Fréttablaðið - 15.11.2004, Qupperneq 28
Hjá Vöku-Helgafelli er komin út Sólin sest að morgni eftirKristínu Steinsdóttur. Kristín Steinsdóttir sýnir hér á sér nýja
hlið og skrifar í fysta sinn sögu fyrir fullorðna. Efniviðinn sækir hún
í bernsku sína og úr verður margræð saga þar sem undir niðri
krauma miklar tilfinningar. Hér segir frá skapmikilli stúlku sem vex
upp í skjóli hárra fjalla. Að henni standa sterkar konur sem eru
haldreipi hennar og fyrirmyndir í tilverunni. En yfir leikjum og
kátínu bernskunnar hvílir skuggi sem vill ekki hverfa.
Hjá Máli og menningu er komin út heimildarskáldsagan Glóiðþið gullturnar eftir Björn Th. Björnsson. Sagan fjallar um Fritz
Hendrik Berndsen sem kom til Skagastrandar upp úr miðri 19. öld
til að gerast þar beykir og byggir meðal annars á eftirlátnum endur-
minningum hans. Hann setti á fót eigin verslun árið 1875 og rak
hana um árabil en auðgaðist aldrei, gullturnar hans voru allir hug-
arsmið. Í seinni hluta sögunnar segir nokkuð af einum sona hans,
Sigurði Berndsen, sem var kunnur fésýslumaður í Reykjavík.
28 15. nóvember 2004 MÁNUDAGUR
Útgáfutónleikar í tilefni af útgáfu nýs
geisladisks sem hlotið hefur heitið
Hljómblik verða í Salnum í Kópavogi,
annað kvöld, þriðjudag 16. nóvember
klukkan 20.00.
Diskurinn inniheldur nokkrar af ein-
söngsperlum Björgvins Guðmundsson-
ar, kórlögum og píanólögum. Sum laga
hans eru löngu landsþekkt, til dæmis,
Íslands lag og Þei, þei og ró, ró. Sum
laganna á diskinum eru við ljóð sem eru
nú þekktari við lög eftir önnur tónskáld.
Þar má nefna Þótt þú langförull legðir,
Sofðu unga ástin mín og Litlu hjónin.
Flytendur á disknum og á tónleikunum
eru meðal okkar fremstu hljómlista-
manna, þar á meðal söngvararnir Sigrún
Hjálmtýsdóttir - Diddú - Bergþór Páls-
son, Eivör Pálsdóttir og Eyjólfur Eyj-
ólfsson, Karlakórinn Fóstbræður, pí-
anóleikararnir Anna Guðný Guðmunds-
dóttir, Snorri Sigfús Birgisson og Kjart-
an Valdemarsson, ásamt Sigrúnu Eð-
valdsdóttur fiðluleikara og Pétri Grét-
arssyni slagverksleikara, en hann hefur
haft yfirumsjón með gerð geisladisksins.
Björgvin Guðmundsson tónskáld fæddist
að Rjúpnafelli í Vopnafirði 1891 en
fluttist með fjölskyldu sinni til Kanada
um tvítugt. Smám saman fóru samland-
ar Björgvins í Kanada að veita tónlistar-
gáfum hans athygli og styrktu hann til
tónlistarnáms við Royal College of
Music í London. Hann brautskráðist
þaðan eftir aðeins tveggja ára nám. Árið
1931 fluttist hann til Íslands eftir 20 ára
dvöl erlendis.
Björgvin Guðmundsson var eitt af af-
kastamestu tónskáldum á Íslandi á sín-
um tíma. Hann var brautryðjandi í að
semja kórverk í stórum formum, eftir
hann liggja 5 óratóríur, en í allt samdi
hann á sjötta hundrað verka í smærri og
stærri formum. Auk þess samdi hann
fyrsta íslenska söngleikinn, Skrúðsbónd-
ann, sem gefinn var út árið 1942. Björg-
vin Guðmundsson lést á Akureyri 4. jan-
úar árið 1961.
Ný íslensk gullsmíði. Sýning í tilefni 80
ára afmælis Félags íslenskra gullsmiða
í austursal Gerðarsafns í Kópavogi. Um
35 félagar sýna nýja hönnun og smíði úr
eðalmálmum.
menning@frettabladid.is
Perlur Björgvins í Salnum
Í Iðnó rúmast allar listgrein-
ar, auk þess sem þar er hægt
að snæða og bregða sér í
tangó.
Iðnó við Tjörnina er eitt allsherj-
ar listahús. Þar er framin leiklist,
tónlist, myndlist og síðast en ekki
síst, matargerðarlist. Leiksýning-
arnar tvær sem eru nú á fjölum
hússins þetta haustið njóta mikilla
vinsælda, hafa enda hlotið frá-
bærar viðtökur leikra og lærðra.
Það eru sýning Guðmundar Ólafs-
sonar, Tenórinn, og Faðir vor eftir
Hlín Agnarsdóttur. Um helgina
opnaði þar svo ný myndlistarsýn-
ing Ilmar Stefánsdóttur, sem mun
standa í mánuð.
Húsráðandi í Iðnó er Margrét
Rósa Einarsdóttir sem hefur í
mörgu að snúast því eins og verk-
ast vill á listelskum heimilum, eru
vikurnar fyrir jól viðburðaríkar.
