Fréttablaðið - 15.11.2004, Blaðsíða 8
15. nóvember 2004 MÁNUDAGUR
Sviptingar um helgina
í bæjarstjórn í Eyjum
Þriðja meirihlutasamstarf kjörtímabilsins leit
dagsins ljós í Vestmannaeyjum um helgina.
Sáttatónn er í forsvarsmönnum bæjarfélagsins.
BÆJARSTJÓRNARMÁL Miklar svipt-
ingar hafa verið í bæjarstjórnar-
samstarfi í Vestmannaeyjum á yf-
irstandandi kjörtímabili. Um
helgina var myndaður nýr meiri-
hluti Vestmannaeyjalista og Sjálf-
stæðisflokks. Forsvarsmenn
framboðanna segja samstarfið að
kröfu íbúa í Eyjum sem lang-
þreyttir séu á vandræðagangi í
stjórnsýslunni.
Eftir kosningarnar vorið 2002
mynduðu Sjálfstæðis- og Fram-
sóknarflokkur meirihluta með
þremur sjálfstæðismönnum og
einum framsóknarmanni, gegn
minnihluta Vestmannaeyjalistans,
sem fékk þrjá fulltrúa kjörna.
Ingi Sigurðsson, byggingatækni-
fræðingur og einn af burðarásum
knattspyrnuliðs ÍBV, var kosinn
bæjarstjóri og Andrés Sigmunds-
son, fulltrúi Framsóknar, gerður
að formanni bæjarráðs.
Árið 2002 komu svo upp deilur
tengdar meintri fjármálaóreiðu
Þróunarfélags Vestmannaeyja og
taldi Lúðvík Bergvinsson, oddviti
V-listans, að bæjarsjóður Vest-
mannaeyja væri í ábyrgðum fyrir
50 til 70 milljóna króna skuld
félagsins. Sumarið 2003 klauf
Andrés Sigmundsson sig svo frá
samstarfinu við Sjálfstæðisflokk-
inn og gekk til samstarfs við
V-listann, gegn vilja framsóknar-
félagsins í Eyjum. Inga var sagt
upp sem bæjarstjóra í júlí 2003 og
í hans stað ráðinn Bergur Elías
Ágústsson.
Á fundi bæjarstjórnar Vest-
mannaeyja á föstudag sleit Lúð-
vík svo samstarfinu við Andrés
vegna trúnaðarbrests, en Andrés
hafði skrifað undir viljayfirlýs-
ingu um kaup á Fiskiðjuhúsinu í
Eyjum. Um það mál spunnust
nokkrar deilur. Andrés sagði
viljayfirlýsinguna ekki bindandi
og neitaði að víkja af fundum
meðan málið væri rætt.
Um helgina hafa hlutir gengið
hratt og sjálfstæðismenn og
V-listamenn lýstu yfir vilja til
samstarfs strax aðfaranótt laug-
ardags. „Við þessar aðstæður
leggja menn gömul deilumál til
hliðar og ákveða að vinna saman
að hagsmunum Vestmannaeyja,“
sagði Arnar Sigurmundsson, odd-
viti sjálfstæðismanna í Eyjum,
eftir að flokksmenn hans höfðu
lagt blessun sína yfir nýja meiri-
hlutayfirlýsingu á laugardaginn.
Ólíklegt er talið að hreyft verði
við Bergi Elíasi í stöðu bæjar-
stjóra og ekki stendur til að gera
breytingar á starfsmannahaldi í
Ráðhúsinu. Ekki hefur þó verið
gengið endanlega frá embætta-
skipan nýja meirihlutans. Félags-
fundur V-listans verður haldinn í
dag og leggi hann blessun sína
yfir nýja meirihlutann hefst þeg-
ar vinna við að skipa í embætti.
olikr@frettabladid.is
■ ASÍA
– hefur þú séð DV í dag?
Scott Ramsay játaði að hafa
banað Flemming
og var sleppt
Bikarmeistarar
Keflavíkur fá
áfallahjálp
Olíufélagið 1994 til 2004:
Tæpar 22 milljónir til stjórnmálaflokka
OLÍUFÉLÖG Framlög Olíufélagsins
ehf. og forvera þess, Olíufélags-
ins hf., til stjórnmálaflokka og
ýmissa stjórnmálaframboða á ár-
unum 1994 til 2004 voru samtals
21,6 milljónir króna, að því er
fram kemur í tilkynningu félags-
ins. Ekki kemur fram hvernig
framlögin skiptast á milli flokka
og tekið fram að það teljist trún-
aðarmál. „Almennt í öllum okkar
styrkjum, til stjórnmálaflokka
eða hverra sem er, lítum við á sem
svo að trúnaður ríki milli aðila,“
sagði Hjörleifur Jakobsson, for-
stjóri Olíufélagsins. Hann segir
eðlilegt að gera ráð fyrir því að
trúnaður ríki um framlög sem
ekki hafi sérstaklega verið talað
um að yrðu opinber. Eftirleiðis
segir Hjörleifur hins vegar að
upplýsingar um framlög fyrir-
tækisins verði opinberar.
Af framlögum félagsins til
flokka og framboða á árunum
1994 til 2004 var fjórðungur
vegna sveitarstjórnarmála. Þá
eru taldar með greiðslur fyrir
auglýsingar í blöðum og tímarit-
um stjórnmálaflokka og fram-
boða. „Á árunum 2003 og 2004 eru
heildarframlög til stjórnmála-
flokka samtals 2,1 millj.kr. og er
sú fjárhæð innifalin í ofan-
greindri heildarupphæð,“ segir í
tilkynningu Olíufélagsins, en nýir
eigendur komu að félaginu í maí-
lok í fyrra. - óká
HJÖRLEIFUR JAKOBSSON FORSTJÓRI
Í tilkynningu Olíufélagsins segir að á árun-
um 1994 til 2004 hafi framlög til íþrótta-,
skóla-, menningar-, líknar- og annarra
þjóðþrifamála numið samtals 229,5 millj-
ónum króna, en framlög til stjórnmála-
flokka og framboða 21,6 milljónum króna.
LÉTUST Í TROÐNINGI Fimm létust
og fimm til viðbótar slösuðust
þegar þeir tróðust undir í miklum
troðningi í helstu lestarstöðinni í
Nýju Delí, höfuðborg Indlands.
Þúsundir ferðalanga voru á lest-
arstöðinni á sama tíma og reyndu
að þröngva sér fram til að kom-
ast að lestum með þessum afleið-
ingum.
VESTMANNAEYJAR
Á tveimur árum hafa tveir meirihlutar sprungið í Vestmannaeyjum. Nýjustu deilur hafa
náð að sameina vinstri- og hægrimenn því Sjálfstæðisflokkur og Vestmannaeyjalisti ætla
að snúa bökum saman í bæjarstjórninni. Stakur fulltrúi Framsóknarflokks er í minnihluta.