Tíminn - 16.09.1973, Blaðsíða 19

Tíminn - 16.09.1973, Blaðsíða 19
Sunnudagur 16. september 1973 TÍMINN 19 Ctgefandi: Framsóknarflokkurinn Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar: Þór- arinn Þórarinsson (ábm.), Jón Helgason, Tómas Karlsson, Auglýsingastjóri: Steingrimur Gislason. Ritstjórnárskrif- stofur i Edduhúsinu við Lindargötu, simar 18300-18306. Skrif- stofur i Aðalstræti 7, simi 26500 — afgreiðslusimi 12323 — aug- lýsingasimi 19523. Askriftagjald 300 kr. á mánuði innan lands, i lausasölu 18 kr. eintakið. Blaðaprent h.f - Bragð er að.... Það er illa komið fyrir Mbl., þegar ádeilur á stjórnmálaskrif þess og fréttaflutning verður eitt aðalumræðuefnið á þingi ungra Sjálf- stæðismanna. Svo djúp var fyrirlitning sumra þingfulltrúa á þingi ungra Sjálfstæðismanna, að þeir kröfðust þess, að Sjálfstæðisflokkurinn kæmi sér upp almennilegu málgagni. Einkum eru það þjóðhættuleg hringlandaskrif Mbl. i landhelgismálinu, sem urðu ungum Sjálf- stæðismönnum tilefni til ádeilu á Mbl. enda hafa þeir ekki komizt hjá þvi fremur en aðrir að finna fyrir þungri reiðiöldu almennings i garð blaðsins vegna fáránlegra og jafn- framt hættulegra skrifa þess um málið, sem hafa verið til þess fallin að spilla þjóðarein- ingu. Þannig hefur hvað eftir annað beinlinis verið búinn til ágreiningur i landhelgismálinu — algerlega tilhæfulaus og án nokkurs tilefnis. „Ágreiningurinn” er siðan blásinn út á siðum blaðsins með staðlausum stöfum og siðan lagt út af öllu saman i ritstjórnargreinum blaðsins. Þeir menn, sem ánetjazt hafa þessum áróðri, fá svo sérstaka fyrirgreiðslu og viðhöfn i Mbl., og þegar þeir eiga i hlut, gilda ekki sömu regl- ur og um aðra menn, en eins og kunnugt er, hafaýmsir þingmenn Sjálfstæðisflokksins, sem ekki eru i Geirs-klikunni, kvartað sáran yfir þvi, að allt, sem þeir segi eða leggi til málanna, sá þagað i hel á siðum Mbl. Mbl. hefur t.d. þá reglu, að birta ekki út- varpserindi, skv. yfirlýsingu ritstjóranna. En þegar maður tók að sér að flytja sjónarmið Breta i landhelgisdeilunni i Rikisútvarpið, gilti reglan ekki lengur. Þá var erindið birt i heild á virðulegasta stað i blaðinu. Sama daginn og Timinn skýrði frá ályktun framkvæmdastjórnar og þingflokks Fram- sóknarflokksins um landhelgismálið og hertar aðgerðir gegn Bretum, birtist ritstjórnargrein i Mbl., þar sem ráðizt var með fólskulegum hætti að forsætisráðherra fyrir að aðhafast ekkert frekar gegn Bretum. Sagði blaðið, að nú yrði að hefjast handa um að knýja forsætisráð- herra til aðgerða i málinu. Nokkru áður hafði blaðið talið það hneyksli, að ekki skyldi hafa fyrir löngu verið hætt að veita brezku Nimrod-þotunum leiðbeiningar frá flugumsjón Svo var rikisstjórnarfundur sl. þriðjudag og ákvarðanir um ýmsar aðgerðir gegn Bretum voru teknar samhljóða i rikisstjórninni. Þá skýrði Mbl. frá þvi, að margfaldur klofningur væri i rikisstjórninni um aðgerðirnar áður en fundurinn hófst. Visir lagði alla forsiðu sina undir þennan mikla ágreining og mynd- skreytti. Blaðið kom út eftir að fundinum lauk og frá niðurstöðum hans hafði verið skýrt. Visir kórónaði þann dag sköpunarverk Mbl., þvi i litilli klausu með hinni löngu frétt og miklu um klofninginn var skýrt frá þvi, að hið furðulega hefði þó gerzt, að allt hefði verið samþykkt einróma ! ! Fór ekki illa á þvi, að Visir skreytti forsiðu sina með miklu af gulum lit þennan dag, en gul eru þau blöð köliuð, sem óheiðarlegust og ómerkilegust eru talin. Og svo kom formaður útgáfustjórnar Mbl. og gaf yfirlýsingu og var á móti þvi,að nokkuð væri gert, en þó gæti komið að því, að hann væri með þvi að gera eitthvað! Hann