Fréttablaðið - 03.12.2004, Page 4
STJÓRNMÁL Ákvörðun félagsmála-
ráðherra hefur hvetjandi áhrif á
verðbólguna og hækkandi áhrif á
íbúðaverð, þó ekki í sama mæli og
hefði verið ef bankarnir hefðu
ekki verið komnir sterkir inn á
íbúðalánamarkaðinn. Tryggvi Þór
Her- £bertsson, forstöðumaður
Hagfræðistofnunar Háskóla Ís-
lands, segir að áhrifin séu mun
minni vegna þess að bankarnir
séu svo sterkir á þessum mark-
aði. „Það er óvíst að þetta hafi
áhrif nema á landsvæðum þar
sem bankarnir eru óviljugri til að
lána.“
Björn Þorri Viktorsson, for-
maður Félags fasteignasala, segir
hækkunina bráðnauðsynlega og
löngu tímabæra en kannski í það
knappasta. „Fyrirgreiðsla Íbúða-
lánasjóðs hefur lent utangarðs
hjá kaupendum vegna þess að
þeir hafa ekki náð að fjármagna
viðskipti sín með núverandi há-
marki. Þetta eykur möguleika
fólks á að setja saman fleiri teg-
undir af fjármögnun.“
Edda Rós Karlsdóttir, for-
stöðumaður greiningardeildar
Landsbankans, telur að nýju regl-
urnar hafi þau áhrif að Íbúðalána-
sjóður geti betur tekið þátt í
samkeppninni við bankana. Ekki
verði um þensluhvetjandi áhrif
að ræða. - ghs
4 3. desember 2004 FÖSTUDAGUR
Íbúðalán:
Áhrif meiri út á landi
Húsnæðislán hækkuð
og veðrými aukið
Félagsmálaráðherra tilkynnti hækkun hámarksíbúðalána upp
í 14,9 milljónir þegar Alþingi samþykkti 90% lán í gær.
Íbúðalánasjóður gefur eftir fyrsta veðrétt.
STJÓRNMÁL Árni Magnússon félags-
málaráðherra tilkynnti í umræð-
um á Alþingi í gær að hann myndi
gefa út greinargerð þar sem
Íbúðalánasjóði yrði heimilað að
hækka hámarkslán í 14,9 milljónir
um leið og lög sem samþykkt voru
í gær tækju gildi. Lögin heimila
íbúðalánasjóði að hækka há-
markslán upp í 14,9 milljónir
króna en hámarkið var 13 milljón-
ir þegar frumvarpið var lagt
fram.
Frumvarpið gerir ráð fyrir að
lána megi 90% af markaðsvirði til
kaupa á „hóflegu húsnæði“ en það
er samkvæmt lögunum 110 til 130
fermetra íbúð. 14,9 milljónirnar
eru miðaðar við meðalverð síð-
ustu sex mánaða á slíku húsnæði.
Félagsmálaráðherra tilkynnti
jafnframt að hann myndi gefa út
reglugerð þar sem hann heimilaði
íbúðalánasjóði að fallast á að lán
annarra lánastofnana færu á
fyrsta veðrétt eignar. Bankar sem
boðið hafa lág fasteignalán að
undanförnu hafa gert það að skil-
yrði að þau væru á fyrsta veðrétti
og því hefur fólk orðið að greiða
upp húsnæðislán sín. Hafa ber í
huga að lán íbúðalánasjóðs eru að-
eins veitt við kaup og sölu hús-
næðis.
Árni Magnússon sagði í ræðu
sinni á Alþingi að hann teldi örð-
ugt að sjá að aðgerðirnar hefðu
nokkur efnahagsleg áhrif eða ýttu
við fasteignaverði: „Með þessum
aðgerðum tel ég að ég hafi gripið
til þeirra aðgerða sem mér eru
fær, í því augnamiði að tryggja
stöðu Íbúðalánasjóð og þar með
ríkissjóðs, við gjörbreyttar að-
stæður á húsnæðislánamarkaði.“
Jóhanna Sigurðardóttir, þing-
maður Samfylkingarinnar, sagði
að með þessu hefði ráðherra kom-
ið til móts við sjónarmið sem hún
hefði sett fram í umræðum um
malið: „Ég fagna þessum breyt-
ingum.“
Samflokksmenn Árna fögnuðu
og sagði Birkir Jón Jónsson að nú
hefði Framsóknarflokkurinn stað-
ið við kosningaloforð sitt. Hjálm-
ar Árnason, formaður þingflokks
Framsóknar, tók stórt upp í sig:
„Þetta er áhrifamesta stjórn-
valdsaðgerð til að bæta hag heim-
ilanna sem um getur og mun
hækka ráðstöfunartekjur um tugi
ef ekki hundruð þúsunda.“
a.snaevarr@frettabladid.is
Seltjarnarnes:
Sundlaugin
endurbætt
BÆJARMÁL Sundlaug Seltjarnarness
verður endurbætt fyrir um 400
milljónir króna á næstu árum. Bæj-
arstjórnin hefur samið við Verk-
fræðistofu Sigurðar Thoroddsen
hf. um hönnun og ráðgjöf vegna
framkvæmdanna.
