Fréttablaðið - 03.12.2004, Qupperneq 2
2 3. desember 2004 FÖSTUDAGUR
Þingveisla forsetans:
Þorri sjálfstæðismanna mætti ekki
STJÓRNMÁL Sautján af tuttugu og
tveimur þingmönnum Sjálfstæð-
ismanna voru forfallaðir í gær
þegar Ólafur Ragnar Grímsson,
forseti Íslands bauð þingheimi til
árlegrar veislu í tilefni fullveld-
isdagsins 1. desember. Þorri ann-
arra þingmanna sótti hins vegar
veisluna.
Einar K. Guðfinnsson, for-
maður þingflokks Sjálfstæðis-
manna segir að ekki beri að lesa
neitt í þessa slöku mætingu:
„Þetta voru ekki samantekin ráð.
Hver þingmaður hefur haft sína
ástæðu.“
Mörður Árnason, þingmaður
Samfylkingarinnar sagði þetta
miður: „Þetta fólk hefur félags-
þroska á við tíu ára bekk.“
Steingrímur J. Sigfússon, for-
maður Vinstri-grænna segir
málið sérkennilegt: „Þetta vakti
óneitanlega athygli enda vissu-
lega mikil forföll“. Einungis
Sturla Böðvarsson ráðherra,
Kjartan Ólafsson, Katrín Fjel-
sted, Pétur Blöndal og Halldór
Blöndal, forseti Alþingis, sóttu
veisluna á Bessastöðum. Þess má
geta að frí var á Alþingi í gær,
einni fárra ríkisstofnanna. - ás
Stýrivextir aldrei
hækkað meira
Stýrivextir voru hækkaði í gær úr 7,25 í 8,25 prósent. Seðlabankinn telur
að grípa þurfi hratt til aðgerða því þensla er meiri en talið var áður.
Hagvöxtur á næsta ári verður 6,1 prósent samkvæmt spá bankans.
EFNAHAGSMÁL Verðbólguspá Seðla-
bankans gerir ráð fyrir að verð-
bólga fari langt upp fyrir mark-
mið Seðlabankans á næsta og þar
næsta ári. Í gær var tilkynnt um
eins prósentustigs hækkun stýri-
vaxta sem ætlað er að stuðla að
því að spáin rætist ekki. Stýri-
vextir bankans eru því 8,25 pró-
sent.
„Til þess að hafa nægilega
skjót áhrif á verðbólguna þarf að
bregðast hratt og tímanlega við,“
sagði Birgir Ísleifur Gunnarsson
seðlabankastjóri í gær.
Vaxtahækkunin í gær er sú
mesta sem Seðlabankinn hefur
tilkynnt um í einu vetfangi. Þetta
kemur ofan á aðrar vaxtahækk-
anir í ár en Seðlabankinn hefur
nú hækkað stýrivexti um 2,95
prósentustig í ár.
Ný þjóðhagsspá Seðlabankans
gerir ráð fyrir mun meiri hag-
vexti en áður var spáð. Í síðustu
þjóðhagsspá, sem gefin var út í
júní, var gert ráð fyrir að hag-
vöxtur í ár yrði 4,3 prósent, 4,7 á
næsta ári og 4,5 árið 2006. Nú spá-
ir Seðlabankinn 5,4 prósenta hag-
vexti í ár, 6,1 prósents á næsta ári
og 4,9 prósent árið 2006.
Fram kom í máli Birgis Ísleifs
að viðbrögð einstaklinga við
auknum lánamöguleikum hafi
verið kröftugri en búist var við.
Þetta gerir það að verkum að
einkaneysla er talin munu aukast
hraðar en áður var talið auk þess
sem verðmæti íbúðarhúsnæðis
muni hækka hraðar. Seðlabank-
inn bendir einnig á að fram-
kvæmdir við stóriðju verði fyrr
en áður var gert ráð fyrir.
Birgir Ísleifur sagði einnig að
skattalækkanir ríkisstjórnarinn-
ar hefðu áhrif. „Það verður að
telja verulegar lílkur á því að að-
hald í opinberum fjármálum
verði ófullnægjandi,“ sagði hann.
