Fréttablaðið - 15.11.2004, Blaðsíða 29
MÁNUDAGUR 15. nóvember 2004 29
Aldrei að gefast upp
Eiturlyfjavandinn hefur ekki verið
mikið ,,í tísku“ undanfarið. Lítið
hefur borið á umræðum, ekki fer
mikið fyrir forvarnarstarfi – alltént
ekki í fjölmiðlum – og helstu fréttirn-
ar eru að meðferðarstofnanir verði
að herða sultarólina. Í miðri þessari
þögn kemur út bók þeirra Njarðar
og Freys og hefur nú þegar hrundið
af stað umræðu sem er nauðsynlegt
að halda gangandi – alltaf.
Eftirmál segir frá nokkurra mán-
aða falli Fritz í heróínheimi Amster-
dam. Þar ægir saman hryllingssög-
um; af neyslunni, ,,hösslinu“, sýk-
ingum, sorginni – öllu því sem
fylgir fíklinum. Stiklað er á stóru yfir
sögu Fritz fram að þessu falli, en í
bók þeirra feðga sem kom út árið
1984, Ekkert mál, er farið nánar út
í hvernig neysluferillinn hófst. Það
er í sjálfu sér merkilegt að þeir
feðgar hafi skrifað aðra bók tuttugu
árum síðar, alls ekki ósvipaða þeirri
fyrri. Það er sterkur vitnisburður
þess hversu langvinnur sjúkdómur
fíknin getur verið og hversu þraut-
seigt mannfólkið er. Bæði fíkillinn
og aðstandendur. Ólíkt meiri þreytu
er þó að finna í Eftirmálum en í fyrri
bókinni. Stíllinn allur miðar að því
að draga fram þessa þreytu og van-
mátt fíkilsins og ástvina hans. Mikið
er um endurtekningar; sömu orðin
eru notuð, sömu hugmyndirnar
koma upp og nánast sömu atburð-
irnir. Lesandinn fær þar af leiðandi
sterka tilfinningu fyrir vítahring
fíkilsins og þreytunni sem honum
fylgir – verður jafnvel þreyttur sjálf-
ur.
Höfundur skapar einnig ákveðna
fjarlægð með stílnum. Saga Fritz er
sögð í þriðju persónu og verður því
fremur ópersónuleg, köld frásögn,
frekar en ævisaga eða endurminn-
ingar. Lítið er um orðskrúð eða
mælgi, allt saman er mjög blátt
áfram, næstum eins og skýrsla.
Þessi ,,flúorljósastíll“ gerir atburð-
ina sem lýst er enn hranalegri. Út af
þessum stíl er brugðið upp nokkr-
um hlýjum þáttum þar sem rödd
föðurins hljómar sjálf. Þessir per-
sónulegu kaflar eru eins og löðr-
ungur í andlitið. Lesandinn skynjar
manneskjurnar – gerir sér grein
fyrir að um raunverulegt fólk er að
ræða, alvöru fjölskyldu og ægilega
sorg. Það hefði mátt gera meira úr
reynslu fjölskyldunnar að mínu
mati – kaflarnir sem fjölluðu um
hana voru í það minnsta áhrifa-
mestir.
Þessi bók er skrifuð í löngum
skugga af reynslusögunni sem þeir
Njörður og Freyr skrifuðu fyrir tutt-
ugu árum. Seinni saga þeirra feðga
endar eins og sú fyrri, í meðferð
heima á Íslandi og tilfinningin er
enn sterkari nú en áður að ekkert
er hægt að gera – nema vona. Og
jafnvel það getur verið of sárt. Í
þessari bók er enga kraftaverka-
lausn að finna en það má spyrja og
vona. Í viðtali í Kastljósinu í vikunni
sagði Njörður P. Njarðvík eitthvað á
þá leið að þótt baráttan væri nær
vonlaus mættum við samt aldrei
gefast upp. Bók þeirra feðga er
áhrifaríkt innlegg í baráttu sem við
megum ekki gefast upp í. ■
BOKMENNTIR
MELKORKA ÓSKARSDÓTTIR
Eftirmál
Höf: Njörður P. Njarðvík og Freyr
Njarðarson
Útg: JPV útgáfa
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
L†
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
U
RV
2
64
66
1
1/
20
04
www.urvalutsyn.is
Stuttar ferðir í nóvember og desember.
6 nætur, 24. og 30. nóv. og 6. des.
Enska ströndin
– Montemar
Verð frá:
52.900 kr.*
M.v. tvo í íbúð
Maspalomas
– Cay Beach Princess
Verð frá:
49.900 kr.*
M.v. tvo í íbúð
*Innifalið: Flug, gisting, íslensk fararstjórn
og flugvallarskattar.
Verð m.v. að bókað sé á netinu.
Ef bókað er símleiðis eða á skrifstofu
bætist við 2.000 kr. bókunar- og
þjónustugjald á mann.
Skelltu þérí sólina!
