðburði
heima og erlendis.
23.15 Boltinn með Guðna
Bergs á Sýn. Evrópuboltinn frá
ýmsum hliðum. Sýnd verða
mörk úr fjölmörgum leikjum og
umdeild atvik skoðuð í þaula.
Gestir koma í heimsókn og
segja álit sitt á því fréttanæm-
asta í fótboltanum hverju sinni.
Umsjónarmenn eru Guðni
Bergsson og Heimir Karlsson.
■ VALUR–KR 3-0
1–0 Laufey Ólafsdóttir 41.
2–0 Kristín Ýr Bjarnadóttir 47.
3–0 Laufey Jóhannsdóttir 63.
BEST Á VELLINUM
Petra Fanney Bragadóttir KR
TÖLFRÆÐIN
Skot (á mark) 30–3 (12–0)
Horn 5–0
Aukaspyrnur fengnar 5–8
Rangstöður 8–4
GÓÐAR
Íris Andrésdóttir Val
Ásta Árnadóttir Val
Dóra María Lárusdóttir Val
Petra Fanney Bragadóttir KR
Guðný Guðleif Einarsdóttir KR
Sif Atladóttir KR
■ ÍBV–STJARNAN 8-0
1–0 Olga Færseth 8.
2–0 Elín Anna Steinarsdóttir 25.
3–0 Margrét Lára Viðarsdóttir 33.
4-0 Margrét Lára Viðarsdóttir 45.
5-0 Michelle Barr 55.
6-0 Karen Burke 64.
7-0 Olga Færseth 79.
8-0 Margrét Lára Viðarsdóttir 90.
BEST Á VELLINUM
Margrét Lára Viðarsdóttirt ÍBV
TÖLFRÆÐIN
Skot (á mark) 32–1 (15–2)
Horn 6–0
Aukaspyrnur fengnar 10–12
Rangstöður 2–1
MJÖG GÓÐAR
Margrét Lára Viðarsdóttir ÍBV
GÓÐAR
Olga Færseth ÍBV
Elín A. Steinarsdóttir ÍBV
Karen Burke ÍBV
Íris Sæmundsdóttir ÍBV
Michelle Barr ÍBV
ÍBV vann Stjörnuna með átta mörkum gegn engu í undanúrslitum Visa-bikarsins:
Burst hjá Eyjastúlkum
VALSMARK Valsstúlkur komust í úrslitaleik bikarkeppninnar með því að leggja KR að
velli. Laufey Ólafsdóttir fagnar hér marki sínu, og fyrsta marki Vals gegn KR í gær. Laufey
hleypur til félaga sinna í Valsliðinu sem taka henni fagnandi.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
AL
LI