Fréttablaðið - 01.11.2004, Qupperneq 20
ARC
hnífaparakassi
fyrir 6
á frábæru verði.
DUKA -vandaðar
heimilis og gjafavörur
Kringlunni
!
"""
Til að forðast stressið sem fylgir flutningum þarftu að skipuleggja tíma þinn vel.
Þvoðu þvott þremur dögum áður en þú flytur. Tveimur dögum áður ættirðu að afþíða
ísskápinn og frystinn og henda útrunnum vörum. Deginum fyrir flutning geturðu hlaðið
símann þinn og klárað að pakka, og þannig verður flutningadagurinn stresslaus.
Hugmyndirnar sóttar til
fortíðar
Herragarður í Mosfellsdal
Þeir sem leið eiga um Mosfellsdal
veita eflaust athygli nýbygging-
um sem sprottið hafa upp á síð-
ustu misserum skammt fyrir neð-
an Gljúfrastein, á hægri hönd
þegar ekið er upp dalinn. Stíllinn
minnir á danskan herragarð og
frágangur allur er eftirtektar-
verður. Álplötur eru á þakinu sem
eru eftirlíkingar, gluggarnir gam-
aldags með litlum rúðum og
nokkrir vinalegir kvistir prýða
þekjuna. Þá er eitt ótalið en það
eru sperruendarnir sem njóta sín
útskornir undir þakskegginu.
Húsið er teiknað af Páli Val
Bjarnasyni arkitekti en sá sem
heiðurinn á af handbragðinu heit-
ir Örn og er Haraldsson. Hann er
húsasmiður og hefur verið að byg-
gja þetta slot fyrir bróður sinn,
Ólaf. Saman munu þeir nýta hest-
húsið fyrir gæðingana sína en
smíði þess er ekki að fullu lokið.
Allt hefur þetta þorp samt risið
með undra skjótum hætti. „Það
var hafist handa í júlí í fyrra. Þá
var byrjað að grafa,“ segir Örn og
heldur áfram. „Svo var flutt inn í
íbúðarhúsið um páskana í vor. Það
var unnið dag og nótt.“ Hann við-
urkennir að hafa auk þess verið að
nánast öll kvöld og allar helgar
síðan. „Það er gaman að byggja
þetta hús, enda ekkert líkt því
sem maður er að fást við dag-
lega,“ segir hann. „Ég hef aldrei
byggt svona áður og slíkt gerist
áreiðanlega ekki aftur.“ Aðspurð-
ur upplýsir hann að íbúðarhúsið
með tvöföldum bílskúr sé 300 fer-
metrar að grunnfleti en loft sé
yfir stærstum hluta þess svo lík-
lega séu um 400 fermetrar nýtan-
legir. „Þó er ekki ris yfir hluta
stofunnar og þar er 7 m lofthæð,“
segir hann.
Enn er svolítið ógert af úti-
verkum við húsið, til dæmis blikk-
frágangur á göflunum og kjölur-
inn á þakið. Eins þarf að klára
hesthúsið fyrir jól svo hægt verði
að hýsa hrossin. Eftir er að ganga
frá þaki hússins, bæði að innan-
verðu og að setja álið á, smíða
stalla, kaffistofu, snyrtingu og
fleira. Örn telur ekki eftir sér að
vinna við það nokkur kvöld og
helgar svo klárarnir þeirra
bræðra hafi húsaskjól um jól. Nú
standa þeir á beit á landskika sem
Ólafur á neðan við nýbygginguna.
Að sögn Arnar er búið að
deiliskipuleggja þetta svæði allt
sunnan við veginn og hið nýja hús
telst til Roðamóa 19. Engin er
samt gatan nema heimkeyrslan að
herragarðinum. Enda hefur Örn
lög að mæla þegar hann segir:
„Svona hús verður að standa þar
sem það hefur land í kringum sig
og nýtur sín.“
gun@frettabladid.is
Örn Haraldsson hefur séð um smíðina og haft gaman af.
Roðamói 19 blasir við frá veginum um Mosfellsdal og setur sterkan svip á umhverfið.
Smiðurinn stúderaði gömul hús við Lækjargötuna í Reykjavík til að líkja eftir frá-
gangi sperranna.
Stofan er með stórum, margskiptum gluggum og inni er sjö metra lofthæð.
Smáauglýsingasíminn er 550 5000
auglysingar@frettabladid.is
Smáauglýsingasíminn er 550 5000
auglysingar@frettabladid.is