Fréttablaðið - 15.11.2004, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 15.11.2004, Blaðsíða 22
22 15. nóvember 2004 MÁNUDAGUR HVAÐ? HVENÆR? HVAR? 12 13 14 15 16 17 18 Mánudagur NÓVEMBER Enska úrvalsdeildin: Titilvonir United lifa B E S T U S Æ T I N F Y R I R Þ I G 2 0 0 4 ■ ■ LEIKIR  19.15 Keflavík og Grindavík eigast við í Intersportdeildinni í körfu- knattleik karla. ■ ■ SJÓNVARP  16.10 Ensku mörkin á RÚV.  17.30 Þrumuskot á Skjá einum.  18.30 Ameríski fótboltinn á Sýn. Sýnt frá leik Green Bay og Minnesota.  20.30 Boltinn með Guðna Bergs á Sýn.  22.00 Olíssport á Sýn. ENSKA ÚRVALSDEILDIN WBA–MIDDLESBROUGH 1–2 0–1 Purse, sjálfsm. (32.), 1–1 Earnshaw (37.), 1–2 Zenden (52.) NEWCASTLE–MAN. UTD 1–3 0–1 Rooney (7.), 1–1 Shearer (71.), 1–2 van Nistelrooy, víti (74.), 1–3 Rooney (90.).. STAÐAN: CHELSEA 13 10 2 1 21–4 32 ARSENAL 13 9 3 1 37–17 30 EVERTON 13 8 2 3 15–11 26 MIDDLESBR.13 6 4 3 22–16 22 BOLTON 13 6 4 3 20–16 22 A. VILLA 13 5 6 2 19–14 21 MAN. UTD 13 5 6 2 14–10 21 LIVERPOOL 12 6 2 4 21–13 20 CHARLTON 13 5 3 5 17–21 18 NEWCASTLE 13 4 4 5 24–27 16 PORTSM. 12 4 3 5 16–17 15 MAN. CITY 13 3 5 5 14–13 14 FULHAM 13 4 2 7 17–24 14 TOTTENHAM13 3 4 6 12–16 13 BIRMINGH. 13 2 6 5 8–11 12 C. PALACE 13 3 3 7 15–19 12 SOUTHAMP. 13 2 5 6 12–17 11 WBA 13 1 6 6 12–24 9 BLACKBURN13 1 6 6 11–26 9 NORWICH 13 0 8 5 11–23 8 Evrópukeppni í handbolta: Haukarnir áfram HANDBOLTI Þrátt fyrir tap hand- boltaliðs Hauka í Meistaradeild- inni um helgina náðu þeir að öðl- ast keppnisrétt í Evrópukeppni félagsliða þar sem þeir enduðu í þriðja sæti í sínum riðli. Endaði liðið með jafn mörg stig og franska liðið US Creteil en þar sem Haukar höfðu betur í inn- byrðis leikjum liðanna halda þeir þriðja sætinu en Creteil fær það fjórða. Er því Evrópudraumur liðsins ekki alveg fyrir bí enn sem komið er en margir eru á því að Haukar hafi spilað undir getu í flestum leikjum sínum í Meistara- deildinni. Er hér því kærkomið tækifæri til að blása á efasemdir með því að ná góðum árangri í Evrópukeppni félagsliða. ■ HAUKAR GEGN CRETEIL Haukarnir halda áfram í Evrópukeppni félagsliða en Frakkarnir í Creteil sitja eftir með sárt enn- ið. Fréttablaðið/Vilhelm Dynamo St. Petersburg: Jón Arnór með 12 stig KÖRFUBOLTI Jón Arnór Stefánsson og lið hans, Dynamo St. Petersburg, bar sigurorð af Lokomotiv Novo- sibirsk á útivelli í rússnesku úr- valsdeildinni í körfuknattleik. Dynamo hafði leikinn í hendi sér frá fyrstu mínútu og leiddi 35-21 eftir fyrsta fjórðung. Jón skoraði 12 stig, tók 4 fráköst, gaf 4 stoðsendingar og fiskaði fjórar villur. Lokatölur urðu 103-86 og hefur Dynamo unnið fimm leiki í deildinni og tapað einum. Jón Arnór finnur sig greini- lega vel í rússnesku deildinni og skilar ávallt sínu í leikjum með Dynamo St. Petersburg. Byrjun liðsins lofar góðu um framhaldið og verður fróðlegt að fylgjast með gangi mála hjá körfuknattleiks- manninum knáa. ■ JÓN ARNÓR STEFÁNSSON Átti góðan leik með Dynamo St. Petersburg í fyrradag. FÓTBOLTI Wayne Rooney hélt titil- vonum Manchester United á floti með því að setja tvö mörk og tryggja United 1-3 sigur á New- castle á útivelli í ensku úrvals- deildinni í gær. Með þessum sannfærandi sigri heldur United örlítilli pressu á lið Chelsea, sem trónir á toppnum með ellefu stiga forskot. Eitthvað mikið er að í herbúð- um Newcastle og kemur vart mik- ið á óvart eftir að Graeme Soun- ess tók við stjórnartaumunum hjá liðinu. Gekk honum vel fyrst um sinn þegar liðið tapaði ekki fyrstu níu leikjum sínum en nú hefur dæmið snúist við og liðið tapað fjórum af síðustu fimm leikjum sínum. Newcastle er nú í tíunda sæti með aðeins sextán stig úr þrettán leikjum. Ánægja Bryan Robson með nýja starfið sitt sem fram- kvæmdastjóri WBA var skammlíf þegar lið sem hann stjórnaði lengi vel, Middlesbrough, kom í heim- sókn. Boro hafði þrjú stig á brott með sér eftir 1-2 sigur og verður nóg að gera fyrir Robson ætli hann sér að halda liði sínu frá fall- svæðinu í vetur. Sigurinn þýðir að lið Middlesbrough er komið í fjórða sæti í úrvalsdeildinni og er orðið langt síðan liðið vafraði um þær slóðir síðast. ■ TVÖ MÖRK TIL Rooney skoraði tvö og van Nistelrooy eitt til að tryggja United þrjú stig í pottinn á erfiðum útivelli gegn Newcastle. Liðið er í sjöunda sæti, ellefu stigum á eftir Chelsea.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.