Fréttablaðið - 15.11.2004, Blaðsíða 14

Fréttablaðið - 15.11.2004, Blaðsíða 14
14 Hvenær var Ratsjárstofnun sett á fót? Ratsjárstofnun hóf starfsemi í maí 1987 eftir að íslensk og bandarísk stjórnvöld höfðu gert sam- komulag um yfirtöku Íslendinga á rekstri ratsjár- stöðva varnarliðsins. Stofnunin heyrir undir utan- ríkisráðuneytið og framkvæmir þá milliríkjasamn- inga sem að stofnuninni lúta í umboði þess. Hvert er verksvið stofnunarinnar? Ratsjárstofnun sér um rekstur og viðhald hug- og vélbúnaðar fyrir íslenska loftvarnakerfið, Iceland Air Defense System, sem er samsett úr fjórum ratsjárstöðvum, samskiptarásum milli stöðva kerf- isins, eftirlits- og stjórnstöð þar sem unnið er úr gögnum frá ratsjánum og hugbúnaðarstöð en þar er unnið að viðhaldi og endurbótum á hugbún- aði. Ratsjárnar fjórar eru hver á sínu landshorninu: Miðnesheiði, Bolafjalli, Gunnólfsvíkurfjalli og Stokksnesi. Með þeim er fylgst með allri flugum- ferð innan sjónsviðs þeirra sem er um 250 sjó- mílur í svonefndum þotuflughæðum. Upplýsing- arnar eru nýttar af varnarliðinu, Flugmálastjórn Ís- lands og Flugmálastjórn á Keflavíkurflugvelli. Hvert er umfang starfseminnar? Rekstrarkostnaður stofnunarinnar er sagður fjórt- án milljónir Bandaríkjadala á ári, eða tæpur millj- arður króna. Bandaríski flugherinn greiðir þann kostnað. Alls vinna um áttatíu manns hjá Ratsjárstofnun en einnig starfa rúmlega tuttugu manns á vegum undirverktakans Kögunar við viðhald vélbúnaðar- ins í eftirlits- og stjórnstöðinni á Keflavíkurflug- velli. Bandaríski flugherinn sér um að manna sjálfa stöðina. Jón Böðvarsson er forstjóri Ratsjár- stofnunar en á dögunum var Ólafur Örn Haralds- son, fyrrverandi alþingismaður, ráðinn sem eftir- maður hans frá og með áramótum. Staðan var ekki auglýst. Í boði Bandaríkjamanna HVAÐ ER? RATSJÁRSTOFNUN 15. nóvember 2004 MÁNUDAGUR Spjótunum beint að Hallgrími Sigurðssyni Eiginkonur íslensku friðargæsluliðanna í Kabúl sendu í gær frá sér yfirlýsingu þar sem þær mótmæla fréttaflutningi af málum þeirra. Yfirmaður íslensku friðargæslunnar í Kabúl er einnig gagnrýndur. FRIÐARGÆSLULIÐAR Unnustur og eig- inkonur íslensku friðargæslulið- anna sem lentu í sprengjuárás í Kabúl í síðasta mánuði hafa sent frá sér yfirlýsingu þar sem fjöl- miðlaumfjöllun um málið er mót- mælt. Þær gagnrýna sömuleiðis Hallgrím Sigurðsson, yfirmann ís- lensku friðargæslunnar í Kabúl, fyrir ummælin „shit happens“. Í yfirlýsingunni kemur fram að konurnar telji sig tilneyddar að stíga fram mönnum sínum til varn- ar þar sem „þeim er sniðinn þröng- ur stakkur varðandi tjáningu á hluta atburðarásarinnar“, eins og segir í tilkynningunni. „Sú umræða sem fer fram í fjölmiðlum, nú síð- ast í Fréttablaðinu, bloggsíðum og annars staðar í þjóðfélaginu þar sem dregin er upp mynd af tilfinn- ingalausum hrokagikkjum sem láta sig mannslífin engu skipta, er kom- in langt umfram það sem þolanlegt er og hefur djúp áhrif á fjölskyldur okkar,“ segir þar enn fremur. Eyrún Björnsdóttir, eiginkona Stefáns Gunnarssonar, friðar- gæsluliðans sem slasaðist mest, segir að nokkur tími sé liðinn síðan þær sömdu yfirlýsinguna. „Við ákváðum að láta kyrrt liggja þar sem okkur fannst umfjöllunin vera að fjara út, sem okkur fannst bara gott mál. Greinin í Fréttablaðinu í gær var hins vegar kornið sem fyllti mælinn. Þar var verið að ásaka þá um ýmislegt og ýjað að því að lát litlu stúlkunnar væri þeim að kenna,“ segir hún. Í yfirlýsingunni er rótin að mál- inu sögð vera skortur á upplýsing- um á því hvernig ummælin „shit happens“ hafi verið tilkomin. Að sögn kvennanna var haldinn fund- ur á alþjóðaflugvellinum í Kabúl með þeim friðargæsluliðum sem ekki voru á vettvangi á Kjúklinga- stræti þennan örlagaríka dag. Hall- grímur Sigurðsson stýrði fundin- um og fór yfir málsatvik. „Hann lauk síðan máli sínu á þann ósmekklega hátt að afgreiða afleið- ingarnar í tveimur orðum „shit happens“ eins og hann hefði misst af önglinum. Þennan frasa notaði hann síðan ítrekað næstu daga. Bolirnir umdeildu með þessari ógeðfelldu áletrun [...] voru gjöf frá vini þeirra sem ofbauð af- greiðsla yfirmannsins á þeim sjálf- um og hinum sem annað hvort létust eða særðust þennan dag. Að klæðast bolunum var þeirra leið til að tjá andúð sína á þessari afgreiðslu.