Tíminn - 13.09.1973, Blaðsíða 27
skoraöi Jón Pétursson fyrsta
mark leiksins. Guögeir Leifsson
tók hornspyrnu frá vinstri. Guöni
Kjartansson geröi tilraun til aö
skalla frá, en tókst ekki betur til
en þaö, aö knötturinn hrökk til
Jóns Péturssonar, sem staösettur
var á markteigslfnu, en hann
skailaöi viöstööulaust i mark, án
þess aö Ástráöi Gunnarssyni, sem
var á marklinunni, tækist aö
foröa marki. Gleöi Jóns Péturs-
sonar var mikil, og nú vöknuöu
áhorfendur til lifsins.
Aöeins nokkrum mlnútum siöar
skoraöi Steinar Jóhannsson, hinn
marksækni miöherji Keflavfkur,
fallegasta mark leiksins. Hjörtur
Zakariasson náöi knettinum frá
varnarmönnum Fram hægra
megin á vellinum, og sendi fyrir á
Steinar, sem kom aövifandi og
skoraöi viöstööulaust meö fösUl
skoti út viö stöng, gjörsamlega
óverjandi fyrir Þorberg Atlason,
markvörö Fram.
A 12. minútu átti Asgeir Elias-
son hörkuskot aö Keflavfkur-
markinu, sem Þorsteinn Ólafsson,
markvöröur Keflavikur-, hálf-
varöi. Knötturinn barst 'tíL-JVlar-
teins Geirssonar sem fylgdi fast
eftir, og honum tókst aö skora
meö föstu skoti, 2:1.
Þetta reyndist sigurmark
leiksins. Keflvíkingum tókst ekki,
þrátt fyrir þunga pressu i siöari
hluta framlengingarinnar,að jafna
metin. Raunar var kapp þeirra
stundum meira en forsjá, þvi aö
vegna þungrar pressu þeirra
skapaöi það Fram hættuleg tæki-
færi, þegar varnarleikmenn
Fram sneru vörn i sókn með lang-
spyrnum fram. Erfitt var aö
fylgjast meö atburöum siðustu
minúturnar. Rökkur grúfði yfir
Laugardalsvellinum, og var erfitt
að greina milli leikmanna Fram
og Keflavikur. En áfram snigluð-
ust minúturnar, ein af annarri,
unz dómari leiksins flautaði af.
Sigur Fram var staðreynd, og
jafnframt fyrsti ósigur Kefl-
vikinga i marga mánuði.
Leikurinn i gærkvöldi var það
jafn, að sigurinn gat lent hvoru
megin sem var. En þó má segja,
að keppnisskap Framara i fram-
lengingunni hafi ráðið úrslitum.
Vörnin var sterkari hluti Fram að
þessu sinni, öfugt við þaö, sem
verið hefur i siðustu leikjum.
Marteinn Geirsson bar höfuð og
herðar yfir aðra varnarleikmenn,
sem áttu þó einnig góðan dag.
Sigurmarkið kórónaði glæsilegan
leik Marteins. Hins vegar áttu
miðjumenn Fram,þeir Gunnar og
Asgeir, ekki sérlega góðan dag,
og reyndust miðjumenn Kefla-
vikur, Karl Hermannsson, Gisli
Torfason og Hjörtur Zakariasson,
þeim sterkari i flestum einvigum.
Framlina Fram-liðsins var i
Steinar Jóhannsson, hinn marksækni miöherji Keflavíkur sést á þessari mynd sækja aö marki Fram. en Þorbergur er fyrri til og góinar
knöttinn.
daufara lagi, og Elmar var ekki
svipur hjá sjón.
Keflavikur-liðið var öllu
jafnara en Fram-liðið. Auk
miðjumannanna stóðu öftustu
varnarmennirnir sig vel, einkum
og sér, i lagi Astráður Gunnarsson,
sem skapaði stundum hættu við
Fram-markið, þegar hann tók á
rás fram völlinn og gaf fyrir
markið. í framlinunni bar mestá
Steinari Jóhannssyni, sem
skoraði fallegt mark, og Ólafi
Júliussyni.
Dómari i leiknum var Eysteinn
Guðmundsson, og dæmdi hann
yfirleitt vel, enda þótt segja megi,
að hann hafi notað flautuna full
mikið.
Eftir leikinn afhenti Albert
Guðmundsson, formaður KSf,
sigurvegurunum verðlaun 'og
óskaði bæði Fram og Keflavik
velgengni i þeim Evrópubikar-
leikjum, sem liðin eiga fram-
undan.
Sigri fagnaö. Anægjusvipurinn lcynir sér ekki á andlitum Guömundar þjálfara og llilmars Svavy rssonar
Bikarmeistarar Fram i knattspyrnu 1973. Fremri röö frá vinstri: Guðmundur Jónsson, þjálfari, Baldur Sche\ ing, Gunnar Guðmundsson, Jón Pétursson, Marteinn Geirsson, El-
mar Geirsson, Eggert Steingrimsson, Rúnar Gislason, Atli Jósafatsson og Simon Kristjánsson. Aftari röð: Alfreð Þorsteinsson, formaöur Fram, Hilmar Svavarsson, vara-
form. knattspyrnudeildar, Guðgeir Leifsson, Erlendur Magnússon. Tómas Kristinsson, Þorbergur Atlason. Sigurbergur Sigsteinsson, Ómar Arason, Asgeir Eliasson, Agúst Guö-
mundsson, Þorkell Þorkelsson, gjaldk. knattspyrnudeildar og Sigurður Friðriksson, form. knattspyrnudeildar. (Timamyndir Róbert).