Fréttablaðið - 15.11.2004, Blaðsíða 4
4 15. nóvember 2004 MÁNUDAGUR
Kristján Þór Júlíusson:
Örvænting hjá kennurum
KENNARAVERKFALL Kristján Þór Júlí-
usson, bæjarstjóri á Akureyri, er
svartsýnn á að árangur náist í kenn-
aradeilunni í dag. „Málið er komið í
ákveðinn farveg. Það er grábölvað
að til þessa hafi þurft að koma en ég
held að engum blandist hugur um að
þetta var í rauninni óhjákvæmilegt.
Ég held að fullreynt hafi verið að ná
samkomulagi,“ segir hann.
Kristjáni finnst orð kennara-
forystunnar um að samningsumboð
sé komið aftur heim í hérað bera
vott um ákveðna örvæntingu í
þeirri stöðu sem upp er komin og
ekki í neinu samræmi við það sem
áður hafi komið fram. „Þessi ör-
vænting er vel skiljanleg,“ segir
hann og telur að ástandið sé óbreytt,
umboðið sé enn hjá samninganefnd-
inni.
Í gær var talað um að kennarar
myndu skrá sig veika í miklum
mæli í dag. „Það kæmi mér veru-
lega á óvart ef allt í einu yrðu allsh-
erjarveikindi hjá einni starfsstétt.
Ég ætla hvorki kennurum né öðrum
slíka hluti.“ - ghs
Neyðarástand
Kennarar trúðu á lausn en hljóðið í fulltrúum sveitarfélaga var dræm-
ara í gærkvöld. Formaður launanefndar og fleiri bættust á fundinn rétt
fyrir miðnætti en vildu þó ekki meina að lausn væri í sjónmáli.
KENNARADEILAN „Það er auðvelt
fyrir sveitarfélögin að ganga að
þessu ef þau hafa áhuga á að
koma skólunum í gang á vitrænan
hátt,“ sagði Eiríkur Jónsson, for-
maður KÍ, síðdegis í gær og taldi
æskilegt að gerðardómur liti á
miðlunartillöguna sem gólf fyrir
frekari hækkanir. „Fólk hefur
verið dæmt í nauðungarvinnu.
Það er búið að dæma það inn í
skólana á kjörum sem það var
búið að hafna. Gerðardómur sem
væri undir þessari miðlunartil-
lögu eða jafn henni væri úrskurð-
ur gegn vilja nærri því allra kenn-
ara. Þetta er neyðarástand. Við
viljum bara kanna hvort þeir eru
tilbúnir að gera eitthvað til að lág-
marka þennan skaða og koma
skólunum í gang að einhverju
leyti,“ sagði Eiríkur og taldi eng-
an hvata fyrir sveitarfélögin að
semja núna. „Ég geri mér hins
vegar vonir um að einhver sveit-
arstjórn hafi þann kjark að ganga
fram fyrir skjöldu og semja beint
um kjör í sínu sveitarfélagi
þannig að skólastarf geti hafist
einhvers staðar í eðlilegri mynd.“
Gunnar Rafn Sigurbjörnsson,
formaður launanefndar sveitar-
félaganna, reyndi að vera bjart-
sýnn en taldi ólíklegt að samning-
ar tækjust í gærkvöld. Meiri von
væri á þeirri viku sem væri til
stefnu. „Þróunin er að sumu leyti
úr okkar höndum en okkur ber að
halda áfram. Lögin gefa okkur
frest til að reyna til þrautar. Þær
forsendur sem Alþingi hefur gefið
gerðardómi hljóta að vera leið-
beinandi fyrir þá vinnu sem við
þurfum nú að takast á við. Vís-
bendingar eru um að taka mið af
kjörum annarra sambærilegra
starfshópa. Við eigum einnig að
taka tillit til almennrar launa-
þróunar og auðvitað ber okkur að
gæta að hinum efnahagslega veru-
leika, að varðveita stöðugleikann.
Þetta kemur fram í þeim forsend-
um sem gerðardómi er ætlað að
starfa eftir. Við hljótum að taka
mið af því í okkar störfum,“ sagði
Gunnar Rafn.
ghs@frettabladid.is
Dalvískir piltar:
Gripnir við
að flagga
LÖGREGLA Dalvísk ungmenni
skemmtu sér á aðfaranótt sunnu-
dags við að flagga á frumlegan hátt.
Að sögn lögreglu í bænum tóku
nokkrir piltar upp á því að taka
niður fána fyrir utan verslunina á
staðnum. Fánunum flögguðu þeir
svo fyrir utan bensínstöðina í bæn-
um, auk þess sem þeir skutu upp
ýmsum fánum við ráðhúsið.
Lögreglan á Dalvík greip piltana
við iðju sína og var þeim gert að
laga til eftir sig, sem þeir lofuðu
lögreglu að gera skilmerkilega.
Engum fregnum fer þó af efndum
piltanna, en lögregla gerði fastlega
ráð fyrir að þeir stæðu við orð sín. ■
TITANIC
1.523 manneskjur fórust þegar Titanic
sökk árið 1912.
