Tíminn - 13.09.1973, Síða 16

Tíminn - 13.09.1973, Síða 16
16 TÍMINN Fimmtudagur 13. september 1973 ATBURÐIRNIR í CHILE Þó að ástandið hafi undanfarið verið ótryggt i Chile og flestir hafi raunar búiít við, að til einhverra tiðinda drægi þar, mun fáa hafa órað fyrir þvi, að þau yrðu með þeim sviplega hætti, sem raun varð á I fyrrakvöld. Salvador All- ende, forseti landsins, framdi sjálfsmorð eftir að her landsins hafði tekið völdin f sínar hendur i sex klukkustunda löngum bar- daga. Sjónarvottar segja, að lik All- endes hafi legið á blóðstokknu teppi i forsetahöiiinni. Blaða- maður, sem þar var inni, segir forsetann hafa skotið sig I höfuð- ið, þegar fótgönguiið og skrið- drekar sóttu að forsetahöllinni úr ölium áttum. Við hlið forsetans lá einkaritari hans, Agosto Oli- varcu, sem fylgdi honum i dauö- ann. Skömmu siöar barst tiikynning frá hinum nýju valdhöfum, þar sem þeir kváðust hafa hafið það sögulega verkefni að frelsa þjóð- ina undan oki Marxismans. Rit- skoöun tók þegar giidi, útgöngu- bann var sett á og lýst yfir hernaöarástandi. Fjöldafundir eru bannaöir, og borgarar mega ekki bera vopn. t annarri yfiriýs- ingu segir, aö sérhver mótþrói verði bældur niður með hervaldi. Herinn sprengdi I gær i loft upp allar útvarpsstöðvar, sem studdu Allende, og reisti viggirðingu um- hverfis aðalstöðvar kommúnista- flokks Chile. Leiötogar ýmissa rfkja hafa harmaö atburöina I Chile. 1 yfir- lýsingu frá Trygve Bratteli, for- manni norska verkamanna- flokksins, segir, að þaö sem nú hafi gerzti Chile sé alvarleg eggj- un til sósialiskra lýöræöisafla I heiminum um að styrkja sam- stöðuna og samvinnuna á al- þjóðavettvangi. Talsmaður sænsku stjórnarinn- ar sagði i gær, að eftir siðustu at- burði i Chile myndi sænska stjórnin taka til endurathugunar fyrirhugaða fjárhagsaðstoð við Chile. Sviþjóð er eitt hinna vest- rænu landa, sem studdu stjórn Allendes, og var sáttmáli um fjárhagsaðstoö upp á 40 milljónir sænskra króna undirritaður 31. ágúst sl., en sænska þingið hefur enn ekki staöfest hann. Anker Jörgensen kveðst harma mjög þróun mála i Chile. — Þó að ég geri mér grein fyrir, að miklir erfiöleikar hafa verið I landinu, finnst mér leitt, að sá þáttur, sem hófst meö Allende, skyldi enda á þennan hátt. Þaö sem viröist koma næst er einræöi herfor- ingjastjórnar. Þaö er leitt, að starf Allendes að sósialiskri þró- un á grundvelli lýöræðis, skuli ihaldssöm öfl leggja i rústir á þennan hátt, sagði Jörgensen. Þúsundir argentinskra stú- denta gengu I gærmorgun um göt- ur Buenos Aires og mótmæltu valdatöku herforingjanna i Chile. Einnig mótmæltu þeir afstööu þeirri er Bandarikin tóku til stjórnar Allendes. Stúdentarnir söfnuöust saman við sendiráð Chile i borginni. Ambassadorinn þakkaði þeim samúðina og sam- stöðuna. Hann sagði, aö Allende myndi lifa áfram i hjörtum S- Amerikana. 1 New York gekk 300 manna hópur um Times-torg og mót- mælti afstöðu Bandarikjanna, sem átt heföi hlut aö þvi, að All- ende féll. t Mexikóborg kom til átaka milli stuöningsmanna Allendes og hægrisinnaðra mót- mælenda fyrir utan sendiráö Chile. Moskvuútvarpið birti aðeins stutta frétt i gær um lát Allendes, skýringalausa. 