Fréttablaðið - 15.11.2004, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 15.11.2004, Blaðsíða 10
10 15. nóvember 2004 MÁNUDAGUR Ráðgjafarmiðstöð fyrir fjölskyldur barna með sérþarfir: Sjónarhóll opnaður HEILBRIGÐISMÁL Sjónarhóll, ráð- gjafarmiðstöð fyrir fjölskyldur barna með sérþarfir, var opnað- ur formlega á laugardaginn að viðstaddri ríkisstjórn Íslands, forsetahjónunum og bakhjörlum miðstöðvarinnar. Þá var rúmt ár liðið síðan 60 milljónir söfnuð- ust í landssöfnun fyrir húsnæði Sjónarhóls. Ragna M. Marínósdóttir, for- maður Sjónarhóls, segir pening- ana hafa dugað fyrir húsnæðinu að Háaleitisbraut 13 og öllu sem til þurfti svo starfsemin gæti hafist. „Þetta er yndislegt húsnæði og staðsetningin góð því í hús- inu voru fyrir Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra en nú hafa bæst við Sjónarhóll og aðildar- félögin Umhyggja, Þroskahjálp og ADHD-samtökin. Okkur hefur tekist að búa til góða mið- læga miðstöð þar sem fólk getur fengið ráðgjöf og upplýsingar hjá Sjónarhóli og komið til fé- laganna í leiðinni. Þannig lítum við með björtu ljósi til framtíðar um gott samstarf og að geta auð- veldað fjölskyldum barna með sérþarfir eins mikið og hægt er.“ - þlg Nýsköpunarsjóður er nánast auralaus Nýsköpunarsjóður hefur ekki peninga til að fjárfesta í nýjum verkefnum næstu ár. Forráðamenn hans hafa leitað til stjórnvalda og lífeyrissjóða í landinu. Áhættufjárfestingar eru flestar í útlöndum. VIÐSKIPTI Ástandið í nýsköpun og hjá sprotafyrirtækjum hér á landi er „virkilega bágborið“, að sögn Gunnars Arnar Gunnarssonar, framkvæmdastjóra Nýsköpunar- sjóðs. Ástæðan er sú að sjóðurinn hefur sem stendur ekki bolmagn til að fjárfesta í nýjum hugmynd- um umfram það sem hann hefur þegar gert. Íslensk fyrirtæki og einstaklingar líta mest til fjárfest- inga erlendis, segir Gunnar Örn og kveðst hafa áhyggjur af því. „Það er ljóst að umhverfið á markaðinum hefur breyst mjög mikið,“ sagði Gunnar Örn. „Fyrir nokkrum árum var töluvert um að fyrirtæki og sjóðir væru að fjár- festa í sprotafyrirtækjum. Þetta gjörbreyttist í kringum 2001. Ný- sköpunarsjóður, sem starfað hef- ur í sjö ár, var mjög atkvæðamik- ill í að fjárfesta í nýjum fyrir- tækjum fyrstu fimm árin. Að meðaltali var hann að setja um milljarð á ári inn í nýsköpunar- ferlið. Nú hefur sjóðurinn ekki lengur bolmagn til þessa. Hlut- verk hans í dag er að standa þétt við þær fjárfestingar og fyrirtæki sem hann á í, hefur trú á og munu geta skilað honum hagnaði í fram- tíðinni, þegar þau verða seld. En hann hefur ekki farið inn í nýjar fjárfestingar í á annað ár.“ Gunnar Örn sagði að forráða- menn Nýsköpunarsjóðs hefðu átt í viðræðum við ríkisvaldið um að brúa bilið, þar til sjóðurinn gæti selt nægilega mikið af eignum og haldið áfram. Hefði verið farið fram á tvo milljarða, sem myndu dreifast á næstu tvö til þrjú ár. „Þá höfum við komið þeirri hugmynd á framfæri að ef Síminn yrði seldur fyndist okkur ekki óeðlilegt að hluti af söluverðmæt- inu myndi renna til nýsköpunar í hátæknifyrirtækjum framtíðar- innar. Síðastliðið vor voru sam- þykkt lög á Alþingi sem heimiluðu Nýsköpunarsjóði að stofna sjóði með öðrum. Við höfum farið til sjö stærstu lífeyrissjóða í landinu og kynnt hugmynd þar að lútandi fyrir þeim. Þeir eru tilbúnir að skoða hugmynd að slíku sam- starfi, en engin ákvörðun hefur verið tekin. Við vitum að lífeyris- sjóðirnir eru að fjárfesta í slíkum áhættufjárfestingasjóðum erlend- is og því er það að okkar mati eðli- legt að þeir skoði einnig slíka kosti hér heima.“ jss@frettabladid.is PÁFINN BLESSAR Jóhannes Páll páfi II hélt bænastund frá svölum Vatikansins í gær. Hvatti hann meðal annars almenning til að þakka Guði fyrir góða uppskeru. VÍGSLA SJÓNARHÓLS Á myndinni má sjá verndara landssöfnunar Sjónarhóls, sem fram fór í nóvember í fyrra; forsetafrúna Dorrit Moussaieff ásamt forsetanum Ólafi Ragnari Grímssyni og Jóni Krist- jánssyni heilbrigðisráðherra. GUNNAR ÖRN GUNNARSSON Íslensk fyrirtæki og auðmenn áhættufjárfesta nær einungis erlendis nú um stundir.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.