Framkvæmdir munu hefjast á
næsta ári og er áætlað að ljúku
fjórum af fimm hlutum þeirra árið
2006. Bæjaryfirvöld ætla að fjár-
magna endurbæturnar að mestu
með sölu á landi undir byggingar á
Hrólfsskálamel og við Suðurströnd
og getur því tímaáætlun hugsan-
lega raskast gangi fyrirhugaðar
framkvæmdir þar ekki eftir. ■
Grikkir og evran:
Fengju ekki
aðild í dag
ESB, AFP Grikkir hefðu ekki fengið
aðild að evrusvæðinu ef bókhald
þeirra hefði verið í samræmi við
raunveruleikann og fengju ekki
aðild í dag. Þetta er
niðurstaðan af
rannsókn fram-
kvæmdastjórnar
Evrópusambands-
ins á brotum
Grikkja á reglum
evrusvæðisins.
Grikkir þurftu,
líkt og önnur ríki,
að sýna fram á það
við upptöku evr-
unnar að halla-
rekstur ríkissjóðs
næmi ekki meira
en þremur prósent-
um af vergri lands-
framleiðslu. Reikningarnir sýndu
á sínum tíma að Grikkir væru vel
innan þeirra marka en ný stjórn
sem tók við völdum í vor viður-
kenndi að ríkisreikningar hefðu
ekki endurspeglað raunveruleik-
ann. ■
■ EVRÓPA
Hefur þú áhyggjur af fuglaflensu?
Spurning dagsins í dag:
Sendir þú jólapakka til útlanda?
Niðurstöður gærdagsins
á visir.is
48,2%
51,8%
Nei
Já
KJÖRKASSINN
Farðu inn á fréttahluta visir.is
og segðu þína skoðun
Héraðsdómur Reykjavíkur:
Ákærðir fyrir
líkamsárásir
DÓMSMÁL Þrír menn, fæddir árin
1983 og 1984, hafa verið ákærðir
fyrir tvær líkamsárásir sem
framdar voru á Bergstaðastræti í
október í fyrra.
Í ákærunni segir að saman hafi
mennirnir ráðist á mann með högg-
um og spörkum. Maðurinn féll í
götuna við árásina og héldu þeir
áfram að sparka í hann þar sem
hann lá í götunni. Maðurinn bólgn-
aði og marðist á höfði og í andliti,
hlaut heilahristing og tognaði á
kjálkalið. Með sömu aðförum eru
mennirnir sagðir hafa ráðist á ann-
an mann á sama stað þannig að sá
nefbrotnaði og marðist á auga. - hrs
edda.is
„UMFRAM ALLT: TÖFF“
„Bók í anda Tarantinos, hæfilega blóðug og
hæfilega fyndin. En umfram allt: töff.“
Úlfhildur Dagsdóttir, bókmenntir.is
30%
afsláttur
VOPNASALAN MARGFALDAST
Tekjur þýskra fyrirtækja af
vopnasölu voru fjórfalt meiri í
fyrra en árið 2002. Þýsk fyrir-
tæki seldu vopn fyrir andvirði
115.000 milljarða króna í fyrra.
Stóran hluta söluaukningarinnar
mátti rekja til sölu fjögurra her-
skipa til Malasíu og Suður-Amer-
íku.
MORÐINGJUM SLEPPT Ef sam-
komulag næst milli Sinn Fein og
DUP, harðlínuflokka kaþólikka og
mótmælenda á Norður-Írlandi,
um stjórnarsamstarf verður
morðingjum írsks lögreglumanns
sleppt úr fangelsi. Bertie Ahern,
forsætisráðherra Írlands, segir
það gert til að liðka fyrir samn-
ingum.
TRYGGVI ÞÓR HERBERTSSON
Óvíst er að ákvörðun félagsmálaráðherra
„hafi áhrif nema á landsvæðum þar sem
bankarnir eru óviljugri til að lána,“ segir
Tryggvi Þór.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
SEÐLABANKI
EVRÓPU
Fjárhagur gríska
ríkisins virtist í
góðu lagi 1999
en þegar að var
gáð var hann
mun verri en
haldið var fram.
ÁRNI MAGNÚSSON
Framsóknarmenn telja 90% lánin áhrifamestu stjórnvaldsaðgerð sem um getur til að
bæta hag heimilanna.
Íslenska ríkið:
Bætur fyrir
stolið kjöt
DÓMSMÁL Íslenska ríkið er bóta-
skylt, samkvæmt dómi Hæstarétt-
ar, vegna hreindýrakjöts sem hvarf
úr vörslu lögreglunnar en áður
hafði lögreglan lagt hald á kjötið.
Hæstiréttur snéri dómi Héraðs-
dóms Austurlands sem hafði sýkn-
að ríkið af kröfum eigandans en
hann krafðist tæplega 300 þúsund
króna fyrir kjötið. Fallið hafði
verið frá kærumáli á hendur mann-
inum vegna ólöglegra hreindýra-
veiða. Ekki er vitað hver stal kjöt-
inu en rjúfa þurfti innsigli lögregl-
unnar til að komast að því. - hrs
■ ÍRAK
ÞRJÚ BÖRN LÉTUST Þrjú írösk
börn létu lífið í sprengjuárás
vígamanna á bandaríska herstöð
nærri Baquba, norður af Bagdad,
í gær. Sjö systkin voru að leik
nærri herstöðinni þegar árásin
hófst og létust þrjú þeirra, tíu,
tólf og fjórtán ára.
04-05 fréttir 2.12.2004 21:16 Page 2