Tíminn - 06.02.1974, Blaðsíða 16
16
TÍMINN
Miðvikudagur 6. febrúar 1974
Bayi setti glæsi-
legt heimsmet í
1500 m hlaupi...
SVAVAR
SIGRAÐI
í OPNA
FLOKKNUM
Hann bætti þar með 7 ára gamalt
met Jims Ryuns um eina sekúntu.
Raui hljóp á 3:32.2 mín.
TANZANÍUMAÐURINN Filbert Bayi setti frá-
bært heimsmet i 1500 metra hlaupi á Samveldis-
leikunum i Christchurch i Ástraliu. Hann hljóp
vegalengdina á 3:32.2 mín. og bætti þar með 7 ára
gamalt met Bandarikjamannsins Jims Ryuns,
um eina sek., en gamla metið, sem var sett í Los
Angeles 1967, var 3:33.1 sek. Keppnin i 1500 m
hlaupinu var geysilega spennandi og náði Bayi
fljótt forustunni, en þegar fór að líða á hlaupið fór
John Walker frá Nýja-Sjálandi að draga á hann
og siðasta hringinn var Walker hvattur áfram af
áhorfendum, en það dugði ekki. Walker kom i
markið á eftir Bayi, hann hljóp á 3:32.5, sem er
einnig betri árangur en fyrrum heimsmet Ryuns.
Hér birtum við til gamans ellefu beztu timana i 1500 m hlaupi frá
upphafi: Filbert Bayi, Tanzania 3.32.2 Christchurch Ár: 1974
John Walker, New Zeland 3.32.5 Christchurch 1974
James Ryun, USA 3.33.1 Los Angeles 1967
Ben Jipcho, Kenya 3.33.2 Christchurch 1974
Rodney Dixon, New Zealand3.33.9 Christchurch 1974
Jean Wadoux, Frankrike 3.34.0 Colombes (Paris) 1970
Graham Crouch, Australia 3.34.2 Christchurch 1974
Kipchoge Keino, Kenya 3.34.9 Mexico City 1968
David Wottle, USA 3.35.3 Eugene, Oregon + 1973
Herbert Elliott, Australia 3.35.6 Roma 1960
Michel Jaxy, Frankrike 3.35.6 Rennes + 1965
FLJÓTAMENN
SIGURSÆLIR
í GÖNGU
Punktamótið í skíðagöngu heppnaðist
vel í Hveradölum
Fljótamennirnir Magnús viö Skíðaskálann í Hvera-
Eiríksson og Reynir dölum. Magnús vann yfir-
Sveinsson, sigruðu glæsi- burðasigur í 15 km göngu,
lega í punktamótinu í hann fór vegalengdina á
53.15 mín. Reynir vann 10
km göngu, fór vega-
lengdina á 37.30 mín.
Brautirnar sem gengið var
á, lágu á flötunum fyrir
framan Skíðaskálann og
voru þær mjög vel lagðar
og skemmtilegar.
Úrslitin i punktamótinu, urðu
þessi:
10 km. 17-Í9 ára.
1. Reynir Sveinsson F. 37.30
2. Þröstur Jóhannesson 1. 40.38
15. km. 20 ára og eldri
1. Magnús Eiriksson F. 53.15
2. Kristján R. Guðmundsson
1. 55.41
3. Guðmundur Sveinsson R. 56.44
4. Sigurður Gunnarsson 1. 58.36
5. Guðjón Höskuldsson 1. 59.13
6. Viðar Kárason R. 61.19
7. Kristján B. Guðmundsson
t. 62.22
8. Hermann Guðbjörnsson R. 64.19
9. Július Arnarson R. 72.34
10. Jóhann Jakobsson R. 75.07
skiðagongu, sem for fram
Magnús Eiriksson.
FILBERT BAYI.... sést hér koma I markið i giæsilegu heimsmeti 11500
m hlaupinu á Samveidisleikunum. Ný-Sjálendingurinn JOHN
WALKER.... sést'fyrir aftan Bayi, en hann hljóp einnig á betri tima en
heimsmet Ryuns frá 1967.
KNATTSPYRNU-
MENN A-ÞÝZKA-
LANDS FÁ NÓG
AÐ GERA...
A-Þjóðverjar eru nú þegar búnir að
óætla sex landsleiki fyrir HM í sumar
Austur-Þýzka landsliðið
i knattspyrnu, sem
leikur í riðli með íslend-
ingum í Evrópukeppni
landsliða, ásamt Beigíu-
mönnum og Frökkum,
er nú byrjað að undirbúa
sig fyrir HM-keppnina i
knattspyrnu, sem fer
fram i Vestur-Þýzka-
landi í júni. Austur-
Þýzka liðið mun leika
sex landsleiki og fara
þeir fram sem hér segir.
A-Þýzka liðið heldur til
Afriku nú i lok mánaðarins og
leikur þar tvo leiki — gegn
Alsir 26. febrúar og Túnis 28.
febrúar. Siðan leikur liðið
fjóra leiki á heimavelli en þeir
eru þessir:
13. marz: Belgia i A-Berlin
27. marz: Tékkóslóvakia i
Dresden
23. mai: Noregi i Rostock
29. mai: Englandi i Leipzig
Á mánudaginn lék A-Þýzka
landsliðið gegn tékknesku 1.
deildarliði, Sammensatt Lag,
og iauk þeim leik með jafntefli
0:0.
Afmælismót Júdó-
sambands íslands
fór fram í Njarðvík-
um um sl. helgi
JÚDÓKAPPINN kunni,
Svavar Carlsen, sigraði í
opna flokknum á afmælis-
móti Judósambands ís-
lands, sem háð var í
íþróttahúsinu í Ytri-Njarð-
víkum sl. laugardag. Svav-
ar hlaut veglegan silfur-
bikar, sem var i fyrsta
skipti keppt um, en Skipa-
smiðastöð Njarðvíkur h.f.
gaf hann.
Mótið heppnaðist mjög vel og
urðu úrslit sem hér segir:
Fullorðnir
Opinn flokkur
(án þyngdartakmarkana)
1. Svavar Carlsen
1. dan (JFR)
2. Sigurjón Kristjánsson
1. jan (JFR)
3. -4. Sigurður Kr. Jóhannss.
1. dan (JFR)
3.-4. össur Torfason
1. dan (Gerplu)
Þungavigt (yfir 93 kg)
1. Svavar Carlsen
1. dan (JFR)
2. Sigurður Ingólfsson
6. kyu (UMFK)
Léttþungavigt (80-93 kg)
1. Sigurður Kr. Jóhannss.
1. dan (JFR)
2. Guðmundur Rögnvaldsson
3. kyu (JFR)
3. Halldór Guðnason
6. kyu (JFR)
Millivigt (70-80 kg)
1. Sigurjón Kristjánsson
1. dan (JFR)
2. össur Torfason
1. dan (Gerplu)
3. -4. Jón Guðlaugsson
6. kyu (UMFK)
3.-4. Jóhann Héðinsson
6. kyu (Gerplu)
Framhald á bls. 19
»»SDg0g«l
BOLTAR
Blakboltar
Fótboltar
Handboltar
Körfuboltar
Sundpóloboltar
PÓSTSENDUM
^ 'Tl---
Sportvöruverzlun
Ingólfs Óskarsnonar
Klapparstlg 44 — Siml 11783 — Reykjavfk