Fréttablaðið - 15.11.2004, Side 18
AFMÆLI
Snæbjörn Arngrímsson bókaútgefandi
er 43 ára.
Hjálmar Árnason alþingismaður er 54
ára.
ANDLÁT
Ólína Helga Kristófersdóttir, Akraseli
17 í Reykjavík, lést á heimili sínu föstu-
daginn 12. nóvember.
JARÐARFARIR
15.00 Ingólfur Helgi Jökulsson, málara-
meistari, Vogatungu 81 í Kópa-
vogi, verður jarðsunginn frá Digra-
neskirkju mánudaginn 15.
nóvember.
11.00 Gunnhildur Guðjónsdóttir,
sjúkraliði, Þangbakka 10 í Reykja-
vík, verður jarðsungin frá Lang-
holtskirkju þriðjudaginn 16.
nóvember.
15.00 Klemens Kristmansson, Lang-
holtsvegi 140 í Reykjavík, verður
jarðsunginn frá Fossvogs-
kirkjuþriðjudaginn 16. nóvember.
13.30 Jóhann Snorrason, fv. verslunar-
maður, Víðilundi 20, Akureyri, verð-
ur jarðsunginn frá Akureyrarkirkju
miðvikudaginn 17. nóvember.
Jóhann Geirdal, bæjarfulltrúi
Samfylkingarinnar í Reykjanes-
bæ, er fimmtíu og tveggja ára í
dag. Jóhann þarf að sitja fundi í
kvöld eins og venja er á mánu-
dagskvöldum en býst jafnvel við
að fá kaffi og smá með því seinna
í kvöld. Eftirminnilegasta afmæl-
ið var fyrir tveimur árum þegar
Nallinn breyttist í brúðarmarsinn
og hann kvæntist eiginkonu sinni
Huldu Bjarnadóttur.
Hulda og Jóhann eru bæði
fædd árið 1952 og á Hulda af-
mæli 15. desember, réttum mán-
uði á eftir Jóhanni. Fyrir tveimur
árum þegar þau urðu fimmtug
var haldin mikil veisla í Stapan-
um. „Við auglýstum opið hús og
þeir komu sem vildu,“ segir Jó-
hann en í veisluna mættu hátt í
þrjú hundruð manns og var for-
setinn þeirra á meðal. Hins vegar
vissi enginn gestanna að Hulda
og Jóhann ætluðu, öllum að óvör-
um, að láta pússa sig saman eftir
þrjátíu ára sambúð. Presturinn
sem gaf þau saman er ágætis
kunningi þeirra hjóna og var
hann í veislunni eins og hver ann-
ar gestur. „Systir mín var hringa-
beri en hafði ekki hugmynd um
brúðkaupið. Hún eins og aðrir
sem höfðu hlutverki að gegna í
athöfninni héldu að þau væru að
fara í samkvæmisleik. Ég var bú-
inn að segja þeim að þau ættu að
koma að sviðinu þegar Nallinn
yrði spilaður. Þegar þau voru
komin þangað breyttist Nallinn í
brúðarmarsinn, presturinn var
kominn í hempuna og brúðurin
var leidd inn,“ segir Jóhann.
Jóhann segist alltaf muna eftir
ellefta nóvember, sem er þjóðhá-
tíðardagur Grímseyinga, og
þannig muni hann að afmælið
hans sé á næsta leiti. Foreldrar
Jóhanns eru úr Grímsey og sjálf-
ur dvaldi hann þar nokkur sumur.
En þjóðhátíðardagur Grímsey-
inga er haldinn á afmælisdegi
Willards Fiske sem var mikill vel-
gjörðarmaður eyjarskeggja fyrir
um eitt hundrað árum síðan.
hrs@frettabladid.is
18 15. nóvember 2004 MÁNUDAGUR
ANNI-FRID LYNGSTAD
Önnur söngkona ABBA-flokks-
ins vinsæla er 59 ára í dag.
Nallinn breyttist í brúðarmarsinn
JÓHANN GEIRDAL: 52 ÁRA Í DAG
„Ef ég ætti mér ríkan mann myndi ég
ekki þurfa að vinna handtak, ég myndi
slæpast og skemmta mér.“
- Frida vissi hvað hún söng þegar hún
kyrjaði um peninga með ABBA.
timamot@frettabladid.is
JÓHANN GEIRDAL Þarf að sitja fundi á afmælisdaginn en vonast til að fá kaffi og með því síðar í kvöld.
