Fréttablaðið - 15.11.2004, Blaðsíða 15

Fréttablaðið - 15.11.2004, Blaðsíða 15
15MÁNUDAGUR 15. nóvember 2004 Gunnar Rafn Sigurbjörnsson, formaður launanefndar sveitarfélaganna, er ekki úr- kula vonar um að kennarar og sveitar- félög nái að semja um kaup og kjör. Sam- kvæmt lögum sem samþykkt voru á Al- þingi á laugardag kemur gerðardómur saman laugardaginn 20. nóvember. Ná kennarar og sveitarfélög saman áður en gerðardómur tekur til starfa? Það ætla ég rétt að vona. Við höfum þessa daga og ef við notum þá vel er allt mögulegt. Við sögðum við löggjaf- ann: Tíminn sem ætlaður var í frum- varpinu var að okkar mati óþarflega langur. Hann var styttur niður í þetta og það gæti auðvitað verið vísbending um hvort heldur sem væri. Kjarasamningar hafa stundum leyst á skemmri tíma en þessum dögum. En það þarf tvo til að leysa deiluna. Hvað þýðir það? Það þýðir að kennarar verða þá að endurskoða sína afstöðu. Sérðu fyrir þér að friður náist í skóla- starfinu sem heldur til framtíðar? Ég hef sagt það áður og get sagt enn, að það að setja lög á kjaradeilu er ekki góð lausn. Við eigum þess vegna, kennarar og sveitarfélög, eftir að leysa okkar mál í raun og það vorkenni ég okkur ekki. Getur verið, í ljósi þess að réttur til náms er bundinn í lög, að sveitar- félögin hafi brugðist í að halda úti eðlilegu skólahaldi? Það voru náttúrlega ekki sveitarfélögin sem boðuðu til verkfalls. Það voru heldur ekki sveitarfélögin sem greiddu atkvæði á móti miðlunartillögu ríkis- sáttasemjara. Það þarf tvo til að semja og hvorki hægt að einfalda hlutina svo fyrir einum eða neinum að bara annar aðilinn hafi valdið því að samningar hafi ekki náðst. Það er líka misskilning- ur að menn hafi ekki, á þessum langa tíma sem samningar voru lausir áður en að verkfalli kom, verið í alvöru sam- tölum og alvöru vinnu. Ég leyfi mér að fullyrða að svo hafi verið. Finnur launanefndin fyrir miklum þrýstingi utan úr samfélaginu? Sú staðreynd að lögin voru sett tryggir að börnin fara inn í skólana og þessari þungu byrði er af okkur öllum létt. Eftir stendur auðvitað þessi vandi okkar að leiða mál til lykta. Í mínum huga má þannig skipta þessari lagasetningu í tvennt. Hún tryggir að börnin koma í skól- ann og býr til aðstæður fyrir okkur að ná saman. Ef það gengur ekki er þarna gerð- ardómurinn og við verðum bara að vona að hann fjalli þá um málið af sanngirni, bæði við sveitarfélögin og kennara. GUNNAR RAFN SIGURBJÖRNSSON Vill halda í bjartsýnina FORMAÐUR LAUNANEFNDAR SKÝRIR AFSTÖÐU SÍNA SPURT & SVARAÐ Gerðardómur er hugtak sem notað er um hóp manna eða nefnd sem ætlað er að ná niðurstöðu um ágreiningsefni. Gerðardómur er ekki dómstóll og hann skipa ekki dómarar heldur þrír til fimm menn sem deilendur velja jafn marga til. Einn óháður oddamaður, talnaglögg- ur maður, situr einnig í dómnum. Hann úrskurðar, komi upp ágreiningur í hópnum. Oft er það Hæstiréttur sem skipar oddamanninn en ákvörðunin er pólitísk og engar fastar reglur um hver eigi að skipa sætið. Til eru lög um samningsbundna gerðardóma en einnig er heimilt að semja sérstaklega um starfshætti þeirra. Þegar gerðardómur hefur verið skipaður verður að liggja fyrir hvaða ágreining hann eigi að leysa, sem dæmi gæti hann átt að komast að niðurstöðu um hver eðileg launaþróun hafi verið á markaði standi ágreiningur um kjör. Einnig gætu stjórnvöld falið gerðardómi að ákvarða hver launin eigi að vera. Deilenda er að hlíta niðurstöðunni. Síðustu daga hefur mikið verið rætt um að setja ætti kjaraviðræður grunnskóla- kennara og sveitarfélaganna í gerðar- dóm. Samningaviðræður hafa staðið reglulega yfir frá því að þeir settust að samningaborðinu 20. janúar, ef undan er talið fimm vikna sumarfrí nefndanna. Kjarasamningur kennara rann út 31. mars og í ágúst kusu kennarar um að fara í verkfall næðust ekki samningar fyrir 20. september. Verkfall kennara hefur staðið í sjö vikur. Einnar viku hlé varð á því á meðan grunnskólakennarar og launanefnd sveitarfélaganna kusu um miðlunartil- lögu ríkissáttasemjara. Tilboðið hljóðaði upp á um 29 prósenta kostnaðarauka fyrir sveitarfélögin. Kennarar vilja sjá um 35 prósenta hækkun en launanefndin hefur gefið út að með miðlunartillög- unni hafi hámarkinu verið náð. Á miðvikudag slitnaði upp úr viðræðun- um. Um helgina voru hins vegar lög sett á Alþingi sem kveða á um að gerðardómur komi saman þann 20. nóvember og ákveði kjör kennara, hafi þeir ekki þegar náð að semja við sveitarfélögin. Þótt stjórnvöldum hafi að þessu sinni ákveðið að setja málið í gerðardóm ber þeim engin skylda til þess. Þau gætu allt eins sett lög um laun kennara. Leið- ir að lausn deilunnar eru því pólitískar. FBL GREINING: GERÐARDÓMUR Endanlegt úrskurðarvald

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.