“ Stefán Gunnarsson segir sjálfur að þeir félagarnir hafi verið ósáttir við ýmislegt í málinu, ekki síst að hafa þurft að fylgja yfirmanni sínum í teppakaup, og tekur Eyrún undir það. „Þetta var náttúrlega verkefni sem þeir áttu ekkert að taka þátt í. Þegar þeir fóru utan átti þetta ekki að vera eitt af þeirra sviðum,“ segir hún. Aðspurð hvort mennirn- ir hyggist leita réttar síns svarar Eyrún: „Það mun tíminn bara leiða í ljós“. Á sínum tíma sögðu friðar- gæsluliðarnir að áletruninni á bol- unum hefði ekki verið beint gegn Hallgrími. Um það hvort yfirmenn mannanna hefðu bannað þeim að útskýra hvernig í pottinn hefði verið búið vildu Eyrún og Stefán ekkert segja. Hallgrímur Sigurðsson hafði ekki heyrt um yfirlýsinguna þegar haft var samband við hann í gær og vildi ekki tjá sig um efni hennar fyrr en hann hefði lesið hana. Stef- án er óðum að ná heilsu og fer að líkindum aftur til Kabúl í vikunni. GRIPDEILDIR Gripdeildir af óvenju- legu tagi gera Bretum nú lífið leitt en þjófnaður á járnsteyptum brunnlokum hefur færst þar mik- ið í vöxt að undanförnu. Rétt eins og hérlendis eru brunnarnir ofan í götum og stræt- um og er einfalt mál að fjarlægja lokin á þeim þótt þung séu. Breska tímarit- ið The Economist segir verðhækk- anir á málmum til bræðslu orsök þessara þjófnaða en algengt er að þjófarnir selji hvert lok á 5-7 pund, sem jafngild- ir um 700-1000 krónum. Því þarf ekki að stela mörgum lokum til að fá bærilegan ágóða upp úr krafs- inu. Lok af eldri gerð eru vinsælli en hin nýrri þar sem þau eru þyngri. Tjónið sem samfélagið verður fyrir vegna þjófnaðanna er um- talsvert. Í Newham-hverfi í Lund- únum hefur 260 lokum verið stolið á undanförnum vikum, að verð- mæti 60.000 pund, eða 7,5 milljón- ir króna. Til allrar hamingju er ekki vitað um slys á fólki sem hef- ur hrapað ofan í óvarða brunnana. Ýmis ráð hafa verið nefnd til að sporna við brunnlokaþjófnuð- um, til dæmis að festa lokin með einhvers konar hjörum eða að upp verði komið eftirlitsmyndavélum í námunda við götubrunna. Að sögn Geirs Jóns Þórissonar, yfirlögregluþjóns í Reykjavík, er þjófnaður á brunnlokum ekki enn- þá teljandi vandamál á Íslandi. „Það er ekki mikill áhugi á þeim í krimmaheiminum hér,“ segir hann. Brunnlok af algengri teg- und kostar um 15.000 krónur en íslenskar málmbræðslur veita lokum frá almenningi ekki mót- töku. - shg Öll númerin verða birt í Lögbirtingablaðinu. Auk þess eru númer úr fjórum fyrsttöldu flokkunum hér að ofan birt í DV, mánudaginn 15. nóvember. Upplýsingar um útdregin húsbréf má finna á heimasíðu Íbúðalánasjóðs: www.ils.is. 1. flokki 1991 – 52. útdráttur 3. flokki 1991 – 49. útdráttur 1. flokki 1992 – 48. útdráttur 2. flokki 1992 – 47. útdráttur 1. flokki 1993 – 43. útdráttur 3. flokki 1993 – 41. útdráttur 1. flokki 1994 – 40. útdráttur 1. flokki 1995 – 37. útdráttur 1. flokki 1996 – 34. útdráttur 3. flokki 1996 – 34. útdráttur Nú hefur farið fram útdráttur húsbréfa í eftirtöldum flokkum: Útdráttur húsbréfa Húsbréf Koma þessi bréf til innlausnar 15. janúar 2005. Aukaútdráttur Aukaútdráttur hefur einnig farið fram í ofangreindum húsbréfaflokkum, nema 1. og 3. flokki 96, og koma þau til innlausnar 15. janúar nk. Skv. 22. og 23. gr. laga nr. 44/1998 er Íbúðalánasjóði heimilt að fara í aukaútdrátt til að jafna fjárstreymi sjóðsins. Uppgreiddum fasteigna- veðbréfum er jafnað á móti útistandandi húsbréfum með útdrætti úr gildum húsbréfum úr þeim flokki, er tilheyrir umræddu fasteignabréfi. GEIR JÓN ÞÓRISSON „Ekki mikill áhugi á brunnlokum í krimmaheimun- um hér.“ BRUNNLOK Fingralangir Bretar ásælast slík lok. Breskir málmþjófar: Brunnlokin í bræðslu RABBÍNAR Á RÖKSTÓLUM Hátt í þrjú þúsund rabbínar hvaðanæva að úr heiminum eru samankomnir í New York þessa dagana til skrafs og ráðagerða. Þeir eru fylgjendur hins íhaldssama Chabad- Lubavitch skóla sem er stefna innan gyðingdóms. STEFÁN GUNNARSSON, HAUKUR GRÖNLI OG STEINAR ÖRN MAGNÚSSON Eiginkonur þeirra segja orðin „shit happens“ vera komin frá Hallgrími Sigurðssyni, yfirmanni þeirra. sveinng@frettabladid.is FR ÉT TA B LA Ð IÐ /A P

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.