Aðrar brottfarir í boði Verð frá:
24. nóv. – 12 nætur 56.900 kr.*
30. nóv. – 17 nætur 59.900 kr.*
– 19 nætur 62.900 kr.*
6. des. – 11 og 13 nætur 57.900 kr.*
Fáðu ferðatilhögun, nánari upp-
lýsingar um gististaðina og reiknaðu
út ferðakostnaðinn á netinu!
Flest listaverkin á textílsýn-
ingunni á Kjarvalsstöðum
eru á mörkum þess að geta
talist textílverk. Sýningar-
stjórarnir láta reyna á þan-
þol textíllistarinnar og skoða
hana í nýju ljósi.
„Við teygjum lopann svolítið langt,“
segir Hildur Bjarnadóttir, annar
tveggja sýningarstjóra alþjóðlegu
textílsýningarinnar, sem opnuð
hefur verið á Kjarvalsstöðum.
„Við erum að horfa á hvernig
textíll birtist í samtímamyndlist í
dag, en gerum það alveg óháð því
hvort listamennirnir séu með ein-
hverja textílmenntun eða líti sjálf-
ir svo á að þeir séu að vinna með
textíl. Þannig að sumum á kannski
eftir að bregða í brún, en vonandi á
góðan hátt.“
Nærri þrjátíu manns eiga verk
á sýningunni Textíl list 2004, þar af
sextán Íslendingar. Hildur tekur
skýrt fram að ekkert verkanna á
sýningunni geti flokkast undir
nytjalist. Þarna eru engin teppi,
enginn fatnaður af neinu tagi og
fátt reyndar sem talist getur hefð-
bundinn vefnaður af nokkru tagi.
„Fyrst og fremst er þetta góð
myndlist, sem við höfum valið á
sýninguna. Fólk verður síðan sjálft
að dæma hvort verkin hafi eitthvað
með textíl að gera.“
Það er Textílfélagið sem stendur
að þessari sýningu, en undirbúning-
ur að henni hefur staðið yfir í hálft
annað ár. Það félag var stofnað árið
1974 og er því þrjátíu ára um þess-
ar mundir. Meðlimir í félaginu eru
um 50 og hafa þeir haldið sýningar
með reglulegu millibili.
„Við ákváðum að efna til stærri
sýningar núna í tilefni afmælisins
þar sem horft er á textíl í víðu sam-
hengi, og fórum þá þessa leið.“
Þær Hildur og Kristveig Hall-
dórsdóttir, sem er hinn sýningar-
stjórinn, auglýstu eftir umsóknum
um þátttakendur á þessa sýningu.
Umsóknir bárust frá 283 lista-
mönnum í 29 löndum, og var dóm-
nefnd fengin til að setja saman
sýningu sem sýndi breidd og fjöl-
breytileika textíls í myndlist í dag.
Auk þess var leitað til nokkurra
listamanna sem sýningarstjórun-
um fannst eiga heima á sýningunni,
þar á meðal til þýsku listakonunnar
Karen Sander, sem hlýtur að teljast
með þekktustu listakonum Evrópu
um þessar mundir.
„Við erum líka með þrjá alþýðu-
listamenn, eins og Gísla Halldórsson
frá Sólheimum í Grímsnesi, þannig
að við erum með allan skalann.“
Hildur segir nokkur verkanna
búin til sérstaklega inn í rýmið á
Kjarvalsstöðum.
„Til dæmis heftar Lana Herzog
frá New York verk á vegginn, og
Hrafnhildur Arnardóttir vinnur
líka verk sérstaklega fyrir sýning-
una.“
Verk Hrafnhildar er unnið úr
mannshárum, dýrahárum og gervi-
hárum, en Hrafnhildur á meðal
annars heiðurinn af hári Bjarkar
Guðmundsdóttur á Medúllu-plötu-
umslaginu.
Sýningin er í Vestursal Kjar-
valsstaða og á göngum safnsins.
Hún stendur til 16. janúar og er
opin alla daga vikunnar frá 10-
17. ■
■ ■ LISTAOPNANIR
Ásdís Þórarinsdóttir sýnir ol-
íumálverk í Café Espresso í
Spönginni. Sýningin stendur til
15. desember.
Upplýsingar um viðburði og sýn-
ingar sendist á hvar@fretta-
bladid.is ekki síðar en sólar-
hring fyrir birtingu.
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
12 13 14 15 16 17 18
Mánudagur
NÓVEMBER
Teygja lopann og toga
Á MÖRKUM TEXTÍLS Anna Maija Arras frá Finnlandi
stendur þarna við verk sitt, sem heitir Orangerie.
VERK LÖNU HERZOG Lana
Herzog frá New York mætti til að
hefta þetta verk sitt á vegginn á
Kjarvalsstöðum.
HÁRIÐ HENNAR HRAFNHILDAR Hrafn-
hildur Arnardóttir á meðal annars heiður-
inn af hárgreiðslu Bjarkar Guðmundsdóttur
á nýjasta plötuumslagi hennar.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/P
JE
TU
R