Tíminn - 13.09.1973, Page 24

Tíminn - 13.09.1973, Page 24
24 TÍMINN Fimmtudagur 13. september 1973 Ha ns Fallada: Hvaðnú.ungi maður? m w Þýðing Magnúsar Asgeirssonar meöan, hvernig fariö er aö þvi að gefa börnum að sjúga. Þaö hefir mig alltaf langað til að sjá”. „Jæja, komið þér þá bara alveg hingað inn fyrir, Jachmann, og hafið augun hjá yður,” segir Pússer með harðneskjulegri ein- beittni og fer að losa reifarnar af Dengsa, sem strax fer að gráta. „Hérna, sjáiö þér, þetta er nú svokölluð bleyja. Það er nú ekk- ert sérstaklega góö lykt af henni, eins og þér getið sjálfir gengið úr skugga um.” „O, þess háttar bitur ekki á mig,” segir Jachmann. „Þegar ég var i skotgröfunum, gat ekkert svipt mig matarlystinni, ekki einu sinni eitt augnablik.” „Ja, Jachmann, þér eruð ekki lambið að leika sér við,” segir Pússer með uppgjafarsvip. „Sjá- ið þér til, nú berum við oliu á botninn á honum, hreina, indæla baðmoliu.” „Af hverju?” „Til þess aö ekki rifi af honum. Það hefir ekki enn þá rifið af syni minum.” „Það hefir ekki enn rifið af syni mínum!” endurtekur Jachmann með hrifningu. „Drottinn minn góður hvernig þetta hljómar. Sonur minn hefir aldrei logið enn þá! Sonur minn hefir aldrei vald- ið mér sorg! — Það er alveg frá- bært, hvað þér eruð duglegar meö bleyjurnar. Já, þetta er meðfætt ----alveg fædd tib að vera móðir. Pússer bindur enda á þessar háfleygu hugleiðingar með þvi að biðja hann að snúa sér undan. Meðan hann gengur, hlýðinn og hæverskur, út af glugganum, krækir hún i skyndi frá sér kjóln- um, rennir axlafetlum nærkjóls og skyrtu niður af herðunum, fer i baðkápuna og leggur svo barnið að brjósti sér. Það hættir undir eins að gráta, og með djúpu and- varpi, næstum ekkasogi, lykjast varirnar fast um hina hlýju mjólkurstrauma og Dengsi byrjar að drekka. Pússer rennir augunum niður til hans, og þessi skyndilega þögn verður til þess, að þeir báðir, sem við gluggann standa, snúa sér við og virða móöur og barn fyrir sér, án þess að mæla orð frá munni. Þögnin stendur samt ekki lengi, þvi allt i einu segir Jachmann eins og ósjálfrátt: „Já, auövitaö hefi ég fariö vitlaust að öllu sam- an, Pinneberg. Allt þetta ein- falda, eðlilega — þetta góða, dýr- mæta! ” — Hann ber með hnefan- um á enniö á sér. „Gamli asni. Gamli asni!” Og svo fara þau að sofa. Uppfinning Jachmanns og kon- ungdómur gjaidkerans. — Við eigum þó hvort annað að. Pinneberg er ekki i sem beztu skapi daginn eftir, meðan hann verður að vera fjarvistum frá, Pússer og hinum óboðna gesti. Ibúðin er svo lítil, eiginlega að- eins eitt herbergi, og hann getur ekki að sér gert að hugsa til þess, hvernig Jachmann fálmaði eftir rúminu hennar Pússer kvöldið sem hann lét þau hafa þrjú hundruð mörkin i húsaleiguna. En þegar hann kemur heim, móð- ur og másandi, er auðvitað allt i bezta lagi. Pússer er i ágætu skapi Jachmann stendur á höfði i kofforti úri við gluggann, en rýk- ur allt i einu niður hænsnastig- ann. „Hefir hann hagað sér skikkan- lega?” spyr Pinneberg. „Alveg prýðilega”, segir Púss- er. „Hann er eiginlega ótrúlega almennilegur. 