1 fyrrakvöld var byltingin i Chile hins vegar aðal- fréttin þar. Yfirvöld i Sovét- rikjunum hafa áður haldið uppi miklum stuðningi við stjórn All- endes. Yfirlit yfir 34 mánaða stjórn Allendes Hér á eftir fer yfirlit yfir heiztu atburöi i Chile þá 34 mánuöi, sem Ailende sat þar viö völd: 4. september 1970 hlaut hann 36,3% atkvæöa I forsetakosning- um, en hinir frambjóöendurnir tveir minna. 24. október kaus þingib Ailende forseta landsins meö 153 atkvæö- um gegn 35. Hann var fyrsti marxlski þjóöhöföingi I heimi, sem kosinn var lýöræöislega. 4. nóvember: Allende vann for- setaeiöinn og tók viö embætti. 11. janúar 1971: Lögreglan kemst á snoöir um fyrsta sam- særiö gegn stjórn Allcndes. 11. júll: Allende leggur fram frumvarp um þjóönýtingu banda- riskra koparnáma I Chile og um þjóönýtingu mikils hluta iönaöar I landinu. 10. nóvember: Fidel Castro kemur til Chile, og er þaö I fyrsta sinn I átta ár, aö hann feröast utanlands. Algeng sjón i Santiago. Ungir mótmælendur flýja undan lögreglunni. Eiginkonur verkfallsmanna mótmæla fyrir utan þinghúsiö I Santiago. þjóöina milljaröa króna og sjö mannslif. 29. nóvember: Allende útnefnir yfirmann hersins, Pratts hers- höföingja, forsætisráöherra. 4. marz 1973: Stjórnarandstaö- an efiist viö þingkosningarnar, en fær þó ekki þann meirihiuta, sem þarf til aö setja forsetann af. 27. marz: Herforingjarnir yfir- gefa stjórnina. 26. aprfl: 75 daga verkfall I koparnámum hefst. t júni: Stjórnarandstaðan I þinginu samþykkir vantraust á marga ráðherra og þvingar fram breytingar á stjórninni. 29. júni: 100 hermenn gera upp- reisn gegn stjórninni. Ráöizt er á forsetahöllina og 22 menn láta llf- iö I þeim óeiröum. 16. júli: Hreyfing nýfasista lýs- ir á hendur sér ábyrgö á by Itingartilrauninni og segir stjórn Allendes striö á hendur. 27. júll: Vörubifreiöastjórar hefja nýtt verkfall. Hægrisinnaöir öfgamenn myrða hernaöarráö- gjafa Allendes. • 9. ágúst: Allende gerir herfor- ingja aftur aö ráöherrum til aö koma I veg fyrir borgarastyrjöld. 18. ágúst: Stjórnin tekur aö klofna, þegar Cessar hershöfðingi segir af sér. 22. ágúst: Þingiö ásakar All- ende um aö stjórna ólöglega. 23. ágúst: Pratts hershöföingi gengur úr stjórninni. 26. ágúst: Lögregian handtekur yfirmann hreyfingar nýfasista. 28. ágúst: útnefnd er ný stjórn, studd af herforingjum. 10. september: Allende býr sig undir aö tiikynna um þjóðarat- kvæöagreiöslu um hina sósialísku stefnu stjórnarinnar. 11. september: Ailende fremur sjálfsmorö eftir aö herinn hefur steypt stjórn hans og tekib völdin I slnar hendur. Allende var tæpra 65 ára. Þaö skal tekib fram, aö þegar þetta er skrifaö, hefur ekki verið gefin út I Chile opinber til- kynning um lát hans. SamantekiöSB. Salvador Allende 2. desember: Mótmæli gegn skorti á matvörum. Lýst yfir neyðarástandi I Santiago. 28. janúar 1972: Fyrstu breytingarnar geröar á stjórn Allendes. 9. (febrúar: Þingiö samþykkir lögjSCm koma I veg fyrir frekari þjóönýtingu iönaöarfyrirtækja. 12. aprll: Yfir 300 þúsund manns mótmæla i Santiago og krefjast þjóöaratkvæöagreiöslu. 1. júni: Chiie kemur á stjórn- málasambandi viö N-Kóreu og N- Víetnam. 10. október: Vörubifreiöastjór- ar gera fyrsta verkfall sitt, sem breiðist út um allt landið. 2. nóvember: Allende gerir þrjá yfirmenn I hernum aö ráöherrum i þvl skyni aö binda endi á verk- falliö. 5. nóvember: Verkfallinu aflýst eftir 26 daga. Þaö hefur kostaö

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.