Fréttablaðið - 15.11.2004, Síða 11
11MÁNUDAGUR 15. nóvember 2004
■ ÍRAK
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Yfirtökutilbo› til hluthafa
í Vátryggingafélagi Íslands hf.
Gætur ehf. bjó›a hluthöfum Vátryggingafélags Íslands hf. a› kaupa hlutabréf
fleirra í félaginu.
Yfirtökutilbo› fletta er sett fram vegna samkomulags Eignarhaldsfélagsins Andvöku gt.,
Eignarhaldsfélagsins Hesteyri ehf., Eignarhaldsfélagsins Samvinnutrygginga svf. og Kaupflings
Búna›arbanka hf. frá 22. október 2004 um a› stjórna og reka Vátryggingafélag Íslands hf.
Félögin eiga samanlagt 91,3% hlutafjár í Vátryggingafélagi Íslands hf. Af 31. gr. laga nr. 33/2003
um ver›bréfavi›skipti lei›ir a› a›ilar sem gera me› sér samkomulag um stjórnun hlutafélags
sem skrá› er á skipulegum ver›bréfamarka›i og rá›a samanlagt 40% atkvæ›isréttar í flví er
skylt a› gera ö›rum hluthöfum yfirtökutilbo›. Tilbo› fletta er sett fram í samræmi vi› ákvæ›i
laganna af Gætum ehf., kt. 521104-3760, Borgartúni 19, Reykjavík, sem er einkahlutafélag í eigu
ofangreindra a›ila.
Félag og hlutir sem tilbo›i› tekur til
Tilbo›i› tekur til allra hluta í Vátryggingafélagi Íslands hf., kt. 690689-2009, Ármúla 3, Reykjavík,
sem ekki eru í eigu hluthafa í Gætum ehf.
Gildistími tilbo›sins
Tilbo›i› gildir frá kl. 9.00 flann 19. nóvember 2004 til kl. 16.00 flann 17. desember 2004. Til fless
a› samflykkja tilbo›i› ber hluthöfum anna› hvort a› fylla út framsalsey›ubla› og senda
Fyrirtækjará›gjöf Kaupflings Búna›arbanka hf., Borgartúni 19, Reykjavík e›a hafa samband vi›
ver›bréfará›gjafa bankans í síma 444-7000.
Tilbo›sver›
Ver› samkvæmt tilbo›i flessu er 49,0 krónur fyrir hvern hlut, sem er sama gengi og í sí›ustu
vi›skiptum í Kauphöll Íslands hf. fyrir undirskrift samkomulags hluthafa í Gætum ehf. um a› stjórna
og reka Vátryggingafélag Íslands hf. Hluthafar í Gætum ehf. hafa ekki greitt hærra ver› fyrir hlutafé
í Vátryggingafélagi Íslands hf. á sí›ustu 6 mánu›um á›ur en tilbo›sskylda fleirra stofna›ist.
Afskráning VÍS
Stjórn Vátryggingafélags Íslands hf. hefur óska› eftir flví a› hlutabréf félagsins ver›i afskrá› úr
Kauphöll Íslands hf. og má búast vi› afskráningu félagsins í kjölfar yfirtökutilbo›sins.
Umsjónara›ili
Fyrirtækjará›gjöf Kaupflings Búna›arbanka hf. hefur umsjón me› ger› tilbo›sins fyrir hönd tilbo›sgjafa.
Nánari uppl‡singar veita ver›bréfará›gjafar bankans í síma 444-7000. Nálgast má tilbo›syfirlit og
framsalsey›ubla› hjá Fyrirtækjará›gjöf bankans í Borgartúni 19 í Reykjavík, á heimasí›u bankans,
www.kbbanki.is og í fréttakerfi Kauphallar Íslands hf. á heimasí›u hennar, www.icex.is.
FRÍSKIR KAUPMENN
Kaupmennirnir Örvar Arnarson frá Dress-
mann, Páll Kristinsson frá Jóni Indíafara og
Gunnar Traustason frá Maraþon í blóð-
þrýstingsmælingu. Allir reyndust þeir innan
marka og mæta jólaösinni sprækir.
Fyrsta jólaösin:
Þrýstingur
mældur
HEILBRIGÐISMÁL Nokkur fjöldi fólks
varð til að nýtta sér boð Lyfja &
heilsu um að mæla blóðþrýsting-
inn í Kringlunni á laugardaginn.
Tilefni þessa kostaboðs var end-
uropnun Lyfja & heilsu á jarðhæð
Kringlunnar.
Í tilkynningu apóteksins kem-
ur fram að það sér nú það stærsta
sinnar tegundar á Íslandi, alls um
300 fermetrar að flatarmáli. Voru
bæði viðskiptavinir og verslunar-
fólk í röðinni hjá blóðþrýstings-
mælinum, enda ef til vill skyn-
samlegt fyrir landsmenn að fylgj-
ast með heilsufari sínu í byrjun
jólaasar og einhvers mesta stress-
tíma ársins.