„Eins og er eru tvær leiksýn-
ingar í húsinu, en þeim á eftir að
fjölga á næstunni,“ segir Margrét.
„Á föstudögum sýnum við Tenór-
inn hans Guðmundar, sem hefur
gengið lengi hér í húsinu frá því á
síðasta leikári, og síðan er hinn
skemmtilegi gamanleikur, Faðir
vor, eftir Hlín, sýndur tvisvar í
viku, á laugardögum og síðan ann-
að hvort á sunnudögum eða mið-
vikudögum.
Á fimmtudögum erum við síð-
an alltaf með tónleika í samstarfi
við tonlist.is; höfum bæði verið
með tónleika með Eivöru Páls-
dóttur og Ragnheiði Gröndal -
báðir frábærir
tónleikar.
Svo má ekki
gleyma tan-
g ó b ö l l u n u m
okkar. Tan-
gósveit lýð-
veldisins held-
ur þau böll hér
fyrsta þriðju-
dag í hverjum
mánuði. Þar
eru á ferðinni
alveg frábærir
tónlistarmenn
og það er vel mætt á þessi böll, að-
sóknin er alltaf að aukast og á síð-
asta balli var alger sprengja. Hús-
ið fylltist.“
Eins og á öðrum bæjum, er far-
ið að huga að jólunum í Iðnó. Í
desember verður boðið upp á jóla-
sýningu fyrir börn og fullorðna
þar sem sungin verða íslensk og
erlend jólalög. Sýningar verða
hvort tveggja síðdegis og á kvöld-
in. „Þetta er leikrit sem fjallar um
það að ameríski jólasveinninn er
að reyna að kenna okkar jóla-
sveinum mannasiði,“ segir Mar-
grét Rósa og bætir við að einnig
verði mikið af tón-
leikum allan des-
embermánuð, sem
og bókmenntaupp-
ákomum sem Iðnó
mun standa fyrir.
Auk þess sem Iðnó
er almennur veit-
ingastaður eru
alltaf tilboðsréttir
í gangi í kringum
leiksýning-
ar og tón-
leika.
„Við erum með tvö þriggja
rétta leikhústilboð eins og er,“
segir Margrét. „Með Faðir vor
bjóðum við upp á Nauta-carpaccio
með furuhnetum og fetaosti,
pönnusteiktan sólkola með banön-
um og gráðosti og Passion-fram-
boises. Verðið er 3.900 kr. fyrir
alla þrjá réttina, en það er einnig
hægt að fá bara forrétt og aðal-
rétt, eða aðalrétt og eftirétt á
3.400 krónur.
Með Tenórnum bjóðum við upp
á ofnbakaða sveppi með gráðosti
og fersku salati, marineraðar
kjúklingabringur með hnetusósu
og hrísgrjónum og súkkulaðiturn
með vanillukremi. Þetta tilboð er
einnig á 3.900 krónur og sömuleið-
is er hér hægt að fá bara tvo rétti.
Bæði tilboðin hafa notið mikilla
vinsælda meðal
leikhúsáhorf-
enda - enda
réttirnir mjög
góðir.“ ■
Etið, drekkið,
dansið og verið glöð
!
fös. 19. nóv. kl. 20. laus sæti.
lau. 20. nóv. kl. 20. laus sæti.
Fös. 19.11 20.00 Örfá sæti
Fös. 26.11 20.00 Nokkur sæti
Lau. 27.11 20.00 Nokkur sæti
Lau. 4.12 20.00 Laus sæti
SÝNINGUM LÝKUR Í DESEMBER
Sun. 14. nóv. kl. 16
Sun. 21. nóv. kl. 16
(SÍÐASTA SÝNING)
„Ég er að sýna videóverk sem
heitir „Playtime,“ eins og gömul
Tati-kvikmynd heitir, sem er
aukaatriði. Þetta þýðir leiktími,“
segir Ilmur Stefánsdóttir mynd-
listarkona, sem hefur opnað sýn-
ingu á verkum sínum í anddyri
Iðnó, sýningu sem teygir sig inn á
kaffistofuna.
„Á sýningunni er ég að spila á
hljóðfæri sem ég bjó til úr heimil-
istækjum, bókum og einu og öðru.
Það er ákveðin saga í gangi. Davíð
Þór Jónsson hljómborðsleikari
bjó til lag úr spileríinu mínu,
þannig að á endanum er þetta eins
og tónlistarmyndband. Þetta er
samvinna okkar og tilraun sem
hefur gengið fram og til baka,
fyrst tók ég upp gjörningana
mína, þar sem ég spila á hljóðfær-
in. Síðan bjó hann til lag úr söng-
hljóðum og síðan var videóið
klippt eftir laginu.
Ilmur er einnig með skúlptúra,
sem eru hljóðfærin sjálf, og ljós-
myndir af sér að nota þá, „þannig
að þetta er hljóðfærasýning,
svona tónleikar á ská,“ eins og
hún segir. ■
Ilmur leikur sér í Iðnó
MARGRÉT RÓSA EINARSDÓTTIR Boðið verður upp á tónleika og bókmenntadagskrár í
desember.
FAÐIR VOR Gaman-
leikur sem hlotið
hefur einróma lof.
TENÓRINN
Tekinn upp frá
fyrra ári vegna
mikillar aðsóknar.
NÝJAR BÆKUR