Tíminn - 16.09.1973, Qupperneq 30
30
TÍMINN
Sunnudagur 1S. september 1973
nú var enn einu sinni að troða
svila sinum um tær. Hann keypti
húsið og hefur átt þaö æ siðan.
Hrakfaliabálkur
Þrátt fyrir afbrýðissemi Tinu
út I aörar konur, leit hjónabandiö
út fyrir aö vera hamingjusamt.
Eiginmaöur hennar virtist sýna
henni alla eftirtekt. Einu skiptin
sem þau dvöldu ekki saman voru
þau sem hún dvaldist i St. Moritz.
Ekkert gat haft áhrif á hrifningu
hennar á St. Moritz, ekki einu
sinni annað fótbrot og jafnvel enn
verra slys,sem hún mátti þakka
fyrir aö sleppa lifandi frá. Hún ók
hratt eftir Isilögðum veginum til
St. Moritz, ásamt vinkonu sinni,
greifynjunni Marinu Cicognu,
þegar billinn rann til og rakst á
annan. Tina þeyttist út i brotna
framrúðuna og skarst illa i and-
liti. I Bretlandi fékk hún svo frá-
bæra meöferð hjá læknum að eftir
tvo mánuöi sást varla nokkuð á
andliti hennar.
Sama ár, 1954, fóru Ari og Tina
til Kiel, þar sem ný lystisnekkja,
sem hann hafði pantað beið eftir
henni. Snekkjan hét „Christina”.
1 henni voru átta herbergi,
smekklega búin húsgögnum.
Málverk i borðstofunni sýndu
Ara, Tinu og börnin I Imynduðum
stellingum. Glerið, postulinið og
silfrið var allt með þekktum
vörumerkjum. A þilfarinu var
italskur hraðbátur, hálf tylft
hraðbáta, tveir trefjaplastbátar
til að veiða djúpfiska.
Snekkjan sigidi til Monte Carlo
og Tina kom nú inn i heim, sem
jafnvel hún þekkti ekki. Randolph
Churchill kynnti föður sinn fyrir
þeim, en það var byrjunin á vin-
áttu miili þeirra. John F.
Kennedy hitti Sir Winston um
borð I Christinu. Fólk eins og
Gary Grant, Grace Kelly og Raini
er prins voru gestir þar. „Christ-
ina” varð vettvangur auðkýfinga
og „fins” fólks hvaðanæva að úr
heiminum. Glæsilegar konur löð-
uðust að Onassis.
Maria Callas kemur
tii sögunnar.
Það var um þetta leyti I Fen-
eyjum, sem Onassis hitti Mariu
Callas.
„Þó að ég hefði aldrei hitt
Mariu Callas áður hafði ég lengi
verið aðdáandi hennar”, sagði
Onassis siðar. Hann tók það fram,
að þaö hefði ekki verið hin óvið-
jafnanlega rödd hennar, sem
heillaði hann, heldur barátta
hennar þegar hún var ung stúlka i
þýzk-herteknu Grikklandi og
dugnaður hennar að ná toppnum.
Áhrif söngkonunnar á eigin-
manninn gátu ekki farið fram hjá
Tinu. Hún vissi vel að enginn af
þeim konum,sem Onassis þekkti,
hafði slfk áhrif sem Callas.
Onassis bauö söngkonunni og
eiginmanni hennar á siglingu eins
og hann gerði raunar oft, þegar
hann hitti fólk sem honum likaði.
Tina lék hinn kurteisa gestgjafa
og sýndi Callas snekkjuna, en
söngkonan virtist þvinguð og
eiginmaöur hennar, Signor
Meneghini óhamingjusamur.
Þegar á ferðina leið eyddi Onass-
is æ meiri tima með Callas og
Tinu skildist að hann var að verða
stöðugt hrifnari. („Hvernig gat
ég varið mig gegn nýjum Odys-
seifi”? á Meneghini að hafa sagt
siöar). Þegar snekkjan kom til
Feneyja, bauð Onassis Callas og
Meneghini einkaflugvél sina til
heimilis þeirra i Milanó.
