Tíminn - 13.09.1973, Side 26
26
TÍMINN
Fimmtudagur 13. september 1973
Umsjón: Alfreð Þorsteinsson =
FRAM Bikarmeistari
í rökkri á LaugardalsveSli
— sigraði Keflvíkinga 2:1 eftir framlengdan leik.
Fyrsti tapleikur Keflvíkinga síðan í apríl
Sigurgleði! Jón Póturssen, fyrirlifti Fram, hampar ..Bikarnum” eftir
Keflvikingar máttu bíta f
þaö súra epli aö tapa sínum
fyrsta leik síðan í apríl í
gærkvöldi/ er Fram sigraði
þá i úrslitaleik Bikarkeppni
KSi 2:1 eftir framlengdan
leik. Góö stemmning var á
Laugardalsvellinum í gær-
kvöldi meðal hinna 5
þúsund áhorfenda, sem
komnir voru til að horfa á
úrslitaleik Bikar-
keppninnar. Hvorugu
liðinu tókst að skora mark í
hinum venjuleg leiktíma,
og vanþá framlengt um 2 x
15 minútur, enda þótt birtu
væri tekið að bregða. Eftir
fremur þófkenndan leik
sýndu liðin miklu betri og
skemmtilegri leik i fram-
lengingunni. Og úrslitin
réðust i fyrri hluta fram-
lengingari nnar. Jón
Pétursson, fyrirliði Fram,
skoraði fyrsta mark
leiksins á 2. minútu við
gífurleg fagnaðarlæti
reykviskra áhorfenda. En
þegar Steinar Jóhannsson
skoraði stórglæsilegt mark
3 mínútum síðar, var engu
likara en þakið á stúkunni
ætlaði að rifna af, svo stór-
kostleg voru fagnaðarlæti
hinna fjölmörgu áhang-
enda Kef lavikurliðsins,
sem fjölmenntu á Laugar-
dalsvöllinn. Þá var
spennan vissulega í há-
marki, og sigurinn gat lent
hjá hvoru liðinu sem var.
En á 12. mínútu, þegar 3
minútur v.oru til hálfleiks í
framlengingunni, skoraði
Marteinn Geirsson, bezti
maður Fram í þessum
þýðingarmikla leik, mark,
sem reyndist sigurmark
leiksins.
Þegar hér var komið sögu,
var orðið svo skuggsýnt, að sýni-
legt var, að siðustu 15 minútur
framlengingarinnar yrðu leiknar
i hálfgerðu myrkri. Spennan var
mikil þessar siðustu minútur, og
áttu bæðiliðin góð marktækifæri
Keflvikingar sóttu mun meira, en
tilraunir þeirra til að jafna
stöðuna voru árangurslausar,
enda börðust leikmenn Fram eins
og ljón. Og þegar Eysteinn Guð-
mundsson, dómari leiksins,
flautaði leikinn af — guð má vita,
hvort hann hefur séð almennilega
á klukkuna — voru fagnaðarlæti
leikmanna Fram mikil. Sigur i
Bikarkeppninni i höfn — og það,
sem meira var þeim hafði tekizt
að rjúfa nær óslitna sigurgöngu
Keflavikur-liðsins i sumar, en það
var nokkuð, sem fæstir áttu von á.
Tæplega 5 þúsund áhorfendur
komu til að fylgjast með úrslita-
leik Bikarkeppninnar i gærkvöldi,
•en það er mesti fjöldi, sem horft
hefur á úrslitaleik i þessari
keppni, sem nú fór fram nokkru
fyrr en venja hefur verið til,
aukþesssem hann var leikinn á
Laugardalsvellinum, i fyrsta
skipti. Er enginn vafi á, að þessi
tilhögun er betri og gefur Bikar-
keppninni meira gildi.
Greinilegt var, strax i upphafi
leiksins, að leikmenn beggja liða
voru taugaóstyrkir, og leikmenn
F'ram öllu fremur. Kom það
nokkuð á óvart sökum þess, að
þeir höfðu allt að vinna i þessum
leik. Meira að segja Elmar Geirs-
son var miður sin, en þó ber þess
að geta, að hann var i strangri
gæzlu allan timann.
Fátt markvert gerðist i fyrri
hálfleik. Keflvikingar voru heldur
sterkari aðilinn, að þvi er virtist,
sigur Fram i gærkvöldi.
og léku betur, enda þótt Fram
ætti ein tækifæri eins og þeir.
Það var ekki fyrr en 15 minútur
voru liðnar af siðari hálfleik að
Fram-liðið fór að ná sér á strik.
Þá kom Guðgeir Leifsson inn 4
fyrir Eggert Steingrimsson, og
var þá eins og liðið yrði
öruggara. Keflvikingar, með þá
Steinar Jóhannsson, Ólaf Július-
son og Ástráð Gunnarsson sem
beztu menn, léku ágætlega, en
tókst ekki að ógna verulega
frekar en Fram. Vörnin hjá Fram
var lika geysisterk, og Marteinn
Geirsson átti stórleik.
Það var ekki fyrr en á siðustu
minútum hins venjulega
leiktima, að verulegt fjör færðist
i leikinn. Þá áttu bæði liðin
nokkur hættuleg tækifæri. En
mörkin létu standa á sér og komu
ekki fyrr en i framiengingunni.
Eftir mikla pressu á 2. mínútu
llart er bari/.t. Gisli Torfasou sa'kir aft Fram-markiuu, en Ómar Ara-
son reynir að stiiðva liann.
Leikmenn Fram sjást á þessari mynd tollera þjálfara sinn, Guðmund
Jónsson, eftir leíklnn I gærkvöldi.