Fréttablaðið - 29.11.2004, Blaðsíða 24
Á FIMMTUDÖGUM
Auglýsingasíminn
er 550 5000
auglysingar@frettabladid.is
- mest lesna blað landsins -
!
"""
Öryggis-
hurðir
B Í L S K Ú R S
OG IÐNAÐAR H U RÐ I R
Smíðað
eftir máli
Hurðir til
á lager
Eldvarnar-
hurðir
ÁRMÚLA 42 - SÍMI 553 4236
„Nefna ekki allir Þjóðmenning-
arhúsið?“ spyr Lísbet Sveins-
dóttir listakona þegar hún er
spurð um uppáhaldshús í
Reykjavík. „Ég verð að nefna
það. Þetta er svo óvenjulegt hús
fyrir Ísland, glæsileikinn og
elegansinn. Ég las alltaf þarna á
lesstofunni í gamla daga og þótt
ég væri ekki mikill námshestur
sótti ég í bókasafnið því það var
svo glæsilegt. Það var líka svo
mikil helgi og hátíðleiki í þessu
húsi.“
Lísbet segist líka vilja fá að
nefna arkitektúr Sigvalda
Thordarsonar sem henni finnst
sérstaklega skemmtilegur. „Ég
kann vel að meta stílinn hans og
það er eitt hús á Ægisíðunni sem
hann teiknaði sem mér finnst með
flottari íbúðarhúsum í borginni.“
Lísbet rekur fyrirtækið Elm
sem er fatahönnunarfyrirtæki,
en það var einmitt að vinna til
verðlauna sem voru afhent á
miðvikudaginn. „Við fengum
Njarðarskjöldinn sem ferða-
mannaverslun ársins. Skjöldur-
inn var afhentur við hátíðlega at-
höfn í Höfuðborgarstofu,“ segir
Lísbet. „Við erum auðvitað rosa-
lega stoltar af þessu.“
Þær eru ekki stórar skápahöld-
urnar en þær kóróna vissulega
breytingar á hvers kyns rými,
hvort sem það er eldhús, baðher-
bergi eða svefnherbergi. Oft
skipta litlu hlutirnir mestu máli
og það eru vissulega orðin sönn
með skápahöldur. Enda er ekkert
gaman að eyða pening og tíma í
að mála, kaupa ný húsgögn og
hafa allt voða fínt ef höldurnar
eru ljótar. Margs konar gerðir
eru til af skápahöldum og því
þarf oft að vanda valið. Tískan
undanfarið í skápahöldum hefur
þó verið frekar hefðbundin og þó
að fólk hafi alls konar liti og dúll-
ur í hinum ýmsum rýmum eru
höldurnar yfirleitt hefðbundnar
og stílhreinar.
Í versluninni Brynju, að
Laugavegi 29 í Reykjavík, er
mjög breitt úrval af skápahöld-
um og eru þar seldar yfir þrjú
hundruð gerðir af höldum. Vin-
sælast í Brynju er matt stál og
gylltar höldur eru einnig að
koma aftur inn, en gyllingin
hefur verið í lægð að undan-
förnu. Brynja er með litríkar
blómahöldur í bland við það
hefðbundna og þær ganga líka
alltaf vel.
[ ]
Elegans og hátíðleiki
Þjóðmenningarhúsið er flottasta húsið í bænum að mati Lísbetar Sveinsdóttur listakonu.
Framkvæmdir
Framkvæmdir heima við geta oft leynt á sér. Ekki fara út í framkvæmdir nema þú sért
viss um að þú ráðir við þær og passaðu að vera alltaf í hlífðarfötum með hlífðargleraugu.
Ekki hika við að ráða fagmann ef þú treystir þér ekki í eitthvert verkefni.
» BETRI SJÓNVARPSDAGSKRÁ
Á MÁNUDÖGUM
Hefðbundnar höldur í tísku
Skápahöldur skipta höfuðmáli þegar gera á rými fallegt.
Lísbet Sveinsdóttir listakona dvaldi löngum á Landsbókasafninu forðum af því að húsið var svo glæsilegt.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/S
TE
FÁ
N