Tíminn - 13.09.1973, Síða 6
S'SJM i >
tíMTNN
.i»dí<»«ijcse Jtt •ríimsfmlrorni'ii
Fimmtudagur 13. september 1973
AAengunin tröllríður
öllu í Japan
en auðhringarnir láta sem ekkert sé
— V'onandi verður ástandið i Jap-
an öðrum þjóðum að varnaði.
Saga Japans er öll, ef auð-
hringarnir fá að fara sinu fram og
almenningur tekur ekki i taum-
ana. Þannig kemst Jun Ui
prófessor við háskólann á Tókió
að orði. Jun Ui er fertugur lif-
vistarlræðingur og er einn for-
ystumanna þeirrar hreyfingar,
sem sprottið helur upp i Japan
undaniarin tvö ár og mjög hefur
lagzt gegn „iðnaðarævintýrinu”
japanska og þeim óheillavænlegu
áhrifum.sem af þvistafa. Tækni-
og efnahagsþróun Japans hefur
mörg undanfarin ár vakið mikla
aðdáun - og jafnvel öfund um
viða veröld. En á siðari árum hef-
ur æ skýrar komið i ljós, að þessi
árangur hefur þvi aðeins náðst,
að einskis hefur verið svifizt, og
hvergi sóst betur hverjar hættur
eru samfara nútima iðnþjóðfólög-
um. Ilið sama mun verða upp á
teningnum annars staðar, ef að
likum lætur, þótt siðar verði en i
Japan.
A ..hinum gullna áratug”, sem
svo hefur verið nelndur þ.e. sjö-
undi áratugur aldarinnar, voru
allar viðvaranir látnar sem vind
um eyrun þjóta og einblint á
Iramleiðslutöíur. Japanir urðu
þriðja mesta iðnaðarþjóð i heimi
og i augum þeirra bliknaði allt
annað i samanburði við það og
þeir lögðu ekki hlustirnar við öðru
en þvi sem rikisstjórnin og valda-
klikan hvislaði þeim i eyra: beg-
ar árið 1980 kemur að þvi, að-
Japan ler fram úr Bandarikjun-
um og verður mesta iðnveldi
heims...
Mengun hvert sem
litið er
t>ótt hvað eftir annað yrðu ógn-
vekjandi stórslys af viildum
mengunar voru þeir fáir sem
virtust skilja hver hætta stafaði
af þeirri stefnu, sem lylgt var,
enda gaf hún mikið fó i aðra hönd.
Fyrsta mengunarslysið varð i
smábænum Minamata, þar sem
37 manns lót lifið á þjáningafullan
hátt af völdum kvikasilfurs-
eitrunar. V'erksmiðja i bænum
hafði veitt kvikasiifursmenguðu
vatni i sjóínn og eitrað með þvi
móti fisk úti fyrir ströndinni, svo
að fólk sem át fisk sýktist.
Þessu næst gaus upp Itai-Itai-
veikin, sem svo er nefnd. Hún
varð 119 manns i Tojama—héraði
að bana og geröi marga að ör-
kumla mönnum. Einkenni
þessarar veiki voru þau að bein
sjúklinganna uröu svo stökk, að
þau hrukku i sundur, ef þeir
hreyfðu sig óvarlega. Læknar
töldu 72 beinbrot á einum manni!
Orsök þess var kadmiumeitrun,
en hún hlauzt af þvi að verk-
smiðja ein hafði veitt menguðu
valni út i Jintsu-fIjót og þaðan
hafði vatnið borizt eftir áveitu-
skurðum inn á hrisgrjónaakra.
Meira en eitt þúsund manns
urðu lyrir barðinu á þriðju eitrun-
inni. Af henni hlauzt Kanemi-sýk-
in, sem Japanir nefna svo, en ein-
kenni hennar voru m.a. þau að
vanfærar konur sem sýkzt höfðu
fæddu börn með dökkt litaraft.
Orsökin var i þessu tilviki sú, að
mikið magn af hænsnafóðri hafði
veriðeitraðmeðeiturefninu PCB.
Þeir sem siðan átu hænsnakjötið
fengu eitrið i sig um leið. Þetta
eitur getur valdið krabbameini.
Jun Ui prófessor telst svo til að
á árinu 1970einu saman hafi PCB-
mengun frá japönskum verk-
smiðjum numið 2700 smálestum.
Sýni hafa sýnt, að fiskur i Tókió-
flóa er illa haldinn af PCB-eitrun
og rannsóknir hafa sýnt, að i
likama fólks á Tókió-svæðinu er
meöalmagn af PCB þriðjungur
þess sem þarf til þess að menn
sýkist af Kanemi-veikinni.
Yokkaichi-astmi , sem læknar
nefna svo, er lika ein afleiðing
mengunarinnar. I litla iðnaðar-
bænum Yokkaichi bjuggu 811
manns. 58 þeirra dóu i hroðaleg-
um hóstaköstum, sem hlutust af
brennisteinsdioiði frá nýrri oliu-
hreinsunarstöð i bænum. Þaðan
bárust á degi hverjum 384 smá-
lestir af eitruðu ryki út yfir bæ-
inn.
6000 fórnarlömb
á einum degi
Japönsku fjölmiðlarnir létu
þessara slysa getið, en gerðu sem
minnst úr þessu öllu og verk-
smiðjurnar sem hlut áttu að máli
gerðu auðvitað allt, sem i þeirra
Þctta cr algeng sjón f Tókfó. Menn ganga með grfmur fyrir vitum sér, því að andrúmsloftið er mengað
bensfnfýlu og eitruðum verksmiðjureyk.
valdi stóð, til þess að koma af sér
sökinni. Almenningur áttaði sig
ekki á þvi i hvert óefni var komið
fyrr en 6000 manns voru fluttir á
sjúkrahús i Tókió með eitrunar-
einkenni á einum degi árið 1970.
