Tíminn - 13.09.1973, Blaðsíða 4
i
TÍMINN
Fimmtudagur 13. september 1973
Kvenfangar mótmæla
Þótt konurnar á myndinni séu
broshýrar er ekki vist að þeim
sé hlátur i hug. Þær eru i
kvennafangelsi i Róm og er
myndin tekin, er þær gerðu upp-
reisn og tóku hluta byggingar-
innar og héldu henni nokkra
daga. Þarna standa þær á þaki
fangelsisins og veifa til vegfar
enda. Konurnar eru að mót-
mæla illri aðbúð i itölskum
fangelsum. Til að vekja enn
frekar á sér athygli fækkuðu
fangarnir stundum fötum og
skorti þá ekki áhorfendur. En
allt kom fyrir ekki. Stjórnvöld
létu kvenfangana sjá um sig
sjálfa i nokkra daga og gáfust
þær þá upp og fóru aftur i klefa
sina, sem eru engu skárri eftir
upplyftinguna en fyrii^.
Barn frægra foreldra
Hver skyldi svo þessi litla stúlka
vera? Eða kannski ætti að
segja: Hver skyldi móðursystir
hennar vera? Ef enginn veit, þá
heitir móðursystirin Sophia
Loren. Allessandra heitir stúlk-
an og er 11 ára dóttir Mariu Sci-
colone og henni leiðist ekkert að
llkjast frænku sinni. Að minnsta
kosti tekur hún það fram yfir að
vera líkt við afa sinn sáluga.
Hann hét Benito Mussolini og
naut vissrar frægöar í siðustu
heimsstyrjöld.
Corelia Froboess, sú
sem lék Conny i sam-
nefndum kvikmyndum,
ku vera andvig þvi, að
eiginmenn séu við-
staddir, er konur
þeirra fæða börnin. —
Mér liði ekki vel að vita
af manni minum við-
stöddum fæðinguna,
segir hún. — Þó hvorki
af siðferðilegum ástæð-
um né af þvi að ég færi
hjá mér, heldur vegna
þeirra þjáninga, sem
kona getur liðið við
fæðingu. Hvers vegna á
maðurinn að horfa á og
þjást með konu sinni,
án þess að geta hreyft
legg né lið? Það ætti
frekar að hlifa honum
við þvi. Og þá höfum
við það, lesendur góðir.
Ekki hrædd
við aldurinn
Franska leikkonan Simone Sig-
noret segir nýlega i viðtali við
franska kvennablaðið Elle, að
hún hafi aldrei kviðið þvi að eld-
ast. — Til eru konur, sem halda
að þær séu hreinlega búnar að
vera, ef þær þyngjast um eitt
kíló. Ég hef þyngzt um 15, 20, já
meira að segja 30 kiló og það er
allt i lagi. Ekkert er eins sorg-
legt og fólk, sem ekki vill viður-
kenna aldur sinn. Ég vil hafa
það höfuð og það hár, sem ég hef
nú einu sinni fengið i minn hlut.
Það er miklu auðveldara að lifa,
þegar maður viðurkennir sjálf-
an sig eins og maöur er.
Hvers vegna ætti maður að
hengja sig i eitthvað, sem ekki
er lengur fyrir hendi? Þetta
segir Simone, sem fyrir 20 árum
var stórfalleg, en raunverulega
er hún enn falleg með andlit
hrukkótt og hárgreiðsluna, sem
sér um sig sjálf.
DENNI
DÆMALAUSI
Mundu að reyna aldrei að slást
við rafmagnsviftu.