1 morgun var hann samt þó nokkuð órólegur og var alltaf að tala um eitthvert koffort og hvort þú myndir vilja sækja það fyrir sig á brautarstöðina”. „Hvað sagðir þú?” „Að hann skyldi spyrja þig sjálfan. Þá rumdi bara eitthvað i hönum. Þrisvar sinnum hefur hann farið niður sigann, en alltaf komið strax upp aftur. Svo hefir hann hringlað í lyklakippunni sinni fyrir Dengsa og sungið fyrir hann, en allt i einu hvarf hann”. „Hann hefir þá hrist af sér hræðsluna”. „Og kom rétt á eftir með koffortið, og siðan hefir hann ver- ið i alveg ljómandi skapi. Hann hefir siðan alltaf verið að gramsa i dótinu sinu og stinga skjölum i ofninn. Jú, og þar að auki hefir hann gert uppgötvun siðan þú fórst”. „Uppgötvun? Hvernig þá?” „Jú, sko, hann getur ekki þolað að heyra Dengsa orga. Hann verður alveg óður og uppvægur yfir þvi, að veslings barniö skuli strax þurfa að eiga I illdeilum við veröldina, hann gat blátt áfram ekki þolað það. Ég sagði honum, að þetta væri bara af þvi, að Dengsi væri svangur, og hann skyldi ekki lita svona fjarska al- varlega á þetta, en þá heimtaði hann áö ég gæfi honum brjóst undir eins, og þegar ég vildi þaö ekki, jós hann yfir mig óbóta- skömmum. Þetta væri for- eldra-haröstjórn og uppeldisvit- firring og ég veit ekki hver ósköp. Jæja, svo vildi hann fara aö ganga um gólf meö hann og siðan aka honum úti i barnavagninum. Hugsaöi þér bara Jachmann með barnavagn úti i Litladýragarði! Og þegar ég vildi ckkí fallast á neitt af þessu og Dengsi hélt áfram að öskra-----”. í sama bili rekur Dengsi upp óskapa roku, eins og hann skildi að verið væri að tala um hann. — „Svona, þá er hann vaknaður. Nú skaltu sjá, hverju Jachmann hefur fundið upp á------”. Hún færir stól að vöggunni, leggur á hann töskuna sina, setur vekjaraklukkuna þar ofan á, og nú tifar klukkan, stór og sterkbyggð vekjaraklukka, fast við eyrað á Dengsa. Hún tifar hátt og snjallt, en þegar Dengsi rekur upp öskrin drukkna auðvit- að öll önnur hljóð, lika i vekjara- klukkunni, og Dengsi hrin áfram eins og ekkert hafi i skorizt. En þegar sú stund kemur, að hann verður að draga andann og safna nýjum kröftum undir næstu viku, biða báöir foreldrarnir meö hinni mestu eftirvæntingu. Úrið tifar svo hátt og svo nálægt honum, að hann hlýtur að taka eftir þvi, — en Dengsi lætur ekki trufla sig. Hann rekur upp nýtt öskur. „Hann hefir ekkert heyrt ennþá”, segir Pússer. En hann hlýtur þó að hafa heyrt eitthvað. Næsta hlé kemur fyrr og varir lengur. Það er eins og hann hlusti. Tikk! takk! Tikk! takk! Svo öskrar hann aftur. En það er ekki venjulegur kraftur i hljóðun- um. Þarna liggur hann rjóður i framan af áreynslu. Ljósbleikur hárlagður lafir niður á kúpt og sveitt ennið. Munnurinn er eins og lúður. Hann starir upp i loftið, en sér vist ekki nokkurn skapaðan hlut. Litlu bjúgu fingurnir lykjast um faldinn á ábreiðunni. Hann vildi áreiðanlega helzt af öllu halda áfram að öskra. Hann er svangur. Það er eitthvað sem gerir hávaða i maganum á hon- um. Hann hefir allar þær tilkenningar, sem hann er vanur að svara með öskri. En nú er þetta annarlega tikk-takk! tikk-takk! þarna alveg við eyrað á honum. Það heldur áfram og heldur áfram. Nei, það heldur samt ekki alltaf áfram. Þegar hann orgar, hættir það og þegar hann