Tíminn - 06.02.1974, Síða 14
14
TÍMINN
Miðvikudagur 6. febrúar 1974.
Eiríkur klif raði upp í bátinn, vék hann þeirri hugsun frá
sér sem hverri annarri vitleysu. Báturinn snerti haf-
flötinn, og á næsta andartaki steðjuðu þeir inn til
strandainnar.
Eirikur sat aftur í skut og horfði aftur til skipsins.
Hann sá, að þar var verið að undirbúa aðra kröku, og
meðan hann virti fyrir sér mennina að störfum, varð
honum hugsað til Sjálendingsins.
Eiríkur var ekki síður hjátrúarfullur en Jónas og
raunar flestir um borð, en hann hafði þó sínar grun-
semdir. Heilbrigð skynsemi hans sagði honum, að þetta
væri fráleitt og fáránlegt. En tilhugsunin hafði fest
rætur, og hann fylltist hryggð, er hann leit á Nielsen með
stórskaddaðan handlegginn.
Af hverju hafði skipstjórinn einmitt valið hann til þess
að fara með Nielsen í land? Það hafði svo sem ekki
staðið á skýringunum: að hann væri aðallega starfandi
við baujurnar, og hann gæti því séð af honum af því að
ekki þyrfti að nota baujurnar strax. Engu að síður var
honum ekki rótt, og honum fannst hann vera komirín í
slagtog með illum vættum.
En svotók hann að hugsa um stúlkuna, sem tilvil junin
hafði nú veitt honum tækifæri til að hitta, — en sú til-
hugsun var jafnvel ekki eins unaðsleg og áður.
Öhugnaðurinn og sérkennin hjá þessum könum f rá Noto,
— það var eins og hvort tveggja þetta væri honum I jósara
eftir atburði morgunsins. Ennþá var hann hrifinn af
ungu stúlkuni, eri þó var eitthvað í vitund hans, sem hélt
aftur af honum.
Þeir voru nú komnir að landi, og japönsku tækni-
mennirnir stóðu í sandinum til að taka á móti þeim.
Þetta var þeim ánægjuleg tilbreyting í fásinninu.
Nielsen, Petit og Eiríkur fóru í land, en báturinn hélt
aftur út að skipi, eftir að menn höfðu komið sér saman
um, hvaða merki skyldi nota, þegar kallað yrði á bátinn
aftur.
Enginn kvenmaður var sjáanlegur.
Símafélagið átti þrjár hlaupakerrur, og nú var komið
með þær, á meðan beðið var eftir hlaupurunum. Hinn
japanski vinur Eiríks tók hann afsiöis.
— Unga stúlkan yðar segist vilja tala við yður í húsi
sínu eitthvert kvöldið, þegar myrkt er orðið, sagði hann.
En ég myndi ekki fara þangað í yðar sporum. Ég held, að
þær búi yf ir einhverju voðalegu, þessar kvensur. Ég veit
ekki, hvað þér hafið gert, að þær skuli láta svona. Þær
þykjast svosem hlæja, en þær eru í rauninni bálvondar.
Eiríkur hló.
— Látum þær bara brugga launráð, sagði hann. Ég vil
ekkert eiga saman við þær að sælda.
— Hún sagði, að ég skyldi segja yður, að hún hefði
fundið blómin frá yður.
— Jæja, sagði hún það? Sagði hún nokkuð fleira?
— Nei, hún sagði ekkert fleira.
— Haldið þér, að hún sé lika reið?
— Já, það held ég. Hún lét nú samt, eins og hún væri
vingjarnleg, en þá er kvenfólkið hvað hættulegast.
Eirikur hafði eignazt vináttu mannsins með því að
gefa honum tóbaksdósirnar. Hann var bersýnilega sann-
færður um, að grunur hans væri réttur, og Eiríkur var
ekki í neinum minnsta vafa um, að ef þessar kvensur
næðu tökum á honum, myndu þær meðhöndia hann á
harla ókvenlegan hátt. Hvað ungu stúlkunni viðvék, var
hann sjálf ur í nokkrum vafa. Ást hans til hennar, ef ást
skyldi kalla — eins og hún hafði þróazt fram á þessa
stund — hafði bersýnilega orðið fyrir áfalli um morgun-
inn. Þegar hann sat í hlaupakerrunni og hélt á eftir
hinum inn í þorpið, varð honum samt litið að kofanum
hennar. Hann virtist vera tómur, og það var ekki nokkur
mannvera sjáanleg á götunum á milli húsanna í þorpinu.
Hlaupararnir voru hálfa aðra klukkustund á leiðinni
til Nanaó.
Notoskagi er eins og gríðarstór handleggur, sem teygir
sig út í Japanshafið, og bendir olnboginn á Kóreu.
Toyama, sem er endastöð járnbrautarinnar, er i handar-
krikanum, og Nanó í armbeygjunni. Fjarlægðin á milli
bæjanna tveggja er um sextíu kílómetrar.
Hlaupakerrurnar liðu eftir hrísgrjónaökrum, og
hlaupararnir lögðu inn á veginn, sem liggur framhjá
gamla, stóra musterinu, sem er helgað Kúannon,
frelsara sálnanna. Allt í kring höfðu trjárætur sprengt
múrana, og hinar skelfilegu Ni-O-höggmyndir, sem
vöktu við innganginn og eittsinn höfðu verið málaðarblóð
rauðar, voru nú gráar af elli, alveg eins og musterið
sjálft. í heitu sumarloftinu heyrðist gargið í haukunum,
sem svifu um lengst uppi í loftinu, og beggja megin við
veginn niðuðu tré og runnar af kvaki smáfuglanna.
