Fréttablaðið

Ulloq
  • Qaammatit siuliiNovember 2004Qaammatip tullia
    MoTuWeThFrSaSu
    1234567
    891011121314
    15161718192021
    22232425262728
    293012345
    6789101112
Ataaseq assigiiaat ilaat

Fréttablaðið - 15.11.2004, Qupperneq 23

Fréttablaðið - 15.11.2004, Qupperneq 23
MÁNUDAGUR 15. nóvember 2004 Grant Hill hefur átt glæsilegaendurkomu það sem af er vetri með Orlando Magic í NBA-deildinni í körfuknattleik. Hill, sem sleppti tímabil- inu í fyrra í von um að ná sér að fullu af þrálátum ökkla- meiðslum, hefur skorað 19 stig, tekið 6 fráköst, gefið 3,2 stoðsendingar og stolið 1,53 boltum að meðaltali í leik. Skotnýting hans er heldur ekki af verri endanum, 48,9% í tveggja stiga skotum, 85,7% í vítaskotum og hvorki meira né minna en 66,7% í þriggja stiga skotum. Magic hefur unnið fjóra af fyrstu sex leikjum deildarinnar og er liðið jafnt ásamt Miami Heat í tveimur efstu sætum suðausturriðilsins. Serbneskum körfuknattleiksmannihefur verið meinaður aðgangur að Króatíu fyrir húðflúr sem hann ber á handlegg. Húðflúrið er sagt bera vott um kynþáttafordóma og hatur í garð trúarbragða og varðar við lög í Króatíu. Lögreglan í Króatíu segir að það sama hefði verið uppi á teningn- um ef um Króata hefði verið að ræða. Leikstjórinn Woody Allen viður-kenndi nýverið að Reggie Miller væri einn af hans uppáhaldsleik- mönnum. Frægt er orðið þegar Allen sat á hliðarlínunni í leik New York Knicks og Indiana Pacers og öskraði á Miller, sem brást æfur við og skaut Knicks í kaf upp á sitt eindæmi í loka- fjórðung leiksins í undanúrslitum Austurdeildarinnar. Fjölmiðlar vestra sögðu Allen hafa „kostað Knicks sigurinn“. Allen segir útkomu leikja ekki aðalmálið, heldur gæði hvers leiks fyrir sig. Franz Beckenbauer, sem á sæti íundirbúningsnefnd HM 2006, af- boðaði komu sína á knattspyrnuleik þar sem hann átti að sjá um dóm- gæslu. Leikurinn var til styrktar SOS barnaþorpunum. „Ég verð að biðjast afsökunar á þessu. Ég var tilbúinn í slaginn en varð fyrir meiðslum sem gerðu það að verk- um að ég gat ekki mætt,“ sagði Beckenbauer. Hinn brasilíski Pele, sem var viðstaddur leikinn, var vons- vikinn að fá ekki að sjá Beckenbauer með flautuna. „Það verður bara að bíða betri tíma,“ sagði Pele. Dansandi ljón og talandi fótboltieru lukkudýr Heimsmeistara- mótsins í knattspyrnu sem fram fer í Þýskalandi árið 2006. Brúðan er hönnuð af Jim Henson Company og getur bæði dansað og sungið. Fót- boltinn talandi ber nafnið Pille og mun búa yfir mikilli þekkingu á sögu íþróttarinnar. Kanadíska íshokkígoðið WayneGretzky hefur ekki lokað dyrun- um á það að þjálfa í NHL-deildinni þegar hún hefst að nýju. Forráða- menn Phoenix Coytoes hafa sótt að Gretzky um að taka að sér þjálfun liðsins en ekkert hefur enn verið gef- ið út í þeim efnum. „Þetta er ekki hátt á forgangslistanum að svo stöddu en ég hef þó ekki neitað neinu,“ sagði Gretzky, sem er talinn einn allra besti íshokkíleikmaður sögunnar. NHL- deildin er býsna illa stödd um þessar mundir og hefur verkfall liðseiganda gert það að verkum að deildin hefur tapað 123 milljónum dollara það sem af er. Evander Holyfield, fjórfaldurheimsmeistari í hnefaleikum, reið ekki feitum hesti frá viðureign sinni gegn Larry Donald í New York í fyrrinótt. Holy- field beið sinn fimmta ósigur í síð- ustu átta bardögum en þvertók fyrir það að hann væri að íhuga að setjast í helgan stein. „Mér leið vel, betur en síðast. Ég er ekki þekktur fyrir að gefast upp og fer ekki að byrja á því núna,“ sagði Holyfield. ÚR ÍÞRÓTTAHEIMINUM es.xud.www

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar: 313. tölublað (15.11.2004)
https://timarit.is/issue/264872

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.

313. tölublað (15.11.2004)

Iliuutsit: