Fréttablaðið


Fréttablaðið - 15.11.2004, Qupperneq 1

Fréttablaðið - 15.11.2004, Qupperneq 1
Birgir Leifur Hafþórsson: ▲ SÍÐA 20 Komst áfram á Spáni ● etið, drukkið og dansað ● tveir hringir eftir og alvaran eykst Iðnó: ▲ SÍÐA 28 Allsherjar listahús ● 52 ára í dag Jóhann Geirdal: ▲ SÍÐA 18 Nallinn breyttist í brúðarmarsinn MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Veffang: visir.is – Sími: 550 5000 MÁNUDAGUR DAGURINN Í DAG VEÐRIÐ Í DAG Norðanátt í dag og frost um allt land, síst þó sunnanlands. Vindur yfirleitt hægur og snjókoma fyrir norðan. Sjá nánar á bls. 4 15. nóvember 2004 – 313. tölublað – 4. árgangur ● hús ● fasteignir ● heimili Dröfn Guðmundsdóttir: RANNSÓKN LOKIÐ Sá sem veitti danska hermanninum banahögg á veit- ingastað í Keflavík aðfaranótt laugardags hefur játað. Lögreglan segir tildrög voða- atburðarins liggja fyrir og er rannsókn málsins lokið. Sjá síðu 2 SPILAKASSAR Í BORGINNI Oddviti sjálfstæðismanna útilokar ekki að lögð verði fram tillaga um að banna spilakassa í sjopp- um borgarinnar. Hann segir að spilafíkn sé raunverulegt vandamál. Heilu fjölskyldurnar hafi orðið gjaldþrota. Sjá síðu 6 FJÁRVANA NÝSKÖPUNARSJÓÐUR Nýsköpunarsjóður hefur ekki peninga til að fjárfesta í nýjum nýsköpunar- eða sprota- fyrirtækjum næstu ár. Forráðamenn hans hafa leitað til stjórnvalda og lífeyrissjóða í landinu. Sjá síðu 10 ▲ Í MIÐJU BLAÐSINS Kvikmyndir 30 Tónlist 28 Leikhús 28 Myndlist 28 Íþróttir 20 Sjónvarp 32 KVIKMYNDIR Kvikmyndin Kaldaljós eftir Hilmar Oddsson, byggð á sögu Vigdísar Grímsdóttur, kom, sá og sigraði á Edduverðlauna- hátíðinni sem haldin var á Hótel Nordica í gær. Kaldaljós hreppti fimm Eddur, þar á meðal fyrir bestu leikstjórnina og sem kvik- mynd ársins. Ingvar E. Sigurðsson var valinn leikari ársins og Krist- björg Kjeld leikkona ársins í auka- hlutverki auk þess sem Sigurður Sverrir Pálsson fékk verðlaun fyrir hljóð og mynd í Kaldaljósi. Sjálfstætt fólk var valið sjón- varpsþáttur ársins og Spaugstofan skemmtiþáttur ársins í sjónvarpi. Ómar Ragnarsson var valinn sjón- varpsmaður ársins eftir SMS- kosningu sjónvarpsáhorfenda. Páll Steingrímsson fékk afhent Heiðursverðlaun Íslensku kvik- mynda- og sjónvarpsakademíunn- ar fyrir langan og farsælan feril á sviði heimildarmynda. Sjá síðu 43 - kh Íslensk framleiðsla skipar mikilvægan sess í þjóðlífinu og mun í vaxandi mæli standa undir velferð þjóðarinnar RANNSÓKNARMÁLSTOFA Klukkan fimm mínútur gengin í eitt í dag hefst í Háskóla Íslands í stofu 202 í Odda fyrirlest- ur Ellýar Þorsteinsdóttur félagsráðgjafa undir yfirskriftinni „Stjórnun og félagsráð- gjöf: Skiptir stjórnun máli í félagsráðgjöf?“ Edduverðlaunahátíðin: Kaldaljós valin besta myndin SJÓNVARPSMAÐUR ÁRSINS Ómar Ragnarsson var valinn sjónvarpsmaður ársins í gær eftir SMS-kosningu sjónvarpsáhorfenda. Verðlaunin afhentu Guðlaug Elísabet Ólafsdóttir leikkona og Sigmundur Ernir Rúnarsson fréttaritstjóri. Ævintýraland á glerverkstæði KENNARADEILAN Margir kennarar voru miður sín í gær vegna laga- setningar ríkisstjórnarinnar og treystu sér ekki til að mæta til vinnu í dag. Sumir kennarar vildu líka mótmæla lagasetningunni með því að sitja heima. Ófremdarástand skapast víða í grunnskólum lands- ins ef kennarar mæta ekki til vinnu í stórum stíl. Í flestum tilfellum neyðast skólastjórar því til að senda börn heim úr skólanum. Í Korpu- skóla í Grafarvogi í Reykjavík verða til dæmis nemendur í 5. til 10. bekk sendir heim og svo verður hringt í foreldra barna í 1.