Þá kom i ljós, að eiturgas frá bil-
um og verksmiðjum lá eins og
mökkur yfir borginni i hitanum
og stillunni, sem rikti.
Þetta áfall varö til þess að nú
var skyndilega farið aö leggja
eyrun við máli þeirra, sem um
langa hrið höfðu varað við hömlu-
lausri iðnþróun og bent á, að
engar öryggisráðstafanir hefðu
verið gerðar sem að gagni kæmu.
Um land allt hafa nú sproltið upp
fólög.sem reyna að fá yfirvöld og
verksmiðjujöfra til þess að stöðva
mengunina. Japanska samvinnu-
hreyfingin hefur lika gengið mjög
ötuilega fram i þessu efni.
t borgunum er Iftið um gras og tré og sums staðar eru ekki einu sinni gangstéttir með götum fram, þvl
að lóðaverðiðhefur verið sprengt svo upp, aðbyggt er á hverjum fermetra lands.
Ljósm.: Snjólaug Bragadóttir.
Astandið er ömurlegast á
Tókió-ósaka-svæðinu. Þar sjá
mennhvernig fara mun annars
staöar, ef iðnhringirnir verða
látnir sjálfráðir.
30 milljónir íbúa í einni
borg
Um allan heim er fólki þrengt
saman i stórborgir. t Japan,
hefur þetta gengið svo langt, að
56% þjóðarinnar býr- á 1,5%
landsins, þ.e. hinni 600 kilómetra
löngu strandlengju á milli Tókió
og óskaka. A þessu svæði búa 62
milljónir manna. Þar af búa 11,5
milljónir i hinni eiginlegu Tókió-
borg og rösklega 30 milljónir, ef
miðað er við Stór-Tókió. Milljónir
manna verða að fara meira en
fimmtiu kilómetra leið til vinnu
sinnar á morgni hverjum i járn-
brautarlestum, þar sem hnappað
er saman þrisvar til fjórum sinn-
um fleiri farþegum en lestunum
er i rauninni ætlað að rúma. A
járnbrautarstöðvunum eru sér-
stakir menn sem hafa þann
starfa með höndum að troða fólki
inn i lestarvagna, sem þegar eru
svo fullir, að farþegarnir geta
hvorki hreyft legg né lið.
Magn þess iðnaðarryks sem
fellur á hvern ferkilómetra lands
i Tókió er þrisvar til fjórum sinn-
um meira en gerist i t.d.
Gelsenkirchen i Ruhr, sem er
mesta iðnhérað Evrópu. Arið 1971
urðu 28.223 manns að leita læknis
i Tókió vegna eitrunar sem
stafaði af loftmengun. Græn
svæði i Tókió eru minni en tiundi
hluti þess sem gerist i milljóna-
borgum Evrópu, eða um það bil
hálfur annar fermetri á hvern
Tókióbúa. Aðeins fimmta hvert
barn á þess kost að komast á leik-
völl eða i grasblett.
Margt um manninn á
fjallinu helga
t Japan eru 21 milljón bila. en
þó svo að menn eigi bil, má heita
nær ógerlegt að komast út úr
Tókió til einhvers staðar, þar
sem menngætu unað á fridögum
sinum, þvi að slikir staðir eru
annaö hvort troðfullir af fólki, eða
þá að búið er að eyðileggja þá. A
Shanan-ströndinni i nágrenni
Tókiós hnappast meira en ein
milljón manna á hverjum sunnu-
degi á sumri — og alls staðar eru
viðvörunarspjöld, sem vara
menn við þvi að fá sér sundsprett,
þvi að vatnið er svo mengað og
skitugt. Jafnvel á Fúsijama, hinu
heilaga fjalli Japana, er mikil
mannþröng. Þaðer ekki óalgengt
að fimmtiu þúsund manns klifi
fjallið á sunnudögum.
Umhverfisvandamálin eru nú
orðin pólitiskt hitamál i Japan og
svo er þeim fyrir að þakka, sem
risið hafa öndverðir gegn núver-
andi ástandi. Þetta sást glögglega
i þingkosningunum i desember i
fyrra. Þá hlutu kommúnistar 38
þingsæti, en höfðuáöur 14 og sú
fylgisaukning er talin eiga að
miklu leyti rætur sinar að rekja
til þess að þeir voru manna
skeleggastir i umhverfismálun-
um.
Stjórnarflokkurinn, sem telur
sig vera frjálslyndan ihaldsflokk,
taldi lika að mikilla umbóta væri
þörf i þessu efni, þótt hann hefði
litt eða ekki sinnt þvi áður. Sam-
kvæmt áformum rikis-
stjórnarinnar á að dreifa iðnaðin-
um um landið, þannig að reistar
verði nýjar borgir, sem ekki verði
stærri en svo að i hveri borg búi
200 þúsund manns. Gagnrýnend-
ur þessarar áætlunar halda þvi
fram að þetta verði einungis til
þess að dreifa menguninni, og
ekki verði unninn bugur á henni
með þessu móti.
— Okkur er likt farið og manni,
sem ékur bil á 150 kilómetra
hraða, án þess að hafa hugmynd
um það hvernig hægja eigi
ferðina eða hvert förinni sé heitið,
hefur japanskur hagfræðingur
sagt um ástandið.
Aðgerðir, sem að gangi koma,
munu kosta offjár, og þann
kostnað verður iðnaðurinn að
greiða. Það hefði i för með sér
hærra vöruverð og hægari efna-
hagsvöxt. Spurningin er þess
vegna, hvort menn kjósi heldur
heimsmet i iðnþróun eða
þjóðfélag, þar, sem fóiki er lift.
HHJ þýddi.