Tíminn - 16.09.1973, Side 7

Tíminn - 16.09.1973, Side 7
virkjun hafi innleitt þessa hjálma hér á landi, ásamt öðrum öryggishlifum fyrir verkafólk, en notkun t.d. öryggishjálma var oröin útbreidd erlendis. Þessir öryggishjálmar þykja nú ómiss- andi á mörgum vinnustöðum og eru nú notaðir í öllum smiðjum, hjá byggingaverktökum, skipa- félögum, við uppskipun og vöru- afgreiðslu. Ennfremur við mat- vælaiðnað og í sláturhúsum, en i siðarnefnda tilfellinu eru notaðir léttir hattar, sem bæði eru öryggishjálmar og stuðla að hreinlæti. Hjálmar bjarga mannslifum — Oryggishjálmarnir hafa reynzt mjög þarfir og þeir hafa þegar bjargað mannslifumhér á landi. Það tók nokkurn tima fyrir okkur fslendinga að tiieinka okk- ur hjálmana. Þeir voru i fyrstu til taks, en voru kannski ekki alltaf notaður, en nú skilja held ég allir gildi þeirra. Ég get nefnt nokkur dæmi um það, að hjálmarnir hafa bjargað mannslifum. Skipasmiðastöðin Stálvik var meðal þeirra fyrstu, er innleiddu hjálma hjá sér, en slysahætta er mikil hjá skipasmiðastöðvum. Starfsmennirnir voru hins vegar tregir til að nota hjálmana. En svo skeði slys. Þungt stykki féll niður á botn i skipi, sem var i smiðum. Það féll i höfuðið á starfsmanni, er var við starf sitt á lestargólfinu. Til allrar hamingju var maðurinn með öryggishjálm og það varð honum til lifs. Svo mikið var höggið, að það stórsá á hjálminum. Þessi maður væri eicki lengur i tölu lifenda, ef hann hefði ekki borið öryggishjálm. Þetta varð til þess, að starfs- mennirnir settu allir sem einn upp öryggishjálmana, og nú bera þeir þá við dagleg störf. Af mann- inum var það hins vegar að segja, að hann meiddist litillega og tók fljótt upp störf sin á ný. Vinnuslys i Málningu h/f og borturni Annað dæmi get ég nefnt, þar sem öryggishjálmur hefur bjarg- að mannslifi, en það var i Máln- ingu hf. Þar voru starfsmenn með öryggishatta, eða létta hatta (ekki beinlinis öryggishjálma i venjulegum skilningi). Þar vildi það til, að maður lenti með hend- ur i hrærivél. Hann festist við spaðana og lenti með miklu afli meðhöfuðiði vélinni. Hrærivélin braut hendur hans, eða handlegg- ina, en hjálmurinn bjargaði höfði mannsins frá skaða og þá lifi hans. Það er hægt að nefna fleiri dæmi, og ótal dæmum fréttum við alls ekki af, en aðalatriðið er þó, að menn beri þessa hjálma á vinnustað, þvi að slysin gera ekki boð á undan sér. Ég get t.d. nefnt, að einu sinni féll krókur úr mikilli hæð úr borturni hjá jarðborunum rikisins. Einn bormannanna fékk krók- inn i höfuðið. Þetta var gifurlegt högg, en maðurinn slapp ómeidd- ur frá slysinu. Sigmaðurinn á tsafirði prófar hjálma — Margir spyrja okkur um styrkleika öryggishjálmanna. Þeir eru viðurkenndir af öryggis- eftirlitinu, sem fer eftir Norður- landastaðli. Þeir eiga að þola ákveðin högg og þeir eru, eins og aðrar vinnuhlifar samþykktir af yfirvöldum. Sumir vilja samt hafa vaðið fyrir neðan sig og prófa hjálmana sjálfir. Er það til dæmis minnisstætt, að bjargsigs- maður einn vestur á fjörðum kom I búð á tsafirði, til að kaupa sér öryggishjálm i bjargsigiö. Þetta var hjá umboðsmanni okkar i RAF HF á tsafirði. Bjargsigsmanninum þótti hjálmurinn ekki vera veigamikill og krafðist þess að fá að prófa hann. Tók hann sleggju mikla og keyrði i hjálminn, en hann stóðst höggið með prýði. Ekki var sigmaðurinn samt ánægður með þetta. Hann lyfti stórum steini og henti ofan á hjálminn, en það hefði hann átt að láta ógert. Hjálmurinn stóöst þessa raun með prýði, en steinn- inn hoppaði af hjálminum upp i fangið á manninum aftur og var nærri búinn aö slasa hann. Að lokum tók maðurinn hjálm- Fyrir nokkrum árum færðu þeir Slysavarnafélaginu aft gjöf hjálma fyrir björgunarsveitir þess. A myndinni, sem tekin er vift afhendingu hjálmanna, sjást þau Gunnlaugur P. Steindórsson, Gróa heitin Pétursdóttir þáverandi formaftur slysavarnakvenna og forseti Slysavarnafélagsins Gunnar Friftriks- son forstjóri.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.