Fréttablaðið - 15.11.2004, Blaðsíða 34

Fréttablaðið - 15.11.2004, Blaðsíða 34
■ VEISTU SVARIÐ? Svör við spurningum á bls. 6 1 3 2 Lúðvík Bergvinsson. 0,6%. Hörður Arnarson. 34 15. nóvember 2004 MÁNUDAGUR Kvikmyndin Kaldaljós eftir Hilmar Oddsson krækti í fimm verðlaun á Edduverðlaunahátíð- inni sem haldin var á Hótel Nord- ica í gær. Kaldaljós var valin mynd ársins, Ingvar E. Sigurðs- son var valinn besti leikarinn og Kristbjörg Keld besta leikkonan í aukahlutverki. Hilmar Oddsson fékk einnig verðlaun fyrir leik- stjórn Kaldaljóss og Sigurður Sverrir Pálsson fyrir besta hljóð og mynd. Þátturinn Sjálfstætt fólk sem sýndur er á Stöð 2, í umsjón Jóns Ársæls Þórðarsonar og Stein- gríms Þórðarsonar, var valinn besti sjónvarpsþátturinn og Spaugstofan þótti besti skemmti- þátturinn í sjónvarpi. Sjónvarpsmaður ársins var einnig valinn í gær eftir langar og strangar kosningar. Almenningur gat valið úr hópi 33 sjónvarps- manna á vísi.is og í könnun sem Gallup gerði. Fimm sjónvarps- menn stóðu upp úr eftir það; Auð- unn Blöndal, Edda Andrésdóttir, Gísli Marteinn Baldursson, Ómar Ragnarsson og Sverrir Þór Sverr- isson, og kusu sjónvarpsáhorf- endur um hvert þeirra skyldi hreppa titilinn eftirsótta með SMS-kosningu. Það var síðan Ómar Ragnarsson sem stóð uppi sem sigurvegari. Páll Steingrímsson fékk heið- ursverðlaun Íslensku kvik- mynda- og sjónvarpsakademí- unnar „fyrir langan og farsælan feril á sviði heimildarmynda, með sérstaka áherslu á náttúru og umhverfi,“ eins og segir í um- mælum dómnefndar. Hátíðin var sem fyrr segir haldin á Hótel Nordica og voru Kristján Kristjánsson sjónvarps- maður og Helga Braga Jónsdóttir leikkona kynnar. Sjónvarps- og kvikmyndagerðarfólk flykktist á hátíðina og skemmti sér vel fram eftir kvöldi. ■ „Legókubburinn stendur upp úr,“ segir Erla Sólveg Óskarsdóttir, hús- gagna- og iðnhönnuður, þegar hún er beðin um að nefna það sem henni finnst skara fram úr á sviði hönnunar. „Þetta er góð hugmynd sem farið er með alla leið. Hún er þróuð áfram og alltaf bætist meira við.“ Hugmyndina að Legókubbunum fékk danskur smiður að nafni Ole Kirk Christiansen. Synir hans tóku síðar við fyrirtækinu en byggja enn á hugmynd föður síns. „Þeir eru búnir að stofna hótel og keyptu í það stólinn minn, Bessa,“ segir Erla og getur ekki neitað því að það ylji henni um hjartaræturn- ar að vita af stólunum sínum í Hotel Lego. „Við erum voða glaðar með þetta, ég og dætur mínar, sem hafa leikið sér mikið með Legókubba.“ Vörumerkið Lego er skammstöfun fyrir dönsku orðin „Leg godt“, og Erla segir kubbana svo sannarlega standa undir nafni. „Kubbarnir eru náttúrlega leið til að ýta undir ímyndunaraflið og þá kannski búa til hönnuði, því það eru endalausir möguleikar í þeim og engin takmörk nema ímynd- unaraflisins. Það þarf ekki að eiga mikið af kubbum til að geta búið til heilan heim.“ Jafnvel þótt börn fái alls konar glæsileikföng í jólagjöf, rafknúna bíla og talandi dúkkur, þá leita þau alltaf aftur í legókubbana sína. „Þau fá leið á þessum flottu leik- föngum og fara aftur í þennan ein- falda grunn. Bara það að börnin í dag, sem eru á fullu í tölvuleikjum, skuli ennþá leika sér að legókubb- um segir heilmikið um það hvað hugmyndin var góð til að byrja með.