var á móti — og þó. Auðvitað hafði Gylfi nákvæm- lega sömu afstöðu. — TK ERLENT YFIRLIT Bratteli myndar minnihlutastjórn Úrslitasætið valt á fjórum atkvæðum ÞAÐ virðist nú fullvist, að norski Verkamannaflokkurinn muni mynda minnihluta- stjórn, þegar hið nýkjörna þing kemur saman i byrjun næsta mánaðar. Vafalaust verður það formaður flokks- ins, Trygve Bratteli, sem myndar stjórnina, en þvi er jafnframt spáð, að hann muni láta af forustunni á miðju þessu kjörtimabili og láta öðrum eftir bæði flokksfor- ustuna og stjórnarforustuna. Bratteli verður kominn hátt á sjötugsaldur, þegar kosningar fara fram næst, eða eftir fjögur ár, og þykir þvi liklegt að hann feli öðrum að stjórna flokknum i næstu kosninga- sennu. Flokkurinnhefurtapað i öllum kosningum siðan Bratt- eli tók við forustu hans og mun Bratteli þvi telja rétt.aö annar fái aö reyna sig. Að þessu sinni varð tap flokksins meira en hann hefur áður orðið fyrir um meira en 40 ára skeið. Flokkurinn tapaði um 25% af fylgi sinu, ef miðað er við úrslit kosning- anna 1969. Hann fékk þá rúma milljón atkvæða, en nú um 760 þúsund atkvæða. Hann fékk þá 46.5 % af atkvæðamagninu, en aðeins 35.6% nú. Hann fékk nú 62 þingsæti, en fékk 74 þing- sæti 1969. Af þvi fylgi, sem flokkurinn tapaði nú, er talið að um helmingur hafi horfið til annarra flokka, aðallega Sósialiska kosningabanda- lagsins, en hinn helmingurinn hafi setið heima. Kosninga- þátttaka var mun minni nú en 1969 eða 77,7% á móti 83.8% þá. Þó var kosningabar- áttan sögð mun harðari nú, og flokkum hafði fjölgað veru- legaÞaðvirðist hins vegar ekki hafa aukið áhuga kjósenda. Margir virðast þeir Norð- menn, sem harma þann per- sónulega ósigur, sem úrslitin urðu fyrir Bratteli og það engu siður ýmsir andstæðingar hans. Bratteli nýtur mjög al- mennrar tiltrúar i Noregi, sem heiðvirður, góðviljaður og traustur leiðtogi. En hann er laus við það, að vera lit- rikur persónuleiki. Þar skilur með honum og Olof Palme. Pslme hefur minna almennt traust, en hann kann vel að vekja á sér áthygli og að vera umdeildur. Ef til vill á það eftir að reynast honum væn- legra til sigurs. ösigur Verkamanna- flokksins má rekja til margra ástæðna, m.a. þess klofnings, sem reis innan flokksins vegna aðildarinnar að Efna- hagsbandalaginu. Veigamikil ástæða er svo það, að hann hefur ekki gætt aö sér á stærstu vinnustööunum. Þar hafa Sósíalski þjóðflokkurinn og þó einkum kommúnistar þrautskipulagt áróður sinn og náð góðum árangri. Sósíal- demókratar i Sviþjóð hafa hins vegar gætt vel fjölmennu vinnustaöanna og getur það gert gæfumuninn. ÁSTÆÐAN til þess, að Verkamannaflokkurinn mun mynda minnihlutastjórn, þrátt fyrir fylgishrunið, er hinn mikli kosningasigur Sósíaliska-kosningabanda- lagsins, sem fékk nú 16 þing- sæti, en þeir flokkar, sem stóöu að þvi, fengu engin þing- sæti 1969. Að bandalaginu stóðu þrir aðilar, eða Sósialiski þjóðarflokkurinn, Kommúnistaflokkurinn og róttækir menn úr Verka- mannaflokknum. Bandalagið fékk 11.2% atkvæöanna, en 1969 fengu Sósfaliski þjóðar- flokkurinn og Kommúnista- flokkurinn samanlagt um 4.5% atkvæðanna. Athyglis- .vert er, að sósialisku flokk- arnir, þ.e. Verkamannaflokk- urinnog Sósialiska kosninga- bandalagið fá nú samanlagt ekki nema 47.1% atkvæðanna, þótt bætt sé við þeim 0,4%, er Maóistar fengu, en 1969 fengu Verkamannaflokkurinn, Sósialiski þjóðarflokkurinn og Kommúnistaflokkurinn 51% atkvæðanna. Samanlagt fá þessir flokkar þvi ekki meiri- hluta atkvæða nú, þótt þeir fái meirihluta þingsæta, eöa 78 af 155. Trygve Bratteli Samsteypustjórn Verka- mannaflokksins og Sósíaliska kosningabandalagsins er talin