Seðlabankinn gerir ráð fyrir að
yfirlýst markmið fjármálaráðu-
neytisins um aðhald í ríkisrekstri
standist ekki. Seðlabankinn gerir
ráð fyrir að vöxtur samneyslunn-
ar verði meiri en ráðuneytið held-
ur fram.
Seðlabankinn tilkynnti einnig í
gær að bankinn muni hætta að
kaupa gjaldeyri til að styrkja
gjaldeyrisforða bankans. Þessi
ákvörðun er einnig talin stuðla að
styrkingu krónunnar.
thkjart@frettabladid.is
Flugþjónustan:
Dæmd til
greiðslu bóta
DÓMSMÁL Hæstiréttur dæmdi
Flugþjónustuna á Keflavíkurflug-
velli til að greiða fyrrum starfs-
manni bætur vegna fyrirvara-
lausrar uppsagnar.
Manninum var sagt upp eftir
að ýfingar höfðu orðið á milli hans
og yfirmanns hans. Hann sló
kaffibolla úr hendi yfirmannsins
að mörgum mönnum ásjáandi.
Ekki var talið sannað að maðurinn
hefði gerst sekur um líkamsárás.
Því var háttsemi mannsins ekki
talin svo alvarleg að fyrirvaralaus
uppsögn væri réttlætanleg. Fékk
maðurinn því greiddar tæplega
700 þúsund krónur í bætur. ■
Já og gott betur. Það var fjöldi manns
sem táraðist þegar hann tók Mama,
maður sá vasaklútana á lofti. Það var
standandi lófatak í lokin og fleiri
aukalög tekin en ég átti von á.
Óttar Felix Hauksson stóð fyrir tónleikum
Robertinos í Austurbæ í fyrrakvöld. Þetta voru
fyrstu tónleikar Robertinos hér frá 1961.
SPURNING DAGSINS
Óttar, stóð Robertino undir væntingum?
Bandaríkjaher í Írak:
Fjölgað í
herliðinu
BANDARÍKIN, AFP Bandaríkjastjórn
ætlar að fjölga hermönnum í Írak
um tólf þúsund
fyrir kosning-
arnar sem á-
ætlaðar eru 30.
janúar. Her-
mennirnir eru
138 þúsund í
dag en verða
150 þúsund
þegar kosning-
arnar fara
fram og hafa
ekki verið fleiri
síðan George
W. Bush Banda-
ríkjaforseti lýsti því yfir að meiri-
háttar átökum væri lokið.
Hermönnum fjölgar að á þann
hátt að þeir sem áttu að hafa lokið
störfum sínum í Írak verða látnir
þjóna lengur.
Bush lagði í gær mikla áherslu
á að kosningar færu fram 30.
janúar en nokkrir flokkar Íraka
hafa hvatt til þess að þeim verði
frestað. ■
Hæstiréttur:
Fangelsi fyrir
líkamsárás
DÓMSMÁL Hæstiréttur staðfesti
átta mánaða fangelsisdóm Hér-
aðsdóms Austurlands yfir manni
fyrir þrjár líkamsárásir. Árásirn-
ar framdi maðurinn á hálfs árs
tímabili frá desember árið 2002 til
maí árið 2003.
Maðurinn rauf skilorð með
árásinni sem hann framdi rétt
fyrir jól árið 2002. Hann hefur
fjórum sinnum áður hlotið dóma
fyrir líkamsárásir. Manninum var
gert að greiða allan áfrýjunar-
kostnað þar með talin 200 þúsund
króna málsvarnarlaun verjanda
síns. - hrs
MIÐ-AUSTURLÖND, AFP Mikil óvissa
ríkir um framtíðina fyrir botni
Miðjarðarhafsins.
Framboð Marwan Barghuti
hefur gjörbreytt landslaginu í
palestínsku forsetakosningunum
og Ariel Sharon rær lífróður að
því að mynda nýja ríkisstjórn í
stað þeirrar sem rann út í sand-
inn vegna deilna um fjárlögin.
