Tíminn - 13.09.1973, Síða 32

Tíminn - 13.09.1973, Síða 32
32 TÍMINN’ Fimmtudagur 13. september 1973 — I,,, M M M M ík Steinninn sem valt EINU SINNI var steinn, sem alltaf vildi veltast áfram. „Þú klæðist aldrei fallegum mosa, nema þú haldir einhvern tima kyrru fyrir á sama stað,’’ sagði Steinn afi hans al- varlega og skipandi. Hann var virðulegur, jarðfastur steinn og mosavaxinn. „En ég vil ekki vera á árstiðum og veðri. Og hér gerist sitt af hverju. Jón bóndi fer hér oft framhjá á dráttar- vélinni sinni, nú, og i gærkveldi fóru þrjár endur hér um veginn.” Það er nú margt skemmtilegra að sjá i heiminum en Jón bónda eða þrjár endur á labbi,” s va ra ði steinninn með flökku- sama stað, og ekki held- ur verða mosavaxinn”, sagði steinninn veltandi. „Ég vil sjá mig um i heiminum”. „Þú sérð alveg nóg af heiminum hérna. Þú sérð ýmislegt skemmti- legt og breytilegt eftir náttúruna. „Hann Viðförull, stóri steinninn sem datt úr hjól- börunum hjá bóndanum hérna um daginn, hann hefur sagt mér margt fróðlegt og spennandi.” „Sá leiðindaflakkari,” hrópaði afi hans, „hon- um ætti ekki að liðast að vera að segja ykkur unglingunum sögur, og æsa upp i ykkur ein- hverja vitleysu”! „Ég spurði hann hvaða einkennilegi, og suðandi hávaði það væri, sem er mikið hærra hljóð en heyrist i býflugum, og við erum farin að heyra hingað alltaf hærra og hærra allan daginn,og stund- um lika á nóttunni, og veiztu hvað hann sagði mér? — Þetta eru bilar, sagði hann, — og ég ætla að fara út að stóra þjóðveginum og sjá þá.” sagði steinninn æstur. „Hvað er að heyra”! sagði afi. „Ég hef nú komizt af alla mina löngu ævi án þessara bila — hvað sem þeir eru nú eiginlega — og þú ættir að geta það lika”. Svo fór hann að sofa. En steinninn ungi hélt áfram að láta sig dreyma um að komast eitthvað langt i burtu. Næsta dag kom litil stúlka, og hún settist i grasið rétt hjá Steini afa og steininum með útþrána. „Halló, steinn,” sagði hún og ýtti við honum með fætinum. „Mér finnst einhvern veginn á mér að þú sért orðinn leiður á að vera alltaf hér á sama stað. Ég er að hugsa um að taka þig með mér.” Steinninn titraði af fögnuði, þegar hann var tekinn upp. „Vertu sæll afi minn, nú fer ég út i heiminn”, hrópaði hann i gleði sinni. Litla stúlkan hélt á steininum i mjúkri hendi sinni og honum hlýnaði. Þetta minnti hann á þegar sólin skein heitast á hann á sumrin. Þegar þau komu að þjóðvegin- um, nam hún staðar og setti steininn við vegar- brúnina. „Jæja,” sagði hún, „nú getur þú unað þér við að horfa á bilana fara fram hjá, en ert ekki i hættu að lenda undir þeim, þvi að það er ekki gott, — ekki einu sinni fyrir harðan stein!” K U U Þetta var einmitt það, sem steinninn hafði þráð.Hannvarðyfir sig glaður. Eftir nokkurn tima, þegar hann hafði vanizt ysinum og hávaðanum af umferðinni, þá fór hann að þrá einhverja tilbreytingu. Hann var svo heppinn, að tveir drengir komu gangandi eftir veginum og námu staðar við stórt tré, sem stóð við vegarbrúnina. „Heyrðu, Óli”, sagði annar þeirra, „mig vantar stein.” „Hérna er einn,” sagði hinn drengurinn um leið og hann tók upp steininn, sem lá þarna. Hviss! Áður en steinninn vissi hvað var að ske, þá flaug hann upp i háa loft, og — bomms — hann hitti i kastaniuhnetu, sem fullt var af i þessu stóra tré. „Hvað ertu eiginlega að gera? ÓÓ!” æpti stóra hnetan, og svo duttu þau bæði niður, steinninn og kastaniu- hnetan. „Ég gat ekki gert að þessu”, sagði steinninn. En aftur og aftur var honum kastað upp i tréð, og niður hrundu margar hnetur. „Þetta er spennandi!” hrópaði hann. „Okkur finnst þetta ekkert spennandi”, svöruðu hneturnar, öskureiðar. „Já, en ég er að sjá heiminn, og það er svo spennandi,” svaraði steinninn. Nú voru drengirnir komnir með fulla vasa af hnetum og steinninn fór að hugsa um, hvað um hann yrði nú. „Hvað ætli að komi næst fyrir mig?” hugsaði hann, „en mikið var nú gaman að þjóta hátt upp i loftið eins og fugl.” Nú kom nóttin. Steinninn lá við veginn votur af næturdögg, en ljós frá bilum, sem fóru um veginn.glömpuðu á honum. En nú gerðist ekkert merkilegt um stund, en allt i einu kom drengurinn, sem var að reka burt krákur, sem sóttu i akurinn hjá bónda þarna i nágrenn- inu. Hann var þreyttur

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.