Fréttablaðið - 03.12.2004, Page 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
FÖSTUDAGUR
NÚTÍMA ARKÍTEKTUR Einn þekkt-
asti arkítekt Frakka, Jean Nouvel, mun
halda fyrirlestur um verk sín í Öskju, nátt-
úrufræðahúsi HÍ klukkan 17 í dag.
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
3. desember 2004 – 331. tölublað – 4. árgangur
MESTA HÆKKUN STÝRIVAXTA
SEÐLABANKANS Stýrivextir voru
hækkaðir í gær úr 7,25 í 8,25 prósent.
Seðlabankinn telur að grípa þurfi hratt til
aðgerða því þensla er meiri en talið var
áður. Hagvöxtur á næsta ári verður 6,1 pró-
sent samkvæmt spá bankans. Sjá síðu 2
HÚSNÆÐISLÁN HÆKKUÐ OG
VEÐRÝMI AUKIÐ Félagsmálaráðherra
tilkynnti hækkun hámarksíbúðalána upp í
14,9 milljónir þegar Alþingi samþykkti 90%
lán í gær. Íbúðalánasjóður gefur eftir fyrsta
veðrétt. Sjá síðu 4
KEYPTI TÖLVULEIKI FYRIR
HLUTA RÁNSFENGSINS Jón Þorri
Jónsson var, í Héraðsdómi Reykjavíkur,
dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir vopnað
rán í Búnaðarbankanum á Vesturgötu.
Ránsfenginn notaði hann til að greiða fíkni-
efnaskuld og kaupa tölvuleiki. Sjá síðu 6
Kvikmyndir 46
Tónlist 48
Leikhús 48
Myndlist 48
Íþróttir 40
Sjónvarp 56
nr. 48 2004
SJÓ
NV
AR
PS
DA
GS
KR
ÁI
N
3.
de
s.
– 1
0.
de
s.
fólk tíska sambönd stjörnuspá persónuleikapróf
» Skrýtinn á skrýtinn hátt «
LÍKA FYRIR STRÁKA
» Í miðju blaðsins
JÓLABIRTA
gunnidr.
Skrýtinn á
skrýtinn hátt
Dr. Gunni:
▲
FYLGIR FRÉTTABLAÐINU DAG
● bókakápur ● jakkapeysur eru í tísku
ÉL NORÐAN TIL en stöku él vestan til
framan af degi en síðan þurrt. Gæti orðið
slydda með morgninum syðra. Vægt frost
nyrðra en eilítið yfir frostmarki allra syðst á
landinu. Sjá síðu 4
Veffang: visir.is – Sími: 550 5000
25-50 ára
Me›allestur dagblaða
Höfuðborgarsvæðið
Samkvæmt fjölmi›lakönnun Gallups október '04
80%
50%
MorgunblaðiðFréttablaðið
21 dagur til jóla
Opið til kl. 19 í kvöld● jólin koma ● matur ● tilboð
Með sjálfvalda
matarsérvisku
Eva María Jónsdóttir:
▲
Í MIÐJU BLAÐSINS
www.postur.is
3.12.
Síðasti öruggi skiladagur
á jólapökkum
til landa
utan
Evrópu!
SAMSTARF Líftæknifyrirtækin Urð-
ur, Verðandi, Skuld (UVS) og ACL-
ARA BioSciences tilkynntu um
samstarf í gær um rannsóknir á
erfðaefni í krabbameinsæxlum.
Ekki fékkst gefið upp hvað
ACLARA mun borga UVS fyrir
afnot af blóð- og æxlissýnum auk
þess mun ACLARA fá aðgang að
sjúkrasögu þeirra íslensku krabba-
meinssjúklinga sem tekið hafa þátt
í íslenska krabbameinsverkefninu
sem UVS hefur staðið fyrir. ACL-
ARA mun einnig deila með UVS
niðurstöðum rannsóknarinnar,
sem mun bætast við gagnagrunn
þeirra.
Þórunn Rafnar, hjá UVS, segir
að þetta sé afmarkað verkefni en
möguleiki verði á framhaldi. Rann-
sakað verður af hverju sumir
krabbameinssjúklingar bregðast
við lyfjum og sumir ekki.
Sérstaklega er það þekkt meðal
þeirra sem hafa brjósta- eða
lungnakrabbamein að sjúklingar
bregðist við sumum lyfjum en ekki
öðrum. Þórunn segir það mikil-
vægt að geta valið rétt lyf, svo ekki
sé verið að gefa lyf að óþörfu.