Barghuti er í ísraelsku fang-
elsi og er ekki útlit fyrir að hann
sleppi þaðan, því hann afplánar
fimm lífstíðardóma. Hann er þó
mjög vinsæll meðal palestínskr-
ar alþýðu og talinn líklegastur til
að veita Mahmud Abbas, for-
manni PLO, keppni um forseta-
embættið í komandi kosningum.
Barghuti verður að há kosn-
ingabaráttuna úr fangelsi og ef
hann nær kjöri þarf hann einnig
að stjórna Palestínu þaðan. Ef
hann nær kjöri, myndi það að
öllum líkindum þýða að ekkert
yrði úr samningaviðræðum við
Ísrael.
Ariel Sharon, forsætisráð-
herra Ísraels, missti síðustu
samherja sína úr ríkisstjórn
þegar hann rak ráðherra Shinui
úr stjórninni eftir að þeir
greiddu atkvæði gegn fjárlaga-
frumvarpi ríkisstjórnarinnar.
Þeir gátu ekki sætt sig við styrki
til skóla sem samtök strang-
trúaðra gyðinga reka enda var
barátta gegn miklu valdi strang-
trúaðra gyðinga eitt af höfuð-
málum þeirra í síðustu kosning-
um.
Sharon reynir nú að fá helsta
stjórnarandstöðuflokkinn, Verka-
lýðsflokkinn, og flokka strangtrú-
aðra gyðinga til að mynda nýja
ríkisstjórn með sér. Ljóst er þó að
það mætir andstöðu í Likudbanda-
lagi hans. ■
Stjórnarkreppa í Ísrael og aukin spenna í palestínsku forsetakosningunum:
Sharon reynir að mynda stjórn
MÆTT TIL VEISLU
Halldór Blöndal, forseti Alþingis, var einn
fárra sjálfstæðismanna sem mætti í þing-
veislu forsetans 1. desember.
Greiningardeildir
bankanna:
Spáðu minni
hækkun
EFNAHAGSMÁL Greiningardeildir
bankanna höfðu allar gert ráð fyrir
vaxtahækkun en hún var meiri
en þær spáðu. Greiningardeild
Landsbankans segir að hækkunin í
gær hafi verið nauðsynleg til þess
að stýrivextir Seðlabankans hafi
þau áhrif sem þeim sé ætlað.
KB banki, sem hafði spáð 0,25
prósentustiga hækkun, var gagn-
rýnni á vaxtahækkunina í Hálf-
fimm fréttum í gær. KB banki seg-
ir að með þessu gefi Seðlabankinn
til kynna að hann hyggist beita
gengi krónunnar til að slá á þenslu
og draga úr verðbólguvæntingum.
KB banki segir að hætta sé á að slík
gengishækkun sé einungis frestun
á verðbólgu en ekki sé komið í veg
fyrir hana. Í öðru lagi telur KB
banki aðgerðirnar ýta undir óstöð-
ugleika í fjármálakerfinu þar sem
erlend skuldsetning aukist. Í þriðja
lagi nefnir KB banki að gengis-
styrking komi sér mjög illa fyrir
útflutningsfyrirtæki. - þk
MÁLAR MYND AF BARGHUTI
Marwan Barghuti, sem hafði áður lýst yfir
stuðningi við Mahmud Abbas, fór óvænt í
framboð fimm dögum eftir að hann sagð-
ist ekki gefa kost á sér.
SÉR VERÐBÓLGUNA VIÐ SJÓNDEILDARHRINGINN
Birgir Ísleifur Gunnarsson á fundi Seðlabankans í gær. Búist er við miklum hagvexti á
næstu árum en bankinn óttast skugga verðbólgunnar og hækkaði vexti því meira í gær en
hann hefur áður gert.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
HERMENN Í ÍRAK
Óttast er að fram-
lenging á veru her-
manna í Írak valdi
óánægju í herliðinu.
02-03 fréttir 2.12.2004 21:50 Page 2