Fréttablaðið - 15.11.2004, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 15.11.2004, Blaðsíða 6
6 15. nóvember 2004 MÁNUDAGUR Bardagar halda áfram í Írak: Falluja í hendur Bandaríkjanna ÍRAK Eftir tæplega vikulanga bar- daga segjast bandarískir og íraskir hermenn í Falluja í Írak hafa náð stjórn á næstum allri borginni, en hún var áður undir yfirráðum skæruliða. Donald Rumsfeld, varnar- málaráðherra Bandaríkjanna, segir að nokkir hópar skæruliða séu í borginni en að hersveitir undir stjórn Bandaríkjamanna ráði þar nánast öllu. Muni þeir ekki ná algjörri stjórn á Falluja fyrr en leitað hefur verið í bygg- ingum að fleiri skæruliðum. Mun sú leit væntanlega standa yfir þar til seint í þessari viku. Hjálpargögn eru þegar tekin að berast til borgarinnar og verð- ur þeim væntanlega dreift til óbreyttra borgara á næstu dög- um. Hingað til hefur verið bann- að að dreifa hjálpargögnum á meðan bardagar hafa staðið yfir og hefur það valdið miklum áhyggjum hjálparstofnana. Talið er að 31 bandarískur hermaður og sex íraskir her- menn hafi fallið í átökunum sem undanfarið hafa staðið yfir um Falluja. Alls segjast Bandaríkja- menn hafa drepið 1.200 skæru- liða í borginni síðan bardagarnir hófust. ■ 492 spilakassar eru í Reykjavík Oddviti sjálfstæðismanna útilokar ekki að lögð verði fram tillaga um að banna spilakassa í sjoppum borgarinnar. Hann segir að spilafíkn sé raunverulegt vandamál. Heilu fjölskyldurnar hafi orðið gjaldþrota. BORGARMÁL Alls eru 492 spilakass- ar í Reykjavík, að því er fram kemur í svari borgaryfirvalda við fyrirspurn borgarfulltrúa Sjálf- stæðisflokksins. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, oddviti sjálfstæðis- manna í borgarstjórn, segist telja að þúsundir spilafíkla séu í borg- inni og ástandið sé mjög alvarlegt. Vilhjálmur segir að borgarfull- trúar Sjálfstæðisflokksins hafi ekki alls fyrir löngu heimsótt Samtök áhugafólks um spilafíkn. Á fundinum hafi komið í ljós að vandinn er mikill. Heilu fjölskyld- urnar hafi orðið gjaldþrota eftir að annað hvort móðirin eða faðir- inn hafi ánetjast spilakössum. „Við óskuðum eftir upplýsing- um frá félagsmálaráði um það hvaða úrræði væru fyrir hendi,“ segir Vilhjálmur. „Í ljós kom að þau eru ekki mörg. Það má segja að fyrir utan þessi nýstofnuðu samtök sé það bara SÁÁ sem sinn- ir spilafíklum. Það sem forsvar- menn Samtakanna gagnrýndu var að spilakassarnir væru inni í sjoppum og það byði hættunni heim því unglingar væru þar að feta sín fyrstu skref. Samtökin leggja áherslu á það að spilakass- arnir séu í verndaðra umhverfi svona svipað og hjá Gullnámunni þar sem vel er fylgst með því að unglingar séu ekki að spila.“ Vilhjálmur segir að borgarfull- trúar Sjálfstæðisflokksins muni núna skoða þetta mál ofan í kjöl- inn. Hann útilokar ekki að tillaga um að banna spilakassa í sjoppum verði lögð fram í borgarstjórn. „Mér finnst að við verðum að skoða allar leiðir til að spyrna við fótum.“ Íslandsspil, sem er í eigu Rauða krossins, SÁÁ og Slysavarna- félagsins Landsbjargar, rekur 266 spilakassa í borginni en Happ- dræti Háskóla Íslands rekur 226 spilakassa. Aðspurður hvort það orki ekki tvímælis að SÁÁ skuli reka spilakassa segir Vilhjálmur að vissulega geri það það. Málið sé hins vegar flókið því spilakassarn- ir séu ein helsta tekjulind SÁÁ. trausti@frettabladid.is ÞRIÐJI RÁÐHERRANN HÆTTIR Rod Paige, fyrsti blökkumaður- inn til að verða menntamálaráð- herra í Bandaríkjunum, hefur ákveðið að segja af sér. Hann er þriðji ráðherrann til að segja af sér eftir að George W. Bush var endurkjörinn Bandaríkjaforseti. Hinir eru John Ashcroft dóms- málaráðherra og Donald Evans viðskiptaráðherra. OL' DIRTY BASTARD Lifði af tvær skotárásir á ferlinum en lést á laugardag af ókunnum orsökum. Wu-Tang Clan: ODB látinn TÓNLIST Rapparinn Ol' Dirty Bast- ard, réttu nafni Russell Jones, lést á laugardag í hljóðveri í New York eftir að hafa kvartað undan verkjum í brjóstkassa fyrr um daginn. Hann var 35 ára gamall. ODB var kunnastur fyrir fram- lag sitt til rappsamsteypunnar Wu-Tang Clan, sem sló rækilega í gegn árið 1993 með skífunni Enter the Wu-Tang (36 Chamb- ers). Hópurinn tróð upp í New Jersey á föstudag eftir langt hlé, en ODB lét ekki sjá sig í það skiptið. Jones, sem gekk einnig undir nöfnunum Big Baby Jesus og Dirt McGirt, var þekktur fyrir óperuskotinn rappstíl sinn og óútreiknanlega hegðun. Hann komst margoft í kast við lögin vegna eiturlyfjaneyslu og vopna- eignar og sat inni í tvö ár. Hann lætur eftir sig 13 börn. ■ ■ BANDARÍKIN VEISTU SVARIÐ? 