Fréttablaðið - 27.08.2004, Qupperneq 39
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
24 25 26 27 28 29 30
Föstudagur
ÁGÚST
■ ■ LEIKIR
18.30 Valur og Breiðablik mætast
á Hlíðarenda í 1. deild karla í
knattspyrnu.
18.30 HK og Þróttur mætast á
Kópavogsvelli í 1. deild karla í
knattspyrnu.
18.30 Fjölnir og Stjarnan mætast
á Fjölnisvelli í 1. deild karla í
knattspyrnu.
■ ■ SJÓNVARP
06.30 Ólympíuleikarnir í Aþenu á
RÚV. Bein útsending frá úrslitaleik
í knattspyrnu kvenna.
08.30 Ólympíuleikarnir í Aþenu á
RÚV. Bein útsending frá leik um
5. til 8. sæti í handbolta karla.
10.00 Ólympíuleikarnir í Aþenu á
RÚV. Samantekt af viðburðum
gærdagsins. Endurtekið.
11.30 Ólympíuleikarnir í Aþenu á
RÚV. Fyrri leikur í undanúrslitum
karla í handbolta.
13.30 Ólympíuleikarnir í Aþenu á
RÚV. Samantekt af keppni
morgunsins.
16.50 Ólympíuleikarnir í Aþenu á
RÚV. Sýnt frá úrslitakeppni í frjáls-
um íþróttum.
16.55 Olíssport á Sýn. Fjallað er
um helstu íþróttaviðburði heima
og erlendis.
18.00 Upphitun á Skjá einum.
Farið yfir stöðuna og hitað upp
fyrir næstu leiki í enska boltanum.
18.00 Ólympíuleikarnir í Aþenu á
RÚV. Bein útsending frá keppni í
frjálsum íþróttum.
18.05 Trans World Sport á Sýn.
19.00 Motorworld á Sýn.
Kraftmikill þáttur um allt það
nýjasta í heimi akstursíþrótta.
19.25 Mótorsport á Sýn. Ítarleg
umfjöllun um íslenskar aksturs-
íþróttir. Umsjónarmaður er Birgir
Þór Bragason.
19.55 Ólympíuleikarnir í Aþenu á
Sýn. Útsending frá undanúrslitum
í hnefaleikum (fimm þyngdar-
flokkar).
20.10 Ólympíuleikarnir í Aþenu á
RÚV. Bein útsending frá keppni í
frjálsum íþróttum.
23.15 K - 1 á Sýn. Hér mætast
sannkölluð hörkutól í sparkboxi,
karate og fjölmörgum öðrum
greinum sem allar falla undir
bardagaíþróttir. Sýnt frá móti í
Nagoya þann 6. júní sl.
00.50 Ólympíuleikarnir í Aþenu á
RÚV. Samantekt af keppni
dagsins.
FÖSTUDAGUR 27. ágúst 2004 31
Tíu fallnir á lyfjaprófi
Óvenjumargir hafa fallið á lyfjaprófi á Ólympíuleikunum í Aþenu.
ÓLYMPÍULEIKAR Yfirmenn Alþjóða-
ólympíusambandsins segja að
ólögleg lyfjanotkun sé ekki að
eyðileggja leikana í Aþenu en
óvenju margir íþróttamenn hafa
fallið á lyfjaprófi. Þegar er búið að
svipta tvo Ólympíumeistara gull-
inu vegna lyfjaneyslu og dæma
átta aðra keppendur úr leik. Þrír
keppendur mættu ekki í próf sem
þeir höfðu verið boðaðir í.
Í gær fundust leifar af sterum í
sýni sem tekið var úr úkraínsku
róðrarkonunni Olena Olefirenko.
Hún vann til bronsverðlauna
ásamt stöllum sínum í liðakeppni
en þær hafa verið dæmdar úr leik.
„Það verður að horfa á málið í
heild sinni. Það eru rúmlega tíu
þúsund keppendur og árangurinn
hefur verið frábær,“ sagði Giselle
Davies, talsmaður Alþjóðaólymp-
íunefndarinnar, IOC. „Nú hafa
komið upp átta lyfjamál og þrír
hafa brotið af sér með því að mæta
ekki í lyfjapróf. Á Ólympíuleikun-
um í Sydney féllu ellefu á lyfja-
prófi.“
Davies telur að ein af skýring-
unum á því hvers vegna svo marg-
ir hafa fallið á lyfjaprófi sé að 25%
fleiri lyfjapróf hafa verið gerð í
Aþenu en í Sydney. Hún telur lík-
legt að fleiri eigi eftir að falla á
lyfjaprófi.
„Á stærsta íþróttamóti heims,
þar sem bestu íþróttamenn, þjálf-
arar og ráðgjafar koma saman, má
enn finna fólk sem notar sömu
bönnuðu lyfin og voru notuð fyrir
tuttugu árum,“ sagði Arne
Ljungqvist hjá lyfjanefnd IOC.
Þegar hafa 2.015 próf, af þrjú
þúsund sem tekin voru, verið rann-
sökuð. „IOC ætlar að berjast gegn
ólöglegri lyfjanotkun. Það er for-
gangsmál,“ sagði Davies. Yfir-
menn ólympíusambandsins standa
fast á sínu og segja að baráttan
gegn ólöglegum lyfjum sé að skila
sér. „Því fleiri íþróttamenn sem
eru staðnir að því að svindla á leik-
unum okkar, því heiðarlegri verða
hinir.“
ENN EIN FALLIN Á LYFJAPRÓFI Úkraínska róðrarkonan Olena Olefirenko sem vann
bronsverðlaun með sveit þjóðar sinnar er fallin á lyfjaprófi og hún og félagar hennar í
liðin sem sjást hér fyrir ofan þurfa því að skila bronsverðlaunum sínum.
38-39 (30-31) SPORT 26.8.2004 18:03 Page 3