Að sögn Þórunnar mun ACL-
ARA hafa ákveðið að hefja sam-
starf við UVS vegna þess sýna-
safns og gagnagrunns sem þar er
til staðar. UVS hafi tekið þátt
í viðamiklum krabbameinsrann-
sóknum og eigi því sjaldgæfan
efnivið sem er nauðsynlegur fyrir
slíkar rannsóknir. „Það er sjald-
gæft að til eru áreiðanlegar
klínískar upplýsingar,“ segir
Þórunn. „Það er erfitt hjá stærri
þjóðum að halda utan um þær, því
það er mikil hreyfing á fólki og það
týnist úr meðferðum. Hér er af-
markaður hópur lækna sem með-
höndlar krabbameinssjúka og því
er hægt að fylgja sjúklingum betur
eftir og athuga hvort krabbamein
komi upp aftur.“
Líftæknifyrirtækið ACLARA
starfar í Kaliforníu og sérhæfir
sig í því að einstaklingsbundin lyf
verði að raunveruleika. Til þess
notar fyrirtækið eTagTM tækni
sem mælir stöðug prótein í líf-
vefjum. - ss
Menntaskólinn á Akureyri:
200 nemendur með niðurgang
AKUREYRI Meirihluti þeirra sem
snæddu pottrétt í sameiginlegu
mötuneyti Menntaskólans á Ak-
ureyri og Verkmenntaskólans á
Akureyri síðasta þriðjudagskvöld
fékk heiftarlega magakveisu og
niðurgang. Læknir kom í Mennta-
skólann á miðvikudaginn til að
taka saursýni en í gær lá niður-
staða vegna sýnatökunnar ekki
fyrir.
Jón Ingi Björnsson, nemandi
sem er í heimavist skólans, segir
að ástandið hafi verið afar slæmt
á miðvikudaginn. Nemendur hafi
í tíma og ótíma þurft að hlaupa úr
tímum til að fara á klósettið.
Hann segir að haldin sé skrá yfir
þá sem mæta í mat og að umrætt
kvöld hafi í kringum 200 manns
skráð sig.
„Bróðurparturinn af þeim
fékk rosalega magakveisu og nið-
urgang - sumir ældu,“ segir Jón
Ingi. „Tveir strákar á mínum
gangi voru alveg að drepast enn í
dag [í gær].“
Jón Már Héðinsson skóla-
meistari MA staðfesti að fólk
hefði veikst en sagðist ekki vita
hversu margir. Hann sagðist ekki
vilja tjá sig um málið þar sem nið-
urstaða úr sýnatökunni lægi ekki
fyrir. - th
Mislukkuð lagasetning:
Sleppa við
erfðaskattinn
DÓMSMÁL Sex erfingjar sem fengu
samanlagt um 65 milljónir króna í
arf þurfa engan erfðafjárskatt að
greiða. Ástæðan eru mistök sem
gerð voru við lagasetningu. Sýslu-
maðurinn í Reykjavík rukkaði erf-
ingjana um tæpar sex milljónir
króna í erfðafjárskatt en Hæsti-
réttur dæmdi í gær að engin heim-
ild hefði verið fyrir skattlagning-
unni.
Þegar ný lög um erfðafjárskatt
voru samþykkt voru eldri lög felld
úr gildi. Þar sem nýju lögin tóku
aðeins til skattlagningar arfs eftir
þá sem létust eftir 1. apríl féll nið-
ur heimild til að skattleggja arf
eftir þá sem létust fyrir 1. apríl en
var ekki búið að skattleggja. - bþg
ÚR MÖTUNEYTI
MENNTASKÓLANS Á AKUREYRI
Meirihluti þeirra sem snæddu kvöldverð á
þriðjudag í mötuneytinu fengu heiftarlega
magakveisu.
Selja aðgang að
sjúkrasögum
Bandaríska líftæknifyrirtækið ACLARA mun borga Urði, Verðandi,
Skuld fyrir afnot af blóð- og æxlissýnum úr íslenska krabbameinsverkefn-
inu. Einnig fær ACLARA aðgang að sjúkrasögum krabbameinssjúklinga.
SPRENGT FYRIR VATNSLEIKJAGARÐI Tvær byggingar hrundu í sprengingu á Shiliupu hafnarbakkanum í Sjanghæ í gærkvöldi. Húsin
voru eyðilögð til að rýma fyrir stærsta vatnsleikjagarði heims. Fyrir var á hafnarbakkanum stærsta farþegasiglingamiðstöð Kína, sem byggð
var fyrir 142 árum.
Norska fjársvikamálið:
Milljóna tap
Íslendinga
FJÁRSVIK Á annað hundrað Íslend-
inga lét ginnast af gylliboðum
um gull og græna skóga þegar
þeir lögðu fé í norska
pýramídafyrirtækið The Five
Percent Community.
Fjársvikamálið er þegar orðið
hið stærsta sinnar tegundar í
Noregi en talið er að höfuðpaur-
arnir hafi haft ellefu milljarða
íslenskra króna upp úr krafsinu.
Ellefu þeirra hafa verið hand-
teknir.
Alls nema fjárfestingar Ís-
lendinganna um þrjátíu milljón-
um króna. Um óverulegar upp-
hæðir er að ræða í flestum til-
vikum en þó eru dæmi um að
fólk hafi lagt milljónir í ævintýr-
ið. Það fé er að öllum líkindum
glatað.
Fjármálaeftirlitið hefur í
mörgum tilvikum varað sérstak-
lega við fyrirtækjum af þessu
tagi en það var ekki gert með
þetta norska fyrirtæki. Líklega
er það vegna þess að engar kvar-
tanir eða ábendingar bárust
Fjármáleftirlitinu, sem þó ávallt
varar við slíkum fyritækjum.
Sjá síðu 22
M
YN
D
A
P
01 Forsíða 2.12.2004 22:00 Page 1