þegir byrjar það strax aftur. Hann hefir reynt það og reynir það nú aftur, orgar dálitið og hlustar á meðan hann orgar. Jú, stendur heima! Tikk-takk er horfið! Tikk-takk kemur aftur! Það er ekkert annað i allri hans litlu veröld en þetta tikk-takk! Jafnvel ltili maginn er þögull og gleymdur. „Það er meiri karlinn, þessi Jachmann”, segir Pinneberg með aðdáun. „Hvernig fór honum að detta þetta i hug?” „Eruð þig að reyna hvernig uppfinningin min gefst?” segir Jachmann, sem kemur í sömu svifum inn um dyrnar. „Er hún ekki afbragð? Jæja, kæra frú, hvaðsegir eiginmaðurinn um fyr- irætlanir okkar? Felst hann á þær?” segir hann og snýr sér að Pússer. Pússer hlær, en rennir jafn- 1499 Lárétt I) Fer i kaf .- 5) Kassi. 7) Borða,- 9) Eins.- II) Kaffibætir.- 13) For,- 14) Nagla,- 16) Komast,- 17) Islandi.- 19) Kaffibrauð.- Lóðrétt 1) Knáa.- 2) Skst.- 3) Glöð.- 4) Plantna.- 6) Dreifir.- 8) Verkfæri.- 10) Amu.- 12) Lágfótu,- 15) Handlegg,- 18) Tón,- Ráöning á gátu No. 1498 Lárétt 1) Mistur,- 5) Ars,- 7) Ræ.- 9) Elda,- 11) Tré,- 13) Arm,- 14) Atla.- 16) Os,- 17) Glasa,- 19) Fitlar.- Lóðrétt 1) Myrtar,- 2) Sá.- 3) Tré.- 4) Usla.- 6) Hamsar,- 8) Ært,- 10) Drósa,-12) Elgi,- 15) Alt,- 18) Al,- HVELL G E I R I D R E K I íi:ll lílll FIMMTUDAGUR 13. september 7.00 Morgunútvarp. Veður- fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10. 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar. 12.25 Fréttir og veðurfregnir. Tilkynningar. 13.00 Á frivaktinni. Margrét Guðmundsdóttir kynnir óskalög sjómanna. 14.30 Siðdegissagan: „Sumar- friið” eftir Cesar Mar Valdimar Lárusson les (9). 15.00 Miðdegistónleikar: Ru- dolf Serkin og Sinfóniu- hljómsveitin i Filadelfiu leika Pianókonsert nr. 4 fyr- ir vinstri hönd eftir Prokof- jeff, Eugene Ormandy stj. Filharmóniusveitin i Berlin leikur „Vorblót”, ballett- tónlist eftir Stravinsky; Herbert von Karajan stj. 16.00 Fréttir. Tilkynningar. 16.15 Veðurfregnir 16.20 Popphornið 17.05 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Tilkynningar. 19.20 Daglegt mál.Helgi J. Halldórsson cand. mag. flytur þáttinn. 19.25 Landsiag og leiðir.Sverr- ir Pálsson skólastjóri á Akureyri talar um Bárðar- dal. 19.50 Leikrit: „Drekinn” eftir Evgeni Schwarz. Þýðandi: örnólfur Arnason. (Aður útv. í april 1969). Leikstjóri: Helgi Skúlason. Persónur og leikendur: Drekinn: Róbert Arnfinnsson. Lancelot: Pétur Einarsson. Karla- magnús: Jón Aðils. Elsa: Margrét Guðmundsdóttir. Borgarstjórinn: Valur Gislason. Hinrik: Arnar Jónsson. Knötturinn: Borg- ar Garðarsson. Asninn: Valdemar Helgason. Garð- yrkjumaðurinn: Karl Guð- mundsson. Aðrir leikendur: Kjartan Ragnarsson, Daniel Williamsson, Guð- mundur Magnússon, Hall- dór og Erlendur Svavars. 22.00 Fréttir 22.15 Veðurfregnir. Eyjapistill. 22.35 Manstu eftir þessu? Tón- listaHþáttur i umsjá Guð- munaar Jónssonar pianó- leikara. 23.25 Fréttir I stuttu máli. Dagskrárlok. Núer skamm degið í nánd! VIÐ LJÓSASTILLUM BÍLINN YÐAR OG YFIRFÖRUM ALLAN LJÓSABÚNAÐ Á AUGABRAGÐI. Athugið að Ijósastilling er innifalin í VOLVO 10 þús. km yfirferð! VELTIR HF Suðurlandsbraut 16 • Simi 35200

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.