óhugsandi, en hins vegar þykir liklegt, að Sósialiska kosningabandalagið verji stjörn Verkamannaflokksins falli, ef á þarf að halda. Utan- rikismál munu þó sennilega verða undantekning i þessum efnum, þvi þar er ágrein- ingurinn mestur, einkum i sambandi við Nato. A þvi sviði mun Verkamannaflokkurinn geta treyst á stuðning borgaraflokkanna. Sósialiska-kosningabanda- lagið á fylgi sitt vafalaust mjög aö þakka Efnahags- bandalagsmálinu. Þá mun landhelgismálið hafa hjálpað þvi i Norður-Noregi og viöar, en það er eindregið fylgjandi stækkaöri fiskveiöilandhelgi. Þi ng m ei: n Sósialíska kosningabandalagsins skiptast þannig, að 12 tilheyra Sósial- iska þjóöarflokknum, einn er kommúnisti, og þrir tilheyra Demokratiske Socialister, en svo nefna þeir sig, sem gengu úr Verkamannaflokknum. BORGARALEGU flokk- arnir svonefndu nutu þess ekki, aö þeir fengu samanlagt meirihluta .atkvæða, sökum hins mikla klofnings i rööum þeirra. Vinstri flokkurinn gekk nú tviklofinn til kosning- anna, en hann haföi klofnaö vegna ágreinings um Efna- hagsbandalagsmálið. Þaö flokksbrotið, sem hélt nafninu, fékk aðeins 2,3% atkvæðanna og tvo þingmenn. Hitt flokks- brotið, sem kallaði sig Nýja þjóðarflokkinn og var undir forustu Helge Seip, fékk 3,4% og einn þingmann. Sjálfur náði Seip ekki kosningu. 1 kosningunum 1969 fékk Vinstri flokkurinn 9.4% og 9 þing- menn. Margt bendir til, að Kristilegi þjóðarflokkurinn hafi grætt mest á hruni Vinstri flokksins, en hann bætti við sig sex þingsætum, eða jafn- mörgum og Vinstri flokkurinn tapaöi. Kristilegi þjóðarflokk- urinn fékk nú 11.8% af atk væðamagninu og 20 þingmenn, en fékk 1969 9,4% af atkvæðamagninu og 14 þingmenn. Miðflokkurinn fékk svipaða atkvæðatölu og siðast, eða 6.8% i stað 6.7% og einum þingmanni meira, eöa 21. 1 raun er atkvæðafylgi Mið- flokksins meira en framan- greindar tölur bera með sér, þvi aö hann stóð að fram- boðum með öðrum i nokkrum kjördæmum, og fengu þeir listar nú 5,9% eða svipað og siðast. Hinn nýi flokkur, sem kenndi sig við foringja sinn Anders Lange, og berst fyrir afnámi skatta, fékk um 5% atkvæðanna og fjóra þing- menn. Þykir það furöugóð út- koma, þvi að erfitt er að taka Anders Lange alvar- lega, eins og málflutningi hans er háttað. Það hjálp- aði honum nokkuð, aö hann fékk frægan mann úr mótspyrnuhreyfingunni, Erik Gjems-Onstad hæstaréttar- lögmann, til liös við sig og náði hann kosningu. Þegar sigur Anders Lange er tekinn með i reikninginn, verður út- koman hjá lhaldsflokknum aö teljast sæmileg, en hann fékk nú 17.2% atkvæðanna i stað 19,6% 1969. Þingmannatala hans helzt óbreytt, 29 þing- menn. Margt bendir til, að Anders Lange hafi fengið næstum þvi helminginn af fylgi sinu frá Verkamanna- flokknum, enda benti sitthvað til þess fyrir kosningarnar, að hann myndi ná frá Verka- mannaflokknum allmörgum kjósendum, sem voru óánægðir með skattana. Verkamannaflokkurinn hafði þó i kosningastefnuskrá sinni allmikla skattalækkun á lág- launafólki. Ýmsir smáflokkar, aðrir en Maóistar, fengu um 0,5% atkvæða og engan þingmann. Maóistar fengu 0.4% eins og áður segir. Talning atkvæðanna var mjög spennandi, þvi að lengi var tvisýnt, hvort sósialisku flokkarnir eða borgaralegu fengju þingmeirihluta. Staðan var sósialsku flokkunum i vil 78 gegn 77, þegar endurtaln- ingar hófust. Þá missti Verka- mannaflokkurinn eitt þingsæti til Ihaldsflokksins og höfðu borgaralegu flokkarnir þá meirihluta. Nokkru siðar missti Miðflokkurinn sæti til Sósialiska kosningabanda- lagsins og hélt það sætinu við nýja endurtalningu með fjög- urra atkvæða mun. Þ.Þ.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.