“ EFNI Í HEILAN HEIM 1 5 6 87 9 12 15 10 13 16 17 11 14 18 2 3 4 ...fær íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu sem stóð sig vel þrátt fyrir tap gegn Noregi í undankeppni Evrópumótsins. HRÓSIÐ – hefur þú séð DV í dag? Ekkert mál að vera með gervifót SJÓNVARPSDAGSKRÁ VIKUNNAR » Lárétt: 1 skjóla, 5 heit tilfinning, 6 samhljóðar, 7 skóli, 8 eyða, 9 geð, 10 ónefndur, 12 vitlausi, 13 pinni, 15 á fæti, 16 vinnusöm, 18 var persóna í Skaup- inu. Lóðrétt: 1 þar sem rúmt er um fólk, 2 hraða, 3 tveir eins, 4 geðvondi, 6 eyddi, 8 fótabúnað, 11 miskunn, 14 slök, 17 á þessari stundu. Lausn: Lárétt: 1fata,5ást,6sk,7ma,8sóa,9 skap,10nn,12óði,13nál,15il,16 iðin,18Númi. Lóðrétt: 1fámennið,2asa,3tt,4 skapilli,6sóaði,8skó,11náð,14lin, 17nú. Hönnun: Legókubburinn stendur upp úr á sviði hönnunar, segir Erla Sólveig Óskarsdóttir iðnhönnuður. MÖGULEIKARNIR ERU ÓENDANLEGIR Ímyndunaraflið eitt setur því takmörk sem hægt er að búa til úr Legókubbum. Leikari ársins Ingvar E. Sigurðsson fyrir Kaldaljós „Mjög sterk túlkun á persónu í djúpri sálarkreppu.“ Leikari/leikkona ársins í aukahlutverki Kristbjörg Kjeld fyrir Kaldaljós „Einkar þroskuð túlkun á dulmagnaðri persónu.“ Skemmtiþáttur ársins í sjónvarpi: Spaugstofan RÚV „Skemmtiþáttur gerður af ótrulega fjöl- hæfum listamönnum.“ Sjónvarpsþáttur ársins: Sjálfstætt fólk Stöð 2 „Tæknilega mjög vel unninn sjónvarps- þáttur með persónulega stjórn og nær- færna nálgun á viðfangsefninu.“ Heimildarmynd ársins: Blindsker eftir Ólaf Jóhannesson „Athyglisverð heimildarmynd um einn mest áberandi og jafnvel umdeildasta tónlistarmann Íslands.“ Hljóð og mynd Sigurður Sverrir Pálsson fyrir Kaldaljós „Fyrir klassíska myndatöku af bestu gerð í kvikmyndinni Kaldaljós.“ Útlit myndar: Helga Rós Hannam fyrir Svínasúpuna „Fyrir búningahönnun í Svínasúpunni, en búningarnir undirstrika einstaklega vel persónusköpun.“ Handrit ársins: Huldar Breiðfjörð fyrir Næsland „Hugljúf ástarsaga um einfeldninga og leitina að tilganginum. Sagan er einlæg og höfundur þorir að treysta áhorfend- um fyrir skringileika lífsins.“ Leikstjóri ársins: Hilmar Oddson fyrir Kaldaljós „Vel skapað dulrænt mannlíf í samspili við dulræna náttúru.“ Bíómynd ársins: Kaldaljós eftir Hilmar Oddsson „Skáldsöguættaður bræðingur fortíðar og samtíðar miðlar séríslenskum áhrifum í þróunarsögu sem dregur dám af umhverfi síhvikullar birtu og þjóðtrúar.“ Heiðursverðlaun: Páll Steingrímsson, kvikmyndagerðamaður „Fyrir langan og farsælan feril á sviði heimildarmynda, með sérstaka áherslu á náttúru og umhverfi.“ Tónlistarmyndband ársins: Stop in the name of love/ Bang Gang. Leikstjóri Ragnar Bragason „Kæruleysislegur flutningurinn samræm- ist vel þessari útgáfu lagsins. Smekkleg kvikmyndataka og fallega stílfærðir bún- ingar sem og förðun.“ Leikið sjónvarpsefni ársins: Njálssaga eftir Björn Brynjúlf Björnsson „Í Njálssögu er beitt árangursríkri aðferð við það ögrandi verkefni að myndgera eina frægustu Íslendingasöguna. Rudd er braut sem opnar fyrir margvíslega túlk- unarmöguleika.“ Stuttmynd ársins: Síðasti bærinn eftir Rúnar Rúnarsson „Mynd sem ítrekar að engin sátt hefur myndast um það hvernig ellinni skuli varið í samfélagi okkar. Þarna er gripið til örþrifaráðs sem afhjúpar þrjósku, - er hún af jákvæðum eða neikvæðum toga?“ Vinsælasti sjónvarpsmaðurinn/konan: Ómar Ragnarsson (Fréttir) Ómar taldi ekki ólíklegt að hann hefði fengið aðra styttu vegna þess að hann hafi fyrir nokkru verið svo óheppinn að brjóta hina sem honum hafði hlotnast. EDDUVERÐLAUNIN: GLANS OG GLEÐI Á HÓTEL NORDICA Í GÆR Kaldaljós með fimm Eddur KÁTT Á HJALLA Sverrir Þór Sverisson, Gísli Marteinn Baldursson og Auðunn Blöndal skemmtu sér vel á Edduverðlaunahátíðinni í gær. Í baksýn má sjá Ómar Ragnarsson. Fjórmenningar voru allir tilnefndir sem sjónvarpsmenn ársins en Ómar var kjörinn að þessu sinni. LEIKARAFJÖLSKYLDAN Áslákur Ingvarsson, Snæfríður Ingvarsdóttir og Edda Arnljótsdóttir mættu á hátíðina. Áslákur var tilnefndur sem leikari ársins. FYRSTA EDDAN Fyrstu Edduverðlaunin í gær fékk Síðasti bærinn í dalnum sem var valin besta stuttmyndin. Höfundur myndarinnar er Rúnar Rúnarsson.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.