Fréttablaðið - 07.12.2004, Qupperneq 22
Klipping Farðu nú að panta jólaklipping-
una! Fyrr en varir fyllast allar hárgreiðslu-
stofur og þú endar með ljótan lubba.[
Óhefðbundið skraut
Jólaskrautið þarf ekki að vera hefðbundið og það er ekkert sem segir
að það megi bara hengja stjörnur, bjöllur, engla og jólasveina á jólatréð.
Jólaskrautið má vera fjölbreytt og svolítið „kitsch“, það gerir þetta allt
skemmtilegra. ■
]
Jólasiðir víða um heim
Brasilía
Í Brasilíu er jólasveinninn
kallaður Papai Noel. Jólasið-
ir Brasilíumanna minna um
margt á siði í Bandaríkjun-
um og Bretlandi og jólin eru
haldin hátíðleg á jóladag.
Hinir efnameiri borða
íburðarmikla jólamáltíð,
eins og kalkún, skinku, hrís-
grjón, svínakjöt og ferska
ávexti, og skola herlegheit-
unum niður með bjór. Hinir
fátækari borða kjúkling. ■
Þröstur Ingi með hina glæsilegu
gullskeið sem hann skreytti með
Kertasníki.
Kertasníkir
á skeið
Þröstur Ingi vann í
teiknimyndasamkeppni.
Hann var glaður hann Þröstur Ingi
Þórðarson, nemandi í Laugalækjar-
skóla, þegar honum var tilkynnt að
teikning hans af Kertasníki hefði orðið
fyrir valinu sem skraut á jólasveina-
skeiðina í ár en skeiðarnar eru safn-
gripir sem margir sækjast eftir. Þær
eru samstarfsverkefni Gull- og silfur-
smiðjunnar Ernu ehf., Fræðslumið-
stöðvar Reykjavíkur og Félags ís-
lenskra myndlistarkennara og þetta er
í tíunda skipti sem hugmyndir 11 og
12 ára grunnskólabarna eru nýttar við
gerð þeirra. Áður eru komnar skeiðar
með Þvörusleiki, Pottaskefli,
Askasleiki, Hurðaskelli, Skyrgámi,
Bjúgnakræki, Gluggagægi, Gáttaþef og
Ketkróki. Þröstur Ingi fékk fyrstu
skeiðina sem gjöf afhenta við hátíð-
lega athöfn í Ingólfsnausti síðasta
sunnudag sem öllum fyrri sigurvegur-
um var boðið til.
Þessi húllar og syngur!!! Jólasveinarnir
fást í Byggt og búið.
Jólakortin hjá Ranimosk á
Laugavegi eru gamaldags,
ómótstæðileg og allt öðruvísi.
...línudansarann ...
... og hunda-
eigandann.
Þetta skraut
fæst í Blómálf-
inum.
Jólatrésskraut fyrir veiðimanninn...
Fyrir þá sem vilja fara alla leið er þessi
jólasveinn sem kreppir sig saman og
syngur alveg nauðsynlegur.
Frú jólasveinn
sómir sér vel á
trénu.
Jólasveina-
skeiðar eru
vinsælir
safngripir.
Þetta er sú
10. í röðinni.