Þegar Nanao birtist, reyndist þetta vera af langur bær
í greniilmandi dal, ólýsanlegt furðuverk. í f jarska sást
grilla í hafið.
Sjúkrahúsið, sem byggt hafði verið í styrjöldinni við
Kína, var hreinleg og loftgóð bygging. Þarna var læknir
starfandi, og hann hafði þegar í stað samband við yfir-
mann sinn í Toyama og bað hann að koma. Eiríkur skildi
þá læknana eftir og reikaði út á götu.
Honum fannst það afskaplega furðulegt að sjá húsin
með lituðu pappírsrúðunum, og mosaþökin, alsett
purpuralitum blómum. Honum fannst engu líkara en
hann væri kominn til leikfangalands, og fyrir hugskots-
sjónum hans stóð Ijóslifandi mynd af kassa með smá-
húsum og grænum trjám, sem faðir hans hafði einu sinni
keypt handa honum í Reykjavík. Á götunni var urmull af
HUELL
G
E
I
R
I
D
R
E
K
I
K
U
B
B
U
R
Þetta er lagleg )/' Meira en JS
hrúga Zarkov. ÉgC(þrjú hundruðv,
veit ekki hvort við
'eigum peningaj^.
fyrir þessu.
þúsund, Lucky
Einmitt það sem-
Jack Hammes "
skul£ar þér.y.
luJillifff
|
Miðvikudagur
6. febrúar
7.00 Morgunútvarp
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar.
13.00 Við vinnuna: Tónleikar.
14.30 Sfðdegissagan: „Dyr
standa opnar” eftir Jökui
Jakobssonjíöfundur les (5).
15.00 Miðdegistónleikar:
16.00 Fréttir. 16.15 Veður-
fregnir.
16.20 Popphornið
17.10 ÍJtvarpssaga barnanna:
„Smyglararnir i skerja-
garðinum” eftir Jón Björns-
son. Margrét Helga Jó-
hannsdóttir les (5).
17.35 Framburðarkennsla i
spænsku
17.45 Tónleikar. Tilkynningar.
18.30 Fréttir. 18.45 Veður-
fregnir. 18.55 Tilkynningar.
19.00 Veðurspá. Bein linaUm-
sjónarmenn Arni Gunnars-
son og Einar Karl Haralds-
son.
19.45 Til umhugsunar. Þáttur
um áfengismál i umsjá
Sveins H. Skúlasonar.
20.00 Kvöldvaka
21.30 Útvarpssagan: „Tristan
og ísól” eftir Joseph Bédier
Einar Ól. Sveinsson
prófessor islenzkaði og flyt-
ur formálsorð. Kristin Anna
Þórarinsdóttir leikkona
byrjar lesturinn.
22.00 Fréttir. ' 22.15 Veður-
fregnir. Morðbréf Margeirs
K. Laxdals, — fimmti hluti
Saga eftir Hrafn Gunn-
laugsson i útvarpsgerð
höfundar. Flytjendur með
honum: Rúrik Haraldsson
leikari, Orn Þorláksson og
Lárus Óskarsson.
22.55 Islandsmótið i hand-
knattieik Jón Asgeirsson
lýsir.
23.20 Nútimatónlist. Halldór
Haraldsson kynnir.
23.55 Fréttir i stuttu máli.
Dagskrárlok.
MIÐVIKUDAGUR
6. febrúar 1974
18.00 Maggi nærsýni.
18.05 Skippi. Ástralskur
myndaflokkur fyrir börn og
unglinga. Þýðandi Jóhanna
Jóhannsdóttir.
18.30 Svona eru börnin — i
Alsir. Norskur fræðslu-
myndaflokkur um börn I
ýmsum heimshlutum. Þýð-
andi og þulur Ellert Sigur-
björnsson.
18.45 Gitarskólinn. Gitar-
kennsla fyrir byrjendur. 1.
þáttur. Kennari er Eyþór
Þorláksson og styðjast
þættirnir við samnefnda git-
arkennslubók eftir hann,
sem nýkomin er út, og fæst i
bókaverslunum um land
allt.
19.25 Hlé
20.00 Fréttir
20.25 Veður og auglýsingar
20.30 Lif og fjör i læknadeild.
20.55 Krunkað á skjáinn.
Þáttur með blönduðu efni
varðandi fjölskyldu og
heimili. Meðal efnis i þætt-
inum er viðtal við krafta-
manninn Reyni örn Leós-
son. Umsjónarmaður
Magnús Bjarnfreðsson.
21.35 Spekingar spjalla.
Hringborðsumræður
Nóbelsverðlaunahafa i
raunvisindum árið 1973 um
vandamál samtiðar og
framtiðar. Þátttakendur
eru Leo Esaki og Ivar Gia-
ever, sem hlutu verðlaun i
eðlisfræði, Konrad Lorenz
og Nikolaas Tinbergen, sem
hlutu læknisfræðiverðlaun-
in, og Geoffrey Wilkinson og
Ernst Otto Fischer, sem
hlutu efnafræðiverðlaunin.
Umræðunum stýrir Bengt
Feldreich. Þýðandi Óskar
Ingimarsson. (Nordvision
— Sænska sjónvarpið)
22.30 Dagskrárlok