Fréttablaðið - 15.11.2004, Qupperneq 36
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 550 5010 - fax 550 2727, auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 550 5000
FER‹ALEIKURINN ER
Á VISIR.IS – TAKTU fiÁTT!
Þú gætir unnið ferð til
Kaupmannahafnar eða London!
Heimsmetabók Guinness
− 50 ára afmælisútgáfa.
• Hversu þungur er þyngsti maður í heimi?
• Hvaða hljómsveit hefur selt flestar plötur?
• Hversu stór er stærsta pítsa í heimi?
• Hverjir eiga heimsmet í sláturkasti?
KOMIN Í
VERSLANIR!
Algjört met!
Sérstök gullútgáfa þar sem greint er frá
öllum nýjustu metunum og ótrúlegar
myndir birtar af mögnuðum uppátækjum
í öllum heimshornum. Í bókinni eru
einkaviðtöl við heimsmethafana og
sérkaflar þar sem farið er ofan í saumana
á ótrúlegustu afrekum allra tíma.
edda.is
ÁSKORUN!
Skorum á 70 mín að borða
stærstu pylsu í heimi í Kriglunni
á laugardaginn, takist að búa
hana til.
Vaka-Helgafell / SS / Kringlan / Myllan
Ég ákæri!
Frá stofnun Hins íslenska lýðveld-is hefur það verið hornsteinn ís-
lenskrar utanríkisstefnu að bera
ekki vopn á aðrar þjóðir; ást á friði,
trú á lýðræði, hjálpfýsi við bág-
stadda, og virðing fyrir öllum trúar-
brögðum mannkyns er framlag Ís-
lendinga til góðs samkomulags í fjöl-
skyldu þjóðanna.
ÉG ÁKÆRI Davíð Oddsson forsæt-
isráðherra (nú utanríkisráðherra) og
Halldór Ásgrímsson utanríkisráð-
herra (nú forsætisráðherra) fyrir að
brjóta upp á sitt eindæmi gegn frið-
arstefnu Íslendinga að þingi og þjóð
forspurðri með því að tilkynna vilj-
uga þátttöku Íslands í hóp staðfastra
bandamanna Bandaríkjanna í ólög-
legum innrásarferðum í Afganistan
og Írak og hernámi þessara landa
með hræðilegu blóðbaði.
ÉG ÁKÆRI Alþingi Íslendinga,
löggjafarvaldið, fyrir að sofa á verð-
inum og koma ekki í veg fyrir valda-
brölt þessara tveggja hluthafa í
framkvæmdavaldinu og forða þjóð-
inni frá þeim álitshnekki og sam-
viskukvölum sem fylgja samsekt í
ólögmætum gjörningi sem hefur
vakið alheimsathygli. Ég ákæri Al-
þingi Íslendinga einnig fyrir að
refsa ekki utanríkisráðherra lands-
ins fyrir að skrökva því blákalt að
þingheimi og landsmönnum öllum í
ræðu við upphaf þings að friður og
framfarir blómstri í Írak – að und-
anskildum 5 hreppsfélögum af 800!
ÉG ÁKÆRI íslensku þjóðina fyrir
tómlæti gagnvart vopnaskaki og
valdníðslu fyrrnefndra ráðherra og
fyrir tilfinningadofa gagnvart þeim
þjóðum sem orðið hafa fyrir barðinu
á miskunnarlausum ofstopa Banda-
ríkjanna og hinna viljugu fylgifiska
þeirra.
ÉG ÁKÆRI sjálfan mig fyrir að
sitja þegjandi undir ráðríki manna
sem gera sér leik að því að brjóta
grundvallarreglur lýðræðisins og
hins íslenska lýðveldis. Ég ákæri
sjálfan mig fyrir að láta óátalið að
dómsmálaráðherra landsins brjóti
jafnréttislög og réttlæti gerðir sínar
með því að segja að gildandi lög séu
„börn síns tíma“. Ég ákæri sjálfan
mig fyrir að hafa oftar en ég kæri
mig um að muna látið duga að
muldra eitthvað í barminn þegar ég
sé landsfeðurna hegða sér eins og
svín í drafi og réttlætt afskiptaleysi
mitt með því að sem einstaklingur
þurfi ég að láta eigin hag ganga fyrir
því að berjast gegn ranglætinu. ■
BAKÞANKAR
ÞRÁINS BERTELSSONAR