Fréttablaðið - 24.11.2004, Side 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
MIÐVIKUDAGUR
NÝ FASTEIGNALÖG Klukkan 12:15 í
dag flytur Viðar Már Matthíasson, prófess-
or við lagadeild HÍ, erindi um ný lög um
sölu fasteigna, fyrirtækja og skipa í mál-
stofu Lagastofnunar, stofu 101 í Lögbergi
við Háskóla Íslands.
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
24. nóvember 2004 – 322. tölublað – 4. árgangur
● snýr aftur í skaupinu
Læknirinn skæði
Saxi læknir:
▲
SÍÐA 34
SKATTAFRUMVARP GAGNRÝNT
Í umræðum um tekjuskattsfrumvarp á Al-
þingi í gær var ríkisstjórnin gagnrýnd fyrir
að auka þenslu og hygla hátekjufólki. Sam-
fylkingin var sökuð um hringlandahátt í
skattastefnu sinni. Sjá síðu 2
VANNÆRING Í ÍRAK Þingflokksfor-
maður Sjálfstæðisflokksins segir skýrslu um
aukna vannæringu íraskra barna ekki koma
á óvart. Hann telur ástand í landinu þó betra
en áður. Þingflokksformaður Vinstri grænna
segir niðurstöðurnar skelfilegar. Sjá síðu 4
ÖRYRKJUM FJÖLGAR Öryrkjum fjölg-
ar meira nú en fyrri ár. Aukningin jókst eftir
að læknar utan Tryggingastofnunarinnar
tóku að meta örorkuna. Greiðslur hafa
hækkað úr fimm milljörðum í tólf. Ráð-
herra vill rannsókn. Sjá síðu 6
Kvikmyndir 30
Tónlist 28
Leikhús 28
Myndlist 28
Íþróttir 24
Sjónvarp 32
● jólin koma
Býr til jólaskrautið sjálfur
Kalli Bjarni:
▲
Í MIÐJU BLAÐSINS
RIGNING EÐA SKÚRIR einhvern
hluta dagsins á landinu, fyrst suðvestan til.
Þessu valda skil á norðurleið. Fyrir norðan
verður þetta slydda eða jafnvel snjór
síðdegis. Sjá síðu 4
Veffang: visir.is – Sími: 550 5000
25-50 ára
Me›allestur dagblaða
Allt landið
Samkvæmt fjölmi›lakönnun Gallups október '04
71%
46%
MorgunblaðiðFréttablaðið
HRINGRÁSARBRUNINN Um sex hund-
ruð íbúar Kleppsvegar og ná-
grennis fengu að halda heim um
miðjan dag í gær eftir að hafa
þurft að yfirgefa híbýli sitt í hasti
undir miðnætti í fyrrakvöld. Enn
er ógjörningur að meta tjónið sem
hlaust af en ljóst að það er umtals-
vert. Skemma Hringrásar varð
eldinum að bráð og allt sem í henni
var auk þess sem talsverð verð-
mæti voru í dekkjahaugnum sem
brann til kaldra kola. Starfsemi lá
niðri í mörgum nærliggjandi fyrir-
tækjum í gær og eigur sumra
þeirra eyðilögðust vegna reyks og
sóts. Matvælafyrirtæki í grennd-
inni þurfti að farga allri fram-
leiðslu sinni. Ónefndar eru þær
skemmdir sem urðu á heimilum.
Á fjórða hundrað tók þátt í sam-
hæfðum aðgerðum björgunaraðila
og hafa ekki fleiri komið að slíkum
verkum fyrr. Um 80 slökkviliðs-
menn stóðu í ströngu um langa hríð,
yfir 30 lögreglumenn komu að verk-
inu, 90 björgunarsveitarmenn og 50
liðsmenn Rauða krossins auk fjölda
annarra, eins og strætisvagna- og
leigubílstjóra. Mönnum ber saman
um að allar aðgerðir hafi tekist vel
og gott samstarf ríkt.