Onassis heimsótti þau Callas og
Meneghini i einbýlishús þeirra I
Milan. Ekki löngu siðar sáust Ari
og Callas saman i næturklúbbi og
blöðin morguninn eftir birtu
myndir af þeim. Þau birtu einnig
fullyrðingar um að hjónaband
Calias og Meneghinis væri farið
út um þúfur. „Milli min og herra
Onassis er aðeins innileg vin-
átta”, sagði Callas.
Skilnaöurinn.
Tina sagði börnum sínum, að
þau myndu nú snúa til Parísar.
Asamt Alexander og Christinu
yfirgaf hún „Christinu” fyrir fullt
og allt. Þau fóru beint til heimilis
föðurhennar. Daginn eftir flaug
Ari til Parisar og krafðist þess að
sjá konu sina. Þar var róstusam-
ur fjölskyldufundur. Ari skipaði
Tinu að snúa aftur til sin. Hún
neitaði.
Onassis var viss um að allt
hefði farið ööru visi ef slúðriö
hefði ekki komið til. „Ef hefði
ekki verið gerð svona rómatísk
saga úr þessu, værum viö Tina
enn gift”, sagði hann.
Tina hóf að endurreisa lif sitt.
Eina manneskjan sem gat hjálp-
að henni var Eugenia systir henn-
ar. Hún þarfnaðist friðsældar og
tilbreytingar frá hinu vanalega
umhverfi sinu og það fann hún á
Aegan eyjunni sem Niarchos átti.
Enginn vafi leikur á að skilnað-
ur Tinu við Onassis færöi hana
nær mági sinum, en um þetta
leyti var ekki um að ræða dýpri
vináttu. í raun og veru var það
vegna Niarchosar sem hún hitti
næsta eiginmann sinn. Meðal
gestanna sem Niarchos bauð tii
veiða á eyjunni var Marquis af
Blandford, sem Tina hafði áður
hitt i St. Moritz. Niarchos lét þau
hittast aftur bæði I Paris og
London. Hélt hann að Tina væri
tilbúin til að giftast aftur og það
hinum nýlega fráskilda „Sonny”
Blandford, erfingja hertogans af
Marlborough, vini Margrétar
prinsessu?
Enn eitt slys
i St. Moritz.
Þennan vetur fór Tina til St.
Moritz, þar sem Niarchos hafði
látið henni i té eitt af einbýlishús-
um sinum. Hún varð stöðugt
áræönari i hættulegum skiða-
brautum.enda urðu afleiðingarn-
ar samkvæmt þvi. Dag nokkurn
fór hún svo hratt frá toppinum á
Piz Nair fjallinu að skiöakennar-
inn hennar gat tæplega fylgt
henni eftir. Hún datt og gat ekki
Núverandi eiginkona Onassis, Jackie, ásamt Christinu, dóttur Tinu og Onassis
Onassis um það leyti sem hann var i tygjum við Mariu Calias
staðið á fætur. Rannsókn leiddi i
ljós alvarleg meiðsli i hnéskel-
inni, alvarlegustu meiðsli sem
hún hafði nokkru sinni hlotið.
Þegar ég hringdi til Tinu, gerði
hún hraustlega tilraun til að vera
glaðleg, en uppgjafartónn læddist
alltaf með öðru hvoru. „Já, ég lft
út fyrir að vera mesti hrakfalla-
bálkur”, sagði hún.
Tina óttaðist að lif hennar og
óhöpp yrðu einum of mikið i
sviðsljósinu”, sagði hún. Hún
ætti við eftirlætismáltæki fyrr-
verandi eiginmanns sins á
frönsku: „Pour etre heureux, il
faut vivre en cachette”. (Til þess
að vera hamingjusamur, verður
maður að lifa i skugga). Batinn
tók langan tima. Vinir komu frá
London til aö heimsækja hana.
Gifting inn
i enskan aðal
Einn af þeim var Marquis af
Blandford. Hann fór með hana I
langar ökuferðir og heimbo.ð til
heimilis sins I Blenheim höll. Það
þótti þvi ekkert undarlegt, þegar
Tina opinberaði aðra trúlofun
sina.
Vegna þess að bæði voru frá-
skilin var ekki um kirkjubrúð-
kaup að ræða i Englandi. Auk
þess vildi Tina giftast I grisk-
kaþólskri kirkju. Vegna þess að
foreldrar hennar bjuggu i Paris
var ákveðið að brúðkaupið skyldi
haldið þar, i október 1963.