-4. bekk og þeir beðnir um að sækja börnin sín. „Það verður að koma í ljós hvað gerist. Það skýrist kannski á fundi hjá ríkissáttasemjara í kvöld hvort það verður eitthvað ásættanlegra fyrir kennara að koma inn í skólana aftur, en við verðum bara að sjá hvað verður. Við gerum ekki ráð fyrir öðru en að kennarar mæti til vinnu en komum ekki til með að geta leyst forföll ef kennarar eru veikir,“ sagði Svanhildur M. Ólafs- dóttir, skólastjóri Korpuskóla, í gær. Gunnsteinn Sigurðsson er skóla- stjóri Lindaskóla í Kópavogi. „Þetta fer allt eftir umfanginu. Ef til þess kemur að stór hluti kennara mætir ekki þá náttúrlega segir það sig sjálft að það verður ekki hægt að halda uppi venjulegri kennslu. Ég get ekki hugsað þá hugsun til enda að kennarar komi ekki til starfa í dag. Ég mæti til vinnu á morgun og bý mig undir að mitt starfsfólk mæti til vinnu. Það er búið að setja lög um þetta og ég bý mig undir það. Auðvitað er það undir niðri vegna þessarar umræðu sem hefur verið. Ég verð bara að bregðast við því þegar þar að kemur ef þannig fer en ég vona að ekki komi til þess. Ég skynja að kennarar eru bæði sárir og reiðir,“ sagði Gunnsteinn. Eiríkur Jónsson, formaður KÍ, bjóst við að ástandið í grunnskólum landsins yrði mjög „villt“ í dag. Búist er við að eitthvað verði um uppsagnir kennara í dag og næstu daga. Eiríkur segir að margir kennarar hafi þegar ákveðið að segja upp störfum. Sjá síðu 4 ghs@frettabladid.is Börnin verða send heim Grunnskólabörn verða send heim í stórum stíl í dag mæti kennarar ekki til vinnu sinnar. Skólastjórar segjast ekki geta leyst forföll vegna stór- felldra veikinda kennara. Ólafur Jóhann: Tilnefndur til verðlauna BÓKMENNTIR Höll minninganna eftir Ólaf Jóhann Ólafsson hefur verið tilnefnd til IMPAC-verð- launanna, virtra alþjóðlegra bók- menntaverðlauna sem veitt eru árlega fyrir skáldverk á ensku, frumsamið eða í þýðingu. Þetta er í annað sinn sem verk eftir Ólaf Jóhann er tilnefnt til þessara verðlauna en fjölmargir heimsfrægir rithöfundar, eins og Umberto Eco, Milan Kundera og Ian McEwan, hafa verið tilnefndir áður. Höll minninganna kom fyrst út hjá Vöku-Helgafelli árið 2001 og varð mest selda bókin hérlend- is það árið. - bb ÓLAFUR JÓHANN ÓLAFSSON Er tilnefndur til IMPAC-bókmennta- verðlaunanna í annað sinn. Mannréttindadómstóll Evrópu: Kvörtunum rignir inn KAUPMANNAHÖFN, AP Mannréttinda- dómstóll Evrópu í Strassborg er að drukkna í kvörtunum frá al- mennum borgurum. Þetta kemur fram í danska dagblaðinu Jyllands-Posten. Alls hafa 75.800 kvartanir borist dómstólnum og að meðal- tali berast honum 1.100 nýjar kvartanir í hverjum mánuði. Ástæðan fyrir þessum mikla fjölda kvartana er talin sú að auk- inn fjöldi austur-evrópskra ríkja nýtir sér dómstólinn auk þess sem sífellt fleiri Evrópubúar gera sér grein fyrir notagildi hans. ■ FR ÉT TA B LA Ð IÐ /H AR I

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.