Flak Titanic:
Skemmdir
unnar
WASHINGTON, AP Robert Ballard,
sem fann flak skemmtiferða-
skipsins Titanic fyrir tæpum
tveimur áratugum, er ósáttur við
þær skemmdir sem hafa orðið á
flakinu á undanförnum árum.
Segir hann að kafbátarnir sem
ferðamenn og aðrir sem hafa leit-
að að minjagripum úr ferjunni
hafi notað hafi greinilega rekist
oft í flakið. Vill hann að fólk beri
meiri virðingu fyrir þessu gríðar-
stóra minnismerki í framtíðinni.
1.523 manneskjur fórust þegar
Titanic sökk í Norður-Atlantshafi
árið 1912. ■
Birgir Björn
Sigurjónsson:
Vika er
nægur tími
KENNARAVERKFALL Birgir Björn Sig-
urjónsson, formaður samningan-
efndar sveitarfélaga, telur að
vikufrestur eigi að vera nægur
tími til að ná samningum við kenn-
ara. „Ég vil að við notum þennan
frest til að reyna að leysa þetta án
þess að það þurfi að koma til gerð-
ardóms. Ég er bara ánægður með
að menn hefjast handa strax í
kvöld. Við gerum ráð fyrir að for-
sendur laganna og lögin sjálf
breyti sýn á þetta mál. Nú blasir
við að menn missa réttinn til að
semja eftir föstudaginn þannig að
það er eins gott að hafa snöggar
hendur og klára þetta. Viku frest-
ur á að vera nóg,“ sagði hann í gær
skömmu áður en hann fór á fund-
inn hjá ríkissáttasemjara. - ghs
Finnur þú oft fyrir dagsyfju?
Spurning dagsins í dag:
Ertu fordómafull(ur) í garð útlendinga?
Niðurstöður gærdagsins
á visir.is
25,6%
74,4%
Nei
Já
KJÖRKASSINN
Farðu inn á fréttahluta visir.is
og segðu þína skoðun
Kennarar í Borgarnesi:
Engin
aukastörf
KENNARAVERKFALL Kennarar Grunn-
skólans í Borgarnesi hafa ákveðið
að mæta til vinnu í dag eins og
þeir höfðu verið beðnir um þó að
umræddur dagur sé frídagur
samkvæmt skóladagatali. Þeir
hafna hins vegar allri málaleitan
skólastjórnenda um aukið vinnu-
framlag og munu ekki taka að sér
nein aukastörf meðan kjör þeirra
eru óráðin.
Í ályktun frá kennurunum segir
að þeir hafni allri samvinnu við
Borgarbyggð umfram það sem felst
í ráðningarsamningi „á meðan refsi-
vöndur ríkisvaldsins og launanefnd-
ar sveitarfélaganna vofir yfir.“
Kennararnir skora á félaga sína að
hugleiða alvarlega með hvaða hætti
þeir taki þátt í samstarfi við sveitar-
félögin um að bæta nemendum tíma
sem forgörðum hefur farið í verk-
fallinu. - ghs
„Eigi skal höggva“
Stórfengleg söguleg
skáldsaga um síðustu daga
Snorra Sturlusonar. Bók
um kaldrifjaðan stjórnmála-
mann, misheppnaðan föður
og rithöfund sem gerir
tilraun til að horfast í augu
við sjálfan sig.
„Skarplega skrifuð bók ...
dramatísk örlagasaga.“
– Mbl.
KRISTJÁN ÞÓR JÚLÍUSSON
„Málið er komið í ákveðinn farveg. Það
er grábölvað að til þessa hafi þurft að
koma en ég held að engum blandist
hugur um að þetta var í rauninni óhjá-
kvæmilegt,“ segir hann.
Samkoma:
Fjallað um
Palestínu
MIÐAUSTURLÖND Vegna fráfalls
Jassers Arafat gengst félagið Ís-
land-Palestína fyrir samkomu í
Borgarleikhúsinu í kvöld. Sam-
koman ber yfirskriftina Þjóð í
þrengingum en í dag eru 16 ár lið-
in frá því Arafat var kjörinn for-
seti af þjóðþingi Palestínu um leið
og lýst var yfir sjálfstæði. Sam-
koman hefst kl. 20 með ávarpi
Halldórs Ásgrímssonar forsætis-
ráðherra en fjöldi þjóðþekktra
einstaklinga kemur fram, meðal
annarra Steingrímur Hermanns-
son, Jóhanna Kristjónsdóttir, Sig-
rún Hjálmtýsdóttir og KK. - bb
JÓN INGI EINARSSON
Fulltrúi skólastjóra í samninganefnd
sveitarfélaganna vísaði blaða- og frétta-
mönnum út úr anddyri Höfðaborgar
þegar hann mætti til fundarins í gær.
Fréttamenn urðu að hírast fyrir utan.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/H
AR
I