Fréttablaðið - 29.10.2004, Side 24
Til að sellerí geymist lengur í ísskáp þá er
gott að setja það fyrst í álpappír og síðan
inn í ísskáp.
FRÍ HEIMSENDING
Nánari
uppl‡singar
á somi.is
Á sunnudaginn er allra heilagra
messa samkvæmt kaþólskum sið,
en þá fara nornir, forynjur og
hverskyns kynjakvistir á kreik.
Það er ekki hefð fyrir því að
halda upp á hrekkjavökuna á
Íslandi þó Íslendingar sem hafa
verið búsettir í útlöndum haldi
fast í þessa skemmtilegu hátíð og
festi hana gjarnan í sessi í eigin
fjölskyldu.
Mist Þorkelsdóttir var búsett í
Bandaríkjunum um margra ára
skeið og hún hefur haldið upp á
hrekkjavökuna með stæl síðan
hún flutti heim.
„Krakkarnir söknuðu hrekkja-
vökunnar þegar við fluttum til
landsins aftur svo við höfum hald-
ið þessu til streitu. Þetta hefur svo
undið upp á sig,“ segir Mist. „Við
skreytum allt í hólf og gólf, sker-
um út grasker og búum til lugtir.
Það er nú aðallega Sigfús, maður-
inn minn, sem hefur það hlutverk,
en hann hefur meðal annars gert
stórkostlegan Frankenstein og
fljúgandi nornir á kústsköftum.
Við setjum heimatilbúna legsteina
í garðinn og notum köngulóarvefi
og köngulær og allan mögulegan
óhugnað bæði inni og úti. Annars
má ekki segja of mikið,“ segir
Mist og hlær. „Það verður alltaf
að vera eitthvað sem kemur á
óvart. En það er óhætt að segja að
það er ýmislegt á kreiki, þessa
heims eða annars.“
Fjölskylda Mistar tekur þátt í
skemmtuninni af lífi og sál og allt
frá ungbörnum upp í ömmur og
afa mæta til veislu í búningum
sem mega að sjálfsögðu ekki
vera í prinsessustílnum, heldur
þurfa að minna á nornir og aftur-
göngur. „Unglingarnir fíla það í
botn að sjá ömmur og afa í bún-
ingum og áherslan er á að hafa
þetta skemmtun fyrir alla fjöl-
skylduna. Það kemur auðvitað
fyrir að litlar sálir verði smeykar
og ríghaldi í foreldra sína, en í
anda hrekkjavökunnar finnst
okkur það frekar fyndið“, segir
Mist og hlær nornahlátri. „Nei,
nei, svo venjast þau þessu og
taka þátt af lífi og sál.“
Mist segist alltaf bjóða upp á
„hrekkjavökumat“ þó hann geti
verið mismunandi frá ári til árs.
„Við erum oftast með eitthvað
sterkt eins og til dæmis „hot
wings“ og fyllt jalapeno. Svo
bökum við brauð í líki fingra eða
beina og sælgætið er auðvitað
allt einhverskonar „Halloween“-
nammi eins og ormar og kön-
gulær. Þetta er gríðarlega gaman
og ég hvet fólk til að gera eitthvað
skemmtilegt úr þessum degi.
Okkur Íslendinga vantar svona
stuðhátíðir á haustin svo við séum
ekki komin með jólin í gang í októ-
ber, engum til gagns eða gleði.“
Mist gefur okkur uppskrift að
réttum sem hugnast bæði lifend-
um og „dauðum“ á hrekkjavöku.
edda@frettabladid.is
Mist Þorkelsdóttir heldur veglegt hrekkja-
vökupartí fyrir fjölskyldu og vini á hverju ári.
Nornir og forynjur á hrekkjavöku:
Vilja brauð í líki útlima
Graskerið þarf helst að vera frekar stórt.
Fræin eru hreinsuð úr. Sniðugast er að
teikna mynd á pappír og pota með títu-
prjóni í gegnum myndina á graskerið. Þá
er skorið eftir myndinni með beittum hníf.
Grasker geta verið þykk og erfitt að skera í
þau svo ekki er sniðugt að ung börn geri
þetta nema undir leiðsögn foreldra sinna.
Graskerslugtir eru nauðsynlegar til að gera
hrekkjavökupartíið hæfilega „spúkí“.
Hefðbundinn útskurður eru augu, þríhyrnt
nef og brosandi munnur, en ef fólk notar
hugmyndaflugið geta útfærslurnar verið
endalausar.
Skerum út grasker um helgina
Því rauðari og sterkari sem kjúklinga-
vængirnir eru því hrekkjavökulegra.
Buffalo vængir
Kjúklingavængir
„Buffalo wings“-krydd eða blanda af
cayenne-pipar, salti og hvítlauks- eða
laukdufti.
Aðferð: Vængirnir klipptir sundur á
liðamótum og þurrkryddaðir. Látnir í
170 gráðu heitan ofn á grillplötu svo
fitan geti lekið af þeim. Mikilvægt er
að hafa vængina lengi í ofninum, eða
um það bil klukkustund, þar til fitan
hefur lekið úr þeim. Þá eru vængirnir
settir í ofnskúffu, og mikið af „Buffalo
wings“ sósunni hellt yfir. Aftur eru
vængirnir látnir bakast lengi í sósunni.
Að lokum er meiri sósu hellt yfir rétt
áður en þeir eru bornir fram. Þetta er
ákaflega viðeigandi þar sem vængirnir
eru rauðir og mjög sterkir.
Karamelluhúðuð epli
Lítil epli
Karamellusósa
150 g sykur
1 msk. smjör
1 1/2 dl rjómi
Aðferð: Sykurinn er brúnaður á þurri
pönnu þar til hann verður karamellu-
brúnn og fer að krauma. Setjið þá
smjörið út í og blandið vel. Hellið
rjómanum saman við og sjóðið í 4 til
6 mínútur.
Litlum prikum er stungið í eplin og
þeim dýft í karamellulöginn. Látið
harðna á smjörpappírsklæddri bökun-
arplötu. Mikið lostæti.
Sem prik er hægt að nota íspinnaprik,
kínverska prjóna eða jafnvel sogrör.
24-25 (02-03) Allt-matur 28.10.2004 16:09 Page 2