Hringrás hefur komið töluvert
við sögu á liðnum árum vegna
mengunar í jarðvegi. Árið 1989
greindist eiturefnið PCB í jarðvegi
á athafnasvæði þess en umhverf-
isráðuneytið gaf út fyrsta starfs-
leyfi fyrirtækisins 1991. Tveimur
árum síðar var fullyrt að PCB-
mengun á lóð Hringrásar væri eitt
mesta umhverfisvandamál sem
komið hefði upp á Íslandi. Þá vildi
Katrín Fjeldsted, þáverandi for-
maður heilbrigðisnefndar Reykja-
víkur, að fyrirtækið yrði flutt af
núverandi athafnasvæði. Heil-
brigðiseftirlit borgarinnar gaf
hins vegar út leyfi í september
1999 til 5 ára og rann það út í
haust. Þá hófst vinna við endur-
nýjun leyfisins. Árið 2001 sekkjaði
fyrirtækið PCB-menguðum jarð-
vegi sem komið var fyrir í land-
fyllingu í Sundahöfn og á lóð fyrir-
tækisins. - bþs - ghg
sjá síður 10 - 17
Auður Laxness:
Stefnir
Hannesi
DÓMSMÁL Auður Laxness, ekkja
Halldórs Kiljans Laxness, hefur
stefnt Hannesi Hólmsteini Giss-
urarsyni prófessor fyrir að hafa
brotið á höfundarrétti Halldórs
með „ítrekuðum og grófum hætti“
í fyrsta bindi ævisögu skáldsins
sem kom út í fyrra.
Hannesi er stefnt fyrir 120 at-
riði sem sögð eru framin af ásetn-
ingi eða stórfelldu gáleysi. Þess er
krafist að Hannes verði dæmdur
samkvæmt 54. grein höfundar-
laga sem kveða á um fjársektir
eða fangelsi í allt að tvö ár. Málið
verður þingfest fyrir Héraðsdómi
Reykjavíkur á morgun. - bs
Írak:
Ekki staðið
við loforð
BAGDAD, AP Háttsettur aðstoðar-
maður klerksins Muqtada al-Sadr
sakar írösk stjórnvöld um að
ganga gegn samningi sem gerður
var í ágúst til að ljúka bardögum í
Najaf.
Engar sérstakar hótanir komu
fram, talin er aukin hætta á nýj-
um bardögum milli stjórnvalda og
her al-Sadrs. Aðstoðarmaðurinn
sagði að stjórnvöld hafi lofað í
ágúst að elta ekki uppi meðlimi
hreyfingar al-Sadrs og sleppa
flestum þeirra úr haldi.
Við þetta hafi ekki verið staðið
og fjöldi félaga hans í haldi hafi
nú tvöfaldast. ■
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
Framkvæmdastjóri Hringrásar:
Hugurinn hjá fólki sem flúði
BRUNI Hringrás varð fyrir verulegu
tjóni í brunanum í fyrrinótt að mati
Einars Ásgeirssonar, framkvæmda-
stjóra fyrirtækisins. Hann segir að
tryggingafélag sé að meta tjónið og
ekki sé hægt að slá neinu föstu sem
stendur. Það sé líka aukaatriði í mál-
inu þar sem hugurinn sé hjá fólkinu
sem þurfti að yfirgefa heimili sitt í
tengslum við brunann.
Einar segir að í kjölfar þessa
verði farið yfir öryggisatriði með
forvarnadeild Slökkviliðs höfuð-
borgarsvæðisins til að tryggja að
fólk í nágrenninu geti sofið öruggt
um nætur.
Hann segist hafa verið í viðræð-
um við eldvarnaeftirlitið eftir að
það lýsti yfir áhyggjum sínum yfir
dekkjahrúgunni í sumar. Það hafi
því miður dregist að fjarlægja
hana. Nú sé hins vegar búið að
semja við Sorpu og dekkin sem
eftir eru fari þangað. Einar segist
skilja vel að íbúar í nágrenni fyrir-
tækisins beri blendnar tilfinningar
til þess á þessari stundu. Hins
vegar verði allt kapp lagt á að
koma fyrirtækinu aftur í gang um
leið og heimild fáist frá slökkviliði
og umhverfis- og heilbrigðisstofu.
- ghg
FRÁBÆR TILBOÐ!
SÉRBLAÐ FYLGIR
Fylgir blaðinu
í dag
AUÐUR LAXNESSHANNES
HÓLMSTEINN
EINAR ÁSGEIRSSON
Framkvæmdastjóri Hringrásar horfir á
dekkjahrúguna brenna út um glugga á
skrifstofu fyrirtækisins.
GRÖFURNAR GLÍMA VIÐ BRUNNIÐ BRAKIÐ Ljóst er að umtalsvert tjón hefur orðið en ekki er hægt að leggja á það mat strax.
Ógjörningur er
að meta tjónið
Ekki er enn hægt að meta tjónið sem varð af völdum brunans í
Hringrás. Á sjötta hundrað þurfti að yfirgefa heimili sitt og á fjórða
hundrað tók þátt í aðgerðum. Vandamál hafa fylgt Hringrás um árabil.