Þennan dag árið 1988 lýsti Jasser
Arafat yfir stofnun sjálfstæðs ríkis
Palestínumanna. Þetta gerði hann í
Algeirsborg þar sem palestínska
þjóðarráðið, sem er löggjafarsam-
koma PLO, hafði þingað í fjóra daga.
Þetta var reyndar í annað skiptið
sem Palestínumenn lýstu yfir stofn-
un sjálfstæðs ríkis. Fyrst gerðu þeir
það 1. október árið 1948, en hvorug
yfirlýsingin hefur skilað þeim árangri
sem að var stefnt. Palestínumenn
hafa enn ekki eignast sjálfstætt ríki.
Engu að síður vakti yfirlýsing Arafats
mikla athygli. Með yfirlýsingu sinni
viðurkenndi Arafat um leið tilveru-
rétt Ísraelsríkis, enda var yfirlýsing
hans byggð á ályktun Sameinuðu
þjóðanna frá 1947 þar sem sagði að
skipta ætti Palestínu í tvö ríki. Annað
yrði ríki araba, hitt ríki gyðinga.
Yfirlýsing Arafats varð möguleg eftir
að Jórdanir lýstu því yfir í júlí sama
ár að þeir gerðu ekki lengur tilkall til
landsvæða vestan Jórdanár.
Yfirlýsing Arafats bar þó skjótt marg-
víslegan árangur. Strax í desember
byrjuðu Bandaríkjamenn að ræða
við Arafat um lausnir á deilu Palest-
ínumanna og Ísraelsmanna.
Innan fárra ára undirrituðu Ísraels-
menn og Palestínumenn friðarsam-
komulag í Ósló, sem þótti stór
áfangi á sínum tíma þótt lítið hafi
orðið úr framkvæmdum þess sam-
komulags.
15. NÓVEMBER 1988
Jasser Arafat lýsti yfir stofnun
Palestínuríkis þennan dag
árið 1988.
ÞETTA GERÐIST MERKISATBURÐIR
1920 Fyrsti fundur Þjóðabanda-
lagsins, sem var undanfari
Sameinuðu þjóðanna, var
haldinn í Genf.
1943 Þýski nasistaforinginn Hei-
nrich Himmler skipar svo
fyrir að senda skuli sígauna
í útrýmingarbúðir.
1956 Love Me Tender, fyrsta bíó-
myndin með Elvis Presley,
er frumsýnd.
1957 Nikita Krústjov, leiðtogi
Sovétríkjanna, skorar á
Bandaríkin að koma í skot-
keppni með flugskeytum.
1969 Um það bil 250 þúsund
manns mótmæla Víetnam-
stríðinu með friðsamlegum
hætti í Washingtonborg.
1978 183 manns farast með far-
þegaflugvél af gerðinni DC-
8 í Sri Lanka.
1982 Leoníd Brésnév er jarð-
sunginn í Moskvu.
Palestínumenn lýsa yfir sjálfstæði
LJ
Ó
SM
YN
D
/M
YN
D
H
AF
N
AR
FI
RÐ
I
Þorgerður Elín Brynjólfsdóttir og
Sævar Þór Jóhannsson voru gefin
saman í Bessastaðakirkju 16.
október 2004 af Sr. Friðriki J.
Hjartar.
Tvær byggingar eftir íslenska
arkitektinn Guðmund Jónsson
hafa verið tilnefndar til merkra
arkitektaverðlauna. Nú dögunum
var tilkynnt að SØSTERSKIPET
(Systraskipið), skrifstofubygging
í Rörvik, eftir Guðmund Jónsson
arkitekt í Osló hlyti „Bygg-
eskikkprisen 2003“ í Vikna
kommune. Guðmundur teiknaði
Systurskipið fyrir norska síma-
fyrirtækið Telenor og stendur
það við hlið sjóminjasafnsins
Norveg sem einnig er teiknað af
Guðmundi og er nú tilnefnt til
Mies van der Rohe-verðlaun-
anna. Norveg er sjóminjasafn og
var vígt af norsku konungshjón-
unum í sumar með mikilli við-
höfn. Þessar tvær stórbyggingar
hafa gjörbreytt ásýnd smábæjar-
ins Rörvíkur og hafa báðar laðað
til sín fjölda ferðamanna frá því
að þær voru vígðar. ■
SYSTURSKIP TELENOR Teiknað af Guðmundi Jónssyni og er nú tilnefnt til
Byggeskikkprisen 2003.
Íslenskur arkitekt
tilnefndur til verðlauna
Tilkynningar um
andlát og jarðarfarir
eru velkomnar á síður
Fréttablaðsins.
Sími: 550 5000
FRÉTTAB
LAÐ
IÐ
/PJETU
R