Niarchos bauð þeim nýgiftu
eyjuna sina til að eyða hveiti-
brauðsdögunum og auk þess
lystisnekkjuna „Creole”. Siðan
sneri Tina til Blenheim hallar, til
formfastara lifs en hún hafði
nokkru sinni lifað. En ekki leið á
löngu þar til hún var komin aftur i
lifið og fjörið i St. Moritz. E.t.v.
var aðeins hugsunin um höllina
(185 eyðileg herbergi), sem
angraði konu með hennar skap.
A.m.k. kom fíjótt i ljós að annað
hjónaband hennar ætlaði ekki að
heppnast. 1 miðjum vandræðum
sinum fékk hun hraðskeyti frá
Eugeniu: Eiginmaður hennar
hafði yfirgefið hana.
Niarchos tekur saman
við Charlottu Ford
Vandræðin mátti rekja aftur til
sumars i Antibes, þegar bróðir
þeirra Tinu, Georg, hafði komið
með Charlottu Ford til þeirra Eu-
geniu og Stavrosar. Niarchos
bauð Charlottu i mat og afleiðing
arnar urðu örlagarikar. Eugenta
sagöi honum, að hún hefði ekki
haft nein föt með sér. Hann stakk
upp á. að hún keypti sér kjól I
Antibes, en hún sagðist ekki vilja
eyða peningum I það. Þá kallaði
Niarchos hana 1 áheyrn Charlottu
„þá ómerkilegustu se, mann hefði
nokkurn tima hitt” en I staöinn
kallaði hún hann „hundleiðinleg-
an” og „gamlan karlskarf.”
Fimm árum siðar hittust Niar-
chos og Charlotta aftur i St. Mor-
itz og voru of mikið saman að
dómi Eugeniu. Stuttu siðar bað
Niarchos um skilnað. Þá þegar
var Charlotta komin með trú-
lofunarhring, demantshring virði
hálfrar milljónar dollara. Niar-
chos fékk skilnað. Þegar hann
kom með Charlottu ófriska aftur
til St. Moritz, þá fullvissaði hann
Eugeniu samt um að þetta væri
aðeins augnablikshrifning og þau
(hann og Eugenia) mundu verða
saman aftur áður en langt um
liði. Það liðu 14 mánuðir áður en
Niarchos skildi við Charlottu.
Þau eignuðust dóttur, Elenu. „Ég
veit núna hvað það þýðir að vera
gift Grikkja”, sagði Charlotta
beiskjulega.
Fjölskylduvandræði
A meðan á öllu þessu stóð, hafði
Tina öðru að sinna, nefnilega
börnunum sinum. Bæði Tina og
Onassis voru sammála um^að það
yrði fyrirtak ef Christina dóttir
þeirra giftist Peter Goulandris,
erfingja annarrar griskrar skipa-
fjölskyldu. En þó að ástin
blómgaðist um tima, varð
Christina brátt laus og liðug
aftur. Og þá ákvað Alexander,
þrátt fyrir mótstöðu foreldra
sinna að giftast ákaflega fallegri
konu, sem var 15 árum eldri en
hann, Fionu Thyssen. Hún hafði
áður verið gift forrikum iðjuhöldi,
Heinrich Thyssen, en var nú skil-
in við hann. Aldrei varð þó úr
giftingunni. „Það gerði andstað-
an heima fyrir”, sagði Fiona
sorgmædd.
Þó að Tina og Sonny rifust
aldrei var ljóst að leiðir myndu
skilja. Stuttu siðar komst fyrsti
eiginmaður hennar á forsiðurnar
á öllum timaritum, vegna um-
talaðasta hjónabands okkar
tima: Hjónabands Ara Onassis og
Jackie Kennedy.
Dauði Eugeniu.
Þá varð hún fyrir annarri og
óhugnanlegri reynslu. „Dauðinn
á Spetsopoula” sögðu blaðafyrir-
sagnirnar. Systir hennar Eugenia
hafði dáið á einkennilegan hátt.
Sögur um hvað gerðist á Spetso-
poula eru ýktar og litaðar. 1 lög-