Þá kemur fram í tilkynningu
Lyfja og heilsu að í apótekinu veri
boðið upp á þá nýbreytni að bjóða
í lyfjaverslun upp á linsur, bæði
sjónlinsur og litalinsur, auk þess
sem boðið verður upp á sjón-
mælingar.
Eins verður í versluninni
naglabar og ráðgjafarstofa þannig
að hægt verður að fá settar á sig
nýjar neglur og fá ráðleggingar
um húðsnyrtingu. - þlg
Blaðamannafélag Íslands:
Semur við
SA
KJARAMÁL Samninganefndir Blaða-
mannafélags Íslands og Samtaka
atvinnulífsins skrifuðu á laugar-
dag undir kjarasamning sem gild-
ir til eins árs. Tekin var ákvörðun
um að semja til skemmri tíma
vegna óvissu sem ríkir um starfs-
umhverfi blaðamanna. Viðræður
hefjast aftur í september 2005.
Frá og með 1. nóvember næst-
komandi hækka laun blaðamanna
um 3 prósent og desember- og júlí-
uppbót hækkar til samræmis við
aðra kjarasamninga. Samkvæmt
samningnum breytast ákvæði um
uppsagnarfrest blaðamanna og
framlag atvinnurekenda í lífeyris-
sjóð hækkar í 7 prósent frá og með
næstu áramótum. - þlg
BÍLSTJÓRI FRAKKANNA FUNDINN
Bandarískir landgönguliðar í
Falluja fundu sýrlenskan bíl-
stjóra sem tekinn var í gíslingu
ásamt tveimur frönskum blaða-
mönnum fyrir þremur mánuðum
síðan. Sýrlendingurinn var heill á
húfi en engar upplýsingar var að
hafa um frönsku blaðamennina.
Ólafsfjörður:
Hraðakstur í
Múlagöngum
LÖGREGLA Tíu ökumenn voru
stöðvaðir í Ólafsfjarðargöngum
á laugardag fyrir hraðakstur,
við sameiginlegt umferðareftir-
lit lögreglu á Ólafsfirði og í Dal-
vík.
Hámarkshraðinn í göngunum
er 50 kílómetrar á klukkustund
en tveir ökumenn voru á yfir
100 kílómetra hraða. Þeir eiga
báðir yfir höfði sér 50.000 króna
sekt og mánaðar ökuleyfissvipt-
ingu. Aðfaranótt sunnudags óku
svo fimm ökumenn til viðbótar
óþarflega hratt á Ólafsfjarðar-
vegi og voru þeir áminntir.
- bb
RÁÐSTEFNA Á INDLANDI
A.P.J. Abdul Kalam, forseti Indlands, heilsar
almenningi á 24. alþjóðlegu viðskiptaráð-
stefnunni sem haldin er í Nýju-Delí á Ind-
landi. Sýningin stendur yfir í fjórtán daga.
Dick Cheney, varaforseti Bandaríkjanna:
Heill heilsu eftir sjúkrahússdvöl
BANDARÍKIN Dick Cheney, varafor-
seti Bandaríkjanna, segist vera heill
heilsu eftir að hafa gengist undir
rannsóknir á sjúkrahúsi í Wash-
ington í fyrradag.
Cheney skráði sig sjálfur inn á
sjúkrahúsið eftir að hafa átt erfitt
með andardrátt. Ákváðu læknar að
kanna líkamsástand varaforetans í
þaula til að hafa vaðið fyrir neðan
sig.
Cheney, sem er 63 ára, hefur
fjórum sinnum fengið hjartaáfall,
það síðasta fyrir fjórum árum. Ári
síðar var settur í hann gangráður.
„Hann er með slæmt kvef, sem gæti
verið ástæðan fyrir andarteppu
hans,“ sagði talsmaður Cheney.
Cheney hefur átt mjög annríkt
upp á síðkastið vegna forsetakosn-
inganna í Bandaríkjunum, sem lauk
nýverið með sigri Bush. Meðal ann-
ars ferðaðist hann til Hawaii í að-
eins nokkurra klukkustunda heim-
sókn. Telja margir að hann sé núna
að finna fyrir eftirköstunum frá því
mikla álagi sem hefur verið á hon-
um.
Eftir fjórða hjartaáfallið hætti
Cheney að reykja. Hann æfir sig nú
daglega og tekur lyf sem draga úr
myndun kólesteróls í líkamanum. ■
DICK CHENEY
Varaforseti Bandaríkjanna, veifar
til ljósmyndara eftir að hafa
farið í skoðun á sjúkrahúsi.