1Hver er oddviti V-listans í Vest-mannaeyjum? 2Hvað leggur borgarstjórnarflokkurReykjavíkurlistans til mikla hækkun á útsvarsprósentu á fundi borgarstjórnar? 3Hver er forstjóri Marels? Svörin eru á bls. 34 Ævintýri og spenna í Goðheimum Leyndardómsfullur og forn skartgripur leiðir Hildi á vit nýrra ævintýra í Goðheimum. Drekagaldur er fjörug og spennandi saga sem veitir skemmtilega innsýn í norræna goðafræði. Kópavogur: Bæjarráð ræði deiluna KENNARADEILAN Í Kópavogi hefur verið farið fram á fund í bæjar- ráði til að fjalla um kennaradeil- una. Bæjarfulltrúar Samfylkingar- innar í Kópavogi sendu frá sér yfirlýsingu í gær vegna kjara- deilu kennara og sveitarfélag- anna. Í yfirlýsingunni segir að lög sem sett hafi verið á deiluna séu einstaklega vond og gefi ekki vonir um góða lausn til fram- búðar. Kennarar og viðsemjend- ur þeirra eru hvattir til að reyna að ná samningum nú þegar. Enn fremur kemur fram að fulltrúi Samfylkingarinnar í bæjarráði Kópavogs hefur óskað eftir bæjarráðsfundi eins fljótt og auðið er til að ræða stöðu mála. - bb Hafnarfjörður: Mikið um fíkniefni LÖGREGLA Óvenjumörg fíkniefna- mál komu til kasta lögreglunnar í Hafnarfirði um helgina. Um klukkan 16.30 á laugardag voru þrír piltar í bíl stöðvaðir. Í ljós kom að allir voru með kannabis- efni á sér og farþegarnir tveir undir áhrifum. Piltarnir gengust við efnunum og var sleppt að yfirheyrslu lokinni. Klukkan 22.30 var ökumaður stöðvaður og reyndist hann með nokkur grömm af kannabisefnum á sér. Aðfaranótt sunnudags voru svo tveir ökumenn til viðbótar stöðv- aðir og var hvor um sig með gramm af amfetamíni í fórum sínum. Í öllum tilfellum er talið að um efni til einkaneyslu hafi verið að ræða og mönnunum sleppt að yfirheyrslum loknum. Málin teljast upplýst. - bb VESTURBAKKINN, AFP Mahmud Abbas, leiðtogi Frelsishreyfingar Palest- ínumanna og fyrrum forsætisráð- herra landsins, mun bjóða sig fram sem næsti leiðtogi Palestínumanna í stað Jassers Arafat sem lést síð- astliðinn fimmtudag. Það var Fatah-hreyfingin sem valdi Abbas í framboðið, en kosn- ingarnar verða haldnar þann 9. jan- úar. Þá lýkur sextíu daga sorgar- ferli vegna dauða Arafats. Marwan Barghuti, einn vinsæl- asti forystumaður Palestínumanna, hefur einnig ákveðið að bjóða sig fram þrátt fyrir að hann afpláni nú fimmfaldan lífstíðardóm vegna morða sem ísraelskur dómstóll fann hann sekan um. Aðrir sem koma til greina sem eftirmaður Arafats eru Ahmed Qurei, forsæt- isráðherra Palestínu og nýkjörin yfirmaður Öryggisráðs Palestínu í stað Arafats, og Farouk Kaddoumi, sem var kjörinn yfirmaður Fatah- hreyfingarinnar eftir lát Arafats. Þar til nýr leiðtogi verður kjörinn í Palestínu mun Rawhi Fattuh gegna starfinu. ■ MAHMUD ABBAS Leiðtogi Frelsishreyfingu Palestínumanna, Mahmud Abbas, yfirgefur fyrrverandi höfuð- stöðvars Jasser Arafat í Ramallah, umkringdur fréttamönnum. Kosningar í Palestínu: Abbas býður sig fram Á HLAUPUM Bandarískir hermenn á hlaupum í borginni Falluja í Írak. Bandaríkjamenn segjast hafa náð stjórn á næstum allri borginni. ÞÚSUNDIR SPILAFÍKLA Í BORGINNI Samtök áhugafólks um spilafíkn leggja áherslu á það að spilakassarnir séu í verndaðra um- hverfi líkt og hjá Gullnámunni þar sem vel er fylgst með því að unglingar séu ekki að spila. VILHJÁLMUR Þ. Skoða verður allar leiðir til að spyrna við fótum. M YN D /A P - FR AN K FR AN KL IN L L

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.